Morgunblaðið - 02.12.2006, Page 26

Morgunblaðið - 02.12.2006, Page 26
26 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI SKÚLI Lorenzson, miðill á Akur- eyri, fagnar um þessar mundir hálfr- ar aldar starfsafmæli. Reyndar ekki sem miðill heldur afleysingajóla- sveinn, ef svo má að orði komast. Hann hefur nefnilega allan þennan tíma hlaupið í skarðið ef alvöru Kjöt- krókur hefur verið vant við látinn og óhætt er að segja að Skúli hafi ekki brugðist í hlutverkinu. Ingvar Sigurðsson, markaðsstjóri Norðlenska, færði þeim Skúla og Kjötkróki hangikjötslæri að gjöf í gær í tilefni tímamótanna en þeir vinirnir eru frægir, að minnsta kosti í Eyjafirði, fyrir að gefa fólki að smakka hangikjet í tíma og ótíma í desember og Kjötiðnaðarstöð KEA, nú Norðlenska, ku hafa gaukað að þeim einu og einu læri í gegnum ár- in; að minnsta kosti öðrum þeirra. Kveikt á jólatrénu Skúli og Kjötkrókur halda m.a. upp á afmælið um helgina með því að mæta á Ráðhústorgið í dag þar sem kveikt verður á jólatrénu sem Rand- ers, vinabær Akureyrar í Danmörku, gefur. Athöfnin hefst kl. 16.  Skemmtun verður í Landsbank- anum við torgið kl. 14–15.30, áður en kveikt verður á jólatrénu.  Sýningum Kristins G. Jóhanns- sonar, sem nú standa yfir í Ketilhúsi og Jónas Viðar Gallery, lýkur um helgina. Annars vegar er Málverk um Búðargil og brekkurnar og hins vegar Svart á hvítu, gamlar dúkrist- ur, sem eru tilbrigði við gamalt handverk. Sýningarnar hafa fengið fádæma góðar undirtektir en þeim lýkur á morgun, sunnudag.  Á alþjóðadegi fatlaðra á morgun, 3. desember, vilja Sjálfsbjörg á Ak- ureyri og Þroskahjálp á Norðurlandi eystra lýsa upp umhverfi sitt með markmiðið samfélag fyrir alla að leiðarljósi. Félögum, vinum og vel- unnurum er boðið í tilefni dagsins upp á ljósahátíð, kakó og piparkökur á Ráðhústorginu á Akureyri kl. 16.  Stefan Boulter opnar í dag sýn- inguna Ósagðar sögur í Café Karól- ínu á Akureyri. Á sýningunni mun Stefán sýna teikningar sem eiga sér þann möguleika að verða mynda- saga. Sýningin hefst kl. 14. Tvífari Kjöt- króks í hálfa öld Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ket Ingvar Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, og Kjötkrókur eða Skúli Lorenzson með lærið í gær. Í HNOTSKURN »Samkoman á Ráðhústorgihefst kl. 16. Konsúll Dana og bæjarstjórinn á Akureyri flytja ávörp, Lúðrasveit Akureyrar leikur, stúlkur úr kór Akur- eyrarkirkju syngja svo og Óskar Pétursson. Jólasveinar mæta og taka nokkur lög. Ljósin verða kveikt á trénu kl. 16.40. GUÐRÚN Elfa Skírnisdóttir hannaði verðlaunamerki fyrir eyfirska matvælaframleiðslu og matarmenningu eins og fram kom í blaðinu í gær. Hún er fyrir miðri mynd. Til vinstri er Brynhildur Kristinsdóttir sem fékk þriðju verðlaun í samkeppninni um merkið og til hægri Hulda Ólafsdóttir sem hlaut önnur verðlaun. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Verðlaunahafar Matar úr héraði GÚMMÍVINNSLAN á Akureyri keypti í haust Höfðadekk ehf. í Reykjavík af Sævari Magnússyni og tók við rekstri fyrirtækisins í gær, 1. desember. Höfðadekk stofnaði Tómas Kristjánsson árið 1977 og hefur það verið rekið alla tíð síðan á Tangarhöfða 15 í Reykjavík. Höfðadekk þjónustar jafnt við- skiptavini með litla og stóra hjól- barða en fyrirtækið hefur mikla reynslu af þjónustu á hjólbörðum fyrir stórar vinnuvélar og vörubíla, segir í fréttatilkynningu. Gúmmívinnslan hf. var stofnuð 1982 og var upphaflegur tilgangur endurvinnsla á gúmmíi og sólning á vörubílahjólbörðum, ásamt rekstri á hjólbarðaverkstæði. Gúmmí- vinnslan hf. er í dag eina fyrirtækið á Íslandi sem sólar vörubílahjól- barða en auk þess rekur hún sex hjólbarða- og bifreiðaverkstæði ásamt endurvinnslu- og stáldeild. Markmiðið með kaupunum er að styrkja enn frekar starfsemi félag- anna og munu viðskiptavinir Höfðadekks nú hafa beinan aðgang að vörulager Gúmmívinnslunnar hf. Gúmmívinnslan stækkar Keypti Höfðadekk í Reykjavík og tók við rekstrinum í gær Eftir Sigurð Jónsson Stokkseyri | „Ég sakna þess þegar ég er hérna á Stokkseyri að heyra báta koma inn. Maður þekkti hljóðin í bátunum hverjum fyrir sig og þetta var merki um lífæð plássins. Þessi hljóð voru stór þáttur í allri minni æsku og uppvexti,“ sagði Margrét Frímannsdóttir alþingismaður sem mun lesa upp úr bókinni Stelpan frá Stokkseyri á menningarsamkomu í Menningar- og listaverstöðinni Hólmaröst á Stokkseyri í dag kl. 16. Stjúpdóttir hennar, Auður Jónsdótt- ir, les einnig úr sinni bók, Tryggðarpantinum, Hlín Pétursdóttir syngur og Össur Skarphéð- insson ávarpar gesti. Einnig les Rúna Einars- dóttir ljóð móður sinnar, Rutar Gunnarsdóttur, en bókin geymir safn ljóða sem gefið var út eftir að Rut lést. „Svo gleymir maður aldrei því þegar frysti- húsið brann 1979, það situr í öllum og svo auð- vitað sjóslysin sem urðu hér. Það voru mín for- réttindi að fá að alast hér upp,“ segir Margrét. Gert upp við strákana „Það kom mér á óvart hvað það var gaman að rifja upp æskuna og tína saman minningabrotin. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar bókina og hún er góður penni. Ég talaði mikið og mér leiðist það ekki eins og fólk veit. Þarna koma saman æskuminningar, atvinnuþátttakan, sveitarstjórnarpólitíkin á Stokkseyri og lands- málapólitíkin. Auðvitað er í henni líka uppgjör við Alþýðubandalagið og aðdragandinn að stofnun Samfylkingarinnar og starf mitt sem talsmaður hennar,“ sagði Margrét þegar rætt er um bókina. „Þarna geri ég upp við strákastjórnmálin og mér fannst ekkert erfitt að tala um þetta en maður verður að vera einlægur í þessu annars er þetta ekki hægt. Ég segi frá þessu eins og ég upplifði það. Við konur í stjórnmálum tölum oft um það hvernig gangi og mér fannst kominn tími til að segja frá minni reynslu í þessu efni. Svo blandast auðvitað inn í þetta stærri mál eins og Mógilsármálið sem snertir Jón Gunnar, manninn minn, og Steingrím Sigfússon. Það fylgir engin biturð svona frásögn því maður hef- ur lært að nota jákvæða og neikvæða reynslu til að þroskast. Mér finnst skynsamlegt að finna út hvað ég get lært af eigin mistökum og fram- komu annarra í minn garð. Þetta gefur manni breiðari sýn á mannfólkið og sjálfan sig. Ég er mikil tilfinningavera og það er ekki um neitt annað að ræða en að láta lífið þroska sig. Það er alltaf þannig að jákvæðu þættirnir eru stærri og sterkari en hinir og það er hættulegt hverri manneskju að festast í neikvæðum hugsunum og missa þannig frá sér dýrmæta orku. Fyrir utan það að ala upp börnin mín voru veikindin sem ég lenti í mitt stærsta verkefni. Þegar þau komu upp ákváðum við Jón Gunnar að þetta væri stórt verkefni sem ég myndi ljúka og takast á við það af krafti. Það var aldrei efi í mínum huga að ég gæti það. Veikindin dýpkuðu skilning minn á því hvað langvarandi veikindi eru erfið fyrir fólk. Þótt það sé erfitt þá er nauð- synlegt að líta á veikindin sem jákvætt verkefni sem maður getur skilað áfram. Mér fannst hrikalegt að liggja í meðferð með ungum konum og körlum, sem varð ofviða að takast á við þetta, og missa þau. Þá leyfði ég mér að verða öskrandi reið og varð auðvitað kolvitlaus á köfl- um og æf út í þessar aðstæður og leyfði mér að láta það í ljós en það er alveg nauðsynlegt. Það er ekki gott að vera að sýnast og bæla niður til- finningar og skapa einhverja ímynd sem ekki stenst. Best er að gefa tilfinningunum lausan tauminn og leyfa þeim að flæða frá sér, það gef- ur betri líðan og kemur í veg fyrir að þær grafi um sig innra með manni og komi öfugar út á öðrum tíma,“ sagði Margrét sem er óþreytandi að stappa stálinu í fólk í veikindum og var ein af forsvarsmönnum þess að koma á fót samtök- unum Ljósinu, til stuðnings fólki með krabba- mein. Ein þeirra sem eru þar í forsvari er Sunn- lendingur, Erna Magnúsdóttir iðjuþjálfi. „Ég er alveg sátt við mín störf á Alþingi og held að hópurinn sem ég hef unnið fyrir sé það líka. Nú er kominn tími til að hætta og ég hef ekki fengið neitt bakslag út af þeirri ákvörðun. Ég treysti vel þeim sem taka við,“ sagði Mar- grét sem segist munu fylgjast vel með mannlífi og svo stjórnmálunum með öðru eyranu, það sé henni eðlislægt og í blóðinu eins og sagt er. Margrét Frímannsdóttir alþingismaður rifjar upp starfsævi sína og veikindi Ekki bæla niður tilfinningar Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Heima Margrét Frímannsdóttir alþingismað- ur í borðstofunni í Sandprýði á Stokkseyri. Í HNOTSKURN »Margrét Frímannsdóttir gerir upp við„strákastjórnmálin“ í bókinni Stelpan frá Stokkseyri. »Á menningarsamkomu í Hólmaröst ídag les Margrét upp úr bókinni, Auður Jónsdóttir les upp úr Tryggðarpantinum og lesið er upp úr ljóðabók Rutar Gunn- arsdóttur. Selfoss | „Það hefur verið gott að geta haft þetta til að grípa í og fást við í þessari glímu allri,“ sagði Gylfi Þ Gíslason, fyrrum kenn- ari, knattspyrnuþjálfari og söngmaður á Sel- fossi, sem bauð til út- gáfusamkomu á Hótel Selfoss á fimmtudags- kvöld í tilefni af útgáfu geisladisksins og mál- verkasýningar. Gylfi glímir við Park- insonsjúkdóminn og hefur með þrautseigju sett kraft í hugðarefni sín sem hafa lengi verið söngurinn og síðan málaralistin. Á nýja diskinum sem ber heitið Með mínu lagi, eru 10 lög sem Gylfi hefur hald- ið upp á. Af þeim má nefna Í fjarlægð, Draumalandið, nokkur Prestley-lög og tvo sálma, Ave María og Faðir vor. Gylfi syng- ur sjálfur lögin á diskinum við undirleik hljómsveitarinnar Lótus frá Selfossi. Disk- urinn var tekinn upp hjá Gunnari Árnasyni í Upptekið stúdíói sem gaf sína vinnu eins og Lótusmenn. Á málverkasýningunni eru 18 myndir, flestar akrílmyndir frá síðast- liðnu sumri. Það voru um 100 manns sem mættu á samkomuna á fimmtudagskvöldið, vinir og velunnarar Gylfa. Karlakór Selfoss söng nokkur lög og Leikfélag Selfoss var með leikkafla en Gylfi söng áður með Karla- kórnum og hefur tekið þátt í starfi og sýn- ingum Leikfélagsins. Það var líf og fjör á samkomunni og líflega boðið í sum mál- verkin á sýningunni. „Ég er að sjálfsögðu mjög glaður yfir þessu kvöldi, þetta var mér mikils virði,“ sagði Gylfi Þ. Gíslason um samkomuna. Hægt er að nálgast hljómdiskinn hjá Rakarastofu Björns og Kjartans á Selfossi og hjá Gunnari Árnasyni í Upptekið stúdíói. Gott að hafa þetta til að fást við í allri glímunni Gylfi Þ. Gíslason ÁRBORGARSVÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.