Morgunblaðið - 11.11.2006, Síða 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 315. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hægt og bjart
veður vestan til,
en lægir smám
saman og rofar til
austanlands. Suðaustan 5–8
m/s og þykknar upp vest-
anlands í kvöld.» 8
Heitast Kaldast
-1°C -5°C
ÁHUGAFÓLK um að Gröndalshúsið svokallaða verði
áfram á sínum stað, á Vesturgötu 16, fór í gær blys-
för að húsinu en lagt var upp frá Gröndalshúsi í
Þingholtsstræti.
Nokkur hópur fólks tók þátt í blysförinni en þegar
á leiðarenda var komið var lesin upp yfirlýsing og
einnig ljóð eftir skáldið, Benedikt Gröndal, sem bjó í
húsinu. Vildu aðstandendur blysfararinnar með þessu
mótmæla fyrirhuguðum flutningi hússins á Árbæj-
arsafn.
Morgunblaðið/Sverrir
Blysför að Gröndalshúsi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
FORSTJÓRI Sjóvár hefur ritað sam-
gönguráðherra og lögreglustjóra höfuð-
borgarsvæðisins bréf og óskað eftir því að
þeir skoði hugmyndir fyrirtækisins um að
tryggingafélög fái einhvers konar aðgang
að upplýsingum um umferðarlagabrot. Til-
gangurinn er sá að gera félögunum kleift
að láta þá einstaklinga, sem fremja alvar-
leg umferðarlagabrot, greiða hærri iðgjöld
en iðgjöld þeirra sem virða umferðarlögin
myndu að sama skapi lækka.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, viðraði
þessar hugmyndir fyrir skemmstu en með
bréfunum hefur félagið komið þeim form-
lega á framfæri við stjórnvöld.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Þór að
nauðsynlegt væri að huga að þeim sem
höguðu sér glæfralega í umferðinni enda
væru þeir valdir að mörgum slysum og
dýrum tjónum. „Þegar ég heyri af ein-
staklingi sem keyrir á 170 kílómetra hraða
á Sæbraut hlýt ég að hugsa með mér
hvort hann sé nokkuð tryggður hjá mér,“
umferðarlög fimm til tíu sinnum á ári
greiða sama iðgjald og sá sem hefur aldrei
brotið umferðarlög?“ spurði Þór. Það væri
einnig ljóst að það hefði verulegt forvarn-
argildi ef umferðarlagabrot gætu leitt til
hærri iðgjalda.
Í bréfinu leggur Þór til þrjár mismun-
andi útfærslur á upplýsingagjöf stjórnvalda
til tryggingafélaganna. Samkvæmt þeirri
fyrstu væri upplýsingagjöfin einskorðuð við
aðgang að upplýsingum um glæfraakstur,
s.s. ölvunarakstur, hraðakstur, akstur án
ökuréttinda eða önnur brot sem jafngiltu
3–4 punktum í ökuferilsskrá. Þá fengju fé-
lögin upplýsingar um ökuleyfissviptingar.
Önnur útfærsla gerir ráð fyrir að félögin
fengju aðgang að ökuferilsskrá allra öku-
manna. Þá væri einnig hægt að verðlauna
þá ökumenn sem væru punktalausir.
Þriðja útfærslan gengur út á að vátrygg-
ingafélögin fengju upplýsingar úr ökufer-
ilsskrá um skráningarnúmer og fastanúmer
ökutækja sem notuð hafa verið við alvarleg
umferðarlagabrot og er vísað til þess að
ökutækjatryggingar eru tengdar ákveðnu
ökutæki, óháð því hver ökumaðurinn er.
sagði hann. Ökumenn sem höguðu sér
svona í umferðinni væru klárlega í
áhættuhópi hjá vátryggingafélögum og því
væri eðlilegt að velta því fyrir sér hvort
félögin gætu fengið upplýsingar um hverj-
ir það væru sem stofnuðu sér og öðrum í
stórkostlega hættu með aksturslagi sínu.
Þór benti á að vátryggingafélög í Bret-
landi, Þýskalandi og víðar hefðu aðgang
að aksturssögu einstaklinga og þar hækk-
uðu iðgjöldin sjálfkrafa ef viðkomandi
næði ákveðnum punktafjölda. Við ítrekuð
og alvarleg brot gætu tryggingafélögin
jafnvel sagt tryggingum þeirra upp.
„Hvers vegna skyldi sá sem brotið hefur
Vilja fá upplýsingar
um umferðarlagabrot
Í HNOTSKURN
»Tryggingafélögin vilja að þeim ségert kleift að láta þá einstaklinga
sem fremja alvarleg umferðarlagabrot
greiða hærri iðgjöld.
»Víða erlendis hafa vátrygginga-félög aðgang að aksturssögu fólks.
FIMMTÍU og tvö banaslys hafa orðið á veginum milli
Reykjavíkur og Selfoss frá árinu 1973, umferð-
aróhöppin síðustu sextán árin eru orðin 2.576. Ráða-
menn og nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands og
Gagnfræðaskóla Hveragerðis héldu athöfn við Kög-
unarhól í Ölfusi í gær til að vekja athygli á þessum
staðreyndum og voru reistir 52 krossar á staðnum til
að minnast þeirra sem látist hafa í bílslysum. | 28
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Krossar reistir
við Kögunarhól
ALLS eru um 490 nemendur á al-
mennum námskeiðum í íslensku hjá
Mími-símenntun nú á haustönn og
eru þeir frá 58 þjóðlöndum. Þessar
upplýsingar fengust hjá Mími-sí-
menntun í gær. Langflestir koma frá
Póllandi en einnig er nokkur fjöldi
frá Litháen, Þýskalandi, Filippseyj-
um og Taílandi. Á þessu ári hafa um
1.500 nemendur sótt íslenskunám-
skeið hjá Mími-símenntun.
Mímir-símenntun hefur í mörg ár
haldið námskeið fyrir útlendinga
sem óska eftir að læra íslensku.
Haustið 2005 gerðu Mímir-símennt-
un og Námsflokkar Reykjavíkur
með sér þjónustusamning um ís-
lenskukennslu fyrir allt að 700 út-
lendinga með aðsetur í Reykjavík.
100 milljónir til íslensku-
kennslu fyrir útlendinga
Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi
í gær að verja 100 milljónum króna á
næsta ári til sérstaks verkefnis sem
ráðist verður í um íslenskukennslu
fyrir útlendinga. Markmið verkefn-
isins á að verða að koma íslensku-
kennslu fyrir útlendinga í það horf
sem vel verði við unað, að sögn Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra. | 14
Íslensku-
nemar frá
58 þjóð-
löndum ÞAÐ er ekki algengt að þeir semskipuleggja hlaupakeppni á Íslandi
vonist eftir sem mestu roki á keppn-
isdag en sú er þó raunin með Fríska
Flóamenn sem í dag standa fyrir
„Hlaupið undan vindi“ sem er 10 km
götuhlaup. Engu skiptir hvort blæs
af norðri eða suðri, vindurinn verður
alltaf í bakið þar sem vindáttin ræð-
ur því hvort hlaupið verður upp eða
niður Gaulverjabæjarveg í Flóanum.
Brautin er nánast flöt, eins og Flóinn
mestallur, og verði hlauparar svo
heppnir að lenda í norðan- eða sunn-
anroki geta þeir búist við að koma í
mark á frábærum tíma. Þetta er í
fjórða sinn sem hlaupið er haldið og
aðeins einu sinni hefur tekist svo illa
til að hlaupið bar upp á lygnan dag.
„Það er afskaplega hressandi að
þurfa aldrei að kvíða mótvindinum,“
sagði Jón Frantzson, einn Frískra
Flóamanna, í samtali við Morg-
unblaðið. Hlaupið sé frábært tæki-
færi fyrir hlaupara til að nýta sér ís-
lenska veðráttu.
Skráning fer fram milli 9.30 og
10.30 við sundlaugina á Selfossi og á
www.hlaup.is. Rúta fer frá sundlaug-
inni um kl. 10.40 og ekur öllum að
rásmarki og skutlar einnig til baka.
Innifalið í 1.000 kr. þátttökugjaldi er
rútuferðin og miði í sundlaugina.
Ræst verður kl. 11, hvort sem hlaup-
ið verður til suðurs eða norðurs.
Þurfa aldrei
að kvíða
mótvindi