Morgunblaðið - 20.12.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 17
veidihornid.is
Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 • Síðumúli 8 - Sími 568 8410
Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni
veidihornid.is
Simms Classic Guide
Gore-tex jakki.
Vatnsheldur jakki með góðri
útöndun. Merkið tryggir
gæðin. Jólatilboð
aðeins 26.995.
Sage FLi fluguveiðipakki.
9 feta, 4ra hluta stöng með lífstíðarábyrgð.
Sage hjól með góðri diskabremsu.
Vönduð flotlína ásamt baklínu. Hólkur fylgir.
Pakkaverð aðeins 39.900.-
Sage Launch fluguveiðipakki.
9 feta, 4ra hluta stöng með lífstíðarábyrgð.
Sage hjól með góðri diskabremsu.
Vönduð flotlína ásamt baklínu. Hólkur fylgir.
Pakkaverð aðeins 29.900.-
Scierra Avalanche fluguveiðipakki.
9 feta, 3ja hluta stöng. Scierra fluguhjól með
góðri diskabremsu. Vönduð flotlína ásamt
baklínu fylgir ásamt kastkennslu á DVD diski.
Mest keypti fluguveiðipakkinn í Veiðihorninu.
Veiðikortið 2007, veiðileyfi í 29
vatnasvæði fylgir ókeypis með”
Jólatilboð aðeins 21.900.-
Scierra Avalanche
fluguveiðipakki. 12,6 eða 14 feta
tvíhenda. Öflugt Scierra tvíhenduhjól
með góðri bremsu. Scierra skotlína
og kastkennsla á DVD með
Henrik Mortensen. Vinsælasti
tvíhendupakkinn á markaðnum.
Jólatilboð aðeins 37.900.-
Ron Thompson Travel Force
4ra hluta flugustöng í hólk ásamt
Scierra IC3 fluguhjóli með góðri
diskabremsu. Hjólinu fylgja 3
aukaspólur og hjólataska.
Jólatilboð aðeins 12.995.-
Scierra Norðurá jakki.
Vatnsheldur jakki með
góðri útöndun. Áralöng
frábær reynsla á Íslandi.
Jólatilboð 22.995.-
Scierra Aquatex jakki.
Vatnsheldur jakki með
góðri útöndun.
Jólatilboð 15.995.-
DAM veiðijakki.
Vatnsheldur jakki
með útöndun.
Jólatilboð 12.995.-
Danvise.
Vinsælasta öngulheldan
á Íslandi árum saman.
Jólatilboð aðeins 5.895.-
(plata á mynd er aukabúnaður)
Stonefly hnýtingatöskur.
Vinsælar og vel útfærðar töskur
fyrir fluguhnýtara þar sem gert
er ráð fyrir öllu hnýtingaefni og
verkfærum á einum stað.
Verð aðeins 16.995.-
Ron Thompson reykofnar.
Vinsælir reykofnar.
Veislumáltíð á fáum mínútum.
Verð aðeins frá 5.995.-
Einnig reyksag á 595.
Ron Thompson nestis/bak-
poki. Þessi hefur notið mikilla
vinsælda í veiðitúrinn, tjaldvagn-
inn eða útileguna. Diskar, glös
og hnífapör ásamt fylgihlutum
fyrir 4. Einangrað hólf með mat-
arílátum á baki pokans. Frá-
bært verð eða aðeins 4.995.-
Dr. Slick verkfærasett.
Vönduð bandarísk verkfærasett
í handhægu boxi.
Verð aðeins frá 4.495.-
Ron Thompson vöðlutask-
an vinsæla. Vatnsheldur
botn. Lok sem loftar. Burðar-
handfang og axlaról. Motta til
að standa á þegar farið er í og
úr. Verð aðeins 3.995.-
Scierra hjólataska.
Vandaðar og vinsælar töskur.
Verð frá 3.995.-
Scierra Explorer veiðitaska.
Einhver vinsælasta taskan í
Veiðihorninu. Sterk taska með
vatnsheldum botni.
Burðarhandföng, axlaról.
Verð frá 6.995.-
Erfitt að velja?
Gefðu gjafabréf í stærstu veiðiverslun landsins. Þar er úrvalið
Þú sérð jólatilboðin líka á veidihornid.is
- Opið alla daga - Síðumúli 8Hafnarstræti 5
milljarðar króna og nær fjórfaldast
því en engu að síður stefnir félagið
að áframhaldandi vexti.
Heildarvirði 27 milljarðar
Promens greiðir um 15 milljarða
fyrir Polimoon en heildarvirði Po-
limoon, miðað við greitt verð, er um
27 milljarðar, miðað við gengi ís-
lensku krónunnar nú. Kaupin eru
fjármögnuð með eigin fé og breyt-
anlegum lánum sem eru sölutryggð
af Atorku hf. og Landsbanka Ís-
lands hf., og með lánsfjármögnun
frá DnB NOR auk þess sem bankinn
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
GERT ER ráð fyrir að gengið verði
endanlega frá kaupum Promens,
dótturfyrirtækis Atorku, á norska
fyrirtækinu Polimoon nú milli jóla
og nýárs eða 28. desember. Með
kaupunum verður Promens eitt
allra stærsta iðnfyrirtæki landsins
með um 720 milljónir evra eða nær
65 milljarða íslenskra króna í veltu
að teknu tilliti til fullra áhrifa af
fyrirtækjakaupum á árinu. Fyrir
kaupin var velta Promens um 14
veitir Polimoon
yfirdráttarlínu
vegna nýrra fyr-
irtækjakaupa.
Promens rekur
eftir kaupin 60
verksmiðjur um
allan heim og er
með um 5.400
starfsmenn en fé-
lagið hefur fram
til þessa sérhæft sig í framleiðslu og
vöruþróun á hverfisteyptum plast-
einingum og er stærsta fyrirtækja-
samsteypa í heimi á því sviði.
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri
Promens, segir Promens fyrst af
öllu hafa keypt vel rekið fyrirtæki
en ná vitaskuld að stækka mjög
mikið með kaupunum.
„Það eru auðvitað ákveðnir sam-
þættingarmöguleikar, s.s. í miðlun
og þekkingu, innkaupum og fleiri
hlutum. En við áttum ekki í sam-
keppni við Polimoon, við vorum á
öðrum mörkuðum og notuðum aðra
framleiðslutækni þannig að skör-
unin er lítil. Polimoon hefur verið í
töluverðum vexti og við höfðum
áhuga á því. Þeir hafa keypt minni
fyrirtæki í Evrópu og samþætt
rekstur sinn og hafa náð góðum ár-
angri í því.“
Aðspurð segir Ragnhildur það
stefnuna hjá Promens að vaxa enn
frekar. Hún segir nokkuð mikið um
lítil fyrirtæki í plastiðnaði og áfram-
haldandi tækifæri til stækkunar séu
bæði í Polimoon og hverfissteypu-
hlutanum hjá Promens.
Höfuðstöðvar Promens verða
áfram hér þótt meginhluti starfsem-
innar sé erlendis sem kemur m.a.
fram í því að félagið hyggst form-
lega gera upp í evrum á næsta ári.
Atorka er skráð í Kauphöll Ís-
lands en spurð hvort til greina komi
að skrá Promens sérstaklega segir
Ragnhildur að stefnt sé að því að
gera það í nánustu framtíð.
Ársvelta Promens um 65 milljarðar króna
Kaupin á Polimoon frágengin
Ragnhildur
Geirsdóttir
ALLIR HLUTIR sem í boði voru
seldust í hlutafjárútboði hjá Enex hf.
og jafnframt var umframeftirspurn
ríflega 40%. Útboðið fór fram dag-
ana 15. nóvember til 8. desember og
safnaði félagið 567 milljónum króna í
en tilgangur útboðsins var að fjár-
magna þátttöku Enex í jarðvarma-
veitum og raforkuframleiðslu er-
lendis.
Enex hf. er í eigu Orkuveitu
Reykjavíkur, Landsvirkjunar, Hita-
veitu Suðurnesja, ÍSOR, Glitnis,
Jarðborana og fjölda íslenskra verk-
fræðistofa og fyrirtækja á sviði orku-
nýtingar. Fyrirtækið var stofnað til
þess að samræma aðgerðir eigenda
sinna til útflutnings á þekkingu og til
verðmætasköpunar erlendis í krafti
þekkingar og reynslu íslenskra fyr-
irtækja og stofnana á sviði vatnsafls
og jarðvarma. Enex starfar víða um
heim að virkjanaframkvæmdum á
sviði jarðvarma með ráðgjöf, hönn-
un, verktöku, fjármögnun að hluta
eða öllu leyti og rekstri orkuvera og
er með jarðvarmaverkefni víða um
heim, m.a. í Bandaríkjunum, El
Salvador, Kína og Þýskalandi.
Allt seldist
hjá Enex
FRIÐRIK Sig-
urðsson, forstjóri
TM Software,
hefur ákveðið að
láta af störfum
um áramótin.
Friðrik stofnaði
TM Software
undir nafni
TölvuMynda fyr-
ir 20 árum og hef-
ur verið forstjóri félagsins síðan. Við
starfi forstjóra tekur Ágúst Einars-
son sem verið hefur framkvæmda-
stjóri TM Software – Infrastructure
Management frá 2003.
Í tilkynningu segir að ákvörðun
Friðriks sé tekin að vel athuguðu
máli, tími hafi verið kominn til að
snúa sér að öðrum verkefnum eins
og það er orðað.
TM Software er orðið eitt af
stærstu fyrirtækjum í upplýsinga-
tækni hérlendis með starfsemi í ell-
efu löndum og rúmlega 1.800 við-
skiptavini um allan heim. Ársvelta
nemur á fimmta milljarði króna en
um helmingur tekna fyrirtækisins
kemur erlendis frá. Innri vöxtur TM
Software hefur verið um 50% á ári sl.
fimm ár. Hjá fyrirtækinu starfa um
450 manns.
Hættir hjá
TM Software
Friðrik Sigurðsson
♦♦♦