Morgunblaðið - 20.12.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 346. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
FALLEG OG FLOTT
SEGIR RAGNHEIÐUR GRÖNDAL UM
ÞJÓÐLÖGIN Á NÝJA DISKINUM SÍNUM >> 48
4
dagar
til jóla
www.postur.is
20.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum og -pökkum
innanlands
„AÐSTÆÐUR voru mjög erfiðar. Það brimaði
talsvert mikið og það var mikið myrkur,“ sagði
Auðunn F. Kristinsson, sigmaður á TF-LÍF,
þyrlu Landhelgisgæslunnar, en þyrlan bjarg-
aði sjö skipverjum af danska varðskipinu Trit-
on úr sjónum af strandstað flutningaskipsins
Wilson Muuga snemma í gærmorgun skammt
suður af Sandgerði. Einn skipverji danska
varðskipsins var látinn þegar að var komið.
Um miðjan dag voru síðan tólf skipverjar
flutningaskipsins selfluttir í land með hinni
þyrlu Gæslunnar, TF-SIF.
„Við fundum þá nokkuð fljótt eftir að við
komum á vettvang. Þeir voru í tveimur hópum.
Við fundum fjóra fyrst og fjóra skömmu
seinna. Það voru átta í sjónum og þar af einn
látinn,“ sagði Auðunn.
Hann sagði að það hefði auðveldað þeim að
finna mennina í sjónum að þeir voru með öfl-
uga nætursjónauka og lítil ljós á björgunar-
vestum skipbrotsmanna sæjust úr mikilli fjar-
lægð ef það væri eitthvert skyggni.
Morgunblaðið/RAX
19 bjargað úr sjávarháska
Ljós á björgunarvestum dönsku skipbrotsmannanna og öflugir nætursjónaukar auðvelduðu leit
Skipstrandið | 6/30–32
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
FJÖLMARGIR framleiðendur og
innflutningsfyrirtæki hafa hækkað
verð á matvörum til matvöruversl-
ana eða eru í þann mund að hækka.
Algengar verðhækkanir eru á bilinu
3–5%. Fulltrúar stórmarkaða sem
rætt var við í gær óttast að þeir
verði gerðir að blórabögglum ef verð
hækkar á næstu mánuðum, en verð-
hækkanir verða undir smásjánni á
þeim tíma vegna boðaðra lækkana á
virðisaukaskatti og niðurfellingar á
vörugjöldum hinn 1. mars nk.
„Við höfum bent á hversu fram-
leiðendur og heildsalar bera litla til-
kynningaskyldu út á við í þessum
málum. Hér hellast yfir okkur
hækkanir og almenningur fær aldrei
skýringar á því,“ segir Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss, sem hefur boðað stærstu
heildsalana á fund til að ræða hækk-
anirnar.
„Það virðist vera mikil hækkunar-
þörf, sérstaklega hjá innlendum
framleiðendum,“ segir Eysteinn
Helgason, framkvæmdastjóri
Kaupáss – sem rekur m.a. Krónuna,
11–11 og Nóatún. Hann segir þörf-
ina verða til jafnt hjá innlendum
framleiðendum og hjá smásölunni
sjálfri, enda ástæðan að miklu leyti
hækkandi launakostnaður fyrir-
tækjanna.
Óttast | 14
Innflytjendur og fram-
leiðendur hækka verð