Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA * 3.000 kr. lágmarksupphæð. Gefðu inneign á Framtíðarreikning Glitnis og fáðu fallega Latabæjarhúfu í Latabæjaröskju í kaupbæti.* Þú færð Framtíðarreikning í næsta útibúi Glitnis eða á www.glitnir.is. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  NV-átt 13–18 m/s á Vest- fjörðum, snýst í hægari suðlæga átt annars staðar. Hlýjast austanlands.» 8 Heitast Kaldast 4°C 0°C SAMTÖKUM íþróttafréttamanna var í gær afhentur nýr verðlaunagripur sem fylgja mun nafnbótinni Íþróttamaður ársins næstu 50 árin en gamli gripurinn, sem verið hefur í notkun í 50 ár, var við það tækifæri af- hentur Þjóðminjasafninu til varðveislu. Það er ÍSÍ sem gefur gripinn sem Sigurður Ingi Bjarnason gullsmiður gerði. Hér má m.a. sjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og Ellert B. Schram, fyrrum for- seta ÍSÍ, skoða gripinn ásamt Vilhjálmi Einarssyni, sem fimm sinnum var valinn íþróttamaður ársins. Morgunblaðið/ÞÖK Nýr verðlaunagripur afhentur Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is UPP ÚR slitnaði í meirihlutasam- starfi Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks í sveitarfélaginu Árborg í gær. Viðræður hófust þegar í gær- kvöldi um nýtt meirihlutasamstarf Samfylkingar, Framsóknarflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, og munu viðræður halda áfram í dag. „Það hvarflar að mér að Fram- sóknarflokkurinn hafi aldrei verið í þessu samstarfi af fullum einhug,“ segir Þórunn Jóna Hauksdóttir, odd- viti Sjálfstæðisflokks í Árborg. „Þeir reyndu eftir síðustu kosningar að mynda meirihluta með Samfylkingu og Vinstri grænum en það gekk ekki. Þá mynduðu þeir meirihluta með okk- ur, og mig grunar að þeir hafi aldrei verið af fullum heilindum í því sam- starfi.“ Ragnheiður Hergeirsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Árborg, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi að viðræður hefðu átt sér stað milli Samfylkingar, Framsóknar- flokks og VG í gærkvöldi, og fundað yrði áfram í dag. Hún vildi ekki tjá sig um gang viðræðnanna. Þorvaldur Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins í Árborg, sagði að viðræður milli flokkanna þriggja hefðu gengið nægjanlega vel til þess að ákveðið hefði verið að funda áfram um mögulegt meirihlutasamstarf í dag, en vildi ekki segja til um hvort mikill málefnaágreiningur væri milli flokkanna þriggja. Stóð með minnihlutanum Átök hafa staðið um skipulagsmál í Árborg, t.d. um svokallaðan Sigtúns- reit, um framtíð íþróttamannvirkja, og um byggingu við Austurveg 51–59. Þórunn Jóna Hauksdóttir segir að meirihlutasamstarfið hafi sprungið vegna ágreinings um skipulagsmál, en einnig hafi komið til almennur trúnaðarbrestur. Sjálfstæðismenn hafi viljað beita góðri stjórnsýslu og fara að áliti sérfræðinga skipulags- stofnunar en það hafi framsóknar- menn ekki viljað gera. Spurð í hverju sá trúnaðarbrestur hafi endurspeglast sagði Þórunn að bæjarfulltrúar hefðu í einhverjum til- vikum verið búnir að ákveða hvernig afgreiða ætti mál, en þegar þau kæmu til afgreiðslu í nefnd væri afgreiðslan önnur en samþykkt hefði verið af hendi bæjarfulltrúa. Dæmi um þetta sé afgreiðsla full- trúa Framsóknarflokks á fundi skipu- lags- og byggingarnefndar í gær þar sem hann greiddi atkvæði með minni- hlutanum og vísaði frá tillögu að deili- skipulagi Sigtúnsreits. Þetta segir Þórunn að hafi verið gert með sam- þykki bæjarfulltrúa Framsóknar- flokksins. Þorvaldur Guðmundsson segir að trúnaðarbrestur hafi orðið í samstarf- inu en segir sjálfstæðismenn hafa rof- ið trúnað við Framsóknarflokkinn. Hann vildi ekki ræða það nánar í gær- kvöldi. Hann segir að einnig hafi verið uppi ágreiningur vegna skipulags- mála í miðbæ Selfoss, svokölluðum Sigtúnsreit. Viðræður um nýjan meirihluta í Árborg Í HNOTSKURN »Sjálfstæðisflokkurinn fékkfjóra bæjarfulltrúa kjörna í síðustu kosningum, Fram- sóknarflokkur tvo, Samfylk- ing tvo og Vinstrihreyfingin – grænt framboð einn. Samtals eru níu bæjarfulltrúar og þarf fimm til að mynda meirihluta. »Aðeins Sjálfstæðisflokkurgetur myndað tveggja flokka stjórn. Hinir flokkarnir þrír reyndu að mynda stjórn eftir kosningar án árangurs. SAMRUNI Spari- sjóðs vélstjóra (SPV) og Spari- sjóðs Hafnar- fjarðar (SPH) var samþykktur sam- hljóða á fundum stofnfjáreigenda sjóðanna í gær. Nýkjörinn stjórnarformað- ur, Jón Þorsteinn Jónsson, segir sameinaða sjóði hafa meira svigrúm til innri vaxtar en sjóðirnir höfðu hvor í sínu lagi. „Stærðin þýðir auknar útlána- heimildir og þannig getur innri vöxtur verið mjög mikill. Samein- aður sjóður er með um 13 milljarða króna í eigin fé og hefur heimild til stofnfjáraukningar upp á fjóra milljarða. Auk þess getur hann nýtt víkjandi lán upp á aðra fjóra millj- arða, þannig að á mjög skömmum tíma getur eigið fé farið vel yfir 20 milljarða,“ segir Jón Þorsteinn og bætir við að hvorki sé fyrirhugað að fækka útibúum né starfsmönnum. „Sjóðirnir eru staðsettir hvor í sínum bæjarhlutanum þannig að fækkun útibúa er ekki inni í mynd- inni,“ segir Jón Þorsteinn. SPV og SPH sameinast Jón Þorsteinn Jónsson GUÐMUNDUR Í. Guðmundsson, varaformaður Alþýðuflokksins um miðja 20. öldina, alþingismaður, ráð- herra og síðar sendiherra, átti stærri þátt í myndun minnihlutastjórnar Alþýðuflokksins árið 1958 og þeirri atburðarás sem síðar leiddi til mynd- unar Viðreisnarstjórnarinnar 1959 en hingað til hefur verið á almanna vitorði. Þetta kemur fram í grein Ás- geirs Jóhannessonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Alþýðublaðsins, í nýjasta hefti Skírnis, tímarits Hins íslenska bókmenntafélags. Ásgeir segir þar frá kynnum þeirra Guðmundar, sem þá var utan- ríkisráðherra. Guðmundur sagði Ás- geiri m.a. frá þreifingum um mynd- un nýrrar ríkisstjórnar eftir að Hermann Jónasson, forsætisráð- herra svonefndrar Vinstristjórnar, hafði beðist lausnar fyrir ráðuneyti sitt undir árslok 1958. Fljótt kom upp hugmynd um endurreisn Vinstristjórnarinnar og sagði Guð- mundur að Emil Jónsson, þáverandi formaður Alþýðuflokksins, hefði ver- ið henni hlynntur. Guðmundur var ekki eins hrifinn og velti vöngum yfir því hvernig halda mætti Alþýðu- flokknum í ríkisstjórn. Hann sá þá leið að leiðrétta kjördæmaskipunina vegna ójafns atkvæðavægis og fá Sjálfstæðisflokkinn til að veita minnihlutastjórn Alþýðuflokks stuðning meðan stjórnarskrárbreyt- ingu væri komið í gegnum tvennar kosningar. Síðan gætu þessir flokk- ar myndað ríkisstjórn saman eða með stuðningi Framsóknarflokks eða annarra. Guðmundur sagði Ásgeiri að hann hefði ekki treyst neinum fyrir þess- ari hugmynd sinni nema gömlum vini og samstarfsmanni sem þá var forseti Íslands, Ásgeiri Ásgeirssyni. Þeir Guðmundur og Ásgeir hittust á Bessastöðum 10. desember 1958 og þar viðraði Guðmundur hugmynd- ina. Ólafur Thors var með umboð til stjórnarmyndunar en skilaði því 17. desember. Daginn eftir fól Ásgeir formanni Alþýðuflokksins, Emil Jónssyni, umboð til myndunar meiri- eða minnihlutaríkisstjórnar. Minnihlutastjórn Alþýðuflokks und- ir forsæti Emils tók svo við á Þor- láksmessu 1958 og sat til 20. nóv- ember 1959. Þá tók Viðreisnar- stjórnin, ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks undir forsæti Ólafs Thors, við völdum. Þessir flokkar sátu svo samfleytt í stjórn til 1971. Ráðagerð Guð- mundar Í. um ríkis- stjórn gekk eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.