Morgunblaðið - 26.11.2006, Page 70
70 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Heppnir fá þá eitthvað fallegt...
Kalvin & Hobbes
HORFÐIR ÞÚ Á MYNDINA Í
SJÓNVARPINU Í GÆR?
NEI
HORFÐIRÐU Á
LEIKINN Í GÆR?
NEI
HORFÐIR ÞÚ EKKI Á
NEITT SJÓNVARP?
NEI
Á HVAÐ HORFÐIR
ÞÚ ÞÁ?
Kalvin & Hobbes
HEFURÐU EINHVERN
TÍMANN SPÁÐ Í
HEIMSENDI?
ÁTTU VIÐ
KJARNORKU-
STYRJÖLD?
NEI... ÉG HELD AÐ MAMMA
HAFI ÁTTI VIÐ ÞENNAN
SEM KEMUR EF ÉG HLEYPI
LOFTINU ÚR BÍLDEKKJUNUM
EINU SINNI ENN
Kalvin & Hobbes
SLYSATRYGGING!
EN HEIMSKULEG
HUGMYND!
AF HVERJU ÆTTI
EINHVER AÐ KAUPA
SLYSATRYGGINGU AF
ÞÉR?!
Risaeðlugrín
© DARGAUD
ÉG NÁÐI EINUM Í
VIÐBÓT!
ÞAÐ VANTAR BARA EINN.
BÍÐIÐ HÉRNA
EIGUM VIÐ AÐ SEGJA HONUM AÐ SLEPPA
FORDRYKKNUM OG PANTA FREKAR ROMM
Kanadíski fræðimaðurinndr. James Barrettheldur fyrirlestur íÞjóðminjasafninu í
dag, sunnudag. Fyrirlesturinn er
haldinn fyrir tilstuðlan Félags ís-
lenskra fornleifafræðinga og
Þjóðminjasafnsins. Yfirskrift er-
indis James er Quoygrew: Lífs-
viðurværi Orkneyinga á víkinga-
og miðöldum.
„Í fyrirlestrinum mun ég segja
frá lífi fólks í Orkneyjum á vík-
ingaöld og miðöldum. Fyrirlest-
urinn byggi ég á fornleifarann-
sóknum mínum á minjum
landnámsbyggðarinnar Quoygrew
á eyjunni Westray,“ segir James.
„Ég ræði um fjölda atriða í
hversdagslífi fólks á þessari smáu
eyju og hvaða böndum það tengd-
ist félagslegum og efnahagslegum
breytingum um gervalla Norður-
Evrópu. Til dæmis kem ég til
með að fjalla um fólksfjölgun,
kristnitöku og vöxt viðskipta og
þorpa. Í stað þess að líta á eyja-
skeggja sem óvirka einstaklinga
sem hrífast með straumi „hnatt-
rænna“ breytinga reyni ég að
varpa ljósi á gagnvirk samskipti
staðbundinna hefða og ut-
anaðkomandi áhrifa.“
James Barrett er dósent við
fornleifafræðideild háskólans í
York á Englandi og á hann að
baki 16 ára rannsóknarferil þar
sem hann hefur sérhæft sig í lífs-
háttum á Skotlandi á víkingaöld
og miðöldum. Hann hefur látið
frá sér yfir þrjá tugi fræðigreina
og bóka um rannsóknarsvið sitt,
nú síðast bókina The Norse in
Scotland sem Routledge bókaút-
gáfan gefur út á næstunni.
Dæmigert og ósnortið
„Ástæða þess að við ákváðum
að beina sjónum okkar að Quoyg-
rew var ekki fyrir þær sakir að
byggðin þar væri einstök fyrir
víkingaöld, heldur einmitt vegna
þess að hún var ákaflega dæmi-
gerð. Þar var líklega venjulegt
býli þar sem sennilega bjuggu
leiguliðar eða frjálsir landeig-
endur. Quoygrew var ekki kon-
unglegt býli, bær eða jafnvel
þorp, en líklega voru engar
byggðir í Orkneyjum sem kalla
mætti með réttu þorp fyrr en á
12. öld,“ segir James. „Mikilvægi
Quoygrew felst hins vegar í því
hversu lengi var búið þar og
hversu vel minjar hafa varðveist.
Byggð var í Quoygrew órofið frá
10. öld allt til ársins 1937 og veit-
ir það okkur einstakt tækifæri til
að greina félagslegar og efna-
hagslegar breytingar frá vík-
ingaöld yfir til miðalda, og frá
lokum miðalda til upphafs nú-
tímans. Þar að auki eru þeir einu
sem hafa rótað í jarðveginum við
Quoygrew nautgripirnir sem þar
hafa verið á beit, og eru því allar
minjar ósnortnar. Margir sam-
bærilegir staðir hafa ýmist verið
plægðir upp eða liggja undir
stórum býlum sem enn eru í
notkun.“
Heimasíða Quoygrew rann-
sóknarverkefnisins er á slóðinni
http://www.york.ac.uk/depts/arch/
quoygrew og má þar finna frekari
upplýsingar sem og á heimasíðu
Þjóðminjasafns, www.thjodminja-
safn.is.
Fyrirlestur sunnudagsins fer
fram í fyrirlestrarsal Þjóðminja-
safnsins. Fyrirlesturinn hefst kl.
15 og er hann öllum opinn.
Fornleifafræði | Fyrirlestur á sunnudag um
fornleifarannsóknir í Quoygrew á Orkneyjum
Lífsviðurværi
Orkneyinga
til forna
James Barrett
fæddist í Kanada
1967. Hann lauk
B.A. prófi 1989
og M.A. prófi frá
háskólanum í To-
rontó og dokt-
orsgráðu frá há-
skólanum í
Glasgow 1996.
James var gestaprófessor við há-
skólann í Cambridge 1996, hafði
rannsóknarstöðu við mann-
fræðideild háskólans í Torontó
1996–1998, aðstoðarprófessor
1998–1999 við sama skóla, lektor
við mannfræðideild háskolans í
York 1999–2005 og dósent frá 2005.
James er kvæntur dr. Söru King og
eiga þau tvö börn.