Morgunblaðið - 02.12.2006, Síða 30
tíska
30 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Klassískir gönguskór Gúmmírönd sér til
þess að leðrið rispist ekki. Nýja skátabúðin,
Esja-gönguskór 17.995 kr.
Hlý innanundir Flís-
peysur hafa löngu sann-
að gildi sitt. Everest,
Mountain hardwear-
flíspeysa 16.995 kr.
Í tískunni
Flíspeysur hafa
gengið í endurnýj-
un lífdaga, orðnar
klæðilegar og fal-
legar. Cintamani,
8.990 kr.
Eins og svefnpoki Fyrir konur og karla,
vatnsheld og vindheld úlpa. 66°N, Þórsmörk
dún Parka, 38.000 kr.
Klár í fjallgönguna Prosport-húfa 3.995
kr., Karrimor-flíspeysa 5.995 kr., Karri-
mor-jakki 16.995 kr., Icepeak soft chell-
buxur 8.995 kr. Nýja skátabúðin.
Nánast sprengjuheldur Jakkinn er límdur
saman en ekki saumaður og ver því vel gegn
vatni og vindum. Everest, Mountain hardwear-
jakki, þriggja laga goretex xcr 54.900 kr.
Fyrir eyrun Hlý og mjúk húfa með gerviskinni
að innan. Kaldi Arctic hat: 66°N, 5.200 kr.Tískuvitundin á
líka heima á fjalli
Hlý Það er gott
að hugsa til þess
að peysan haldi
vindi og hrindi
jafnvel frá sér
vatni. 66°N,
21.500 kr.
Gamli góði lopinn Síðastliðin tvö ár hefur
þeim fjölgað sem ganga um í stællegum lopa-
peysum. Sniðið er líka orðið mun kvenlegra
en áður. Cintamani, 16.990 kr.
Með grasið í skónum Þótt undarlegir séu í
útliti eru þeir flottir og þægilegir að bregða
sér í þegar slabbið og drullan tröllríða öllu.
Cintamani, 8.990 kr.
Höfuð og hendur Ef kalt er á toppstykkinu
og höndunum er ekki von á góðu. Everest,
Outdoor research-húfa og -vettlingar, 3.495
kr. og 5.995 kr.
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
V
etur konungur læsti klóm sínum í landsmenn óvenju snemma að þessu sinni.
Því var ekki úr vegi að þræða útivistarverslanir og athuga hvað er í tísku
fyrir útivistarfólk á þessum vetri, hvað er nýjast og hvað er þægilegast,
hvort sem ætlað er til langra göngutúra, spássítúrs á Laugaveginum eða til
að vaða slabbið.
Á Íslandi þar sem veður eru válynd er nauðsynlegt að vera vel gallaður þegar haldið
er af stað til útivistar af öllu tagi og ekki er verra að tískuvitundin sé líka með í för,
þannig að áfram sé hægt að aðgreina Íslendinga frá erlendum ferðamönnum sem eru
eiginlega alltaf eins klæddir, hvort sem þeir eru gangandi á Laugaveginum, sitja á
kaffihúsi í Austurstræti eða ætla sér að klofa yfir Vatnajökul.
Það eru ekki mörg ár síðan allur útivistarfatnaður var einhvern veginn með sama
sniði, stórskorinn og karlmannlegur. Nú síðustu ár hefur orðið því sem næst bylting í
hönnun útivistarfatnaðar, yfirhafnir ætlaðar konum orðnar aðsniðnar og jafnvel klæði-
legar.
Rauði liturinn virðist nokkuð vinsæll núna, mosagrænan má líka sjá á mörgum flíkum
og hvítt er sígilt. Appelsínugult er auðvitað mjög hagkvæmt ef fólk er á ferðinni þar
sem hætta er á að villast því viðkomandi er auðfundnari klæddur í skærappelsínugula
úlpu.
Í versluninni Cintamani eru til allsérkennileg stígvél eða kannski ætti frekar að kalla
þau gúmmískó, spurning hvort orðið nær því betur að vera lýsandi fyrir þennan furðu-
lega skófatnað, sem vekur áreiðanlega athygli hver sem ber hann á fótum sér.
Morgunblaðið/Ásdís