Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 48

Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 48
48 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Aldarminning sr. Garðars í Hafnarfjarðarkirkju ÖLD er liðin í dag, laugardaginn 2. desember, frá fæðingu sr. Garðars Þorsteinssonar prófasts, er þjónaði Hafnarfjarðarkirkju sem sókn- arprestur hennar frá árinu 1932– 1977 eða í full 45 ár. Sr. Garðar fæddist á Akureyri 2. desember 1906 og lést laugardag- inn fyrir páska, 14. apríl 1979. Sr. Garðar stjórnaði Karlakórn- um Þröstum um árabil og söng líka einsöng með kórnum. Jafnframt var hann lengi í Karlakórnum Fóst- bræðrum og var þá einn helsti ein- söngvari hans. En fyrr söng hann í Karlakór KFUM, sem var und- anfari Fóstbræðra. Hann var heið- ursfélagi bæði Fóstbræðra og Þrasta. Hátíðarhöld vegna aldarminn- ingar sr. Garðars munu fara fram í Hafnarfjarðarkirkju á afmælisdegi hans laugardaginn 2. desember og sunnudaginn 3. desember, sem er 1. sunnudagur í aðventu. Í dag, laugardag, kl. 15 hefjast kórtónleikar og samsöngur eldri Fóstbræðra og yngri og eldri Þrasta í Hafnarfjarðarkirkju. Stjórnendur verða Guðjón Halldór Óskarsson, Jónas Ingimundarson og Jón Kristinn Cortes. Á sunnudeginum kl. 11 hefst há- tíðarmessa í Hafnarfjarðarkirkju. Prestar verða sr. Gunnar Krist- jánsson prófastur, sr. Gunnþór Þ. Ingason sóknarprestur, sr. Þórhall- ur Heimisson prestur og sr. Þór- hildur Ólafs, sem þjónaði við kirkj- una til margra ára. Söngkonurnar Jóhanna Linnet, Ingveldur G. Ólafsdóttir, Margrét Pálmadóttir, Guðný Árnadóttir, Ragnheiður Lin- net og Hanna Björk Guðjónsdóttir, sem fyrr sungu í Kór Hafnarfjarð- arkirkju munu syngja í messunni ásamt Kór Hafnarfjarðarkirkju undir stjórn Antoníu Hevesi org- anista og unglingakór undir stjórn Helgu Loftsdóttur við undirleik Önnu Magnúsdóttur. Ingibjörg Kristjánsdóttir, nemandi við Tón- listarskóla Hafnarfjarðar, mun leika á víólu. Söngkonurnar syngja líka í móttöku og samsæti í Hásöl- um Strandbergs eftir messuna. Þar mun sr. Björn Jónsson, fyrr- um prófastur og sóknarprestur í Keflavík og á Akranesi, flytja Svip- myndir af samleið. Upphaf aðventu í Garðaprestakalli. HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA verð- ur í Vídalínskirkju á forsendum allrar fjölskyldunnar sunnudaginn 3. desember kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar ásamt Jóhönnu Guð- rúnu Ólafsdóttur djákna og Hjör- dísi Rós Jónsdóttur. Jóhann Bald- vinsson organisti og kór Vídalínskirkju leiða lofgjörðina. Suzuki-nemendur úr Tónlistarskól- anum í Kópavogi leika á fiðlur. Í lok guðsþjónustunnar verður opnuð sýning í kirkjunni á verkum Birgis Snæbjörns Birgisson. Þema sýningarinnar er sótt í Gal. 3:28 „Hér er enginn Gyðingur né grísk- ur, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þér eruð allir eitt í Kristi Jesú.“ Það er listanefnd Vídal- ínskirkju sem hefur veg og vanda af undirbúningi sýningarinnar. Eft- ir guðsþjónustuna munu Lions- félagar sjá um léttar veitingar í safnaðarheimilinu. Kl. 14 verður aðventuguðsþjón- usta í Garðakirkju með þátttöku kvenfélags Garðabæjar. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar fyrir altari og Dröfn Farestveit flytur hugleið- ingu. Kvenfélagskonur halda uppi heiðri íslenska þjóðbúningsins þennan dag og mæta „uppá- klæddar“. Kl. 15.30 verður kyrrðar- og íhugunarstund í Garðakirkju þar sem látinna verður minnst. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar ásamt hjónunum Jóhanni Baldvinssyni organista og Guðrúnu Þórarins- dóttur víóluleikara. Strax að lok- inni stundinni eða kl. 16 verða ljós- in tendruð á leiðunum í Garðakirkjugarði. Kl. 17 verður aðventusamkoma í Bessastaðakirkju. Þar munu Álft- aneskórinn og eldri barnakór Álfta- nesskóla verða í stóru hlutverki, en það er Bjartur Logi Guðnason org- anisti sem leiðir kórana í lofgjörð- inni. Sr. Bolli Pétur Bollason pré- dikar og þjónar ásamt sr. Jónu Hrönn Bolladóttur og Grétu Kon- ráðsdóttur djákna. Jólin og sorgin Fimmtudagskvöldið 7. desember kl. 19.30 verður ungu fólki í Garða- prestakalli, sem hefur farið í gegn- um missi, boðið til samveru í safn- aðarheimili Vídalínskirkju. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson verður með innleiðingu, en guðfræðing- arnir Sigríður Tryggvadóttir og Ármann Hákon Gunnarsson munu halda utan um starfið í vetur. Þetta sama kvöld kl. 20 verður boðið upp á fyrirlestur í safn- aðarheimilinu með yfirskriftinni „Jólin og sorgin“. Fyrirlesari er sr. Gunnar Matthíasson, starfandi sjúkrahúsprestur. Kl. 21 verður svo kyrrðarstund í Vídalínskirkju í umsjá sr. Jónu Hrannar Bolladóttur og Jóhanns Baldvinssonar org- anista. Aðventukvöld í Digraneskirkju til styrktar Hjálp- arstarfi kirkjunnar Á aðventukvöldi sunnudaginn 3. desember kl. 20 í Digraneskirkju í Kópavogi beinum við huga okkar í hæðir um leið og við styrkjum þau sem hungrar og þyrstir. Kór Digra- neskirkju, undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar organista, syngur falleg kirkjuleg kórverk. Fram koma Guðrún Lóa Jónsdóttir, Matt- hildur Matthíasdóttir, Vilborg Helgadóttir, Þórunn Freyja Stef- ánsdóttir og syngja einsöng. Ræðu- maður kvöldsins er Hjörtur Pálsson cand.mag. Í upphafi stundarinnar munu Dróttskátar úr Kópavogi bera í kirkju friðarljós,sem kveikt var í Betlehem. Því ljósi hefur verið haldið lifandi í mörg ár. Eftir dag- skrá aðventukvöldsins er kirkju- gestum boðið að þiggja veitingar í Safnaðarsal Digraneskirkju og styrkja um leið Hjálparstarf kirkj- unnar með fjárframlagi. Vonumst við til að Kópavogsbúar njóti ynd- islegrar samveru í Digraneskirkju sunnudagskvöldið kl. 20. Nánari upplýsingar um safnaðarstarf má finna á www.digraneskirkja.is . Aðventusamkoma í Kópavogskirkju HIN árlega aðventusamvera Kópa- vogskirkju verður sunnudaginn 3. desember kl. 17, fyrsta sunnudag í jólaföstu. Að venju verður efnis- skráin fjölbreytt og lögð verður áhersla á helgi og nærandi sam- veru. Kór Kópavogskirkju syngur aðventu- og jólalög og leiðir al- mennan söng undir stjórn Sigrúnar Steingrímsdóttur organista. Dr. Pétur Pétursson flytur aðvent- uræðu. Sigríður Stefánsdóttir les jólasögu og Guðrún S. Birgisdóttir leikur á flautu. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson annast ritning- arlestur, bæn og blessun. Samver- unni lýkur með almennum söng og samleik á orgel og flautu. Verið þið hjartanlega velkomin. Regnbogamessa í Fríkirkjunni í Reykjavík FJÖLSKYLDU- og Regnboga- messa kl 14. Þessi messa er sam- starf Fríkirkjunnar í Reykjavík og ÁST, trúarhóps Samtakanna 7́8. Eru meðlimir samtakanna virkir þátttakendur í messunni, með lestr- um, bænum og aðstoð við útdeil- ingu. Anna Sigga og Carl Möller leiða tónlistina. Kveikt verður á fyrsta aðventukertinu með viðeig- andi söng og jólatréð skreytt. Alt- arisganga. Messuna leiðir sr. Ása Björk Ólafsdóttir. Aðventukvöld á Akranesi AKRANESSÖFNUÐUR heldur að- ventuhátíð í Safnaðarheimilinu Vinaminni í dag, sunnudag, kl. 20. Fjölbreytt dagskrá verður í tali og tónum. Kammerkór Akraness syng- ur jólalög og sálma. Stjórnandi kórsins er Sveinn Arnar Sæmunds- son organisti. Ræðumaður kvölds- ins verður Sigríður Kr. Valdimars- dóttir. Dóttir hennar, Guðrún Valdís Jónsdóttir, leikur tónverk á píanó. Stúlknakór Akraneskirkju flytur helgileikinn Hljóðu jóla- klukkurnar. Viðar Guðmundsson leikur með á píanó en sögumaður er Ólína Jónsdóttir. Í lok samver- unnar verður kveikt á kertum og sunginn sálmur. Akurnesingar eru hvattir til þess að fjölmenna á aðventuhátíðina og njóta þess sem þar verður flutt. Jólafundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju JÓLAFUNDUR verður haldinn mánudaginn 4. desember kl. 20. Dagskrá: Bryndís Schram fjallar um jólahald í ýmsum löndum og segir frá heimkomu sinni eftir langa fjarveru. Þorvaldur Hall- dórsson söngvari flytur jólalög. Jólalegar veitingar, súkkulaði og smákökur. Stjórnin. Aðventuhátíð í Grafarvogskirkju – borgarstjóri flytur hátíðarræðu FYRSTI sunnudagur í aðventu verður hátíðlegur í Grafarvogs- kirkju. Hefst hann með sameig- inlegri barna- og fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Barnakór Grafarvogskirkju flytur helgileik. Stjórnandi: Svava Kristín Ingólfs- dóttir. Organisti: Gróa Hreinsdóttir Barnaguðsþjónusta verður einn- ig í Borgarholtsskóla kl. 11. Prest- ur séra Anna Sigríður Pálsdóttir. Gunnar Einar Steingrímsson æsku- lýðsfulltrúi spilar á gítar, Díana og Dagný Guðmundsdætur hafa um- sjón. Kveikt verður á fyrsta að- ventukertinu sem heitir spádóms- kerti, óvæntur gestur kemur í heimsókn og það verður glens og gaman. Undirleikari er Guðlaugur Viktorsson. Aðventuhátíð kl. 20. Harm- ónikkusveit spilar frá kl. 19.30. Ræðumaður er Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarstjóri. Einar Már Guðmundsson, rithöfundur les úr nýrri ljóðabók sinni. Unglingakór Grafarvogskirkju og Kór Graf- arvogskirkju syngja. Stjórnandi er Svava Kr. Ingólfsdóttir, organisti er Gróa Hreinsdóttir. Ferming- arbörn flytja helgileik. Jólalaga- sveitin spilar á fiðlur. Ellen Krist- jánsdóttir syngur einsöng og Eyþór Gunnarsson spilar undir á píanó. Prestar safnaðarins flytja bæn- arorð. Aðventan í Hallgrímskirkju FJÖLBREYTT dagskrá helgihalds og tónleika hefst á fyrsta sunnudag í aðventu í Hallgrímskirkju. Hátíð- armessa sunnudagsins hefst kl. 11 og verður haldin í samvinnu við Hjálparstarf kirkjunnar, en aðvent- an er aðal söfnunartími Hjálp- arstarfsins um allt land. Í Hall- grímskirkju verður safnað til Hjálparstarfsins í öllum messum aðventunnar. Biskup Íslands Karl Sigurbjörns- son prédikar í messunni og þjónar fyrir altari ásamt prestum Hall- grímskirkju og messuþjónum sem koma úr röðum sjálfboðaliða Hall- grímskirkju og Hjálparstarfs kirkj- unnar. Formaður stjórnar Hjálp- arstarfsins Þorsteinn Pálsson ritstjóri, les ritningargrein. Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar og organisti verður Björn Steinar Sól- bergsson. Barnastarfið verður á sama tíma með hefðbundnum hætti og eftir messu verður boðið upp á ávaxta- safa og kaffi. Síðdegis kl. 17 verða jóla- tónleikar Mótettukórsins, en þeir verða svo endurteknir mánudag kl. 20. Hluti af ágóða tónleikanna rennur til Hjálparstarfs kirkj- unnar. Fyrsti sunnudagur í aðventu í Breiðholtskirkju TVÆR athafnir verða í Breiðholts- kirkju í Mjódd fyrsta sunnudag í að- ventu: Kl. 11 verður fjölskyldu- guðsþjónusta. Kór Snælandsskóla syngur undir stjórn Heiðrúnar Há- konardóttur. Við tendrum fyrsta kertið á aðventukransinum, heyr- um fallega sögu og fáum brúður í heimsókn. Hin árlega aðventuhátíð Breið- holtssafnaðar verður síðan haldin kl. 20. Að venju verður fjölbreytt dagskrá, sem miðuð er við alla fjöl- skylduna: Börn tendra ljós á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Söng- sveitin Fílharmónía og Barnakórar Breiðholtskirkju flytja aðventu- og jólasöngva undir stjórn organist- ans, Magnúsar Ragnarssonar, og Ástu B. Schram. Börn úr 6. bekk Breiðholtsskóla færa kirkjunni fjárhúsið í Betlehem. Ferming- arbörn sjá um upplestur og helgi- leik, og Stefán Einar Stefánsson, formaður félags guðfræðinema, flytur aðventuhugleiðingu. Hátíð- inni lýkur með helgistund við kertaljós. Síðan verður boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur, sem seldar verða til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. Einnig munu ferming- arbörn selja friðarkerti til styrktar hjálparstarfinu.Sr. Gísli Jónasson. Aðventukvöld Laugarneskirkju HIÐ árlega aðventukvöld í Laug- arneskirkju verður á sunnudag kl. 20. Ræðumaður að þessu sinni er Laugarnesbúinn Hörður Jóhann- esson, yfirlögregluþjónn í Reykja- vík. Kór Laugarneskirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar organista og fær aðstoð fimm ára barna frá leikskólanum Laugaborg. Fermingarbörn munu flytja frumsamdar bænir undir handleiðslu prestanna en að dag- skrá lokinni býður sóknarnefndin upp á heitt súkkulaði og smákökur í safnaðarheimilinu. Sorgin og lífið í Laugarneskirkju MANNRÆKTARKVÖLD í Laug- arneskirkju eru á þriðjudags- kvöldum. Þriðjudaginn 5. desember ætlum við að huga að sorginni. Kl. 20 verður kvöldsöngur að venju þar sem Þorvaldur Halldórsson og Gunnar Gunnarsson leiða söng og sóknarprestur flytur Guðs orð og bæn. Kl. 20.30 er molasopi í safn- aðarheimilinu áður en söngkonan Erna Blöndal býður fólki með sér upp í kirkjuna að nýju, þar sem hún, ásamt eiginmanni sínu Erni Arnarsyni, mun fjalla um og flytja nokkra sálma sem hafa orðið henni til styrktar á vegi sorgar. Þá mun sr. Bjarni Karlsson sóknarprestur bjóða fólki með sér í seinni sopann yfir í safnaðarheimilið að nýju þar sem fram mun fara samtal um sorg- ina og verkefni hennar. Dómkirkjan – aðventukvöld Í Dómkirkjunni er aðventukvöld sunnudaginn 3. desember kl. 20. Ræðumaður kvöldsins er frú Þór- unn Björnsdóttir, kórstjóri Kórs Kársnesskóla. Kórar kirkjunnar syngja aðventu- og jólalög, Dóm- kórinn undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar dómorganista og Barna/unglingakórinn undir stjórn Kristínar Valsdóttur. Frumfluttur verður nýr sálmur sr. Hjálmars Jónssonar og Marteins H. Friðriks- sonar. Kirkjunefnd kvenna annast und- irbúning ásamt prestum og starfs- liði og býður nefndin kirkjugestum að þiggja veitingar í Safnaðarheim- ilinu að dagskránni lokinni í kirkj- unni. Aðventudagskrá jólanna hefst með aðventukvöldinu. Fram undan eru vikur glaðværðar, eftirvænt- ingar og undirbúnings. Sjáið dagskrá Dómkirkjunnar um aðventu og jól á www.dom- kirkjan.is Heimsókn frá Færeyjum UM helgina verður Thomas Dam, formaður í stjórninni fyrir Fær- eysku Heimamissiónin í heimsókn á Færeyska Sjómannaheimilinu. Í til- efni þess verður kvöldvaka laug- ardaginn 2. desember kl. 20 og samkoma sunnudaginn 3. desember Morgunblaðið/Ómar Hafnarfjarðarkirkja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.