Morgunblaðið - 11.11.2006, Side 76
76 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
sem þarf að eiga sam-
skipti við heilbrigð-
iskerfið, er alltof lang-
ur. Fólk bíður á
heilsugæzlustöðvum og
læknastöðvum. Fólk
bíður eftir aðgerðum.
Fólk bíður í símum. Það
er óskaplega langur
tími sem fer í það hjá
fólki að bíða eftir þjón-
ustu heilbrigðiskerf-
isins.
Það væri æskilegt að
forráðamenn þessara
miðstöðva heilbrigð-
isþjónustunnar efndu
til sérstakrar ráðstefnu
um það hvernig hægt er
að bæta þjónustu við almenning. Það
er úreltur hugsunarháttur að það sé í
lagi að bjóða sjúklingum upp á hvað
sem er. Biðraðir eru löngu horfnar í
þessu þjóðfélagi nema á starfs-
stöðvum heilbrigðiskerfisins, hvort
sem það er rekið af hinu opinbera eða
einstaklingum. Og ekkert tilefni til
að láta starfsfólk heilbrigðiskerfisins
komast upp með þetta fyrirkomulag
lengur.
Vilji nýjar kynslóðir kynnast því
hvernig þjóðfélagsskipan var í Aust-
ur-Evrópu á tímum sósíalismans er
þeim hinum sömu ráðlagt að fara í
ferð um miðstöðvar heilbrigðisþjón-
ustunnar.
Umferðin á höf-uðborgarsvæðinu
síðdegis í gær var skýrt
dæmi um hvers vegna
öngþveiti skapast á
götunum þótt einungis
sé föl á jörðu. Öng-
þveitið verður vegna
bíla sem eru ekki út-
búnir til að keyra um
göturnar jafnvel þótt
engin ófærð sé vegna
snjókomu heldur ein-
ungis minni háttar
hálka hér og þar.
Víkverji og fjölmarg-
ir aðrir tepptust í um-
ferðinni um Breiðholts-
hverfi einungis vegna
tveggja sendibíla sem lentu í vand-
ræðum af því að þeir spóluðu í þeirri
litlu hálku sem var og varla er hægt
að kalla hálku. Göturnar voru hálar
vegna bleytu.
Þegar komið er á þennan árstíma
er lítið vit í að aka um götur borg-
arinnar án þess að bílarnir séu sæmi-
lega vel búnir.
Að allt öðru:
Er ekki kominn tími til að heilsu-
gæzlustöðvar og raunar læknastöðv-
ar um alla borg taki það til alvar-
legrar athugunar og umræðu að
reyna að breyta og bæta þá þjónustu
sem fólki er veitt á þessum stöðvum.
Sá tími sem fer í það að bíða, hjá fólki
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins : Ef einhver þykist hafa öðlast þekk-
ingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og
þekkja ber . (I.Kor. 8, 2.)
Í dag er laugardagur
11. nóvember, 315. dag-
ur ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Verð á lífrænum vörum
ÞAÐ eru margir sem hafa áhuga á
að auka neyslu sína á lífrænum mat-
vörum en mér er til efs að aðrar
vörum hafi hækkað eitthvað sam-
bærilega í verði að undanförnu og
ýmsar lífrænar vörur.
Ég var að kaupa 200 g poka af líf-
rænum möndlum í byrjun sumars á
tæplega 400 kr., núna kostar svona
poki tæplega 800 kr. í Blómavali. Ég
keypti lífrænar valhnetur í Hag-
kaupum í byrjun október sl. á 259 kr.
eða það stóð á hillunni. Þegar á kass-
ann kom kom í ljós að þær kostuðu í
rauninni 399 kr.
Síðan er það saga út af fyrir sig að
sumar verslanir hafa bæði brotnar
og óbrotnar (hálfar) valhnetur á
sama verði. Ég vil þó hrósa því að
sætu kartöflurnar frá Earth Bound í
Hagkaupum hafa lengi verið á sama
verði, tæpar 600 kr. kg. Hins vegar
greip ég tvær sætar kartöflur í
Blómavali um daginn – fann ekki
verð á þeim – en við kassann kom í
ljós að kílóið kostaði 1111 kr. kg.
Avocado hefur hækkað umtalsvert
og svona mætti lengi telja.
Svo fer maður í Bónus og þar eru
þær lífrænu vörur sem þar fást
miklu, miklu ódýrari en annars stað-
ar. Fræið í Fjarðarkaupum er líka
oft með ódýrari vörur en annars
staðar. Það ber mest á einu merki á
markaðinum sem tengir sig við
sanngirni í verslun og hneturnar
sem ég nefndi eru af
þeirri tegund.
Væri ekki kjörið hjá
innflytjendum að koma
með önnur og ódýrari
vörumerki á markað-
inn? Bónus gat allt í
einu komið með ban-
ana á u.þ.b. 250 kr. kg,
þegar maður hafði ekki
séð þá á undir 600 kr.
um langt skeið.
Brynja.
Ábending til hjólreiðamanns
ÁGÆTI hjólreiðamaður sem kom
hjólandi aftan að mér og hundinum
mínum þriðjudaginn 7. nóvember á
göngustígnum neðan við Háskóla Ís-
lands.
Vildi benda þér á að samkvæmt
sérreglum fyrir reiðhjól, 39. gr., bar
þér í fyrsta lagi að gera mér vart við
þig, þar sem þú kemur aftan að mér í
algjöru myrkri, þá hefðum við
örugglega vikið fyrir þér, hið fyrsta.
En þar sem þú varst bæði bjöllulaus
og ljóslaus, þá gastu það ekki, nema
hreyta í mig og hundinn. Samkvæmt
reglugerð um búnað reiðhjóla, 4.gr
og 7.gr., ber hjólreiðamönnum
skylda til að hafa ljós bæði aftan og
framan, og reiðhjól skal hafa bjöllu.
Í öðru lagi, samkvæmt sömu grein
(39. gr), ber hjólreiðamanni að víkja
alfarið fyrir gangandi vegfaranda, á
göngustígum og gangstéttum. Þann-
ig að kæri hjólreiðamaður, þá berð
þú skömmina í þetta sinn.
Ef ég á einhvern hátt hef móðgað
þig í samskiptum okkar, þá bið ég
þig afsökunar á því.
Gangandi vegfarandi og
hundurinn hennar.
Digital myndavél í óskilum
DIGITAL myndavél í poka fannst í
strætó. Upplýsingar í miðasölunni á
Hlemmi eða í síma 540 2701.
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Hlutavelta | Þessir duglegu drengir,
Hrannar Þór Rósarsson og Arnaldur
Skorri Jónsson, héldu tombólu í versl-
unarmiðstöðinni Glerártorgi á Akur-
eyri og söfnuðu þeir kr. 2.550 til styrkt-
ar Rauða krossi Íslands.
Hlutavelta | Skúli Eggert Kristjáns-
son Sigurz og Fannar Guðni Guð-
mundsson söfnuðu kr. 37.643 með því
að halda tombólu við Nóatún í Sala-
hverfi í Kópavogi. Þeir færðu Rauða
krossinum ágóðann.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að berast
með tveggja daga fyrirvara virka daga
og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100 eða sent á net-
fangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919
Varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
BESTA MYND
MARTINS
SCORSESE
TIL ÞESSA
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
MÝRIN kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára.
FLY BOYS kl. 3 - 6 - 9 B.i. 12.ára.
THE DEPARTED kl. 9 B.i. 16.ára.
THE LAST KISS kl. 3 - 5:30 - 8 B.i. 12.ára
THE QUEEN kl. 5:50 B.i. 12.ára.
BÖRN kl. 3 - 8 B.i.12.ára.
THE GUARDIAN kl. 10:30 B.i. 12.ára.
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
„MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“
Vel gerð og rómantísk með þeim Zach Braff
(„Scrubs“, „Garden State“), Rachel Bilson
(„The O.C.“ þættirnir) ofl.
eeee
EMPIRE MAGAZINE
eeee
SV, MBL
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
eee
EGB, TOPP5.IS
INNIHELDUR
MAGNAÐAR
ÁTAKASENUR Í
HÁLOFTUNUM
SEM OG
FRÁBÆRAR
TÆKNIBRELLUR.
FRÁ FRAMLEIÐANDA „THE PATRIOT“ OG „INDEPENDENCE DAY“ MEÐ ÞEIM JAMES
FRANCO ÚR „SPIDERMAN“ MYNDUNUM OG JEAN RENO („THE DA VINCI CODE“).
BÖRNeeeÓ.H.T. RÁS2
eeee
HEIÐA MBL
tilnefningar til
Edduverðlauna8