Morgunblaðið - 02.12.2006, Síða 24
GARÐABÆR mun taka við rekstri og stjórn Hönn-
unarsafns Íslands. Samningur þess efnis var undirrit-
aður í gær af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra, Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra og
Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra Garðabæjar.
Menntamálaráðuneytið mun greiða árlegt framlag að
fjárhæð 9,3 milljónir króna til Garðabæjar til að styrkja
rekstur safnsins. Jafnframt er miðað við að rekstr-
arframlag Garðabæjar verði eigi lægra en sem nemur 14
milljónum króna á ári á samningstímanum.
Samningurinn tekur gildi 1. janúar 2007 og gildir út
árið 2010.
Samkvæmt samningnum mun Garðabær í samvinnu
við Arkitektafélag Íslands standa að opinni samkeppni
um hönnun byggingar fyrir safnið. Samkeppnin verður
haldin á næsta ári og miðað er við að reist verði safn-
bygging sem verði að lágmarki 1.000 fermetrar að stærð.
Framlag menntamálaráðuneytisins til byggingarinnar
verður 125 milljónir króna auk þess sem Garðabær legg-
ur fram jafnháa fjárhæð og lóð undir safnið.
Miðstöð safnastarfsemi
Hönnunarsafnið hefur verið starfrækt frá árinu 1998
með sérstökum samningi á milli menntamálaráðuneytis,
Þjóðminjasafnsins og Garðabæjar. Safnið hefur verið
með vinnuaðstöðu hjá Þjóðminjasafninu og sýningarsal á
Garðatorgi í Garðabæ.
Hönnunarsafnið verður miðstöð safnastarfsemi á sviði
hönnunar og hlutverk þess verður að bera ábyrgð á söfn-
un, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim þætti
menningarsögu Íslendinga sem lýtur að hönnun.
Undirskrift Árni M. Mathiesen, Gunnar Einarsson og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir undirrituðu samning
um uppbyggingu Hönnunarsafns Íslands.
Garðabær tekur við
Hönnunarsafni Íslands
Morgunblaðið/RAX
24 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Á DÖGUNUM
var opnuð ný
vefgátt, devo-
ted.net, þar sem
ný kynslóð kvik-
myndaleik-
stjóra, framleið-
enda og
handritshöfunda
fær tækifæri til
að sækja ráð og
leiðsögn til
reyndra starfsbræðra og systra í
faginu.
Frumkvæði að devoted átti
Norræna ráðherranefndin í sam-
starfi við kvikmyndastofnanirnar
í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi auk Kvikmynda-
miðstöðvar Íslands.
Markmið vefgáttarinnar er að
bjóða ungum kvikmyndagerð-
armönnum til samstarfs og við-
ræðna við marga af virtustu kvik-
myndagerðarmenn samtímans.
Ungum kvikmyndagerð-
armönnum gefst á devoted.net
tækifæri til að birta myndir sínar
auk þess að skoða og ræða verk
annarra. Jafnframt verður þar
hægt að nálgast upplýsingar um
kvikmyndagerð, meðal annars um
menntun í faginu, umsókn-
arfresti, fjölmiðlasmiðjur og
ábendingar um kvikmyndahá-
tíðir.
Nýr vefur
um kvik-
myndagerð
Auðveldar ungum að
koma sér á framfæri
Alfred Hitchcock
LEIKSTJÓRINN Dagur Kári Pét-
ursson er tilnefndur til Sundance/
NHK verðlaunanna fyrir árið
2007. Verðlaunin eru veitt árlega
á Sundance kvikmyndahátíðinni,
sem fram fer í janúar. Hátíðin,
sem leikarinn Robert Redford
setti á fót, er ætluð upprennandi
kvikmyndagerðarmönnum.
Dagur Kári er tilnefndur auk 12
kollega sinna en hann hlýtur til-
nefninguna fyrir handrit sitt að
kvikmyndinni The Good Heart,
sem nú er í undirbúningi.
Verðlaunin nema 10 þúsund
dollurum (eða um 700 þúsund ís-
lenskum krónum) auk þess sem
japanska sjónvarpsstöðin NHK
kaupir verk vinningshafans til
sýninga. Frá þessu greinir á vef
Lands og sona.
Dagur Kári
á Sundance
HEFÐ hefur skapast fyrir því
að höfundar lesi úr nýjum bók-
um í stofunni á Gljúfrasteini í
desember. Alls verða upplestr-
arnir þrír eða alla sunnudaga á
aðventunni en dagskrána í
heild má nálgast á heimasíðu
Gljúfrasteins. Nú á sunnudag
les Einar Már Guðmundsson
upp úr ljóðabókinni Ég stytti
mér leið framhjá dauðanum,
Kristín Steinsdóttir úr skáld-
sögunni Á eigin vegum, Sölvi Björn Sigurðsson úr
skáldsögunni Fljótandi heimur og Steinar Bragi
les úr skáldsögu sinni Hið stórfenglega leynd-
armál heimsins.
Upplestur
Aðventuupplestur
á Gljúfrasteini
Einar Már
Guðmundsson
BUBBI Morthens og SÁÁ
bjóða öllum á tónleika í nýju
húsi samtakanna í Efstaleiti 7
í kvöld klukkan 21. Tónleik-
arnir eru öllum opnir og er
aðgangur ókeypis. Von, hús
SÁÁ í Efstaleiti 7, er 1.500 fm
nýbygging sem er sérhönnuð
utan um hið fjölþætta göngu-
deildar-, rannsóknar- og fé-
lagsstarf samtakanna. Á
göngudeildina eru 15–20.000
komur árlega. Á staðnum er kaffihús sem rekið
verður af Súfistanum. Súfistinn mun bjóða gest-
um upp á kaffi og konfekt til að kynna opnun
kaffihúss í byrjun janúar.
Tónleikar
Bubbi leikur við
opnun Vonar
Bubbi
Morthens
FAGURFRÆÐIN þverfag-
leg, er yfirskrift málþings sem
fram fer í dag í Lögbergi stofu
101 í Háskóla Íslands.
Málþingið er þverfaglegt
innlit í fagurfræðina og koma
fyrirlesarar úr ýmsum áttum
að viðfangsefninu sem tekur
til skynjunar okkar á umheim-
inum. Á meðal framsögu-
manna eru: Soffía Bjarnadótt-
ir, Ása Helga Hjörleifsdóttir,
Sigurður Örn Guðbjörnsson, Guðrún Dröfn
Whitehead, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Krist-
inn Már Ársælsson, Þórdís Björnsdóttir og Bene-
dikt Hjartarson.
Málþing
Fagurfræðin rædd
í Háskóla Íslands
Fæðing Venusar
eftir Botticelli.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.i
TILNEFNINGAR til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs voru til-
kynntar í gær. Þeir Hallgrímur
Helgason og Jón Kalman Stefánsson
eru tilnefndir fyrir Íslands hönd að
þessu sinni.
Tilnefningarnar hljóta þeir fyrir
bækur sínar Rokland og Sumarljós,
og svo kemur nóttin.
Jón Kalman hefur tvisvar áður
verið tilnefndur til verðlaunanna, ár-
ið 2001 fyrir bók sína Sumarið bak
við brekkuna og 2004 fyrir Ýmislegt
um risafurur og tímann.
Hallgrímur var tilnefndur árið
1999 fyrir 101 Reykjavík.
Íslensku dómnefndina skipuðu
þau Soffía Auður Birgisdóttir bók-
menntafræðingur og Aðalsteinn Ás-
berg Sigurðsson rithöfundur, auk
varamannsins Jóns Yngva Jóhann-
essonar bókmenntafræðings.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Soffía Auður að það hvað bæk-
ur Jóns Kalmans og Hallgríms eru
ólíkar hafi haft talsvert með valið að
gera. „Þetta eru hvort tveggja frá-
bærar bækur þó ólíkar séu en það er
gaman að tilnefna bækur sína úr
hvorri áttinni. Jón Kalman hlaut
auðvitað Íslensku bókmenntaverð-
launin fyrir bókina og Hallgrímur er
að vanda með puttann á samtím-
anum. Við völdum bækur sem við
teljum einfaldlega í hæsta gæða-
flokki,“ sagði Soffía.
Dómnefndir frá hinum Norð-
urlöndunum skiluðu jafnframt sín-
um tilnefningum í gær en alls eru 12
bækur tilnefndar. Í ár eru tilnefnd
verk frá Færeyjum og málsvæði
Sama en engar tilnefningar bárust
frá Grænlandi.
Ljóðabók Mortens Søndergaard,
Et skridt i den rigtige retning og
skáldsaga Kirsten Thorup, Før-
krigstid eru tilnefndar fyrir hönd
Danmerkur. Finnland tilnefnir
ljóðabækurnar Älvdrottningen eftir
Eva-Stina Byggmästar og Lauluja
mereen uponneista kaupungeista
eftir Markku Paasonen. Frá Noregi
eru tilnefndar Gå. Eller kunsten å
leve et vilt og poetiskt liv eftir Tom-
as Espedal og Von Aschenbachs
fristelse eftir Jan Jakob Tønseth.
Ljóðasafnið I en cylinder i vattnet
av vattengråt eftir Ann Jäderlund
og skáldsagan Drömfakulteten eftir
Söru Stridsberg eru tilnefndar fyrir
hönd Svíþjóðar. Þá eru skáldsagan
Ó – søgur um djevulsskap eftir Carl
Jóhan Jensen frá Færeyjum og
ljóðasafnið Skuovvadeddjiid gona-
gas eftir Sigbjørn Skåden frá Sam-
íska málsvæðinu einnig tilnefndar.
Handhafi Bókmenntaverð-
launanna 2007 verður valinn á fundi
dómnefndarinnar á Íslandi í byrjun
mars og verðlaunin svo afhent á 59.
þingi Norðurlandaráðs í Ósló síðar
það ár. Verðlaunaupphæðin í ár er
350 þúsund danskar krónur, eða um
4,3 milljónir íslenskra króna.
Bókmenntir | Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs kunngjörðar
Hallgrímur og Jón Kalman tilnefndir
Í HNOTSKURN
»Sex Íslendingar hafa hlotið Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs:
»Ólafur Jóhann Sigurðsson ár-ið 1976 fyrir Að brunnum.
»Snorri Hjartarson árið 1981 fyrir Hauströkkrið
yfir mér.
»Thor Vilhjálmsson árið 1988fyrir Grámosinn glóir.
»Fríða Á. Sigurðardóttir árið 1992 fyrir Meðan
nóttin líður.
»Einar Már Guðmundsson árið1995 fyrir Engla
alheimsins.
»Sjón árið 2005 fyrir Skugga-Baldur.Morgunblaðið/Ásdís ÁsgeirsdóttirRithöfundarnir Hallgrímur Helgason og Jón Kalman Stefánsson eru til-nefndir til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Hallgrímur í annað
sinn en Jón Kalman í þriðja sinn.
FJÖLSKYLDUR eru sérstaklega
boðnar velkomnar í Þjóðmenning-
arhúsið í dag. Þar verður hægt að
kynnast skrifaraiðn miðalda af eigin
raun í tengslum við sýninguna
Handritin sem Árnastofnun stendur
að. Börn og fullorðnir fá að með-
höndla það sem til þarf; fjaðurstafi
gerða úr flugfjöðrum álfta, gæsa og
arna, bókfell úr kálfskinni og blek
soðið af sortulyngi, mó og víðileggj-
um. Þeir sem vilja geta æft sig í
rúnaletri því sýnt er hvernig staf-
rófið okkar er skráð með rúnum.
Þess ber að geta að á sýningunni
gefur að líta margar þjóð-
argersemar. Til sýnis eru ýmis
merkustu skinnhandrit þjóðarinnar
frá miðöldum er geyma einstæðar
sögur, kvæði og frásagnir sem
varpa ljósi á samfélag, trúarbrögð
og hugarheim norrænna þjóða í
gegnum mikið umbreyting-
artímabil.
Safnkennari til staðar
Safnkennari Árnastofnunar verð-
ur til staðar í skrifarastofu hand-
ritasýningarinnar frá kl. 14-17 og
veitir þeim sem áhuga hafa aðstoð
og fræðslu, sem alla jafn býðst
skólahópum á virkum dögum. Tekið
er fram í fréttatilkynningu frá Þjóð-
menningarhúsinu að enginn sé „of
ungur eða of gamall til að hafa
gaman af að kynnast þessari fornu
iðn“.
Auk handritasýningar Árnastofn-
unar eru í Þjóðmenningarhúsinu
sýningarnar Íslensk tískuhönnun,
Fyrirheitna landið og Berlin Exc-
ursion.
Kynni af skrif-
araiðn miðalda
Ókeypis aðgangur á fjölskyldudag