Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● LÍTIL breyting varð á Úrvalsvísitölu aðallista Kauphallar Íslands í gær. Vísitalan lækkaði um 0,04% og var lokagildi hennar 6.428 stig. Bréf Eimskipafélagsins hækkuðu mest í gær, eða um 2,6%, og bréf Marels um 1,3%. Mesta lækkun varð hins vegar á bréfum Flögu Gro- up, 1,7%, og Icelandic Group, 1,3%. Litil breyting Ný íbúðalán bankanna dragast saman ● NÝ íbúðalán bankanna voru um 77% minni í nóvember en í sama mánuði í fyrra. Þetta kem- ur fram í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans. Segir í Vegvís- inum að bæði fjárhæð og fjöldi nýrra íbúðalána hafi lítið breyst frá því síðastliðið sumar og svo virðist sem þau hafi náð jafnvægi, að minnsta kosti tímabundið. Ný íbúðalán bankanna námu 3,8 milljörðum króna í nóvember síð- astliðnum og jukust óverulega frá fyrra mánuði. Fjöldi nýrra útlána var 374 í nóvember en 388 í októ- ber. Eftir Arnór Gísla Ólafsson og Grétar Júníus Guðmundsson EFTIR ÞVÍ sem bankar á Íslandi verða stærri, og stærri hluti af tekjum þeirra er í erlendri mynt, þeim mun erfiðara verður það fyrir bankana að vera með allt eigið fé sitt skráð í íslenskum krónum. Á end- anum gæti komið upp sú staða að auðveldara væri að vera með allt eig- ið fé í erlendri mynt. Þetta segir Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, við þeirri spurningu hvort Landsbank- inn hafi í hyggju að færa bókhald sitt í erlendri mynt, eins og stjórn Straums-Burðaráss fjárfestingar- banka hefur ákveðið að gera frá og með 1. janúar 2007, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis banka, segir það vera ótíma- bært fyrir bankann að skoða það að flytja uppgjörið yfir í evrur eða aðra erlenda gjaldmiðla. Þegar leitað var viðbragða Kaup- þings banka við því hvort bankinn hefði í hyggju að færa bókhald sitt í erlendum myntum fengust þau svör að stjórnendur bankans myndu ekki tjá sig um málið. Sigurður Jóhannesson, sérfræð- ingur á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, segir að sér finnist það ekki óeðlileg ráðstöfun hjá banka sem ætli að auka umsvif sín á erlendum mörkuðum, og sem vilji jafnvel laða að erlenda fjárfesta, að gera upp í evrum í stað íslensku krónunnar. Þetta blasi nánast við. Hann segir að í þessu felist þó ekki í sjálfu sér nokkur dómur yfir íslensku krón- unni. Forsvarsmenn Seðlabanka Ís- lands vildu í gær ekki tjá sig um þetta mál. Engin formleg ákvörðun Sigurjón Árnason segir að Lands- bankinn sé eini bankinn sem sé með nær algert jafnvægi í gjaldeyrisjöfn- uði. Helmingur af tekjum bankans myndist erlendis en í reynd sé þó meira en 60% af tekjum bankans í erlendum myntum þar sem töluverð- ur hluti af starfseminni á Íslandi sé í erlendum myntum. „Þar af leiðandi er sífellt erfiðara fyrir okkur að vera með allt okkar eigið fé í íslenskum krónum en enn sem komið er höfum við ekki tekið neina formlega ákvörðun um að gera breytingar á því. Þetta er stórt mál fyrir íslensku viðskiptabankana því þetta tengist auðvitað Seðlabankan- um og því hvaða mynt menn vilja hafa hér á landi.“ Sigurjón minnir á að Straumur- Burðarás sé ekki viðskiptabanki og heldur ekki fyrsta íslenska fyrirtæk- ið til að gera upp í erlendri mynt. Þetta sé þó enn eitt skrefið í þá átt að íslensk fyrirtæki velji að fjarlægjast krónuna og horfa á þá mynt sem skipti íslenskt atvinnulíf raunveru- lega mestu máli, sem sé evran. Meirihluti kostnaðar í krónum Bjarni Ármannsson segir að Glitn- ir hafi reynt að takmarka áhrif sveiflna í gengi krónunnar á efnahag bankans með þeim hætti að gefa út víkjandi lán og eiginfjárígildi í er- lendum gjaldmiðlum. Eigið fé bank- ans sé hins vegar í krónum. „Okkar starfsemi er þannig í dag að við erum þrátt fyrir allt með um eitt þúsund starfsmenn á Íslandi og meirihluti okkar kostnaðargrunns er hér á landi og í íslenskum krónum. Fyrir okkur er því ótímabært að skoða það að flytja uppgjör félagsins yfir í evrur eða aðra erlenda gjald- miðla,“ segir Bjarni. Dómur yfir krónunni Greining Glitnis segir í Morgun- korni sínu í gær að þá ákvörðun stjórnar Straums-Burðaráss að taka upp evru sem uppgjörsmynt félags- ins megi túlka sem dóm bankans yfir íslensku krónunni. Segir deildin að Straumur-Burðarás telji greinilega að krónan hafi ekki burði til að styðja við framtíðaráform bankans. „Umbreytingin endurspeglar þá umræðu sem hefur verið um framtíð krónunnar og þau vandkvæði sem hún veldur mörgum innlendum fyr- irtækjum sem gera upp í krónu en eiga mest viðskipti við erlenda aðila. Fylgi íslensku viðskiptabankarnir þrír eftir fordæmi Straums-Burðar- áss mun það hafa víðtæk áhrif á framtíð krónunnar,“ segir Greining Glitnis Kemur á óvart Í hálf fimm fréttum greiningar- deildar KB banka segir að ákvörðun Straums-Burðaráss komi deildinni að vissu leyti á óvart þar sem gjald- eyrisójöfnuður bankans hafi hingað til verið eyrnamerktur sem hrein stöðutaka í erlendum gjaldeyri. Fram að þessu hafi félagið þannig litið svo á að gjaldeyrisójöfnuðurinn sé ekki hugsaður til varnar eiginfjár- hlutfalli bankans. Greiningardeild Landsbanka Ís- lands segir í Vegvísi ólíklegt að breyting stjórnar Straums-Burðar- áss skipti sköpum fyrir aðkomu er- lendra fjárfesta að bankanum, þó svo að vissulega hafi mikilvægt skref verið stigið. Ljóst sé þó að tilkynning bankans gefi hugleiðingum um það hvort aðrir bankar muni fylgja í kjöl- farið byr undir báða vængi. Líklegt sé að tilkynning Straums-Burðaráss eigi sinn þátt í að krónan veiktist í gær, en hún veiktist um 0,8%. Evran mikilvægust fyrir atvinnulífið Sú staða gæti komið upp að auðveldara væri að gera upp í erlendri mynt, segir bankastjóri Landsbankans Enn eitt skref Sigurjón Þ. Árnason segir ákvörðun Straums-Burðaráss enn eitt skrefið í þá átt að íslensk fyrirtæki velji að fjarlægjast krónuna. Associated Press  !"#$%!&'()* +,' ()#-' "#$% ./- ! *.0 (!12( . --) /&$0# .#$.1&  6&1 ;C" % 2*+6&1 ;&C 6&1 ;" "CD" 2*.D@ ;"2   2*+6&1   %$  2*+6&1 4 2*+6&1 " ! 6&1 -&1?.+ &3 E  > *+(! 6&1 4 ! E 6&1 B 6&1 B2 C 626&1 " *.* *  ) &1!16&1 F* 6&1 2 3/"4 .1 ?G" 6&1    2*+6&1 C    2*+-26&1 C C 2*+6&1 H96 )6&1 5BI;  .6&1  . "$ 6&1 #*"$ 6&1 35.6 %  "* &3 * *  %&1  7 6 %  -  6& 8.%#  . . , -( .   ( ,)  . / .) 0 ), 0 )0 0 0( . /,(  ) ( /  (. ( (  ((,  ))  ) /) )     (0 0                                                        -  % +"   !2 /2 J > *+   1 1 11 1 11 11 1  1  1 1  1  1 1 1 11 1  1  11 1 1 11  11 1 11 11  11  1 1 11    1 1 1                                                    # +"/ '*. ; -1K;"6** " )$ % +"                  / " % 1% H  L MD ),0 (,). 1 0 2 ) N N ? <;I .), ., 1  1  N N O;O 5BI"261 ,/ ((0- 1 /   N N 5BI>6$& H ,0. (. 1( ( 1( ( N N O?I <2PQ2 .,)/ (),( 1 ( 2 ) N N RÚSSNESKI gasrisinn Gazprom, sem er í eigu ríkisins, mun í fyrsta skipti útvega gas milliliðalaust til franskra heimila og fyrirtækja. Þetta er niðurstaða samnings fyr- irtækisins við franska gasfyrirtækið Gaz de France. BBC-fréttastofan greinir frá. Rússneska fyrirtækið mun byrja að dæla gasi til Frakklands í júlí á næsta ári. Samtals er gert ráð fyrir 1,5 milljörðum rúmmetra af gasi á ári. Samningurinn gildir til ársins 2030. Umsvif Gazprom hafa aukist hratt í Evrópu að undanförnu. Þá er fyr- irtækið orðað við hugsanlegt tilboð í breska orkufyrirtækið Centrica. Frakkar fá Rússagas ● VÍSITALA byggingakostnaðar í des- ember, sem Hagstofa Íslands reikn- ar út, hækkaði um 0,31% frá fyrra mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hef- ur vísitalan hækkað um 12,5%. Vísi- tölunni er ætlað að sýna breytingar á kostnaði við byggingu fjölbýlishúss á höfuðborgarsvæðinu. Hækkun byggingavísitölunnar síð- astliðna tólf mánuði er nokkuð um- fram hækkun almenns verðlags og launa. Í hálffimm fréttum greining- ardeildar KB banka segir að hækk- unin hafi ekki verið meiri í 16 ár. Þá segir að vinnuliðir í vísitölunni hafi hækkað um 12,9% sem gefi til kynna að laun í byggingariðnaði hafi hækkað umfram almenn laun. Byggingakostnaður hækkar um 12,5% GLITNIR Securities, dótturfélag Glitnis í Noregi, hafði umsjón með tæplega 7 milljarða króna, eða 100 milljóna dollara hlutafjárútboði fiskimjöls- og lýsisframleiðandans Copeinca í Perú. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Glitni. Norskir og alþjóðlegir fjárfestar skráðu sig fyrir þeim 15,5 milljón hlutum sem í boði voru í hlutafjár- útboðinu á 40 norskar krónur hver. Eftir útboðið fullnægir Copeinca kröfum um skráningu í kauphöll- inni í Ósló en Glitnir Securities mun annast skráninguna. Copeinca er einn af fimm stærstu fiskimjöls- og lýsisframleiðendum í Suður-Ameríku en Perú er stærst í heimi á þessu sviði, að því er fram kemur í tilkynningunni. Þá segir að framleiðsla Copeinca sé öll seld á alþjóðlegum mörkuðum, aðallega í Kína og Evrópu. Velta fyrirtæk- isins á yfirstandandi ári verði um 90 milljónir Bandaríkjadollara. Glitnir ann- ast hluta- fjárútboð ÍSLENSKIR fjárfestar eru sagðir hafa gert tilboð í breskt veðhlaupa- fyrirtæki. Frá þessu er greint í frétt á fréttavefnum TimesOnline. Í fréttinni kemur ekki fram hvaða fjárfesta um er að ræða en þar seg- ir hins vegar að Kaupþing banki styðji við bakið á þeim í tengslum við tilboðið. Fyrirtækið sem Íslendingarnir eru sagðir hafa áhuga á er Nort- hern Racing, sem rekur níu veð- hlaupabrautir á Bretlandi allt frá Newcastle í norðri til Brighton í suðri. Í fréttinni er einnig fjallað um hugsanlega yfirtöku annarra aðila á öðru fyrirtæki sem rekur veð- hlaupabrautir á Bretlandi, fyr- irtækinu Arena Leisure. Er tekið fram að stjórnendur Arena Leisure kunni að vera með aðrar áætlanir uppi en þær að verða yfirtekið, nefnilega að leggja fram tilboð í Northern Racing. Fleiri en hinir ónefndu Íslendingar eru því taldir hafa áhuga á veðhlaupafyrirtækinu Northers Racing, samkvæmt frétt TimesOnline. Orðaðir við veðhlaupa- brautir ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.