Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 4
ENGAN sakaði þegar snjóflóð féll á
veginn um Súðavíkurhlíð um kl. 14
í gær. Flóðið féll úr Fjárgili og að
sögn Vegagerðarinnar var spýjan
um einn og hálfur metri á þykkt og
um 30 metra breið. Flóðið lokaði
veginum um stund en starfsmenn
Vegagerðarinnar hreinsuðu veginn
á um klukkustund.
Snjóflóðið féll fjarri byggð og þá
var enginn ökumaður á ferð þegar
það féll. Tveir bílar óku þó beint í
snjóflóðið og festu sig skömmu eftir
að það féll enda skyggni lélegt sök-
um nokkurrar muggu.
Lítill snjór er í hlíðunum en hita-
stigið á svæðinu hefur verið afar
misjafnt að undanförnu sem gerir
snjóinn blautan og þungan. Vega-
gerðin varaði við snjóflóðahættu á
norðanverðum Vestfjörðum í gær
og hvatti fólk til þess að fara ekki
um Óshlíð, Eyrarhlíð eða Súðavík-
urhlíð að nauðsynjalausu.
Snjóflóð féll og
lokaði veginum
4 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PÓLITÍSK samstaða virðist ríkja um það markmið Há-
skóla Íslands að komast í hóp 100 bestu háskóla í heimi,
ef marka má umræður á málþingi sem Stúdentaráð Há-
skóla Íslands stóð að í tilefni af fullveldisdeginum í gær.
Sigurður Örn Hilmarsson, formaður stúdentaráðs,
segir að flokkarnir virðist sammála um markmiðin, en þá
greini e.t.v. á um leiðirnar. Á endanum snúist málið um
peninga, og þrjár leiðir til að afla þeirra; fjárframlög frá
ríkinu, skólagjöld og styrki frá einkaaðilum.
Eftir málþingið gengu stúdentar fylktu liði út í kirkju-
garðinn við Suðurgötu og lögðu blómsveig að leiði Jóns
Sigurðssonar. Sigurður Örn segir að u.þ.b. 20 stúdentar
hafi verið í kirkjugarðinum, enda undirbúningur fyrir
prófatímabilið að ná hámarki.
Morgunblaðið/ÞÖK
Pólitísk samstaða um markmið
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tvo
rúmenska karlmenn í 12 og 8 mánaða fangelsi fyrir
hraðbankasvindl í þremur hraðbönkum á höfuð-
borgarsvæðinu í haust. Þeim tókst að afrita a.m.k.
20 reikningsnúmer með því að setja upp leynilegan
afritunarbúnað, falskt lyklaborð og skynjara fyrir
segulrönd bankakorta til að komast yfir númer á
banka- og greiðslukortareikningum fólks og að-
gangsnúmer að bankareikningum.
Þannig tókst öðrum mannanna að svíkja út vörur
og þjónustu fyrir 310 þúsund krónur sem hann lét
skuldfæra á greiðslukortareikning annars fólks
með framvísun korta, stíluðum á sig sjálfan. Var
honum gefið að sök að hafa vitað að kortin væru
fölsuð með því að reikningsnúmerum á segulrönd
þeirra hafði verið breytt. Var því hér um að ræða
greiðslukort sem útbúin voru með svindli eftir að
maðurinn komst yfir nauðsynleg númer með afrit-
uninni við hraðbankana. Hann keypti m.a. fartölvu
á156 þúsund krónur og farsíma á 77 þúsund krónur
auk þess sem hann verslaði í matvörubúðum og
greiddi allt saman með kortunum.
Frásögn mannanna eftir handtöku var á þá leið
að annar þeirra hefði komið til landsins með svindl-
búnaðinn og komið honum fyrir. Ætlunin hafi verið
að koma upplýsingum um banka- og greiðslukort-
areikningsnúmer og aðgangsnúmer að reikningum
í hendur erlendra aðila sem myndu í kjölfarið koma
þessum upplýsingum fyrir í greiðslukortum sem
þeir myndu gefa út á nafn annarra einstaklinga.
Fyrir þessar upplýsingar átti annar mannanna að
fá borgað, þ.e. ákveðna þóknun á hvert númer. Fé-
lagi hans var til aðstoðar og stóð á verði þegar hinn
kom búnaðinum fyrir á hraðbönkunum. Aðstoðar-
maðurinn átti að njóta afrakstursins með því að
meðákærði myndi greiða honum skuld eftir að hann
fengi borgað fyrir sölu á númerum. Taldi dómurinn
að báðir mennirnir væru aðalmenn í brotinu.
Að mati dómsins voru brot mannanna mjög al-
varleg og þaulskipulögð með fullkomnum tækjum.
Taldi dómurinn að háttsemi þeirra hefði getað leitt
til gríðarlega umfangsmikils fjártjóns ef þeim hefði
tekist að komast yfir mikinn fjölda númera. Hefði
það fyrst og fremst verið glöggum viðskiptavini
eins hraðbankans að þakka að upp komst um menn-
ina.
Sá sem þyngri dóminn hlaut er fæddur árið 1975
og félagi hans árið 1973. Ekki voru lögð fram saka-
vottorð mannanna við réttarhöldin í héraðsdómi.
Þetta mun vera fyrsti dómur sem gengur hér-
lendis fyrir auðgunarbrot af þessu tagi.
Símon Sigvaldason héraðsdómari dæmdi málið.
Verjandi þess er þyngri dóminn hlaut var Hilmar
Ingimundarson hrl. og verjandi meðákærða var
Jón Höskuldsson hdl. Saksóknari var Guðjón
Magnússon, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík.
Fangelsi í 12 og 8 mánuði
Tveir menn dæmdir fyrir að reyna að stela kortanúmerum í gegnum hrað-
banka 20 númer náðust og svindlkorti beitt hérlendis til að kaupa dýra hluti
Í HNOTSKURN
» Mennirnir voru á ferðinni í október ognóvember. Þeir komu gagngert til að
afrita kortanúmar í hraðbönkum og átti að
selja númerin erlendis. Borga átti fyrir
hvert númer sem næðist.
» Héraðsdómur telur að tjón vegna brotamannanna hefðu getað orðið gríð-
arlega umfangsmikil ef þeir hefðu komist
yfir mikið af númerum. Glöggur borgari
mun hafa afstýrt því og brá lögregla skjótt
við og handtók mennina.
UMFANG reykinga er á hægri en
stöðugri niðurleið samkvæmt sam-
antekt Capacent Gallup sem unnin
var fyrir Lýðheilsustöð. Árið 2006
virðast 18,8% fólks á aldrinum 15–
89 ára reykja daglega miðað við um
30% árið 1991. 21% karla reykir
daglega miðað við 17% kvenna.
Í frétt á vef Lýðheilsustöðvar
kemur fram að eins og fyrri ár er
töluverður munur á reykingum eftir
aldri og nú sem fyrr eru reykingar
algengastar hjá fólki á aldrinum 20–
29 ára. Þar á eftir kemur aldurshóp-
urinn 50–59 ára. Nú sem endranær
eru reykingar einnig langminnstar í
elsta hópnum (80–89 ára).
Þegar tölur um umfang reykinga
eru skoðaðar kemur í ljós að há-
skólamenntað fólk reykir minnst
allra (8,3%) en þeir reykja mest
(29,5%) sem eru einungis með
grunnskólamenntun og viðbótar-
menntun sem er minni en stúdents-
próf. Einnig vekur athygli að í hópi
háskólamenntaðra eru líka lang-
flestir sem hafa aldrei reykt
(57,7%).
Tæplega
19% fullorð-
inna reykja
Háskólamenntað
fólk reykir minnst
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann í 15 mánaða
fangelsi fyrir vopnað rán í lyfja-
verslun í Kópavogi í vor. Ógnaði
hann starfsmönnum vopnaður öxi
og rændi lyfjum fyrir um 172 þús-
und kr.
Nokkrum dögum eftir ránið var
hann handtekinn og játaði í kjölfar-
ið að hafa verið að verki. Sagði
hann ránið hafa verið skyndi-
ákvörðun í miklu morfínfráhvarfi.
Hann sagðist hafa ætlað að ná sér í
morfínlyf fyrst og fremst, contalgin
eða rítalin, og kvaðst hafa notað
hluta lyfjanna sjálfur og mundi
ekki hvort hann hefði selt eitthvað
af þeim.
Að mati dómsins var brotið alvar-
legt en tekið var tillit til játningar
ákærða og viðleitni hans til ná tök-
um á fíkniefnavanda sínum.
Finnbogi H. Alexandersson hér-
aðsdómari dæmdi málið. Verjandi
var Sigmundur Hannesson hrl. og
sækjandi Sigríður J. Friðjónsdóttir,
saksóknari hjá ríkissaksóknara.
15 mánaða
fangelsi fyrir
vopnað rán
MEÐ því að lækka vikmörk við
hraðamælingar vegna beitingar við-
urlaga við hraðakstursbrotum er
verið að færa viðmiðun nær raun-
verulegum hámarkshraða að sögn
Jóhannesar Tómassonar, upplýs-
ingafulltrúa samgönguráðuneytis-
ins. Lögreglan á Blönduósi, sem
mjög hefur lagt áherslu á hraðaeft-
irlit á Þjóðvegi 1 segir að ný sekt-
arreglugerð ráðuneytisins muni að
líkindum merkja að ökumenn á
hringveginum verði nú kærðir ef
radarmælir lögreglu sýni 99 km. Það
þýðir að ökumaður er þá sannanlega
á 96 km hraða samkvæmt hraðamæli
bílsins og hefur þar með unnið sér til
sektar miðað við hin 5 km vikmörk
frá leyfilegum 90 km hámarkshraða
að viðbættum 3 km vikmörkum í lög-
regluradarnum. Áður var byrjað að
kæra þegar hraðatala á radar sýndi
105.
Að sögn Jóhannesar hefur orðið
að gefa nokkurt svigrúm við hraða-
mælingar þar sem segja megi að
ökumenn hafi fengið að njóta vafans.
Með sífellt bættum tækjabúnaði til
hraðamælinga sé hins vegar minni
þörf fyrir slíkt svigrúm.
Ökumaður á vegi þar sem 90 km
hámarkshraði gildir megi því búast
við sekt sé hann tekinn á 96 km
hraða. Með þessu sé ætlunin að
herða á því að hraðamörkin verði
virt og ímynda megi sér að þróunin
verði sú að leyfa lítið sem ekkert
svigrúm eins og tíðkast víða erlend-
is. Í Noregi eru til dæmis aðeins
þriggja km vikmörk. Með þessu sé
þá verið að leggja áherslu á hin raun-
verulegu hraðamörk.
Vikmörk hraða-
mælinga 8 km
Þjóðvegasektir byrja við 96 km hraða
EITUREFNASLYS varð í fisk-
vinnsluhúsi á Hvaleyrarbraut í
Hafnarfirði í gær þegar um 50
lítrar af ammoníaki láku út eftir
að tækjabúnaður gaf sig. Að sögn
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
var engin hætta á ferðum en eit-
urefnakafarar voru sendir á stað-
inn og stöðvuðu lekann.
Starfsmenn fiskvinnslunnar
urðu lekans varir og gerðu
slökkviliði aðvart. Tilkynningin
barst slökkviliðinu um klukkan 17
og tók hreinsunin tæpan klukku-
tíma.
Að sögn slökkviliðsins var amm-
oníakið geymt í sérútbúnum
geymi þar sem það var í fljótandi
formi. Þegar efnið, sem er mjög
kalt, kemst í snertingu við and-
rúmsloftið breytist það í loftteg-
und. Lyktin af því er afar sterk og
voru menn því fljótir að átta sig á
því hvað hafði gerst.
Slökkviliðið sló efnið niður með
því að sprauta sérstökum úða á
það. Efninu var síðan safnað sam-
an í sérstök ílát og fargað á við-
eigandi hátt.
Ammoníaksleki
í Hafnarfirði