Morgunblaðið - 26.11.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 322. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
JÓI FEL. MÆLIR MEÐ KORNAX-HVEITI
Kornax hveitimylla | Korngörðum 11 - 104 Reykjavík | Sími 540 8700 | kornax@kornax.is | www.kornax.is
F
A
B
R
IK
A
N
„Þú finnur bara ekki betra hveiti.“
BÓNDI UM STUND
ÓSKAR ATHAFNASKÁLD OG SÓKNAR-
NEFNDARFORMAÐUR Í FLJÓTSHLÍÐINNI >> 28
STUTTMYNDIR
FÉLAG KVIKMYNDA-
GERÐARMANNA 40 ÁRA
FJÖRUTÍU AUGU >> 62
SÍÐARI umferð forsetakosninga í
Ekvador fer fram í dag og stendur
valið á milli auðkýfingsins Alvaro
Noboa og Rafael Correa, fyrrver-
andi fjármálaráðherra.
Fyrri umferð kosninganna fór
fram um miðjan október. Þá hlaut
Noboa 26,8% atkvæða en Correa
22,8%.
Baráttan fyrir síðari umferðina
hefur verið geysilega hörð og ein-
kennst af svívirðingum og lyga-
brigslum. | 22
Forseta-
kosningar í
Ekvador
Reuters
Kosningar Í forsetakosningunum í Ekvador í dag stendur valið á milli
Alvaro Noboa og Rafael Correa, fyrrverandi fjármálaráðherra.
Sjanghæ. AP. | Fyrsta stefnumótasiglingin í
Kína fór fram í gær og komust færri að en
vildu en ferðin var hugsuð fyrir vel efnaða
Kínverja í leit að lífsförunaut.
Vel menntaðir og vinnusamir Kínverjar
eiga í auknum mæli í erfiðleikum með að
finna tíma til að leita sér að maka. Skipu-
leggjandi stefnumótasiglingarinnar bend-
ir á að Kína sé fjölmennasta þjóð heims og
hjónabandið skipti miklu máli. Það sé hins
vegar auðveldara um að tala en í að kom-
ast fyrir önnum kafna menn.
Til þess að komast í siglinguna þurftu
karlmenn að eiga að minnsta kosti sem
samsvarar um 17,5 milljónum króna. Kon-
urnar urðu að vera háskólamenntaðar og
standast ákveðnar, strangar kröfur.
Vinsælt ástarfley
RÍKISSTJÓRNIR 12
ríkja í Suður-
Ameríku hafa gert
með sér sam-
komulag um að rík-
isborgarar landanna
geti ferðast á milli þeirra án þess að
sýna vegabréf.
Samkomulagið var gert í þeim til-
gangi að efla ferðaþjónustu og viðskipti
landanna auk þess sem stefnt er að
aukinni samvinnu á öðrum sviðum.
Löndin sem undirrituðu sam-
komulagið eru Argentína, Bólivía, Bras-
ilía, Chile, Kólumbía, Ekvador, Guyana,
Paragvæ, Perú, Surinam, Úrugvæ og
Venesúela.
Ferðast
án vegabréfa Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
JÓN Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, sagði í ræðu sinni
á miðstjórnarfundi flokksins í gær
að forsendur fyrir stuðningi Ís-
lands við innrásina í Írak hefðu
verið rangar og að ákvarðanir ís-
lenskra stjórnvalda í málefnum
Íraks hefðu verið „rangar eða mis-
tök.“ Ákvarðanaferlinu hefði einn-
ig verið ábótavant.
Orðrétt sagði Jón: „Mikið hefur
verið rætt um ákvarðanir íslenskra
stjórnvalda á sínum tíma um mál-
efni Íraks. Þær byggðust á röngum
upplýsingum. Forsendurnar voru
rangar og ákvarðanaferlinu ábóta-
vant. Þessar ákvarðanir voru því
rangar eða mistök.
Svonefndur listi um staðfastar
þjóðir var einhliða framsetning
Bandaríkjastjórnar og hluti af
þessari hörmulegu atburðarás.
Ákvarðanir um öryggismál og al-
þjóðaverkefni ber ævinlega að taka
eftir vandaðasta undirbúning og
eftir trúnaðarsamráð við lögmætar
stofnanir eins og utanríkismála-
nefnd Alþingis.
Við skulum tala hreinskilnislega
um þetta, hvort sem einhver okkar
tengdust þessu sjálf eða komu þar
hvergi nærri.“
Töluvert var klappað í fundar-
salnum eftir að formaðurinn hafði
látið þessi orð falla.
Jón ræddi mikið um góðan ár-
angur ríkisstjórnarinnar og sagði
að afl og styrkur Framsóknar-
flokksins væru skilyrði þess að hér
starfaði áfram ríkisstjórn í anda
frjálslyndrar og þjóðlegrar um-
bótastefnu. „Á tímum hraðra um-
brota og mikilla breytinga varðar
það þjóðina miklu að samvinnuafl
og umbótaafl á miðju stjórnmál-
anna, Framsóknarflokkurinn, hafi
styrk til að vinna að stöðugleika og
festu, ábyrgð og þjóðhollustu allri
þjóðinni til heilla,“ sagði Jón.
Tækifæri til sóknar
Í ræðu sinni stappaði Jón stálinu
í framsóknarmenn og sagði þá geta
gengið bjartsýna til kosningabar-
áttunnar fyrir alþingiskosningarn-
ar. Fylgi hefði mælst lítið í skoð-
anakönnunum en það væri á hinn
bóginn eftirtektarvert að um þriðj-
ungur kjósenda gæfi ekki upp af-
stöðu sína. Þar að auki segðust um
40% í skoðanakönnunum telja að
það væri heppilegt ef framsóknar-
menn væru í ríkisstjórn. Fram-
sóknarflokkurinn hefði því tæki-
færi til útrásar og sóknar.
Í kosningabaráttunni yrðu fjöl-
skyldumálin efst á baugi, málefni
barna og barnafjölskyldna og mál-
efni aldraðra og öryrkja myndu
ráða úrslitum. Þá skipti það meg-
inmáli á næstu mánuðum og í kosn-
ingunum að framsóknarmenn „nái
þeim mikilvæga árangri að mynda
þjóðarsátt um umhverfisstefnuna
þannig að allir nái samstöðu nema
þá hörðustu ofstækismenn,“ sagði
Jón Sigurðsson. | 4
Ákvarðanir um Írak
„rangar eða mistök“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hreinskilni „Við skulum tala hreinskilnislega um þetta, hvort sem einhver okkar tengdust þessu sjálf eða
komu þar hvergi nærri,“ sagði Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, um ákvarðanir í Íraksmálinu.
Ákvarðanaferli
ábótavant vegna
málefna Íraks
Hafa ber sam-
ráð við utanrík-
ismálanefnd
Í HNOTSKURN
» Um 150 manns sitja í mið-stjórn Framsóknarflokks-
ins, þ.á m. allir þingmenn og
ráðherrar. Einnig fyrrverandi
þingmenn Framsóknarflokks-
ins enda séu þeir félagsmenn.
» Þetta var fyrsta ræðaJóns Sigurðssonar á mið-
stjórnarfundi sem formaður.
» Jón sagði ákvarðanirstjórnvalda í málefnum
Íraks hafa verið teknar á
röngum forsendum og ákvarð-
anaferlinu verið ábótavant.
Ákvarðanirnar hefðu því verið
rangar eða mistök.
BANASLYS varð á Fljótsdalsheiði
skammt frá aðgöngum 1 fyrir ofan stöðv-
arhús Kárahnjúkavirkjunar í gærmorgun.
Hundrað kílóa þungur einangrari féll á
starfsmann undirverktaka Landsnets þar
sem unnið er að færslu Kröflulínu. Að sögn
Óskars Bjartmarz, yfirlögregluþjóns á Eg-
ilsstöðum, varð slysið á ellefta tímanum í
gærmorgun. Maðurinn var Króati og hafði
starfað um tíma hjá undirverktakanum við
Kárahnjúka. Þetta er fjórða banaslysið sem
verður við framkvæmdir vegna Kára-
hnjúkavirkjunar og það þriðja á þessu ári.
Banaslys við
Kárahnjúka
♦♦♦