Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIKILL orkuskortur hefur verið í
Bagdad, höfuðborg Íraks, síðustu
sex mánuði, vegna tíðra árása
skæruliða á raforkulínur í borginni
sem hafa einangrað hana frá orku-
verum norður, suður og vestur af
borginni. Bandaríska dagblaðið New
York Times skýrði frá þessu í gær en
þar segir að árásirnar séu iðulega
gerðar að nóttu til.
Þá eru rifjuð upp ummæli Karim
Wahid, raforkumálaráðherra Íraks,
um að borgin sé nær rafmagnslaus.
Hátt í þúsund árásir á viku
Á sama tíma birti bandaríska
varnarmálaráðuneytið skýrslu þar
sem kom fram að árásum á banda-
rísk og írösk skotmörk hefði fjölgað
mjög á tímabilinu ágúst til nóvember
þegar þær hefðu verið að meðaltali
um 960 á viku.
Orku-
skortur í
Bagdad
Skæruliðar klippa
á rafmagnslínur
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRAR ríkja Evrópusam-
bandsins hafa hafið viðræður í Brussel um fisk-
veiðikvóta næsta árs eftir að vísindamenn lögðu til al-
gert bann við þorskveiðum í Norðursjó.
Framkvæmdastjórn ESB lagði til að þorskveiðarnar
yrðu minnkaðar um 25%. Umhverfisverndarsinnar
mótmæla hér tillögunni fyrir utan fundarstaðinn og
krefjast algers veiðibanns til að bjarga þorskinum.
Reuters
Krefjast veiðibanns í Norðursjó
Amman. AFP. | Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, fór í óvænta
ferð til Jórdaníu í gær til að ræða
við Abdullah II. konung um leiðir
til að hefja friðarviðræður milli
Ísraela og Palestínumanna.
Olmert ræddi við konunginn í
um það bil tvær klukkustundir. Í
yfirlýsingu frá konungnum sagði
að hann hefði síðan hringt í
Mahmoud Abbas, forseta Palest-
ínumanna, til að skýra honum frá
viðræðunum. Konungurinn bauðst
einnig til að halda sáttafund í
Amman milli Abbas og Ismail
Haniya, forsætisráðherra Palest-
ínumanna, um aðgerðir til að binda
enda á átök tveggja helstu fylk-
inga Palestínumanna, Fatah og
Hamas.
Ekkert lát á átökunum
Að minnsta kosti fimm menn
biðu bana í átökum á Gaza-svæð-
inu í gær milli stuðningsmanna
Fatah og Hamas. Alls liggja tíu
manns í valnum, þeirra á meðal
tveir táningar, eftir átökin sem
hófust á laugardaginn var.
A.m.k. nítján manns særðust í
gær, þeirra á meðal fimm börn.
Skólum var lokað á Gaza-svæðinu
vegna átakanna og embættismenn
lýstu ástandinu sem stjórnleysi.
Friðar-
umleitun
í Amman
Olmert ræddi við
konung Jórdaníu
TALSMAÐUR uppreisnarmanna úr
röðum Tamíl Tígranna á Srí Lanka
sagði í gær að ungir meðlimir hreyf-
ingarinnar hefðu gert mikil mistök
með því að ræna að minnsta kosti 21
barni frá skóla á austurhluta eyjar-
innar. Ekkert lát er á ofbeldinu á Srí
Lanka og hafa minnst 3.400 manns
týnt lífi í átökunum í landinu í ár.
Talsmaðurinn, Rasaiah Ilanthira-
yan, sagði í viðtali við breska ríkisút-
varpið, BBC, að þeim sem hefðu bor-
ið ábyrgð á ráninu hefði verið vísað
úr hreyfingunni og börnunum, sem
voru flest táningsstúlkur, hefði verið
komið aftur til síns heima.
Kom jafnframt fram í frétt BBC
að ella kynnu börnin að hafa verið
neydd til þess að taka þátt í hernaði.
Harmar rán
yfir 20 barna
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
DÓMSTÓLL í Líbýu dæmdi í gær
fimm búlgarskar hjúkrunarkonur og
palestínskan lækni til dauða fyrir að
hafa smitað 426 börn af alnæmi að
yfirlögðu ráði á sjúkrahúsi í Beng-
hazi, næststærstu borg landsins.
Sakborningarnir brustu í grát
þegar dómurinn var kveðinn upp en
skyldmenni barnanna fögnuðu ákaft,
sungu og dönsuðu fyrir utan dóm-
húsið í Trípólí.
Sakborningarnir hafa verið í fang-
elsi í sjö ár og á þeim tíma hafa 53
barnanna dáið úr alnæmi. Þeir voru
dæmdir til dauða í maí 2004 en
hæstiréttur Líbýu úrskurðaði að
rétta bæri aftur í málinu vegna ásak-
ana um að réttarhöldin hefðu ekki
verið sanngjörn. Sakborningarnir
geta áfrýjað dauðadómnum aftur en
það verður síðasta áfrýjunin í mál-
inu.
Stjórnvöld í Búlgaríu fordæmdu
dauðadóminn og sögðu að börnin
hefðu fengið alnæmisveiruna vegna
þess að hreinlæti hefði verið ábóta-
vant á sjúkrahúsinu í Benghazi.
„Með því að dæma saklaust fólk til
dauða er reynt hylma yfir með raun-
verulegu sökudólgunum og ástæðun-
um fyrir alnæmistilfellunum í Beng-
hazi,“ sagði forseti búlgarska
þingsins, Georgi Pirinski.
Fulltrúi Lögfræðinga án landa-
mæra, Francois Cantier, sem fylgd-
ist með réttarhöldunum, gagnrýndi
dómarana fyrir að taka ekki tillit til
vísindalegra gagna sem bentu til
þess að sakborningarnir væru sak-
lausir.
„Erfðabreytt“ veira?
Tímaritið Nature birti nýlega
rannsókn vísindamanna á veirusýn-
um úr börnunum og þeir komust að
þeirri niðurstöðu að börnin hefðu
fengið veiruna áður en sakborning-
arnir hófu störf á sjúkrahúsinu –
hugsanlega allt að þremur árum áð-
ur.
Formaður hreyfingar, sem fjöl-
skyldur smituðu barnanna hafa
stofnað, hafnaði niðurstöðu vísinda-
mannanna og sagði að hjúkrunar-
fræðingarnir hefðu smitað börnin af
„erfðabreyttri“ veiru í tilraunaskyni
fyrir erlenda leyniþjónustumenn.
Dæmd til dauða fyrir
að smita börn af alnæmi
Dómur kveðinn upp í umdeildri lögsókn gegn hjúkrunarkonum og lækni í Líbýu
Reuters
Blórabögglar? Tveir af sakborn-
ingunum fyrir rétti í Trípólí í gær.
Í HNOTSKURN
» Evrópusambandið,Bandaríkjastjórn og
mannréttindahreyfingar hafa
sakað yfirvöld í Líbýu um að
gera hjúkrunarfræðingana og
lækninn að blórabögglum í
málinu.
» Mannréttindahreyfingarsegja að beitt hafi verið
pyntingum í málinu til að
knýja fram játningar.
BÓKHNEIGÐIR þekkja vel þá góðu
tilfinningu að lesa texta sem er
þannig úr garði gerður að ekki
verður betur gert. Breska leikrita-
skáldið Shakespeare er líklega
fyrsti orðasmiðurinn sem margir
myndu fyrst nefna í þessu sam-
bandi, enda margar ódauðlegar
setningar komið úr penna hans.
Nú hefur rannsóknarhópur frá
háskólanum í Liverpool fundið út
að fleygar setningar meistarans
örva heilastarfsemi lesenda. Philip
Davis, einn rannsakenda, segir
skýringuna meðal annars þá að
Shakespeare komi heilanum á
óvart með orðanotkun sinni, eink-
um þegar sjaldgæf orð brjóti upp
setningu og leiði til endurmats les-
enda á merkingu hennar.
Telja rannsakendur að lestur
klassískra bókmennta geti hjálpað
börnum við nám og komið í veg fyr-
ir andlega hrörnun og vitglöp.
Shakespeare
góður fyrir
heilabúið
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
BRESKA lögreglan handtók í gær
48 ára gamlan karl vegna morðanna
á fimm vændiskonum í nágrenni
borgarinnar Ipswich á síðustu vikum.
Að sögn Stewart Gull, sem stjórnar
rannsókninni, var hinn grunaði tek-
inn höndum á heimili sínu, skammt
frá rauða hverfinu í Ipswich, um
klukkan fimm að morgni í gær.
Að sögn sjónarvotta var hann
leiddur út á náttfötum og Ford Mon-
deo-bifreið hans grandskoðuð af sér-
fræðingum lögreglunnar.
Lögreglan hafði áður hneppt hinn
37 ára gamla Tom Stephens í gæslu-
varðhald vegna málsins og í gær var
það framlengt um 12 stundir og lýkur
því að óbreyttu á föstudag.
Stephens, sem starfaði á síðasta
áratug sem lögregluþjónn, var að
eigin sögn vinur kvennanna fimm en
hann segist jafnframt hafa keypt sér
þjónustu yfir 50 vændiskvenna á síð-
ustu 12 mánuðum eða svo, eftir að
hann skildi við eiginkonu sína árið
2004 eftir fimm ára hjónaband.
Á vefsíðu Sky News er fullyrt að
hinn maðurinn sé einnig reglulegur
viðskiptavinur vændiskvenna.
Bresku götublöðin hafa sem vænta
má fjallað mikið um málið og í frétt
blaðsins Daily Mirror í gær var full-
yrt að Stephens hefði boðið átta
vændiskonum, ásamt öðrum gestum,
heim til sín í innflutningsteiti í byrjun
októbermánaðar, þar af þeim fimm
sem síðar voru myrtar.
„Miskunnsami Samverjinn“
Lýsti ein vændiskonan í viðtali við
dagblaðið Daily Telegraph Stephens
sem „miskunnsama Samverjanum“
sem hugaði að vændiskonum.
Hefur Daily Mirror eftir tveimur
vændiskonum að þær hafi vísað hon-
um frá aðeins nokkrum klukkustund-
um áður en hann var handtekinn.
Hafði Stephens, sem kallaði sig
„biskupinn“ á vefsíðu sinni, sagt í við-
tali við sama blað að hann hefði farið
nærri því að vera unnusti einnar
vændiskonunnar sem var myrt.
Hann hefur ekki fjarvistarsönnun.
Annar maður tekinn höndum
AP
Á verði Lögreglan rannsakar hús í þorpinu Eye eftir handtöku Stephens
Einnig grunaður um raðmorðin á vændiskonunum fimm í nágrenni Ipswich
♦♦♦