Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 55
ÞEGAR langt var liðið á afmæl-
ismót Helga Ólafssonar í Reykja-
nesbæ sl. sunnudag var fátt sem
benti annars en Ivan Sokolov bæri
sigur úr býtum. En eftir skák sína í
sjöundu umferð stóð Bosníumaður-
inn upp og tuldraði eitthvað í barm
sér: „ … hann tefldi virkilega
vel … “ og þar átti hann við Jón L.
Árnason,“ sem með hverjum snilld-
arleiknum á fætur öðrum knésetti
þennan stigahæsta skákmann móts-
ins. Jón L. hefur aldrei verið sérlega
áberandi á hraðskákmótum, 5–7
mínútur eru of lítill tími fyrir krefj-
andi stíl hans. Í Reykjanesbæ voru
tímamörkin 10 mínútur á mann á
hverja skák og það virtist gera gæfu-
muninn. Sigurskákir Jóns gegn Ivan
Sokolov og Jóhanni Hjartarsyni eru
tvímælalaust skákir mótsins og al-
veg ótrúlegt að þetta skuli vera hrað-
skákir svo áferðarfalleg er tafl-
mennska, Jóns.
8. umferð:
Jón L. Árnason – Ivan Sokolov
Spænskur leikur
Opna afbrigði spænska leiks er að-
alvopn Sokolovs með kóngspeðinu
og með því hefur hann náð að kné-
setja sjálfan Anand. Einu mistök
Sokolovs koma í 14. leik Bb6 en
betra var 14. … Dd3 15. Dxd3 Rxd3
16. Rxc5 Rxc5 og staðan er jöfn. 15.
Rg3! er fyrsta sleggjan, síðan 16.
Bg5! Þegar riddarinn er kominn í
ógnandi aðstöðu á f6 bætir Jón stöðu
sína með Had1 og Hfe1. Sokolov er
ekkert lamb að leika sér við og verst
vel. Jón gefur skiptamun í 26. leik og
hefst handa við að mola niður varnir
svarts. Í 31. leik fellur sprengjan,
Rh5+. Sokolov gefur drottninguna
og vert er að benda á nákvæman leik
34. Df6+ . Jón rekur svo smiðshögg-
ið á meistaraverkið með 36. Bd1!
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0–0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3
d5 8. dxe5 Be6 9. c3 Bc5 10. Rbd2
0-0 11. De2 Bf5 12. Rxe4 dxe4 13.
Rg5 Rxe5 14. Rxe4 Bb6 15. Rg3 Df6
16. Bg5 Dxg5 17. Dxe5 g6 18. Re4
Dh6 19. Rf6+ Kh8 20. Had1 Dg7 21.
Hfe1 h5 22. h3 c5 23. Bd5 Hac8 24.
Bf3 Bc7 25. De7 Bd8 26. Hxd8
Hcxd8 27. He5 Dh6 28. g4 hxg4 29.
hxg4 Bc8 30. Kg2 Kg7
31. Rh5+ gxh5 32. Hg5+ Kh8 33.
Hxh5 Dxh5 34. Df6+ Kh7 35. gxh5
Hde8 36. Bd1 Bb7+ 37. f3 He6 38.
Bc2+ Kg8 39. Df5 He2+ 40. Kf1
Hxc2 41. Dxc2 Bxf3 42. Df5
og Svartur gafst upp.
3. umferð:
Jón L. Árnason – Jóhann Hjart-
arson
Spænskur leikur
Á Ólympíumótinu í Torino sl. vor
gerði Björn Þorfinnsson rannsókn á
skákum Jóhanns Hjartarsonar í
spænska leiknum. Niðurstaðan varð
sú að Jóhann er með í kringum 65%
skor með svörtu í þeirri byrjun. Af-
brigðið í þessari skák kom upp einu
sinni í Torino en Jón er vel með á
nótunum, 20. He2 er t.d. afar ná-
kvæmur leikur. Með 22. … Rxe4 set-
ur Jóhann af stað atburðarás sem er
stórskemmtileg. Það kann að vera að
honum hafi sést yfir 24. Dd3! en á
skemmtilegt mótbragð, 26. … Hxe3
sem þó strandar síðar á 29. Bxg6!
Ekki batna horfur svarts eftir hinn
snjalla leik 32. Ha3 en í stað 33.Hg3
var sennilega nákvæmara að vinna
svörtu drottninguna með 33. Dh5+
Kg7 34. Hg3+ Kf8 35. Dh6+ og 36.
He3+. En 33. Hg3 á líka að vinna
eins og rakið er hér að neðan.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3
d6 8. c3 0-0 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11.
d4 Dc7 12. Rbd2 He8 13. Rf1 Rc4 14.
b3 Rb6 15. Bg5 h6 16. Bh4 Bd7 17.
Re3 a5 18. a4 bxa4 19. bxa4 Hac8
20. He2 cxd4 21. cxd4 exd4 22. Rxd4
Rxe4 23. Bxe7 Rc3 24. Dd3 Rxe2+
25. Rxe2 g6 26. Bf6 Hxe3 27. Dxe3
Rd5 28. Dxh6 Rxf6 29. Bxg6 Dc4 30.
Dg5 Rh7 31. Bxh7+ Kxh7 32. Ha3
Dxe2 33. Hg3
og hér gafst Jóhann upp. Senni-
lega var það of snemma því hann gat
reynt 33. … Bg4 með hugmyndinni
34. Hxg4 De1+ 35. Kh2 De5+ En
þegar betur er að gáð kemur í ljós að
hróksendataflið sem kemur upp eftir
36. g3! Dxg5 37. Hxg5 er auðunnið á
hvítt því svartur verður að fara í
óvirka stöðu með 37. … Ha8 vilji
hann ekki tapa öðru peði.
Enn einn ósigur mannsandans
Eftir þrjár skákir í einvígi Vladim-
irs Kramniks heimsmeistara og of-
urforritsins Deep Fritz stendur eitt
upp úr, ótrúlegur afleikur Kramniks
í annarri skák einvígisins. Kramnik
lék sig í mát í einum leik í eftirfar-
andi stöðu:
Deep Fritz – Kramnik
Stöðumynd 3
33. … Da7?? 34. Dh7 mát!
Skákskýrendur um allan heim
hafa reynt að skýra þennan leik með
ýmsum hætti en þess má geta að
Kramnik átti nægan tíma á klukk-
unni og virtist sallarólegur þegar
hann lék þessum hrikalega afleik.
Það er varla hægt að finna annan
eins afleik heimsmeistara allt frá
dögum þess fyrsta, Wilhelm Steinitz.
Kramnik átti sennilega unnið tafl í
fyrstu skákinni en varð að sætta sig
við jafntefli. Hann tefldi aðra skák-
ina vel, hafnaði jafntefli a.m.k. einu
sinni en svo kom þessi fræga staða
upp. Reiknigeta Deep Fritz er auð-
vitað slík að afar erfitt er að vinna
forritið. Kramnik mátti að sjálfsögðu
ekki við þessum mistökum en fróð-
legt verður að fylgjast með lokum
einvígisins. Þeir tefla sex skákir.
72 skákmenn skráðir til leiks
á Ottósmótinu í Ólafsvík
Fjórir stórmeistarar verða meðal
þátttakenda á fimmta Ottósmótinu
sem haldið verður í félagsheimilinu
Klifi í Ólafsvík í dag. Alls hafa 72
skákmenn skráð sig til leiks. Mótið
verður með sama hætti og undanfar-
in ár, tefldar verða átta umferðir,
fjórar 7 mínútna skákir og fjórar 20
mínútna skákir. Mótshaldarinn sér
um rútuferðir fyrir mannskapinn frá
BSÍ kl. 10 og til baka eftir verðlauna-
afhendingu. Þetta skemmtilega mót
hefur verið á dagskrá allt frá 2002
Helgi Ólafsson
Barátta Helgi Áss Grétarsson t.v. og Jón L. Árnason í lokaumferðinni.
helol@simnet.is
SKÁK
Afmælismót Helga Ólafssonar
Reykjanesbær
26. nóvember
Tvær perlur frá hendi Jóns L. Árnasonar
Stöðumynd 3.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 55
Jólagjöfin hennar
Pilgrim skartgripir í miklu úrvali.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Mjög ódýrt – Ert þú að opna versl-
un? Búðarborð m. opnanlegum gler-
gluggum til útstillingar, útstillingar-
borð á hjólum m. efri plötu úr gleri,
lítil útstillingarborð, járnhillur, búðar-
kassi, fataslár m. 4 og 8 örmum,
veggplötur fyrir vörur, fatajárn, pinnar
og glerhillur á veggplötu, herðatré f.
börn og ýmislegt smádót s.s. reikni-
vélar, posarúllur. Selst ódýrt. Katrín
820 7335.
Bílar
Einn magnaður. Toyota Avensis árg.
2005, 2.4 lítra vél, 163 hestöfl. 5
þrepa sjálfskipting, leðurinnrétting,
metalgrár, Cruise control, 17” álfelg-
ur. Aðeins ekinn 14.600 km. Eins og
nýr. Tilboð óskast í síma 894 4910 og
840 9105.
Til sölu Suzuki Grand Vitara XL7,
V6 árg. 2002, ek. 75.000 km, gullsans,
á nýlegum heilsársdekkjum, upph. m.
dráttarbeisli. Verð 1.690 þús., tilboð
óskast, ath. skipti ódýrari. Upplýsing-
ar í síma 825 0732, Magnús.
Til sölu vegna veðurs Dodge
RAM 1500 árg. 2003, ekinn 84 þ. km,
næsta skoðun 2007. HEMI Magnum
V8-5.7 l, 345 hestöfl. Heilsársdekk á
20” krómfelgum, leður, geislaspilari
og DVD spilari með tveimur þráðlaus-
um heyrnartólum. Bíllinn er skráður 6
manna, pallhús og vetrardekk á 17”
felgum fylgja. Verð 2.640 þ. Nánari
upplýsingar veitir Ólafur, or@os.is.
Athugið að nýjasti veðurhaunkurinn,
Hálfdán, hefur setið í bílnum!
Toyota Corolla 1991, ekinn 44 þús.
til sölu. Uplýsingar í síma 892 0888.
Toyota Corolla, árg. 1999, keyrður
91.000, 90 km skoðun lokið, ný
tímareim. Mjög vel með farinn. CD
spilari og heilsársdekk. Verð 490.000.
Upplýsingar í síma: 847 1617.
Verðhrun á bílum!
Nýir og nýlegir bílar frá öllum helstu
framleiðendum allt að 30% undir
markaðsverði. Veldu úr þremur
milljón nýrra og nýlegra bíla í USA og
Evrópu. Íslensk ábyrgð og bílalán. 30
ára traust innflutningsfyrirtæki. Fáðu
betra tilboð í síma 552 2000 eða á
www.islandus.com
Volkswagen Caravella 2.5 TDI 130
hö, árg. 2005, ek. 105 þús. Sjálfsk.,
rafmagnsrennihurð, tvær dísel-mið-
stöðvar, tveir rafgeymar, 9 manna.
Upplýsingar í síma 892 0888.
VW Golf 1400 GL. Ekinn 116.000
km. Ásett verð 250.000 kr., vetrar- og
sumardekk. Uppl. í síma 840 7713.
VW Touran Trend árg. '05, ek. 22
þús. km. Mjög góður 7 manna VW
Touran Trendline til sölu. Steingrár
árg. 2005. 200 þús. út + yfirtaka á
láni. Upplýsingar í síma 899 0568.
Hjólbarðar
Matador ný vetrardekk. Tilboð
4 stk. 195/65 R 15 + vinna 31.900 kr.
Kaldasel ehf. ,
Dalvegur 16b, Kópavogur,
s. 544 4333.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06,
696 0042/566 6442.
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2006, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Kínaskór. Svartir satínskór,
blómaskór og bómullarskór
Póstsendum
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466
Verslun
Persónuleg
jólakort
580 7820
Smáauglýsingar
sími 569 1100