Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 20
20 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Colombo. AFP. | Gotabaye Rajapakse,
varnarmálaráðherra Srí Lanka,
slapp í gær naumlega þegar sjálfs-
morðsárásarmaður sprengdi sig í
loft upp í höfuðborginni, Colombo.
Minnst tveir öryggisverðir létu lífið
og 14 manns særðust, flestir úr ör-
yggisliði ráðherrans, sem er bróðir
forsetans, Mahinda Rajapakse.
Talið er að árásarmaðurinn hafi
verið úr röðum Tamíl-Tígranna, en
hann ók þriggja hjóla leigubíl inn í
bílalest ráðherrans sem var á leið til
forsetabústaðarins í borginni.
Þann 25. apríl sl. reyndi kona,
sem þóttist vera með barni, að
myrða Sarath Fonseka, yfirmann
hersins, í sjálfsmorðsárás í Col-
ombo. Fonseka komst lífs af en kon-
an og ellefu aðrir týndu lífi í spreng-
ingunni.
Reynt að
myrða
ráðherra
Sjálfsmorðsárás
á Srí Lanka
AÐ MINNSTA kosti 388 biðu bana og 96 er enn saknað
eftir mikil aurflóð í héraðinu Albay á austurhluta Fil-
ippseyja, að því er kemur fram í yfirlýsingu frá Rauða
krossinum. Flóðin má rekja til fellibyljarins Durian
sem náði allt að 150 km hraða á klukkustund og reið
yfir Albay aðfaranótt föstudags. Fellibylnum fylgdu
miklar rigningar sem leiddu til aurflóða, en þúsundir
manna þurftu að yfirgefa heimili sín af hans völdum.
Reuters
Hátt í 400 fórust á Filippseyjum
London. AFP. | Talsmaður rússneska
njósnarans fyrrverandi, Alexanders
Lítvínenkos, sem lést af völdum
geislavirka efnisins pólons 210, sagði
í gær, að hann hefði afhent bresku
lögreglunni bréf, sem sýndu fram á
tilvist leynilegrar sveitar manna,
sem hefðu haft það verkefni að drepa
Lítvínenko og fleiri.
Alex Goldfarb, talsmaður Lítv-
ínenkos, sagði, að bréfin væru frá
Míkhaíl Trepashkín, fyrrverandi
njósnara Rússa, en hann er nú í
fangelsi. Var hann sakaður um að
hafa njósnað fyrir Breta og komið
leynilegum upplýsingum til Lítv-
ínenkos.
Í bréfunum segir Trepashkín, að
hann hafi þær heimildir innan úr
rússnesku leyniþjónustunni, að
stofnuð hafi verið sérstök sveit til
höfuðs Lítvínenko og auðjöfrinum
Borís Berezovskí og fleiri mönnum.
Lík Lítvínenkos var skoðað í gær
og læknar í sérstökum búningi við
verkið vegna ótta við geislun.
Sérstök
sveit að
verki?
Stofnuð til að
drepa Lítvínenko
FLESTIR þekkja hin víðfrægu
IKEA-húsgögn og baslið við að setja
þau saman með sexkanti heima í
stofu. Nú geta breskir aðdáendur
húsgagnakeðjunnar gengið skrefinu
lengra og keypt stofuna umhverfis
sófasettið, eftir að verktakafyrirtæki
tilkynnti að það hygðist reisa slíkt
íbúðarhúsnæði í Bretlandi.
Húsin, sem heita BoKlok, eru úr
timbri og sérstaklega ætluð þeim
sem hafa takmarkað fé til umráða.
Kaupendur þurfa þó ekki að setja
húsin saman, þau afhendast full-
byggð, og munu raunar eiga þess
kost að fá handlaginn í heimsókn til
að setja upp hið fullkomna IKEA-
heimili, að því er dagblaðið Financial
Times skýrði frá í gær.
Verðið verður um hundrað þúsund
pund fyrir íbúð, eða um 13,3 milljónir
króna, og um 20 milljónir króna fyrir
þriggja svefnherbergja hús.
Íbúðarhús
frá IKEA
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ABDEL Aziz al-Hakim, einn helsti
leiðtogi sjíta í Írak, sagði í gær, að
brytist út allsherjarborgarastríð í
landinu, myndi það bitna á öllum
jafnt. Hvatti hann til einingar meðal
súnníta og sjíta en margir óttast, að
spenna á milli þeirra sé að aukast og
ekki bara í Írak, heldur í öllum Mið-
Austurlöndum.
Hakim sagði þetta í messu, sem
hann flutti í stærstu mosku súnníta í
Jórdaníu, en á miðvikudag var haft
eftir honum að loknum fundi með
Abdullah II, konungi Jórdaníu, að
borgarastríð myndi koma sér verst
fyrir súnníta. Segir hann nú, að um-
mælin hafi verið misskilin.
Ýmsir fréttaskýrendur segja, að
farið sé að gæta vaxandi spennu milli
sjíta og súnníta í Mið-Austurlöndum
og nefna sem dæmi, að Nuri al-Mal-
iki, forsætisráðherra Íraks, hafi
frestað fundi með George W. Bush
Bandaríkjaforseta í Amman í Jórd-
aníu vegna þess, að hann vildi ekki,
að súnnítinn Abdullah yrði viðstadd-
ur. Var það haft eftir aðstoðarmönn-
um Malikis. Þá var haft eftir öðrum
að Maliki hefði óttast að aðrir sjítar
litu á það sem veikleikamerki ætti
hann fund með Abdullah.
Abdullah II er ekki vinsæll meðal
sjíta en fyrir tveimur árum varaði
hann við „sjítahálfmánanum“, sem
teygði sig frá Íran til Líbanons.
Súnnítar í öllum arabaríkjunum
óttast vaxandi styrk sjíta í Íran og
saka þá um að róa undir í Írak, meðal
annars með því að útvega sveitum
sjíta, til dæmis Mahdi-her klerksins
Moqtada al-Sadr, vopn . Sjítar í Írak
saka hins vegar súnníta um að ætla
sér að koma í veg fyrir það með öll-
um ráðum að þeir, sjítar, komist til
valda í landinu.
Óttast vaxandi spennu
milli súnníta og sjíta
Óvildin milli trúflokkanna virðist vera að aukast í öllum Mið-Austurlöndum
AP
Erfitt embætti Nuri al-Maliki, for-
sætisráðherra Íraks.
Í HNOTSKURN
» Sjítar eru um 14% af öll-um þeim, sem játa íslam,
en aðrir eru súnnítar að lang-
mestu leyti.
» Sjíta er að finna í öllumarabaríkjunum en eru þar
alls staðar í minnihluta nema í
Írak. Þar eru þeir um 60%
landsmanna. Í Íran, sem er
ekki arabaríki, eru þeir í mikl-
um meirihluta.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
VÍÐA var efnt til aðgerða til að
minna á áhrif HIV-veirunnar á al-
þjóðlega alnæmisdeginum í gær.
Leiðtogar ýmissa ríkja tjáðu sig um
áhrif veirunnar og Alþjóðavinnu-
málastofnunin, ILO, gaf út nýja
skýrslu þar sem fjallað er um efna-
hagsleg áhrif hennar á heimsvísu.
Þar kemur fram, að veiran hafi
dregið 3,5 milljónir manna á vinnu-
aldri til dauða í fyrra. Þá hafi milljón
störf til viðbótar glatast, flest á svæð-
inu sunnan Sahara-eyðimerkurinnar
í Afríku. Til samanburðar áætlar
ILO, að 1,3 milljónir starfa hafi tap-
ast árlega á tímabilinu 1992 til 2004
vegna veirunnar.
Skýrsla ILO náði til 43 ríkja þar
sem áætlað er að 36,3 milljónir
manna á vinnualdri lifi með sjúk-
dómnum. Er þessi staðreynd sögð
hafa víðtæk efnahagsáhrif, með því
að draga úr getu þróunarríkja til að
lyfta sér upp úr viðjum fátæktar.
Þá lýstu stjórnvöld í Suður-Afríku,
þar sem 5,4 milljónir manna eru al-
næmissmitaðar, því yfir að þau hygð-
ust draga úr tíðni nýs smits um helm-
ing fyrir árið 2011 með því að stuðla
að kynlífsfræðslu og því að unglingar
á aldrinum 14 til 17 ára frestuðu því
að byrja að stunda kynlíf.
Styttir lífslíkur í Suður-Afríku
Í nýrri skýrslu sem birt var í gær
kemur jafnframt fram, að 950 manns
deyi dag hvern af völdum alnæmis í
Suður-Afríku. Lífslíkur ungmenna
eru litlar, innan við helmingur lands-
manna sem er undir 15 ára aldri get-
ur vænst þess að verða sextugur, nú
þegar talið er að 1.400 smitist dag
hvern af alnæmi í landinu.
Eins og fyrr segir lýstu ýmsir leið-
togar yfir stuðningi við baráttuna
gegn faraldrinum. Þeirra á meðal var
George W. Bush Bandaríkjaforseti
sem sagði skírlífi einu öruggu leiðina
til að koma í veg fyrir smit.
Robert Mugabe, forseti Zimbabve,
lýsti yfir góðum árangri í baráttunni
gegn vágestinum en bætti við, að
staða efnahagsmála, nú þegar verð-
bólga í landinu mælist yfir 1.000 pró-
sent, hindraði frekari aðgerðir.
Baráttan er ennþá lengra komin í
Norður-Kóreu ef marka má yfirlýs-
ingu stjórnvalda í gær, þar sem leið-
toganum, Kim Jong-Il, var þakkað
fyrir þá „staðreynd“ að ekki eitt ein-
asta alnæmissmit hefði greinst vegna
aðgerða stjórnarinnar.
Alnæmisfaraldurinn sagður hafa víðtæk efnahagsáhrif
Aftrar þeim fátækustu
Reuters
Barátta Aðgerðasinni tekur þátt í
göngu gegn alnæmi í Berlín í gær.
♦♦♦
PÝRAMÍDARNIR í Egyptalandi
hafa í þúsundir ára vakið undrun
og aðdáun sökum stærðar sinnar og
mikilfengleika, ásamt því að vera
uppspretta hinna fjölbreytilegustu
kenninga um aðferðirnar við bygg-
ingu þeirra. Nú hefur enn ein kenn-
ingin aukið á dulúðina að baki hin-
um fornu mannvirkjum, eftir að ný
rannsókn bendir til að steinsteypa
hafi verið notuð við smíði þeirra.
Að sögn Michel W. Barsoum, pró-
fessors í verkfræði við Drexel-
háskóla í Fíladelfíu, sem dagblaðið
New York Times ræddi við fyrir
helgi, hjálpa hinar steyptu blokkir
til að útskýra það hvernig Egyptum
tókst að reisa slík mannvirki.
Telur hann, að slíkar blokkir hafi
verið steyptar þar sem erfitt hafi
verið að koma fyrir höggnum
blokkum úr sandsteini. Sé þetta
rétt voru Egyptarnir 2.500 árum á
undan Rómverjum á þessu sviði, en
að sögn NYT er almennt álitið að
hinir síðarnefndu hafi verið braut-
ryðjendur í notkun steypu.
Þar kemur einnig fram, að
Barsoum hafi, ásamt rannsóknar-
hópi sínum, efnagreint steinefni úr
nokkrum hlutum Khufu-pýramíd-
ans og fundið efnasamsetningu sem
er ekki fyrir hendi í venjulegum
sandsteini. Eru gæði hennar sögð
mjög mikil.
Niðurstaðan er þó umdeild líkt
og svo margt í þessum fræðum.
Morgunblaðið/Ómar
Ný kenning um stein-
steypu í pýramídunum