Morgunblaðið - 02.12.2006, Síða 35

Morgunblaðið - 02.12.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 35 Stúlkur líka mæli að- ps. Lang- nota á era það taklingar kanna- eiti sér hátíðar? er fremur ðar, þetta að vilja líka ar og fíkl- ó hafa Vogur, Vík rið fylltar rjir sem r. Og fyrir erð fíkils ferð að miklum m. Mark- rgþætt, eitt þeirra er að halda sig frá öllum vímuefnum, en ekki síður er mark- mið að auka lífsgæðin. Hafa betri samskipti við fjölskylduna og auka afköst í vinnu og skóla. Þessi síð- arnefndi árangur hann getur varað þótt ekki sé um að ræða 100% bind- indi frá vímuefnum. Árangur í lang- vinnum vanda kemur í áföngum. Fyrsti árangurinn er að ljúka með- ferð og 80% af okkar sjúklingum hef- ur dugað að koma einu sinni til þrisv- ar á Vog. Við erum heppin að hafa möguleika á að bjóða upp á langa meðferð sem fylgt er eftir í eitt ár á göngudeild SÁÁ. Allar konur hafa möguleika á kvennameðferð á Vogi, Vík og svo ári í göngudeild- armeðferð. Sömuleiðis karlmenn sem hafa náð 55 ára aldri, við erum með sérmeðferð fyrir þá. Einnig fyr- ir karlmenn sem áður hafa farið í fulla meðferð. Við bjóðum einnig upp á meðferð fyrir maka og aðra að- standendur og foreldra ungra fíkla. Það ánægjulega er í þessu starfi hve margir ná sér vel og mikil breyt- ing til batnaðar verður á fólki sem fer í gegnum meðferð og nær að spjara sig vel í lífinu.“ dópa á jólunum! Morgunblaðið/Sverrir algerður Rúnarsdóttir og Þóra Björnsdóttir. óöryggi ag? num? með r sér if á ömm kið varir hátíðar, fni út af tir upp- m jákvæð- átt við þá getur ður.“ kast á i leiðir til ngar geta streitu- rfið til að heimilum a virðist erfitt vegna áfengis- eða vímu- efnaneyslu? „Já. Í fyrsta lagi hefur það sýnt sig að þegar fjölskyldur hafa stuðning þá reiðir þeim betur af. Í öðru lagi sýnir sig að börn sem hafa fullorðna ættingja eða vini til að styðja sig við hafa ákveðna vernd og lenda síður í að verða kvíða að bráð eða fórnarlömb slæmra aðstæðna.“ Ef fólk ákveður að skipta sér af, hvernig á það að gera það? „Ef um er að ræða vímu- efnaneyslu þá er best að fjarlægja barnið, t.d. að bjóða því í heim- sókn meðan ástandið er slæmt. Í framhaldi af þessu er svo rétt að ræða við viðkomandi fjölskyldu og í samvinnu við hana að finna út leiðir til að takast á við vandann. Aðalmálið er að opna á umræðu, ekki fela vandamálið. Fjölskyldur sem staddar eru í vanda eiga til að einangra sig og þá vex vandinn að sama skapi.“ Það er búið að leggja svomikla vinnu í Doha-við-ræðurnar í svo langantíma að það er nær útilok- að að þjóðir heims gefist upp við þetta verkefni. Þetta var mat Peters Allgeiers, sendiherra Bandaríkj- anna hjá WTO, og Matthews Baldw- ins, fulltrúa yfirstjórnar viðskipta- mála hjá Evrópusambandinu, en þeir ræddu framtíð viðræðnanna á ráðstefnu sem EFTA stóð nýverið fyrir um frjáls viðskipti og alþjóða- væðingu. Báðir hafa þeir tekið virk- an þátt í Doha-viðræðunum í langan tíma. Þessar vikurnar er verið að reyna að hleypa nýju lífi í Doha-samninga- viðræðurnar, en í þeim er fjallað um frjáls viðskipti, m.a. á landbúnaðar- vörum. Doha-viðræðurnar, sem kenndar eru við borgina Doha í Kat- ar, hófust formlega árið 2001. Upp- haflega var stefnt að því að ljúka við- ræðunum á fjórum árum. Mjög illa hefur hins vegar gengið að binda endahnút á viðræðurnar. Allar þjóðir vilja verja störfin Ágreiningur í landbúnaðarmálum er hin hefðbundna skýring á því hvers vegna illa gangi að ná sam- komulagi um nýjan fríverslunar- samning sem nái til heimsins alls. Duncan Campbell, framkvæmd- istjóri hjá Alþjóðavinnumálastofn- uninni ILO, sagði á ráðstefnu EFTA að allt eins mætti útskýra stöðuna í Doha-viðræðunum með einu orði, störf. Atvinnuleysi væri mikið vandamál í flestum löndum heims og stjórnvöld í hverju landi teldu það skyldu sína að verja störfin. Þó að nýr alþjóðlegur fríverslunarsamn- ingur sé talinn örva hagvöxt og fjölga störfum í heiminum mun hann einnig hafa neikvæð áhrif á störf í einstökum löndum og þá fyrst og fremst í landbúnaði. Þegar síðustu samningalotunni í Doha-viðræðunum lauk í sumar var það fyrst og fremst þrennt sem kom í veg fyrir að samningar næðust. Bandaríkjamenn hefðu þurft að taka á sig meiri niðurskurð í innanlands- stuðningi við landbúnað. Evrópu- sambandið hefði þurft að veita meiri markaðsaðgang fyrir landbúnaðar- vörur. Ennfremur töldu margir að það vantaði mikið upp á að stærri þróunarríki eins og Indland og Bras- ilía, sýndu nægilegan vilja til að koma á móts við kröfur um að opna markaði sína fyrir iðnaðarvörur. Hvar getum við slegið af kröfum? Það má kannski segja að viðræð- urnar séu fastar í einhverju fari sem stærstu og voldugustu þjóðum heims reynist erfitt að koma sér upp úr. En hvað þarf að gerast til að sam- komulag takist. Peter Allgeier, sendiherra Bandaríkjanna hjá WTO, var spurður þessarar spurn- ingar á ráðstefnu EFTA. Hann sagði að samningamenn þyrftu að spyrja sig þeirrar spurningar, hvar getum við að borgað meira og hvar getum við sætt okkur við að slá af kröfum? Það er ljóst að það er samstaða milli Bandaríkjanna og Evrópusam- bandsins á ýmsum sviðum, m.a. um að gera kröfur til þróunarlandanna, bæði smærri og stærri þjóða, um lækkun á tollum með iðnvarning. Áherslur þeirra í landbúnaðarmál- um eru hins vegar ekki þær sömu. Það er ljóst að nái Bandaríkin og Evrópusambandið saman um erfið- ustu deilumálin aukast líkur á að samkomulag náist um Doha-viðræð- urnar. Það er þó alls ekki víst að samningar náist þótt þessir tveir að- ilar nái saman vegna þess að stóru þjóðirnar eins og Kína, Indland, Brasilía og fleiri þjóðir fá æ meiri vikt í alþjóðaviðskiptum. Þegar síð- asta viðræðulota rann út í sandinn í sumar var það mat samningamanna Bandaríkjanna að tregða Indlands og Brasilíu til að veita markaðsað- gang fyrir iðnvarning hefði átt mik- inn þátt í árangursleysi viðræðn- anna. Þær óformlegu viðræður sem átt hafa sér stað á síðustu vikum um að koma Doha-viðræðunum á skrið á ný hafa m.a. snúist um að samninga- menn einbeiti sér að þjónustuhluta Doha-samningaviðræðnanna. Við- skipti með þjónustu eru vaxandi og greinilegt að mikill áhugi er á alþjóð- legum samningi sem greiðir fyrir þjónustuviðskiptum. Samningsumboð Bandaríkjanna að renna út Eitt af því sem valdið hefur svart- sýni um framtíð Doha-viðræðnanna er að umboðið sem þingið í Banda- ríkjunum gaf George W. Bush, Bandaríkjaforseta, til að gera nýjan fríverslunarsamning rennur út um mitt næsta ár. Tíminn til að ljúka samningum áður en þetta umboð rennur út er því mjög skammur. Það er allt annað en einfalt mál að sækja nýtt umboð til þingsins. Sumir telja að eftir að demókratar unnu sigur í þingkosningunum í nóvember geti orðið tafir á því að samningsumboðið verði endurnýjað. Þá eru aðeins tvö ár í forsetakosningar í Bandaríkjun- um sem einnig skipta máli í þessu samhengi. Peter Allgeier, sendiherra Banda- ríkjanna, lagði hins vegar áherslu á það á ráðstefnu EFTA, að stjórnvöld í Bandaríkjunum legðu mikla áherslu á að ná samkomulagi í Doha- viðræðunum. Úrslit þingkosning- anna í Bandaríkjum breyttu þar engu um. Eru svæðisbundnir samningar lausnin? Sú svartsýni sem einkennt hefur framtíð Doha-viðræðnanna hefur leitt til þess að menn hafa velt fyrir sér öðrum kostum ef viðræðurnar leiða ekki til samkomulags. Þar horfa menn fyrst og fremst á svæð- isbundna fríverslunarsamninga. EFTA hefur undanfarin ár lagt áherslu á að ná fríverslunarsamn- ingum við öflugar þjóðir, en samtök- in hafa við gerð 16 fríverslunarsamn- inga. Í dag nær fríverslunarnet Íslands til ríkja í fjórum heimsálfum með 850 milljónum íbúa. EFTA er áfram að vinna að samningum á þessu sviði. Nýlega var lokið samn- ingaviðræðum við Egyptaland og þá hefur þráðurinn verið tekinn upp að nýju í viðræðum við Kanada og eru vonir bundnar við að takist að ljúka þeim samningum á þessu ári. Sama þróun á sér stað í öðrum heimshlutum þar sem áhugi er á að stækka og dýpka fríverslunarsamn- inga. Ástralía og Japan hafa t.d. átt í viðræðum um gerð fríverslunar- samnings. Ef samkomulag næst um slíkan samning er víst að Nýja-Sjá- land mun leggja mikla áherslu á að ná sambærilegum samningi við Jap- an. Verða þróunarlöndin skilin eftir? Það eru hins vegar ókostir við svæðisbundna fríverslunarsamn- inga. Í fyrsta lagi er viss hætta á að með slíkum samningum reisi þjóðir nýjar girðingar innan fríverslunar- svæðanna sem virki takmarkandi fyrir þjóðir sem standa utan við samningana. Í öðru lagi þýða svæð- isbundnir samningar að hætt er við að margar þjóðir fái ekki þann mark- aðsaðgang sem þær þurfa nauðsyn- lega á að halda. Það er t.d. hætt við að erfitt verði fyrir ýmsar fátækar þjóðir að gera fríverslunarsamninga. Kosturinn við þann samning sem stefnt er að því að ná í Doha-viðræð- unum er einmitt að þar eiga allar þjóðir jafnan aðgang. Slíkur samn- ingur kemur jafnt til með að nýtast stórum og voldugum þjóðum og smáum og fátækum. Eitt af mark- miðum Doha-viðræðnanna er að gefa þróunarlöndunum aðgang að mörkuðum á Vesturlöndum en það er talið skipta miklu máli varðandi baráttu gegn fátækt í þessum lönd- um. Því hefur verið haldið fram að toll- frjáls aðgangur þróunarlandanna að mörkuðum á Vesturlöndum, m.a. fyrir landbúnaðarvörur, muni hafa meiri þýðingu en öll þróunarhjálp sem þróunarlöndin fá. Morgunblaðið/Golli Sauðfé Doha-viðræðurnar gætu haft víðtæk áhrif á landbúnað á Ís- landi. Mjög illa hefur gengið að binda endahnútinn á viðræðurnar. Eru Doha-samninga- viðræðurnar dauðar? Í HNOTSKURN » Samkomulag í Doha-viðræðunum er talið þýð- ingarmikið fyrir þróun- arlöndin, en samkomulagið nýtist ekki öllum. Sum þróun- arríkin eru svo fátæk að fleira þarft að koma til. » Umboð sem þingið veittistjórn Bush forseta til að ná samkomulagi í Doha- viðræðunum rennur út um mitt næsta ár. Óljóst er hvaða áhrif úrslit kosninganna í Bandaríkjunum hafa á við- ræðurnar. Fréttaskýring | Árang- ursleysi samningamanna í Doha-viðræðunum hef- ur leitt til þess að sumir telja nær að einbeita sér að svæðisbundnum frí- verslunarsamningum en að halda viðræðunum áfram. Egill Ólafsson velti fyrir sér framtíð Doha-viðræðnanna en nú er verið að reyna að blása nýju lífi í þær. „ÞAÐ felst mikil heilsuefling í áfengis- og vímuefnameðferð,“ segir Þóra Björnsdóttir hjúkr- unarforstjóri á Vogi. „Fólk þarf að átta sig á fyrr en oft er hve mikilvægt það er að fara í meðferð. Það er í raun greið og opin leið að taka þá ákvörðun að fara í meðferð. Mér finnst svo napurt að fólk skuli bíða þar til það er komið í al- gjört þrot hvað snertir lík- amlega heilsu og andlega getu, sem og félagslega og efnahags- lega stöðu áður en það bankar uppá hjá SÁÁ. Margir segja: „Æ, ég vildi að ég hefði komið fyrr!“ Mitt svar við þessu er að heilbrigðisstarfs- fólk, læknar, hjúkrunarfræð- ingar og aðrir, ættu að leitast við að greina þennan sjúkdóm þegar fólk er að leita hjálpar við einkennum svo sem þunglyndi, svefnleysi, verkjum og síþreytu, sem oft er fylgifiskar drykkju, ofneyslu lyfja eða fíkniefna- neyslu. Heilbrigðisstarfsmenn ættu að spyrja beint út hvort og hvenær viðkomandi hafi síðast drukkið eða notað róandi lyf til að geta komið sér af stað út í lífið. Þetta virðist vera feimnismál en ætti ekki að vera það. Hluti af vandanum er sá að viðkomandi einstaklingur, sem leitar sér aðstoðar, er oft í af- neitun hvað neysluna snertir og leitar skýringa annars staðar á líðan sinni. Gjarnan ber fólk sig saman við aðra og finnst það ekki í eins vondum málum. Viðkomandi segir þá: „Ég mæti alltaf í vinnu þótt ég fái mér í glas!“ Við þurf- um að leita leiða til að greina þennan sjúkdóm á byrj- unarstigi.“ Er fólk tilbúnara til að leita sér hjálpar t.d. við stóra áfanga í lífinu eða við hátíðar svo sem fyrir jól? „Það ætlar sér enginn sem er áfengissjúkur að fara yfir strikið eða verða öðrum til ama. En ef fólk er veikt þá gerist það, hvort sem það eru jól, hátíðisdagar eða bara venjulegar helgar. Um áramót eða við önnur tímamót setur fólk sér gjarnan markmið, svo sem að vera „edrú amma“ eða eitthvað annað. Slíkt er oft hvatinn til að leita sér að- stoðar, fólk kemur því fremur eftir jól en fyrir jól í inniliggj- andi meðferð. Það, að við getum boðið upp á svona víðtæka meðferð og þjón- ustu sem SÁÁ hefur verið að gera í vaxandi mæli sl. 30 ár, auðveldar fólki að leita sér lækninga. Markmið hjúkrunar í afeitrun er að stuðla að heildrænni hjúkrun sem samræmist þörfum hvers og eins. Það gerum við hér með því að skapa öruggt og hlýlegt umhverfi þannig að sjúk- lingar geti farið í gegnum frá- hvarfseinkenni með fullri reisn. Allir eru boðnir velkomnir og þeim óskað til hamingju með þá ákvörðun að leita sér aðstoðar til að komast frá vímuefnavanda sínum. Fólk er oft hrætt við að koma í meðferð, heldur að það verði „tekið í gegn“ og skammað, en það er alls ekki þannig. Meðferð er fræðsla, stuðningur og hvatn- ing. Þeir sem koma hingað eru á öllum aldri, frá 15 til 80 ára og allir eru velkomnir og aldrei er of seint að fara í meðferð.“ Í með- ferð fyrir jól?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.