Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR listamanna á þessu ári til að ná plat- ínusölu en til þess þarf að selja tíu þúsund eintök. Hann segir söluna hafa gengið vonum framar og segir þá eiga miklar þakkir skilið sem unnið hafi með honum að verkefn- inu. Útgáfan þykir afar vegleg en einnig fylgir DVD-mynddiskur með tónleikunum. Aðspurður hvað taki við segist Björgvin lítið geta tjáð sig um þau mál að svo stöddu en eftir áramót bíða ýmis verk. „Ég ætla til að „ÉG ER eiginlega orðlaus yfir mót- tökunum,“ sagði Björgvin Halldórs- son sem í gærkvöldi veitti viðtöku platínuplötu en alls hafa selst um sautján þúsund eintök af útgáfu tónleika hans og Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands sem fram fóru í september síðastliðnum. Fulltrúar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Karlakórs Fóstbræðra fengu við sama tækifæri einnig afhenta platínuplötu. Björgvin er fyrstur íslenskra mynda að reyna að gera plötu með nýju efni og það verður hugsanlega sóló,“ segir Björgvin sem á 40 ára starfsafmæli á næsta ári. Hann bæt- ir því við að Brimkló verði auk þess starfandi áfram og reiknar hann með að sveitin reyni að spila tölu- vert á komandi ári. Á myndinni sést Pálmi Stefáns- son, eigandi Tónabúðarinnar, af- henda Björgvini forláta hljóðnema sem hann fékk auk platínuplöt- unnar. Morgunblaðið/Kristinn Björgvin fyrstur til að ná platínusölu SÚ ÁKVÖRÐUN Alþingis að afnema með lögum úrskurð Kjaradóms frá 19. desember 2005 að því leyti sem úr- skurðurinn tók til starfa dómara, samrýmdist ekki grunnreglum 2. og 70. gr. stjórnarskrárinnar um sjálf- stæði dómsvaldsins. Þetta er niður- staða Héraðsdóms Reykjavíkur í dómi sem kveðinn var upp í gær í máli sem Guðjón S. Marteinsson, héraðs- dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, höfðaði gegn ríkinu. Átti Guðjón rétt á að fá greidd laun samkvæmt ákvörðun Kjaradóms og var ríkið dæmt til að greiða Guðjóni vangreidd laun á þeirri forsendu að 1. gr. laga nr. 2/2006 um breytingu á lögum nr. 120/1992 um Kjaradóm og kjaranefnd bryti, að því er dómara varðar, í bága við grunnreglur um sjálfstæði dómstóla. Voru Guðjóni dæmdar 35.144 kr. auk dráttarvaxta sem er sú launa- hækkun er hann átti rétt á 1. febrúar sl. samkvæmt úrskurði Kjaradóms. Var ríkið dæmt til að greiða stefn- anda 1,5 milljónir kr. í málskostnað. Vakti hörð viðbrögð Dómsmálaráðuneytið skipaði þrjá setudómara til að dæma í málinu, þau Þórð S. Gunnarsson, forseta laga- deildar HR, Ragnhildi Helgadóttur, prófessor við lagadeild HR og Róbert R. Spanó, prófessor við lagadeild HÍ. Kjaradómur endurákvarðaði 19. des- ember í fyrra laun þeirra sem undir hann féllu sem fól í sér að 1. janúar 2006 skyldu laun forseta Íslands hækka um 6,15% og laun annarra sem undir dóminn heyra um 8,16%. Úrskurðurinn vakti hörð viðbrögð en laun á vinnumarkaði hækkuðu al- mennt um 2,5% á sama tíma. Ákvað ríkisstjórnin að leggja til við Alþingi að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi með lagasetningu sem samþykkt var. Kom 2,5% hækkun í stað þeirra hækkana sem Kjaradómur hafði ákveðið frá 1. febrúar 2006. Einnig var ákveðið að endurskoða lögin í heild og samþykkti Alþingi sl. vor lög um Kjararáð. Dómarafélag Íslands gagnrýndi harðlega þá ákvörðun Al- þingis að afnema úrskurð Kjaradóms með lögum. Guðjón S. Marteinsson höfðaði síðan mál á hendur ríkinu 3. apríl sl. Í ítarlegum rökstuðningi dómsins segir m.a. að ekki verði haggað því mati löggjafans, að nauðsynlegt hafi verið að gera ráðstafanir í tilefni af úrskurði Kjaradóms frá 19. desember 2005 í ljósi viðbragða aðila vinnu- markaðarins og stöðu vinnumarkaðs- mála á þessum tíma. Ákvarðanir lög- gjafans hafi hins vegar þurft að taka mið af því, að með úrskurðinum hafði Kjaradómur ákveðið hækkun launa til handa öðrum og sjálfstæðum hand- höfum ríkisvalds, hæstaréttardómur- um og héraðsdómurum, sem tók gildi 1. janúar 2006. Með því að fella úr gildi löglega ákvörðun þar til bærs úr- skurðaraðila um launahækkanir til dómara verði að telja að löggjafinn hafi gripið með sérgreindum hætti inn í lögbundið ferli um ákvörðun launa dómara. „Verði á það fallist að löggjafinn hafi almenna heimild til sérgreindrar íhlutunar í löglega ákvörðun þar til bærs aðila um launa- kjör dómara verður vart talið að staða dómara sé nægilega trygg þannig að þeir teljist hlutlægt séð „óháðir“ lög- gjafarvaldinu í merkingu 2. og 70. gr. stjórnarskrárinnar. Haldgóð og áþreifanleg rök byggð á traustum grundvelli þurfti því til, svo að fallist yrði á að sú sérgreinda íhlutun lög- gjafans í löglegan og bindandi úr- skurð Kjaradóms um launakjör ann- ars handhafa ríkisvaldsins, sem lög nr. 2/2006 fólu í sér, gæti samrýmst grunnreglum 2. og 70. gr. stjórnar- skrárinnar um sjálfstæði dómsvalds- ins,“ segir í dómnum. Ekki verði ráðið af aðdraganda laganna og lögskýring- argögnum að lögin hafi verið rök- studd með því að úrskurður Kjara- dóms hafi sem slíkur verið í andstöðu við lög. Ekki hafi heldur verið lagt sérstakt mat á nauðsyn þess í ljósi markmiða laganna að afnema löglega ákvörðun um laun dómara að virtri stjórnskipulegri stöðu þeirra. For- sendur að baki lögum nr. 2/2006 hafi verið takmarkaðar við almennar til- vísanir til þeirra áhrifa sem úrskurð- ur Kjaradóms frá 19. des. 2005 „gæti haft“ á stöðu vinnumarkaðsmála. „Því stendur eftir að af hálfu stefnda er hin sérgreinda og íþyngj- andi íhlutun löggjafans í löglegan og bindandi úrskurð Kjaradóms, sem kvað á um launahækkun til dómara frá og með 1. janúar 2006, rökstudd með því að sá úrskurður gæti mögu- lega haft ófyrirsjáanleg og óskil- greind áhrif á framvindu vinnumark- aðsmála.“ Ekki hafi verið sýnt fram á að ákvörðun löggjafans að afnema úr- skurð Kjaradóms, að því leyti sem úr- skurðurinn tók til starfa dómara, hafi samrýmst grunnreglum 2. og 70. gr. stjórnarskrárinnar um sjálfstæði dómsvaldsins eins og þær hafa verið túlkaðar í dómaframkvæmd Hæsta- réttar og nánar skýrðar í áratuga- langri lagaframkvæmd. Brot á sjálfstæði dómstóla Ríkið var í gær dæmt til að greiða héraðsdómara vangreidd laun á þeirri forsendu að lög um afnám úrskurðar Kjaradóms brytu, hvað dómara varðar, í bága við grunnreglur um sjálfstæði dómstóla Morgunblaðið/Þorkell Ríkið dæmt Ríkið var dæmt til að greiða laun og málskostnað. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is EKKI hefur verið ákveðið hvort ríkið áfrýjar héraðsdómnum. Baldur Guðlaugsson, ráðuneyt- isstjóri í fjármálaráðuneytinu, seg- ir dóminn staðfesta að mæla þurfi fyrir um skipulag og viðmiðanir við ákvörðun launa dómara í lög- um. Jafnframt sé viðurkennt að heimilt sé að breyta slíkum reglum og skipulagi varðandi ákvörðun um laun dómara. Ágreiningurinn í dómsmálinu varði tímabilið frá 1. febrúar, þ.e. frá því að úrskurður Kjaradóms var felldur úr gildi með lögum í byrjun ársins, og þar til ný lög um Kjararáð komu til fram- kvæmda. „Dómurinn gefur ekki til- efni til annars en að ætla að þær breytingar sem af þeim lögum leiddi og þær launaákvarðanir sem teknar verða á grundvelli nýrra laga hafi fullt gildi gagnvart dóm- urum sem öðrum,“ segir hann. Ljóst sé af forsendum dómsins að dómurinn telji að þessi lagasetning standist gagnvart öðrum hópum. Álitamálið varði það hvort sjálf- stæði dómstólanna takmarki möguleika löggjafans til að hreyfa við úrskurðum um laun dómara umfram aðra hópa. Baldur segir einnig að í dómnum sé nokkuð upp úr því lagt, að því hafi ekki verið haldið fram í tengslum við setningu lag- anna sem sett voru í byrjun ársins, að úrskurður Kjaradóms hafi með neinum hætti farið gegn lögunum sem um hann giltu. Í greinargerð frumvarpsins hafi verið að því vikið að ráðist yrði í endurskoðun gildandi laga um kjaradóm og kjaranefnd, til þess m.a. að stuðla að því að betra sam- ræmis sé gætt í starfskjörum sem launaákvarðanir ná til, bæði inn- byrðis og gagnvart almennum vinnumarkaði. Spurður um launa- leiðréttingar til dómara sagði Baldur að ef dómnum yrði ekki áfrýjað eða niðurstaða hans stæði óbreytt, þyrfti að gera upp þetta tímabil, þ.e. þar til lögin um Kjara- ráð tóku gildi. Áfrýjun ekki verið ákveðin Baldur Guðlaugsson „ÉG ER ákaflega ánægður með niðurstöðuna og að prinsippin skuli standa um sjálfstæði dóm- stólanna, sem okkar stjórn- skipun byggist á,“ segir Guðjón S. Marteinsson héraðsdómari. Hann segir rökstuðning dómsins af- ar ítarlegan, traustan og góðan og í samræmi við ríkjandi viðhorf í lög- fræðinni. Guðjón fór fram á launaleiðrétt- ingu fyrir febrúarmánuð en hann segir sjálfgefið að í framhaldi af þessum dómi verði launin leiðrétt fyrir allt tímabilið og það eigi við um laun allra dómara. Ríkið eigi hins vegar eftir að taka ákvörðun um hvort það áfrýjar dóminum. Traustur rökstuðningur Guðjón St. Marteinsson STURLA Böðv- arsson sam- gönguráðherra lagði niðurstöðu starfshóps um öruggt varasam- band fjarskipta við umheiminn fyrir á ríkis- stjórnarfundi í gær. Að sögn Sturlu hefur engin ákvörðun verið tekin en málið verður til meðferðar á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Lauslega rætt við símafyrirtækin Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær leggur starfshópurinn til að ríkið og aðrir hluthafar í Farice hf. hefji viðræður um fjármögnun og rekstrarfyrirkomulag á nýjum sæ- streng sem tengir Ísland við Evrópu. Þá leggur hópurinn til að kannaður verði áhugi annarra íslenskra aðila og stefnt skuli að því að ljúka lagn- ingu nýs sæstrengs haustið 2008. Óformlegar viðræður hafa átt sér stað við símafyrirtæki vegna verk- efnisins. Sturla segir að símafyrir- tækin hafi átt fulltrúa í starfshópn- um. „Það hefur lauslega verið rætt við þau í tengslum við gerð þessarar skýrslu annars vegar og síðan mat mitt á stöðunni.“ Brýnt að fá nýjan streng Á fundi starfshóps um öruggt varasamband hinn 13. júlí sl. var lagt fram minnisblað þar sem kom fram sú afstaða Símans að fyrirtækið myndi ekki fjárfesta í nýjum streng til útlanda. Að sögn Evu Magnús- dóttur, upplýsingafulltrúa Símans, var þessu minnisblaði fylgt eftir með umsögn frá fulltrúa Símans um að Síminn myndi taka þátt í verkefninu á viðskiptalegum forsendum. Síminn teldi brýnt að nýr strengur yrði lagð- ur og gerði ráð fyrir að fjárfesta í nýjum streng árið 2008. Tillögur um nýjan sæstreng til skoð- unar í ríkisstjórn Í HNOTSKURN »Fjarskiptasamband við út-lönd fer um tvo sæstrengi, Cantat 3 og Farice. Sá fyrr- nefndi hefur verið í fréttum vegna bilunar sem varð á laugardagskvöld. »Skólar og stofnanir semtengjast Rannsókna- og háskólaneti Íslands urðu net- sambandslaus við umheiminn þegar samband um Cantat 3 rofnaði á laugardag. Sturla Böðvarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.