Morgunblaðið - 26.11.2006, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 55
AUÐLESIÐ EFNI
Að minnsta kosti 200 manns
týndu lífi og vel á þriðja
hundrað særðust í mörgum
bíl-sprengingum í Sadr-borg,
helsta hverfi sjíta í Bagdad, á
fimmtu-dag. Dagurinn er þar
með sá blóðug-asti í borginni
frá því Bandaríkja-menn
réðust inn í Írak árið 2003.
Þetta virðist taka af allan
vafa um að í landinu geisi
borgara-styrjöld milli súnníta
og sjíta.
Á föstu-daginn báru íbúar
Sadr-borgar til grafar þá
ein-stak-linga sem létust í
sprengju-árásunum. Sjítar
fjöl-menntu í Bagdad og var
kistum komið fyrir á
bif-reiðum sem óku
lötur-hægt eftir götum
borgarinnar í átt að hinni
heil-ögu Najaf-borg og gekk
fólk á eftir þeim.
Írösk stjórn-völd hafa beðið
menn að sýna stillingu eftir
sprengju-árásirnar, en það
hafa aldrei verið meiri líkur á
því að trúar-bragða-styrjöld
muni brjótast út á milli sjíta,
sem eru í meiri-hluta, og
súnní-araba, sem öllu réðu í
valda-tíð Saddams Hussein.
Mikið blóð-bað í Bagdad
Reuters
Sjítar bera fórnar-lömb til grafar.
PIERRE Gemayel, kristinn
maroníti og ráð-herra í
Líbanons-stjórn, var ráðinn af
dögum í Beirút á
miðviku-daginn. Óttast er, að
morðið auki
spennuna í
líb-önskum
stjórn-málum
en Gemayel
var
and-stæðingur
Sýr-lendinga.
Gemayel var
skotinn í bíl
sínum og fluttur á sjúkra-hús
þar sem hann lést.
Gemayel var sonur Amin
Gemayels fyrr-verandi
for-seta landsins, sem einnig
var and-vígur Sýr-lendingum
og af-skiptum þeirra af
líb-önskum
innan-ríkis-málum. Bróðir
Gemayels, Bahir, var kjörinn
for-seti landsins árið 1982
en var myrtur nokkrum
dögum áður en hann átti að
taka við em-bætti.
Ráð-herra
drepinn í
Líbanon
Pierre
Gemayel
Lítvínenko látinn
Alexander Lítvínenko,
fyrr-verandi rúss-neskur
njósnari, lést á sjúkra-húsi í
London á fimmtu-dag. Allt
bendir til að eitrað hafi verið
fyrir hann. Suma grunar, að
rúss-nesk stjórn-völd eigi þátt
í dauða Lítvínenkos en þau
neita því alfarið.
Næst-mest lýð-ræði á Íslandi
Ísland er í 2. sæti á lista
rannsóknar-fyrirtækis breska
blaðsins The Economist yfir
lönd þar sem lýð-ræðið þykir
vera mest. Svíþjóð er í 1.
sæti en Hol-land í 3. sæti.
Banda-ríkin eru í 17. sæti og
Bret-land í 23. sæti.
Skortur á vinnu-afli
Skortur er nú á vinnu-afli í
Póllandi, þar sem um
800.000 Pólverjar hafa
flust frá heima-landi sínu
síðan það gekk í ESB.
Atvinnu-leysi er um 15% en
samt geta vinnu-veitendur
ekki fundið fólk til starfa í
byggingar-iðnaðinum og
heilbrigðis-geiranum.
Garðar Thór fær lof
Garðar Thór Cortes
tenór-söngvari er á
tón-leikaferð um
Bretlands-eyjar með velsku
söng-konunni Katherine
Jenkins, og hafa
gagn-rýnendur fjöl-miðla
hlaðið söngvarann lofi.
Stutt
Sam-tök verslunar og
þjón-ustu héldu á
miðviku-daginn fund um
vega-mál. Sturla Böðvarsson
samgöngu-ráðherra sagði þar
að farið yrði í stór-átak í
upp-byggingu á vega-kerfinu á
næstu árum.
Fjár-magna þarf
sérstak-lega tvö-földun
þjóð-vegar 1 milli Reykja-víkur
og Akur-eyrar og líka frá
Reykja-vík að Markar-fljóti
austan Hvols-vallar, að mati
ráð-herra. Hann vill að
undir-búningur að tvö-földun
á þessum stóru köflum á
þjóð-veginum verði tekinn út
úr hinum hefð-bundna
far-vegi vega-fram-kvæmda
og fjár-magnaður sem
átaks-verkefni.
Tvö-földun
á þjóð-vegi
Eignar-halds-félagið West Ham Holding, sem
saman-stendur af Eggerti Magnússyni og
Björgólfi Guðmundssyni, for-manni
banka-ráðs Lands-banka Íslands, keypti á
þriðju-dag 83% hlut í enska
knattspyrnu-félaginu West Ham. Kaup-verðið
er um 11,4 milljarðar króna, auk þess sem
West Ham Holding yfir-tekur skuldir upp á 3,1
milljarð.
„Enska úrvals-deildin er sennilega stærsta
fótbolta-keppni í heiminum og það að vera allt
í einu kominn við stjórn-völinn á einu þeirra
liða sem skipa þá deild er að sjálf-sögðu mikil
og spenn-andi á-skorun,“ segir Eggert sem
verður stjórnar-formaður félagsins.
Þrír aðrir Ís-lendingar koma líka í stjórn, þeir
Þór Kristjánsson, bankaráðs-maður í
Lands-banka Íslands, Guðmundur Oddsson,
lög-fræðingur í London, og Sighvatur
Bjarnason, for-stjóri Fisco. Björgólfur verður
heiðurs-forseti West Ham.
„Spenn-andi
á-skorun“
Reuters
Eggert og Andrew Pardew knattspyrnustjóri.
Skrekkur, hæfileika-keppni
ÍTR fyrir grunn-skóla
Reykjavíkur, var haldinn á
þriðju-daginn í
Borgar-leikhúsinu. Um 1.000
krakkar tóku þátt í keppninni
sem var haldin í 17. skiptið.
Langholts-skóli vann, í öðru
sæti varð Haga-skóli og
Álftamýrar-skóli í því þriðja.
Langholts-skóli
vann Skrekk
Morgunblaðið/Golli
Verðlauna-hátíð Íslensku
kvik-mynda- og
sjónvarps-akademíunnar var
haldin á Nordica Hotel á
sunnudags-kvöldið.
Kvik-myndin Mýrin í leik-stjórn
Baltasars Kormáks, sem
byggist á sam-nefndri bók
Arnalds Indriðasonar, fékk
flest Eddu-verðlaun, eða 5
alls. Mýrin var valin kvik-mynd
ársins og Baltasar leik-stjóri
ársins. Ingvar E. Sigurðsson
og Atli Rafn Sigurðarson voru
verð-launaðir fyrir leik í aðal-
og auka-hlutverki og Mugison
fyrir tón-listina.
Önnur kvik-mynd Baltasars
Kormáks, A Little Trip to
Heaven, hlaut líka tvenn
verð-laun. Mugison var einnig
verð-launaður fyrir tón-listina
í henni en Óttar Guðnason
hlaut verð-laun fyrir fyrir
kvikmynda-tökuna.
Mýrin fékk 5
Eddu-verð-laun
Morgunblaðið/Eggert
Baltasar Kormákur
kvikmynda-leikstjóri.
Netfang: auefni@mbl.is