Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 34
34 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÁTÖK Í FRJÁLSLYNDA
FLOKKNUM
Það kemur ekki á óvart að átökhafi brotizt út innan Frjáls-lynda flokksins. Lengi hefur
mátt merkja, að þar skorti eitthvað á,
að allir gengju í takt. Hins vegar má
segja, að átökin hafi brotizt upp á yf-
irborðið með einkennilegum hætti.
Margrét Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Frjálslynda flokksins,
hefur lengi verið einn öflugasti for-
ystumaður flokksins, þótt hún hafi
ekki setið á þingi. Þar að auki hafa
margir litið svo á að hún væri fram-
arlega í forystusveit þeirra kvenna,
sem hafa afskipti af stjórnmálum al-
mennt.
Alla vega hefur ekki farið á milli
mála, að Margrét Sverrisdóttir hefur
verið kjölfestan í starfi Frjálslynda
flokksins í langan tíma. Það er því lít-
ið vit í því fyrir karlana í flokknum að
reyna að ýta henni út úr starfi flokks-
ins en það eru þeir augljóslega að
reyna með því að segja henni nánast
fyrirvaralaust upp starfi sem fram-
kvæmdastjóra þingflokksins.
Ef eitthvað væri hæft í þeim skýr-
ingum Guðjóns Arnars Kristjánsson-
ar, formanns Frjálslynda flokksins,
að henni hafi verið sagt upp vegna
þess að hún hyggi á þingframboð er
ljóst að þá hefði ekki verið staðið að
uppsögn Margrétar með þeim hætti,
sem gert var.
Frjálslyndi flokkurinn hefur aug-
ljóslega verið að reyna að skapa sér
framhaldslíf með gamalkunnum
hætti, sem ekki er hægt að bera neina
virðingu fyrir. Þvert á móti.
Í Morgunblaðinu í gær kveðst Mar-
grét hafa verið rekin úr stöðu sinni,
sem framkvæmdastjóri þingflokks-
ins, vegna þess að hún hafi mótmælt
rasískum hugmyndum nýrra aðila
innan flokksins.
Þessi ummæli sýna, að innan
Frjálslynda flokksins er fólk með
Margréti Sverrisdóttur í farar-
broddi, sem ekki vill ganga eins langt
í þessum málum og sumir aðrir.
Forystumenn Frjálslynda flokks-
ins eru að gera grundvallarmistök
með aðgerðum sínum gegn Margréti
Sverrisdóttur. Takist þeim að hrekja
hana úr flokknum, sem hún átti þátt í
að stofna, munu margir aðrir fylgja
henni úr Frjálslynda flokknum.
Þingflokkur Frjálslynda flokksins
er veikur ef undan er skilinn formað-
ur flokksins, sem höfðar sterkt til
grasrótarinnar meðal kjósenda.
Klofningur og átök innan flokksins
munu veikja hann enn frekar. Í raun
má segja, að Frjálslyndi flokkurinn
byggist á tveimur einstaklingum,
Guðjóni A. Kristjánssyni og Margréti
Sverrisdóttur.
Það getur enginn stjórnmálaflokk-
ur byggt sig upp til framtíðar með því
að höfða til þröngsýnna og neikvæðra
kennda meðal kjósenda. Það þarf
meira til að koma. Þess vegna stend-
ur Frjálslyndi flokkurinn nú á kross-
götum.
KÓKAÍN Í KÍLÓAVÍS
Tekinn með 3 kg af kókaíni við kom-una til landsins,“ gat að lesa í
feitletraðri fyrirsögn á forsíðu Morg-
unblaðsins á miðvikudag. Í fréttinni,
sem fylgdi, sagði að efnið hefði fund-
ist við ítarlega leit tollvarða. Fram
kom að söluverðmæti efnisins gæti
verið á bilinu 45 til 145 milljónir króna
og væri þetta mesta magn af kókaíni,
sem tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
hefði gert upptækt hjá einum manni.
Fréttir á borð við þessa eru ekki
einsdæmi og svo virðist sem magnið
færist jafnt og þétt í aukana.
Í frétt í Morgunblaðinu á fimmtu-
dag kom fram að lögreglan í Reykja-
vík teldi að þetta mikla magn kókaíns
gæti bent til þess að smyglarar væru
farnir að reyna að smygla stærri
sendingum til landsins en áður þekkt-
ist. Gert hefur verið upptækt amfeta-
mín, sem smygla átti til landsins, í svo
miklu magni á þessu ári að annað eins
þekkist ekki. Hleypur magnið af am-
fetamíni í fjórum stærstu málum árs-
ins á fleiri tugum kílóa.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkis-
lögreglustjóra hafa það sem af er
þessu ári tæp 13 kg af kókaíni verið
gerð upptæk. Árið er enn ekki liðið og
hefur þegar verið lagt hald á rúmlega
helmingi meira magn en árið 2004
þegar hald var lagt á næstmest magn,
eða rúm sex kg. Frá 1999 hefur hins
vegar að jafnaði verið lagt hald á um
eitt kg af kókaíni. Segja má því að
sprenging hafi orðið í smygli á kók-
aíni á þessu ári. Reyndar verður að
hafa þann fyrirvara að á þessu ári hafi
fyrir árvekni yfirvalda óvenju hátt
hlutfall eitursins verið gert upptækt,
en aukningin er slík að það getur vart
skýrt alla þessa aukningu kókaíns
sem lagt er hald á, þótt vissulega væri
óskandi að tollgæslan og lögreglan
væru einfaldlega að þurrausa mark-
aðinn.
Í heimi eiturlyfjanna er óvistlegt
um að litast og enginn er öfundsverð-
ur af því að dveljast þar. Tilvera fíkni-
efnaþrælsins er nöturleg. Yfirvöld
þurfa því að leggjast á árar til að
reyna að stöðva sem mest af þeim
fíkniefnum, sem flæða inn í landið.
Eftirlit með flugi er mjög mikil-
vægt í þeim efnum, en ekki má
gleyma höfnum landsins þar sem
leggjast að skip, sem koma frá öllum
heimshornum. Það þarf í raun að vera
hægt að fylgjast grannt með allri um-
ferð inn í landið. Einnig þarf baráttan
gegn fíkniefnasmygli að beinast að
því að stöðva höfuðpaurana. Raunin
er sú að í auknum mæli koma hingað
burðardýr með efnið, en þeir, sem eru
á bak við smyglið, útvega peningana
til að kaupa eitrið og maka krókinn
þegar það er selt, eru bak við tjöldin.
Það er spurning hvort ekki þurfi að
huga að því að búnir verði til hvatar
fyrir burðardýrin til að segja til for-
sprakkanna, til dæmis með því að
veita þeim skjól gegn hefndaraðgerð-
um.
Það er verulegt áhyggjuefni þegar
kókaín og önnur eiturlyf eru gerð
upptæk í kílóavís og ljóst að enn þarf
að herða aðgerðir.
Ýmsir núlifandi Íslendingareiga sárar æskuminningarfrá jólum vegna áfeng-isneyslu foreldra og því
miður hefur drykkja aukist og
neysla annarra vímuefna. Margt
bendir því til að ástæða sé til að fólk
staldri við og hugsi sinn gang, það er
sorglegt að hafa eytt bæði fé og fyr-
irhöfn í að búa sér og sínum gleðileg
jól og eyðileggja svo hátíðina með
drykkjuskap eða dópneyslu.
„Það eiga líka margir fullorðnir
sárar minningar um að hafa eyðilagt
jólin fyrir börnum sínum og sjálfum
sér vegna áfengis- og vímu-
efnaneyslu,“ segir Valgerður Rún-
arsdóttir, læknir á Vogi.
„Margir fíklar hafa lagt metnað
sinn í að vera alsgáðir á jólum, en
kannski er þetta að breytast með
breyttu neyslumynstri Íslendinga á
áfengi. Við sjáum í okkar tölum að
dagneysla hefur meira en tvöfaldast
í sjúklingahópnum undanfarin ár.
Og tölur frá ÁTVR sýna að við auk-
um áfengisneyslu ár frá ári. Þarna er
um að ræða bjór og léttvín sem
margir eru að sulla í nokkra daga í
viku. Ætla má að jólahaldið á mörg-
um heimilum sé breytt vegna þessa.
Áfengisvandi er auðvitað líka fyrir
hendi fyrir og um jólahátíðina eins
og á öllum öðrum tímum. Það eru
varla nokkrir einstaklingar sem
drekka bara um jólin, en vandinn
kemur meira í ljós þegar þessi fjöl-
skylduhátíð er, væntingar miklar og
vonbrigði því mikil.
Stærra vandamál
Áfengisvandinn hefur aukist frá
því SÁÁ var sett á stofn 1977 en ekki
minnkað, hann er viðvarandi. Það
sem er nýtt varðandi áfengisvanda
er að það eru að koma fleiri nýir í
fyrsta sinn í meðferð hjá okkur, eldri
en áður, komnir eitthvað yfir fimm-
tugt. Svona var þetta ekki, þetta
sýna nýjar tölur frá skráningu á inn-
lögnum á Vog sl. þrjú ár. Þessir ein-
staklingar nota líka lyf frá læknum,
róandi ávanalyf og sterk verkjalyf.
Þetta eru lyf á borð Sobril, Rivotril,
Imovane, Parkodín, Ibucod og mörg
önnur lyf – heill bálkur af svefnlyfj-
um, róandi lyfjum og kvíðastillandi
lyfjum.
Um helmingi fleiri konur en karl-
ar mynda fíkn í róandi ávanalyf, 36%
af konum sem koma á Vog eru lyfja-
fíklar á móti 15% karla.
Þetta er viss breyting, árið 1984
voru færri konur fíklar, 25%, en
þetta hefur hins vegar verið óbreytt
hjá körlum.
Hvað með fíkniefni svonefnd?
„Frá 1995 hefur verið stígandi
notkun á ólöglegum vímuefnum, svo
sem kannabis og amfetamíni, einnig
kókaíni og ecstasy.
Þessi vandi er meira áberandi hjá
yngra fólki og um helmingur af þeim
sem leggjast nú inn á Vog nota þessi
efni að staðaldri. Þess ber að geta að
áfengisvandinn er í flestum tilvikum
meðvirkandi lyfjum og ólöglegum
vímuefnum.
Það er minni munur í yngsta
hópnum á neyslumynstri. S
ánetjast sömu efnum og í ál
og piltar. Kannabisefni eru
alvandmál þessa aldurshóp
flestir sem hingað koma og
annað borð kannabisefni ge
daglega.
Í fyrra voru hér 620 einst
sem töldust stórneytendur
bis.“
Verði þið vör við að fólk l
frekar aðstoðar í kringum h
„Hátíðar eru ef eitthvað e
hindrun í að leita sér aðstoð
á ekki síst við um konur. Þa
allir vera heima á jólunum,
áfengissjúklingur, lyfjafíkla
ar sem nota ólögleg efni. Þó
meðferðarstöðvar okkar, V
og Staðarfell, að jafnaði ver
að 2/3 um jólahátíðar.
Það eru því alltaf einhver
láta meðferðina ganga fyrir
sumar fjölskyldur er meðfe
besta jólagjöfin.“
Hvað árangri skilar meðf
jafnaði?
„Meðferðin skilar mjög m
árangri og á mörgum sviðum
mið meðferðarinnar er mar
Ekki drekka eða d
Aðstoða vímuefnasjúklinga Frá vinstri Ingunn Hansdóttir, Va
Jólin eru hátíð barn-
anna. Drykkjuskapur og
dópneysla eiga að flestra
mati ekki samleið með
jólahaldi. Guðrún Guð-
laugsdóttir ræddi við
þær Valgerði Rúnars-
dóttur lækni, Ingunni
Hansdóttur sálfræðing
og Þóru Björnsdóttur
hjúkrunarforstjóra, um
jól, áfengi og meðferð.
Ingunn Hansdóttir sálfræð-ingur hefur sl. tvö ár sinntrannsóknarvinnu hjá SÁÁ.
„Ég rannsaka erfðir fíkn-
isjúkdóma í samvinnu við Íslenska
erfðagreiningu,“ segir Ingunn.
Er vímuefnavandi arfgengur?
„Fyrri rannsóknir benda til að
ýmsir þættir erfist og þessi gerir
það líka. Þessi rannsókn er sér-
stök að því leyti að við erum með
svo gott genasafn, við getum rakið
svo vel genin hér á Íslandi. Þátt-
takan í þessari rannsókn hefur
verið mjög góð og við erum þakk-
lát fyrir það.
Rannsóknin hefur m.a. sýnt að
það að eiga foreldra sem átt hafa
við vímuefnavanda að stríða eykur
líkurnar á að afkomendur þrói
með sér sama vanda. Þetta virðist
vera greinilegur fjölskyldusjúk-
dómur. Hann liggur í ættum og er
algengur. Segja má að fimmti
hver Íslendingur sé vímuefna-
sjúklingur, þar af eru áfeng-
issjúklingar langfjölmennastir.
Í þessari rannsókn eru líka
skoðuð tengsl við aðrar geðrask-
anir, svo sem kvíða og þunglyndi.
Fyrri rannsóknir sýna að sterk
tengsl eru þarna á milli en nið-
urstöður liggja ekki enn fyrir í
þessari rannsókn.“
Hefur drykkja á jólum og hátíð-
um mjög skaðleg áhrif á andlegt
ástand t.d. barna?
„Drykkja hefur mikil áhrif á
börn, bæði á jólum og á öðrum
tímum. Þessar afleiðingar eru oft-
ast slæmar þótt ýmsir ein-
staklingar komi ekki illa út úr
uppeldi hjá alkóhólistum. Sam-
skiptin innan fjölskyldunnar geta
orðið brengluð, börnin fara að
taka á sig ábyrgð sem er ekki við
hæfi og þau hafa kannski ekki
eðlilegar fyrirmyndir. Þess vegna
eiga börn alkóhólista oft erfitt
með að fóta sig í samböndum síðar
á lífsleiðinni. Almennt fylgir því
mikil streita að hafa alkóhólista
inni á heimilinu, kvíði og ó
– hvernig verður hann í d
Verður hann í lagi á jólun
Börnin læra að læðast m
veggjum og láta lítið fyrir
fara, þetta getur haft áhri
sjálfsmyndina og mikil sk
getur fylgt þessu líka.“
Verða sálfræðingar mik
við kvíða í sambandi við h
t.d. jólin?
„Þetta er rannsóknaref
fyrir sig. Ég tel þó að flest
lifi aðventuna og jólin sem
an tíma. En ef fólk hefur á
kvíðavandamál að stríða þ
þessi tími verið mjög erfið
Hvað á það að gera?
„Það þarf að læra að ta
við kvíðann og finna betri
að höndla hann. Sálfræðin
kennt þetta, – það kallast
stjórnun.“
Er ástæða fyrir umhver
skipta sér af ef ástand á h
skyldmenna eða nágranna
Ekki fela vandamálið!