Morgunblaðið - 20.12.2006, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
miðvikudagur 20.
12. 2006
íþróttir mbl.is
íþróttir
Forráðamenn Lokeren vilja fá Arnar Þór Viðarsson aftur til Belgíu >> 4
ÞÓRIR MEÐ TVÖ GULL
ÞÓRIR HERGEIRSSON HEFUR VERIÐ AÐSTOÐAR-
LANDSLIÐSÞJÁLFARI NORÐMANNA FRÁ 2001 >> 2
Eftir Ívar Benediktsson
ben@mbl.is
Fátt eða þá nokkuð mun koma á
óvart þegar hópurinn verður birtur
og ósennilegt að fleiri en þrír leik-
menn sem leika hér heima með ís-
enskum félagsliðum verði í átján
eða nítján manna hópnum sem
kynntur verður.
Alexander meiddist á ökkla á æf-
ngu hjá Grosswallstadt á föstudag-
nn og mun vera um sama ökkla að
ræða og hann meiddist illa á í haust.
Þá missti hann úr nokkra leiki með
Grosswallstadt. Forráðamenn fé-
agsins segja nú að meiðsli Alexand-
ers séu ekki alvarleg en hann muni
þó ekki leika með gegn Magdeburg á
östudaginn. Eftir það á Grosswall-
tadt tvo leiki á milli jóla og nýárs.
HSÍ vill helst að Alexander komi
heim til rannsókna hjá lækninga-
eymi sínu landi svo að það geti skor-
ð úr um hvort meiðslin séu alvarleg
eða ekki en svör forráðamanna
Grosswallstadt eru nokkuð loðin.
Reiknað er með að Alfreð velji
þrjá markverði og það verði Roland
Eradze, Stjörnunni, Birkir Ívar Guð-
mundsson, Lübbecke og annaðhvort
Björgvin Gústavsson, úr Fram eða
Hreiðar Levý Guðmundsson, Akur-
eyri.
Aðrir leikmenn verði: Alexander
Petersson og Einar Hólmgeirsson
hjá Grosswallstadt, Snorri Steinn
Guðjónsson, GWD Minden, Guðjón
Valur Sigurðsson, Róbert Gunnars-
son og Sverre Jakobsson, allir frá
Gumersbach, Logi Gunnarsson og
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Lemgo,
Arnór Atlason FCK Håndbold, Sig-
fús Sigurðsson, Ademar León, Ólaf-
ur Stefánsson, Ciudad Real, Ragnar
Óskarsson, Ivry, Vignir Svavarsson,
Skjern og Markús Máni Mich-
aelsson, Val. Þá má fastlega búast
við að Einar Örn Jónsson verði í
hópnum, ekki síst ef vafi leikur á
þátttöku Alexanders vegna meiðsl-
anna.
Þetta er í stórum dráttum svip-
aður hópur og tók þátt í EM í Sviss í
byrjun þessa árs. Logi og Markús
voru meiddir, en þeir Einar Örn,
Ragnar og Sverre voru þá ekki inni í
myndinni fremur en Þórir Ólafsson,
Heimir Örn Árnason, Sigurður Egg-
ertsson og Vilhjálmur Halldórsson
eru nú.
Roland verður í fyrsta sinn í lands-
liðinu eftir að Alfreð tók við því
stjórn þess í vor.
Roland valinn
í HM-hópinn
Morgunblaðið/Günther Schröder
Barátta Róbert Gunnarsson, línumaður hjá Gummersbach, hefur leikið 85 landsleiki fyrir Ísland.
LANDSLIÐSHÓPUR Íslands í
handknattleik sem tekur þátt í
heimsmeistaramótinu í Þýskalandi
næsta mánuði verður tilkynntur í
dag, eftir því sem næst verður kom-
st. Meiðsli Alexanders Peterssonar
hornamanns komu í veg fyrir að
hópurinn væri tilkynntur í gær.
Nokkrir dagar eru síðan Alfreð
Gíslason setti nöfn væntanlegra
andsliðsmanna niður á blað en fyrr
en allir lausir endar hafa verið
hnýttir vill HSÍ ekki birta hópinn.
Óljóst með meiðsli Alexanders
SAMKVÆMT heimildum
Morgunblaðsins verður Guð-
mundur Þ. Guðmundsson,
þjálfari Íslandsmeistara
Fram og fyrrverandi lands-
iðsþjálfari í handknattleik,
aðstoðarmaður Alfreðs Gísla-
onar, í undirbúningi íslenska
andsliðsins fyrir heimsmeist-
arakeppnina sem hefst í
Þýskalandi 20. janúar. Guð-
mundur mun einnig aðstoða
Alfreð í undanfara keppninn-
ar og m.a. stýra fyrstu æfing-
um lands-
liðsins hér
á landi í
byrjun
næsta árs.
Alfreð
mun ekki
eiga heim-
angengt
frá Þýska-
landi og
því senni-
legt að Guðmundur stýri æf-
ingum 2. og 3. janúar áður en
landsliðið heldur utan til Dan-
merkur til þriggja landsleikja
hinn 4. janúar. Þar kemur Al-
freð til móts við landsliðshóp-
inn og sjá um þjálfun hans þar
til heimsmeistarakeppnin
hefst.
Guðmundur hefur fengið
leyfi hjá handknattleiksdeild
Fram til þess að sinna störf-
um fyrir landsliðið. Hann var
einnig aðstoðarmaður Alfreðs
í leikjunum við Svía í undan-
keppni HM í vor.
Guðmundur Þ.
Guðmundsson
Guðmundur aðstoðar-
maður Alfreðs á HM
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL
Íþróttasambands Íslands úr-
skurðaði í gær Þór/KA sigur
gegn ÍR í fyrri leik liðanna um
sæti í úrvalsdeild kvenna í
knattspyrnu, Landsbanka-
deildinni, sem fram fór 10.
september. Það verður því
Þór/KA sem heldur sæti sínu í
deildinni en ÍR, sem varð í
öðru sæti 1. deildar og vann
samanlagt, 3:2, í tveimur
leikjum gegn Þór/KA um sæti
í deildinni, þarf að spila áfram
í 1. deildinni á næsta keppn-
istímabili.
ÍR fékk leikheimild hjá KSÍ
fyrir markvörðinn Berglindi
Magnúsdóttur fyrir leikina
gegn Þór/KA. Áður hafði fé-
lagið fengið undanþágu frá
KSÍ til að fá markvörð á þess-
um tíma en lokað var fyrir fé-
lagaskipti 1. ágúst.
Akureyrarliðið kærði þátt-
töku Berglindar í fyrri leikn-
um, sem endaði 2:2, á þeim
forsendum að hún hefði leikið
með tveimur öðrum liðum á
árinu, Fjölni og KR, sem ekki
er heimilt samkvæmt reglum
KSÍ. Dómstóll KSÍ úrskurð-
aði að ábyrgðin væri hjá ÍR en
ekki hjá skrifstofu KSÍ og
dæmdi Þór/KA sigur.
ÍR áfrýjaði þeim úrskurði
og áfrýjunardómstóll KSÍ
sneri dæminu við og úrskurð-
aði ÍR í hag. Þór/KA áfrýjaði
þeim úrskurði til ÍSÍ sem
staðfesti upphaflegan dóm
dómstóls KSÍ í gær.
Þór/KA úrskurðað
sigur gegn ÍR-konum
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Daglegt líf 24/29
Staksteinar 8 Forystugrein 30
Veður 8 Umræðan 33/36
Viðskipti 16/17 Minningar 37/43
Erlent 18/19 Myndasögur 52
Höfuðborgin 22 Dagbók 53/57
Akureyri 22 Staður og stund 57
Suðurnes 23 Leikhús 50
Landið 23 Bíó 54/57
Menning 20/21 Ljósvakamiðlar 58
* * *
Innlent
Nítján mönnum var í gær bjarg-
að úr sjávarháska eftir að flutn-
ingaskipið Wilson Muuga rak upp í
fjörur sunnan við Sandgerði í gær-
morgun. Aðstæður á slysstað voru
afar erfiðar og fórst danskur sjóliði
af varðskipinu Triton við björg-
unartilraunir. » 6/30–32
Breska leiguflugfélagið Astra-
eus, sem er í 51% eigu Fons, hefur
gert samning við breska flugfélagið
Virgin Airlines um að fljúga breið-
þotum til Nígeríu og Jóhann-
esarborgar. Samningurinn hljóðar
upp á rúma 25 milljarða til sex ára.
» Baksíða
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær að sú ákvörðun Al-
þingis að afnema með lögum úr-
skurð Kjaradóms frá því í desem-
ber á sl. ári, að því leyti sem
úrskurðurinn tók til starfa dómara,
samrýmdist ekki stjórnarskrá um
sjálfstæði dómsvaldsins. » 4
Verðkönnun Morgunblaðsins í
Krónunni og Bónus leiddi í ljós að
jólamaturinn er 20,8% dýrari í
Krónunni. Um fjörutíu vöruteg-
undir voru á innkaupalistanum og
rúmlega þrjátíu skiluðu sér í könn-
unina. Aðeins var um beinan verð-
samanburð að ræða. » 26
Jón Sigurðsson, formaður
Framsóknarflokksins, er í fyrsta
sæti á framboðslista flokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður og
Jónína Bjartmarz umhverf-
isráðherra í fyrsta sæti í Reykja-
víkurkjördæmi suður fyrir alþing-
iskosningarnar í vor. » 11
Fjölmargir framleiðendur og
innflutningsfyrirtæki hafa hækkað
verð á matvörum til matvöruversl-
ana eða munu hækka á næstunni.
Algengar verðhækkanir eru á bilinu
3–5%. » 14
Erlent
Dómstóll í Líbýu dæmdi í gær
fimm búlgarskar hjúkrunarkonur
og palestínskan lækni til dauða og
voru þau sökuð um að hafa smitað
að yfirlögðu ráði 426 börn af al-
næmi. Fólkið segir að raunverulega
ástæðan fyrir smitinu hafi verið
skortur á hreinlæti á sjúkrahúsinu.
Fulltrúi samtakanna Lögfræðingar
án landamæra gagnrýndi dómstól-
inn fyrir að taka ekki tillit til vís-
indalegra gagna sem studdu mál-
stað sakborninganna. » 18
Karlmaður hefur verið handtek-
inn í Ipswich í Bretlandi, grunaður
um að hafa myrt fimm vænd-
iskonur. Maðurinn er 48 ára gamall
og sagður vera reglulegur við-
skiptavinur vændiskvenna. Áður
hafði lögreglan hneppt í varðhald
37 ára gamlan mann, Tom Steph-
ens, en hann segist alsaklaus. » 18
Eftir Sunnu Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
„ÞAÐ er erfitt fyrir okkur að reka spítalann
lengur því það vantar systur. Áður störfuðu
fleiri systur á spítalanum og nú eru þær sjö
eftir í Stykkishólmi en aðeins ein þeirra starfar
á spítalanum,“ segir systir Belén Aldanondo,
príorinna og fulltrúi St. Fransiskusreglunnar,
sem í gær undirritaði samkomulag ásamt Árna
Mathiesen fjármálaráðherra um kaup ríkisins
á eignarhluta reglunnar í St. Fransiskusspít-
alanum í Stykkishólmi. Samkvæmt sam-
komulaginu verða greiddar 140 milljónir fyrir
hlut reglunnar og ríkið tekur auk þess að sér
að standa undir lífeyrisréttindum starfsmanna
sem þeir hafa áunnið sér.
Breytingar verða ekki á rekstri spítalans
eða þjónustunni sem þar hefur verið veitt und-
anfarið en á St. Fransiskusspítalanum í Stykk-
ishólmi eru 40 sjúkrarúm, 17 fyrir almenna
sjúklinga, eitt bráðarými, níu hjúkrunarrými
og 13 rúm fyrir háls- og baksjúklinga.
Systurnar sjö sem eftir eru hafa sumar verið
í áratugi á Íslandi og haft mikil áhrif á nær-
samfélag sitt. Reglan lét reisa sjúkrahúsið árið
1934 og var það tekið í notkun 17. september
1936. Nú hefur því punkturinn verið settur aft-
an við sjötíu ára farsæla heilbrigðisþjónustu
systrareglunnar sem kennir sig við heilagan
Frans frá Assisí. St. Fransiskusreglan var
stofnuð á Indlandi árið 1870 og telur í dag rúm-
lega 7.500 systur víða um heim. Systir Belén
segir að reglan beini nú sjónum sínum helst að
Afríku þar sem hún rekur marga spítala.
Systurnar sem eftir eru eru fæddar í Hol-
landi, Belgíu, Kanada, Austurríki og Póllandi.
Aðeins tvær eru undir sjötugu. Önnur þeirra
starfar á sjúkrahúsinu og gengur þar í nær öll
störf og hin starfar við samfélagsþjónustu og
kennir m.a. börnum.
Systir Czeslawa, príorinna í Stykkishólmi,
fæddist í Póllandi en hún hefur dvalið á Íslandi
í fjórtán ár. Hún segir erfitt að fá systur til
starfa á Íslandi, tungumálið sé erfitt að læra og
allt sem því fylgi. Hins vegar talar hún sjálf
nær lýtalausa íslensku.
„Það er auðvitað erfitt fyrir okkur að láta af
rekstri spítalans,“ segir systir Czeslawa.
„Sumar okkar hafa verið hér í um fimmtíu ár.“
Systurnar eru þó ekki á förum frá Stykk-
ishólmi, í það minnsta ekki alveg á næstunni.
Sjúkrahúsþjónustu
St. Fransiskusregl-
unnar í 70 ár lokið
Morgunblaðið/Ásdís
Endapunktur Systir Czeslawa, Siv Friðleifsdóttir, systir Belén, Árni Mathiesen og Sturla
Böðvarsson eftir undirritun samkomulags um framtíð St. Fransiskusspítalans.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
BRESKA fyrirtækið BT Group,
áður British Telecom, hefur gert
samning við Data Islandia um að
gera hagkvæmniathugun á bygg-
ingu allt að 100 þúsund fermetra
gagnamiðstöðvar á Íslandi. Verk-
efnið er unnið í samvinnu við sæ-
strengsfyrirtækið Farice og ís-
lensk orku- og gagnavistunarfyrir-
tæki. Verði af þessum áformum
gæti gagnamiðstöðin og tengd
starfsemi skapað allt að 200 ný
störf. Ein meginforsenda hennar
er að nýr sæstrengur verði lagður
til Íslands.
Data Islandia er íslenskt félag
sem veitir alþjóðlegum stórfyrir-
tækjum og opinberum stofnunum
þjónustu við langtímahýsingu á
rafrænum gögnum og stýringu á
þeim. Ætlunin er að fyrirtækið
leiði umrætt verkefni og veiti svo
BT Group umbeðna þjónustu.
Sol Squire, framkvæmdastjóri
Data Islandia, segir að um marg-
brotið verkefni sé að ræða sem
gefi gott tækifæri til að kynna
samkeppnishæfni Íslands á al-
þjóðavettvangi. Ásamt samstarfs-
aðilum á Íslandi hafi fyrirtækinu
tekist að setja saman og kynna
viðskiptaumhverfi á Íslandi sem
vakti áhuga hjá BT Group. Aðeins
er liðinn rúmur mánuður síðan
Bretarnir höfðu fyrst samband og
lýstu áhuga sínum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Data Islandia liggja ekki fyrir töl-
ur um um hve stóra fjárfestingu er
að ræða. Búist er við að hag-
kvæmniathugun verði lokið mán-
aðamótin janúar-febrúar á næsta
ári, og þá liggi fyrir hver næstu
skref verða. Ekki er farið að huga
að staðsetningu undir gagnamið-
stöðina.
BT Group er með höfuðstöðvar
sínar í London og er eitt af
stærstu fyrirtækjum í fjarskipta-
og upplýsingatækni í heiminum,
þjónustar milljónir viðskiptavina í
Evrópu, Ameríku og Asíu.
BT Group vill reisa
gagnamiðstöð á Íslandi
Ásamt tengdri starfsemi gætu skapast um 200 ný störf
Í HNOTSKURN
» Ein meginforsenda hugs-anlegra samninga um
100.000 fm gagnamiðstöð á
vegum BT Group og Data Is-
landia er að nýr sæstrengur,
sá þriðji, verði lagður til Ís-
lands.
» Vonast er til að hag-kvæmniathugun ljúki um
mánaðamótin janúar-febrúar
á næsta ári. Ekki er enn farið
að huga að staðsetningu.
ÞRETTÁN manna starfshópur vinn-
ur nú að því að rífa gömlu Hampiðj-
una í Reykjavík. Að sögn Snorra
Vignissonar, starfsmanns hjá SR-
verktökum sem annast niðurrifið,
verður líklega búið að rífa húsnæðið
upp úr áramótum, en gera má ráð
fyrir að undir lok janúarmánaðar
verði allt á bak og burt.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hampiðjan hverfur um áramót