Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 52
52 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í LJÓSI umræðna undanfarið um stöðu Rík-
isútvarpsins á auglýsingamarkaði í tengslum
við frumvarp á Alþingi um ný útvarpslög vill
félagsfundur SÍA, haldinn 29. nóvember 2006,
leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
Félagsfundur SÍA lýsir miklum efasemdum
á þeirri skoðun að takmarka beri aðgang RÚV
að auglýsingamarkaði. Ástæða þess er sú að
RÚV er öflugur fjölmiðill sem höfðar til stórs
hóps neytenda með dagskrá sinni í útvarpi og
sjónvarpi. Á meðan svo er málum komið, er
það algjörlega andstætt hagsmunum neytenda
og auglýsenda að ekki sé möguleiki að auglýsa
í Ríkisútvarpinu. Í nútíma upplýsingaþjóð-
félagi er það réttur hvers fjölmiðils að eiga
kost á að birta neytendum auglýsingar, óháð
því hver eignasamsetning miðilsins er. Slíkt er
sjálfsögð þjónusta við neytendur, að þeir eigi
kost á sem breiðustu upplýsingamagni í þeim
miðli sem þeir nota. Lítil sem engin umræða
hefur verið um hver yrði staða neytenda ef
RÚV hverfur af auglýsingamarkaði. Fé-
lagsfundur SÍA telur hins vegar að þetta sé
mjög mikilvægt atriði sem ekki megi verða út
undan í þeirri umræðu sem nú fer fram um
stöðu RÚV.
Félagsfundur SÍA tekur ekki afstöðu til
þess hvort rétt eða rangt sé að hið opinbera
standi í rekstri fjölmiðla sem reknir eru að
hluta til með auglýsingafé. Ljóst er að með nú-
verandi fyrirkomulagi ríkir ákveðið ójafnvægi
í samkeppnisstöðu milli Ríkisútvarpsins og
einkarekinna ljósvakamiðla hvað tekjuöflun
varðar. Hér er hins vegar bent á þær aðstæður
sem koma upp ef aðgangur RÚV að auglýs-
ingamarkaði er takmarkaður að nokkru eða
öllu leyti. Aðgangur auglýsenda að stórum
hópi landsmanna takmarkast þá mjög og að-
gangur almennings að nauðsynlegum upplýs-
ingum verður þar af leiðandi takmarkaðri. Þá
er ekki ólíklegt að minni samkeppni á auglýs-
ingamarkaði geti leitt til fákeppni og til hækk-
unar á auglýsingaverði sem aftur geti leitt til
hækkunar vöruverðs.
Í þessu ljósi skal bent á að það finnast nán-
ast engin fordæmi þess að svo stór fjölmiðill
sem RÚV er hafi horfið af auglýsingamarkaði.
Ríkisreknar stöðvar um allan heim hafa yf-
irleitt verið reknar með eða án auglýs-
ingatekna frá upphafi starfsemi sinnar, því er
engin reynsla sem hægt er að vísa til með þá
stöðu sem kæmi upp ef RÚV hyrfi af auglýs-
ingamarkaði.
Hlutverk auglýsinga er fyrst og fremst að
vera upplýsingaveita; að veita upplýsingum til
neytenda, hvort sem um er að ræða skilaboð
um verð og gæði vöru og þjónustu eða almenn-
ar upplýsingar sem snerta beint bættan hag
almennings og almannaheill. Þær eru því mik-
ilvægur hluti nútímasamfélags.
Brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði eða
skertur aðgangur myndi almennt séð skerða
þessa sjálfsögðu þjónustu, bæði við almenning
og auglýsendur. Því er það skoðun fé-
lagsfundar SÍA að hagsmunum auglýsenda og
almennings sé betur fyrir komið með óheftu
leyfi miðla til birtinga auglýsinga, þar með tal-
ið RÚV.
SÍA vill Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði
Hafnfirsku
jólatrén
til sölu
ÁRLEG jólatréssala Skógrækt-
arfélags Hafnarfjarðar hefst nú
um helgina, á sunnudag, og verð-
ur að venju í Höfðaskógi, skóg-
ræktarsvæði félagsins við Kald-
árselsveg.
Á sunnudag verður opið frá 10
til 16 og næstu tvær helgar
stendur salan yfir frá 10 til 18 á
laugardögum en 10 til 16 á
sunnudögum.
Boðið verður upp á hafnfirska
stafafuru, sem verður æ vinsælli
sem jólatré enda einstaklega fal-
legt og barrheldið tré.
Mikið framboð er líka af furu-
greinum og könglum og ekki má
gleyma því, að öllum er boðið
upp á heitt súkkulaði og kökur í
Selinu, húsi félagsins í Höfð-
askógi.
Ljósin tendruð á
jólatrénu í Kópavogi
LJÓSIN verða tendruð á jólatré
Kópavogsbúa í dag, laugardaginn
2. desember, á flötinni við Safna-
húsið og Gerðarsafn.
Jólatréð er gefið af Norrköping,
vinabæ Kópavogs í Svíþjóð. At-
höfnin hefst klukkan 16:00 með
jólatónum frá Skólahljómsveit
Kópavogs undir stjórn Össurar
Geirssonar. Kór Snælandsskóla
syngur nokkur jólalög en honum
stjórnar Heiðrún Hákonardóttir.
Því næst afhendir Madeleine
Ströje Wilkens sendiherra Svíþjóð-
ar á Íslandi Kópavogsbúum jóla-
tréð og forseti bæjarstjórnar
Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson,
veitir því viðtöku. Að lokum syng-
ur Jónsi í Svörtum fötum og jóla-
sveinar koma í heimsókn.
Allir bæjarbúar eru hvattir til
að koma og njóta þessarar jólahá-
tíðar Kópavogsbæjar, segir í
fréttatilkynningu.
Kraftur hf.
fagnar 40 ára
afmæli
KRAFTUR hf., MAN vörubílaum-
boðið á Íslandi fagnar 40 ára af-
mæli sínu í dag, laugardaginn 2.
desember.
Í tilefni dagsins verður glæsileg
sýning á MAN vörubílum að Vagn-
höfða 1–3 frá kl. 12 til 16, segir í
fréttatilkynningu.
Ljósin tendruð
á Óslóartrénu
LJÓSIN verða tendruð á Óslóar-
trénu á Austurvelli kl. 15:30 á
morgun, sunnudag. Rúm hálf öld er
síðan Norðmenn færðu Íslend-
ingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf
til að skreyta Reykjavík.
Tréð var höggvið í Finnerud í
Sørkedalen, Oslomarka, fyrir utan
Ósló og er rúmlega 12 metra hátt.
Lúðrasveit Reykjavíkur hefur dag-
skrána kl. 15.30 með því að leika
falleg jólalög. Kl. 16.00 tekur Dóm-
kórinn við og flytur þrjú lög áður
en Guttorm Vik, sendiherra Noregs
á Íslandi, færir borgarstjóra, Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni og öðrum
Reykvíkingum tréð að gjöf. Eftir að
borgarstjóri hefur tekið við trénu
fær hinn 11 ára norsk-íslenski Jóel
Einar Halldórsson þann heiður að
kveikja ljósin á trénu góða.
Kynnir á dagskránni verður
Gerður G. Bjarklind, en athygli er
vakin á því að dagskráin verður
túlkuð á táknmáli. Jólasveinarnir
Giljagaur, Bjúgnakrækir og Skyr-
gámur eru komnir í bæinn og munu
þeir skemmta börnunum.
Segja tillögur
um fjármál
flokkanna
ganga of langt
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna, samþykkti ályktun í
vikunni þar sem segir m.a:
„Stjórn Heimdallar telur að til-
lögur varðandi fjármál stjórn-
málaflokka og prófkjöra gangi
alltof langt og feli í sér órétt-
mæta skerðingu á rétti hins al-
menna borgara til að styðja við
stjórnmálastarfsemi. Þá fela regl-
ur um hámarkskostnað í próf-
kjörum í sér beina takmörkun á
möguleikum frambjóðenda og
þeirra sem vilja kynna málefnaá-
herslur sínar og baráttumál í
tengslum við prófkjör. Það er
beinlínis hluti af lýðræðinu að
frambjóðendur hafi svigrúm til
að kynna sig og stefnumál sín og
óskiljanlegt hvers vegna rík-
isvaldið telur sig þurfa að tak-
marka þennan rétt.
Tillögur nefndarinnar fela í sér
að staða núverandi stjórnmála-
manna og -flokka styrkist veru-
lega á kostnað þeirra sem síðar
munu koma. Verðandi nýliðar í
prófkjörum flokkanna munu sæta
takmörkunum á því hve rækilega
þeir geta kynnt sig á meðan sitj-
andi stjórnmálamenn njóta góðs
af því að vera þekktir fyrir.
Sama máli gegnir um stjórn-
málaflokka sem fyrir eru en auk-
in ríkisframlög veita þeim aukið
forskot í samkeppni við nýja
flokka og framboð.“
Skora á Árna
Johnsen
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beð-
ið að birta eftirfarandi áskorun til
Árna Johnsen:
„Við sjálfstæðismenn í Sjálfstæð-
isfélagi Fáskrúðsfjarðar og Stöðv-
arfjarðar skorum á þig, Árni, að
draga framboð þitt til baka til að
koma í veg fyrir meira tjón sem
framboð þitt hefur haft fyrir flokk-
inn á landsvísu en þegar er orðið
með framboði þínu.“
SUBWAY afhenti fulltrúa Hjarta-
heilla ávísun upp á tæpar 670 þús-
und krónur nýverið. Þetta er þriðja
árið í röð sem Subway styrkir sam-
tökin.
Framkvæmdastjóri Hjartaheilla,
Ásgeir Þór Árnason, veitti viðtöku
ávísuninni úr hendi starfsmanna
Subway.
Samstarf Subway og Hjartaheilla
snýst fyrst og fremst um Alþjóðlega
hjartadaginn sem haldinn er síð-
asta sunnudag í september ár
hvert, en einmitt þann dag gefur
Subway alla sölu af heilsubátum.
Upphæðin að þessu sinni er styrkur
sem skiptir Hjartaheill miklu máli
Ásgeir Þór Árnason fram-
kvæmdastjóri Hjartaheilla var að
vonum ánægður með styrkinn.
Styrkur Ásgeir Þór Árnason tekur á móti ávísuninni frá Subway.
Subway styrkir Hjartaheill
Nöfn víxluðust
Í SJÓNSPEGLI Braga Ásgeirs-
sonar sunnudaginn 12. nóvember,
víxluðust einhvers staðar í vinnslu
blaðsins nöfn Asger Jorns og Ej-
lers Bille.
Tiksi varð að
Verhkojansk
ÞAU leiðu mistök urðu við vinnslu
viðtals við Egor Spiridonovich
Shishigin í Morgunblaðinu í gær
að borgin Tiksi var sögð heita
Verhkojansk. Einnig var mis-
hermt að flatarmál Jakútíu væri 3
milljónir ferkílómetra, hið rétta er
að það er 3 þúsund kílómetrar.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
RAUÐI kross Íslands býður lands-
mönnum að styrkja starfsemi fé-
lagsins með því að kaupa jólahefti
þess. Jólaheftið, sem inniheldur
merkimiða og jólamerki á umslög,
er sent á öll heimili í landinu.
Fénu sem safnast verður varið
til innanlandsstarfs Rauða kross-
ins. „Fjölmargir njóta góðs af
starfi félagsins á degi hverjum.
Innan Rauða krossins starfa heim-
sóknarvinir að því að draga úr
einsemd fólks. Rauði krossinn
vinnur að málefnum innflytjenda,
aðstoðar flóttafólk og hælisleit-
endur, annast sjúkraflutninga, er
leiðandi í skyndihjálp og sálræn-
um stuðningi, og veitir neyð-
araðstoð. Einnig starfrækir Rauði
krossinn athvörf fyrir geðfatlaða,
athvarf fyrir heimilislausar konur,
Konukot, og Hjálparsímann 1717
svo eitthvað sé nefnt,“ segir í
fréttatilkynningu.
Ólafur Pétursson hannaði jóla-
hefti Rauða krossins í ár. Ólafur
útskrifaðist sem grafískur hönn-
uður frá Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið 1985 og hef-
ur síðan þá starfað sem teiknari
og teiknað myndir fyrir bækur,
blöð, tímarit, vefi og frímerki.
Jólahefti til stuðnings
Rauða krossi Íslands
BANDALAG íslenskra skáta og
VÍS hafa hrint af stað umferð-
arverkefni sem gengur undir
nafninu Látum ljós okkar skína.
VÍS er aðalstyrktaraðili verkefn-
isins en það á rætur að rekja allt
til ársins 1990.
Nýverið var endurskinsborðum
dreift til allra sex ára barna á
landinu. Samhliða var sent inn á
heimili barnanna veglegt rit þar
sem bent er á þær hættur sem
leynast í umferðinni í skammdeg-
inu, heima og heiman, og hvernig
koma má í veg fyrir slys. Börn eru
hvött til þess að bera endurskins-
borða og merki til og frá skóla,
segir í tilkynningu.
Samstarf Margrét Tómasdóttir skátahöfðingi og Auður Björk Guðmunds-
dóttir, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs VÍS, við undirritun samningsins.
Umferðarátak VÍS og
Bandalags íslenskra skáta
SAMEINING VR og Versl-
unarmannafélags Hafnarfjarðar
(VH) var samþykkt með miklum
meirihluta greiddra atkvæða í
kosningu meðal félagsmanna í
VH.
Á kjörskrá voru 752, kjörsókn
var 28% eða 213. Já sögðu 200 fé-
lagsmenn eða 94% þeirra sem
kusu en nei sögðu 6% eða 13.
Sameiningin tók gildi frá og með
1. janúar 2006, skv. upplýsingum
VR.
Sameining
VR og VH
samþykkt