Morgunblaðið - 11.11.2006, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 77
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fyrir löngu síðan, í stjörnuþoku langt í
burtu, sagði mikill Jedi sem kallast
Yoda, „gerðu eða gerðu ekki, það er
engin tilraun“. Ef þú hefur það í huga
áttu eftir að ná því sem þú þarft til þess
að ávinna þér virðingu einhvers nákom-
ins.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í byrjun sambands varstu til í að líta
framhjá göllum hinnar manneskjunnar,
hlæja og deila með og vera eins og þú
átt að þér. Ef þú ert enn til í að vera
þannig áttu eftir að upplifa alsælu í
sambandinu núna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ný manneskja fær þig til þess að ljóma
af skapandi orku. Vanræktir hlutar
sjálfs þín lifna við. Með því að sjá
listina í því sem þú fæst við og hafa
yndi af nærðu að breyta þínu eigin lífs-
hlaupi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt einhver beri vandamál á borð fyrir
þig er ekki þar með sagt að þér beri
sjálfkrafa að lagfæra það. Þú hefur
engan tíma aflögu til þess að láta
flækja þér í drama annarra. Veldu og
hafnaðu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það sem ljónið myndi að öllu jöfnu líta
á sem pressu er í rauninni tækifæri til
þess að skara framúr. Lykilatriðið er
að kynna sjálfan sig vel. Nýir við-
skiptamöguleikar í félagi við naut eða
krabba fela í sér glæsilegt efni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Að byrja nýtt samband er að sumu
leyti ekki ólíkt því að kveikja eld.
Kannski þarftu að kveikja á nokkrum
eldspýtum og blása helling í glæðurnar
og færð jafnvel reyk í augun, en um
leið og hann lifnar við þarftu eiginlega
ekkert að gera.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Voginni finnst hún ekki heil nema and-
legur þáttur í tilteknum aðstæðum sé í
lagi. Það er ekkert varið í að hreppa
verðlaun sem maður á ekki skilið. Þú
vilt frekar leggja þig fram og eiga skil-
ið það sem þú færð.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Horfurnar í peningamálum eru góðar
ef þú ert til í að gefa eitthvað upp á
bátinn í staðinn fyrir að þéna meira.
Líklega er eitthvað sem þig hefur lengi
langað að vera án hvort eð er.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ef áfall steðjar að, skaltu ekki sitja og
bíða eftir því að eitthvað meira gerist.
Ekki er víst að það sé sjálfgefið. Ef þú
tekur af skarið nærðu jafnvel að snúa
aðstæðunum þér í hag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Siðareglur steingeitarinnar eru fastar í
sessi. Ef einhver hluti samnings fer
ekki vel í hana, getur hún ekki gengið
frá honum. Leggðu mat á breytni þína
til þess að tryggja að hver einasti þátt-
ur sé í lagi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Lykillinn að krafti þínum núna er
áhugi. Ef þú beinir áhuga þínum á
einni manneskju að annarri, verður
hann eins og ást. Leyfðu góðum
straumum að flæða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn gerir ókunnuga að vinum
hvert sem hann fer. Það hefur eitthvað
með hluttekningu og samúð hans að
gera. Fjölskyldan treystir á að þú nýtir
þér þennan hæfileika heima fyrir líka.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í ljóni er eins og
dansmær sem stráir
glimmeri á uppáhalds-
verkefnin okkar og hvetur
okkur til að fagna því sem
vel er gert. Klæðum okkur
upp og förum eitthvað út eins og ýktari
útgáfan af okkur sjálfum. Umræðuefni
eru fyndin, ýkt og jafnvel algerlega ósönn,
en aldrei leiðinleg. Heppnin fylgir þeim
sem reynir eitthvað sem hann myndi að
öllu jöfnu sneiða hjá.
SPARBÍÓ á allar sýningar merktar með appelsínugulu á laugardögum og sunnudögum
/ KEFLAVÍK
SKÓGARSTRÍÐ m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
BORAT kl. 8 - 10 B.I. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
BÖRN kl. 8 B.I. 12
THE DEPARTED kl. 10 B.I. 16
MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI
FLY BOYS kl. 8 - 10:30 B.I. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
MATERIAL GIRLS kl. 4 - 6 LEYFÐ
BÖRN kl. 8 B.I. 12
THE DEPARTED kl 10 B.I. 16
THE THIEF LORD kl. 2 LEYFÐ
Sýnd í
Sambíóunum
í Kringlunni
og Keflavík
Eruð þið tilbúin fyrir eina
fyndnustu mynd
allra tíma?
eeeee
THE MIRROR
eeeee
V.J.V. - Topp5.is
T.V. - Kvikmyndir.com
eeee
S.V. MBL
eeeee
EMPIRE
/ ÁLFABAKKA
FLY BOYS kl. 5 - 8 - 10:50 B.I. 12
FLY BOYS VIP kl. 2 - 8 - 10:50
ADRIFT kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i.12
THE DEPARTED kl. 8 - 10:10 - 10:50 B.i. 16
THE DEPARTED VIP kl. 5
THE LAST KISS kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:30 B.i. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 1:45 - 4 - 6 LEYFÐ
BARNYARD m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ
JACKASS NUMBER TWO kl. 4 - 8 B.i. 12
ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 1:45 - 3:50 LEYFÐ
BÍLAR m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
OVERTHEHEDGE m/ísl. tali kl. 1:45 LEYFÐ
MAURAHRELL.. m/ísl. tali kl. 1:45 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
ADRIFT kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.I.12
BORAT kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.I. 12
THE DEPARTED kl. 8 - 10:45 B.I. 16 DIGITAL
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
MATERIAL GIRLS kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
THE THIEF LORD kl. 2 LEYFÐ
UPPRUNALEGU PARTÝ-DÝRIN ERU MÆTT
eeee
H.Ó. MBL
eee
LIB Topp5.is
eeee
EMPIRE MAGAZINE
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI „MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI
BESTA MYND
MARTINS
SCORSESE TIL
ÞESSA
INNIHELDUR MAGNAÐAR ÁTAKASENUR Í
HÁLOFTUNUM SEM OG FRÁBÆRAR TÆKNIBRELLUR.
MÖGNUÐ SPENNUMYND SEM
BYGGÐ ER Á SÖNNUM ATBURÐUM.
SEX VINIR LEGGJA Í AFDRIFARÍKA SIGLINGU
SEM Á EFTIR AÐ DRAGA DILK Á EFTIR SÉR.
UNDIRBÚÐU ÞIG UNDIR MAGNÞRUNGNA SPENNU.
FRÁ FRAMLEIÐANDA „THE PATRIOT“ OG „INDEPENDENCE
DAY“ MEÐ ÞEIM JAMES FRANCO ÚR „SPIDERMAN“
MYNDUNUM OG JEAN RENO („THE DA VINCI CODE“).
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali!
eeee
Kvikmyndir.is
Forsala hafin17. NÓV kl. 3 - 6 - 9 - 1218. NÓV kl. 3 - 6 - 9 - 12 19. NÓV kl. 1:30 - 4:30 - 7:30 - 10:30 17. NÓV kl. 7 - 1018. NÓV kl. 5 - 8 - 11 19. NÓV kl. 4 - 7 - 10
ÁLFABAKKI
sýnd í sal 1
og VIP
Sýningar
-
tímar
KEFLAVÍK
„THE WILD“
ÓBYGGÐIRNAR
Sýnd með íslensku tali !
SparBíó* : 450 KR MIÐAVERÐ Á OFANTALDAR MYNDIR kl: 1:45 og 2
Laugardag og Sunnudag Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
Nýtt
OVER THE HEDGE M/- ÍSL TAL. KL. 1:45 Í ÁLFABAKKA
BÆJARHLAÐIÐ M/- ÍSL TAL. KL. 1:45 Í ÁLFABAKKA OG KL. 2 Á AK. OG Í KEFL.
ÓBYGGÐIRNAR M/- ÍSL TAL. KL. 1:45 Í ÁLFABAKKA
MAURAHRELLIRINN M/- ÍSL TAL. KL. 1:45 Í ÁLFABAKKA
SparBíó* — 450kr
BÍLAR M/- ÍSL TAL. KL. 2 Í ÁLFABAKKA
Myndband sem talið er sýnaBritney Spears og Kevin Fe-
derline við kynlífsathafnir hefur
verið birt á Netinu, tveimur dögum
eftir að Britney sótti um skilnað, og
eru nú uppi getgátur um að Federl-
ine hafi birt myndbandið. Áður hef-
ur verið greint frá tilvist mynd-
bandsins í fjölmiðlum og fyrir
nokkru úrskurðaði dómari að um-
fjöllun bandaríska tímaritsins Us
Weekly um tilvist myndbandsins
væri ekki ærumeiðandi.
Myndbandið var birt á síðu sem
vistar slík myndbönd í gær en þar
kemur fram að það sé birt af not-
anda sem kallar sig „Stripper“. Tals-
maður síðunnar sem um ræðir segir
starfsmenn síðunnar vera sammála
um að konan sem sjáist á mynd-
bandinu líkist mjög Britney Spears.
Þá segir hann að til þess að birta
myndband á síðunni verði fólk að
sýna fram á tengsl sín við þá sem
þar koma fram.
Og enn af söngkonunni. Britney
Spears er nú sögð hafa boðið tíma-
ritum myndir af nýfæddum syni sín-
um og Kevins Federline endur-
gjaldslaust til að koma í veg fyrir að
Federline geti selt þær. Þá herma
sögusagnir að í kaupmála sem þau
gerðu áður en þau gengu í hjóna-
band árið 2004 sé kveðið á um að all-
ur ágóði af sölu mynda af brúðkaupi
þeirra og börnum falli í hlut Kevins.
Britney og Kevin seldu tímaritinu
People myndir af eldri syni sínum,
Sean Preston, á síðasta ári en enn
hafa ekki birst myndir af yngri syn-
inum, Jayden James. Nú er hún hins
vegar sögð vilja nota myndir af syni
sínum til að koma sér á framfæri og
klekkja á Federline í leiðinni.
Spears sótti um skilnað frá Fe-
derline á þriðjudag og fór við sama
tækifæri fram á fullt forræði yfir
börnunum. Federline fór síðan fram
á fullt forræði yfir þeim í gær.
Fólk folk@mbl.is