Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Vesturbær | Gert er ráð fyrir að
allt að 70 íbúðir verði byggðar á
BYKO-reitnum sem afmarkast af
Hringbraut, Ánanaustum, Sól-
vallagötu og Framnesvegi í
Reykjavík.
Verslun BYKO er á þessum reit
við Hringbraut. Þar var áður bif-
reiðaverkstæði leigubílastöðvar-
innar Steindórs. Tónlistarfélagið
var þar með aðstöðu 1939 til 1940
og má lesa við inngang verslunar-
innar, að 18. desember 1938 hafi
farið fram sjónleikar í Bifreiða-
skála Steindórs við Sólvallagötu.
Hafi það verið fyrsti flutningur ór-
atoríu á Íslandi og verkið, sem
flutt var, var Sköpunin eftir Jos-
eph Haydn.
Aðalaðkoma verður
frá Sólvallagötu
Á fundi sínum í liðinni viku sam-
þykkti borgarráð deiliskipulag
reitsins. Þar er gert ráð fyrir
óbreyttu eða lítið breyttu skipulagi
meðfram Framnesvegi og sam-
felldri húsalengju meðfram Hring-
braut og Ánanaustum sem hækkar
upp í átt að Sólvallagötu.
Á BYKO-lóðinni verður leyfilegt
að byggja íbúðarbyggð með inn-
garði, allt að 50 íbúðir, og flestum
bílastæðum í bílageymslum neð-
anjarðar. Aðkoma bíla og aðalað-
koma verður frá Sólvallagötu.
Hugmyndin er að móta byggð
sem fellur að byggðarmynstri
svæðisins, en samkvæmt stefnu-
mörkun aðalskipulags Reykjavíkur
2001–2024 er gert ráð fyrir þétt-
ingu íbúðarbyggðar á umræddu
svæði. Samkvæmt lauslegri áætlun
er gert ráð fyrir að íbúðum fjölgi
um 90. Á lóðinni Sólvallagötu 80
hafa verið byggðar 39 íbúðir og
eru þær hluti þeirrar fjölgunar
sem fjallað er um í aðalskipulag-
inu.
Breytingar gerðar
eftir ábendingu
Tillaga að deiliskipulaginu var
auglýst sl. sumar. Margrét Þor-
mar, hverfisarkitekt hjá skipulags-
og byggingasviði Reykjavíkur-
borgar, segir að gerðar hafi verið
breytingar á auglýstu skipulagi
vegna athugasemda frá íbúum.
M.a. hafi verið gerðar breytingar á
húsaröðinni meðfram Sólvallagötu
og hæsti hluti hússins verið færður
fjær Sólvallagötu.
Allt að 70 íbúðir á BYKO-reit
Morgunblaðið/Ómar
Lausn Nýbygging meðfram Hringbraut fer hækkandi í átt að Sólvallagötu.
Gert er ráð fyrir
óbreyttu skipulagi
við Framnesveg
Breyting Búist er við að allt að 70 íbúðir verði byggðar á BYKO-reitnum
sem afmarkast af Hringbraut, Ánanaustum, Sólvallagötu og Framnesvegi.
GERT er ráð fyrir að nemendum
við Vesturbæjarskóla fjölgi um ná-
lega100 á næstu árum og því þarf
að byggja við skólann. Einnig getur
þurft að stækka Hagaskóla vegna
íbúafjölgunar á svæðinu.
Í minnisblaði sem Gerður G. Ósk-
arsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs
Reykjavíkurborgar, sendi sviðs-
stjóra skipulags- og byggingasviðs
vegna fyrirspurnar um hvernig
bregðast megi við fyrirhugaðri
fjölgun nemenda í vesturbænum,
kemur m.a. fram að viðbygging
Vesturbæjarskóla fyrir um 100
nemendur þurfi að vera komin í
notkun á árunum 2010 til 2012.
Gerður G. Óskarsdóttir segir að
ætla megi að nemendum fjölgi með
þéttari byggð. Gert sé ráð fyrir að
um 620 íbúðir verði byggðar 2005
til 2012. Í nemendaspánni sé gert
ráð fyrir að hlutfall nemenda í nýj-
um íbúðum verði 0,16 á íbúð sem sé
meðalhlutfall nemenda í öðrum
íbúðum hverfisins. Auk þess séu
skil nemenda sem búi í hverfi Vest-
urbæjarskóla að meðaltali um 75%.
Út frá þessum forsendum sé því
spáð að um 300 nemendur sæki
skólann haustið 2007 og um 450
haustið 2011.
Tillögur liggja fyrir
Í október sem leið áttu 373 nem-
endur í 1. til 7. bekk lögheimili í
hverfinu og 470 sem eiga að sækja
skóla 2011 til 2012. Í haust voru um
260 nemendur skráðir í skólann.
Að sögn Gerðar liggja fyrir til-
lögur um hvernig byggja megi við
Vesturbæjarskólann meðfram
Framnesvegi. Ennfremur hafi verið
undirbúinn flutningur tveggja húsa
á lóðinni til að stækka leiksvæðið.
Byggja þarf
við Vestur-
bæjarskóla
ALLS söfnuðust 3,9 milljónir króna í
söfnun fyrir fjölskyldur á Norður-
landi sem nokkur fyrirtæki á Ak-
ureyri stóðu að og lauk um síðustu
helgi. Féð rennur beint til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar á Norðurlandi.
Fyrirtækin sem gengust fyrir
söfnuninni voru útvarpsstöðin
VOICE 987, Hljóðkerfa- og ljósa-
leiga Akureyrar, Sparisjóður Norð-
lendinga, N4 og Síminn. Söfnuninni
lauk formlega á laugardagskvöldið í
beinni útsendingu á sjónvarpstöð-
inni N4.
Úthlutun til fjölskyldna og ein-
staklinga á Norðurlandi fer fram í
Glerárkirkju. Hún hófst í gær og
stendur yfir þar til á morgun og sér
Jón Oddgeir Guðmundsson um hana
að venju.
Margir þurfa á aðstoð að halda
Ásgeir Ólafsson, kynningarstjóri
útvarpsstöðvarinnar VOICE 987 og
talsmaður verkefnisins, segir að því
miður sé staðreyndin sú að margar
fjölskyldur þurfi að leita til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar um jólin vegna
fjárskorts og því hafi þessari söfnun
verið hrundið af stað.
„Við ákváðum að einbeita okkur
að fjölskyldum og einstaklingum á
Norðurlandi í þessari söfnun, en
þetta er fyrsta söfnunin sem haldin
hefur verið á svæðinu með þessu
sniði og er eingöngu fyrir íbúa þess,“
segir hann.
Eins og áður segir lauk söfnuninni
með formlegum hætti sl. laug-
ardagskvöld, í rúmlega tveggja tíma
beinni útsendingu á sjónvarpsstöð-
inni N4, sem send var út frá nýju
hljóðveri N4 í Amaro-húsinu. Söfn-
unin stóð alls yfir í 10 daga og var
hægt að leggja inn á reikning í
Sparisjóði Norðlendinga sem tók við
framlögum.
Á hádegi laugardaginn 16. desem-
ber sl. var svo opnað fyrir síma og
gátu þá allir hringt inn og gefið í
söfnunina.
Allir gáfu vinnu sína
Fjölmargir styrktu söfnunina,
einstaklingar og fyrirtæki, bæði með
beinum fjárframlögum eða öðrum
hætti. Nefna má að Eignarhalds-
félagið Sjöfn gaf 2 milljónir, fulltrúi
Nettó kom færandi hendi í sjón-
varpssal og gaf 50 gjafabréf hvert að
verðmæti 10.000 krónur, samanlagt
upp á 500.000 krónur, Sparisjóður
Norðlendinga gaf 300.000 krónur,
Kjarnafæði gaf matarúttekt fyrir
300.000 krónur, KEA gaf 70
skammta af jólakjöti frá Norðlenska
og Slippurinn var með framlag upp á
100.000 krónur.
Bræðurnir Valgarður Nói, 5 ára,
og Daði Hrannar, 8 ára, gáfu sam-
eiginlegan sparibauk í söfnunina og
þegar búið var að telja úr honum
kom í ljós að þar voru ríflega 14.000
krónur sem runnu til verkefnisins.
Þau fyrirtæki sem komu að söfn-
uninni voru útvarpsstöðin VOICE
987, Hljóðkerfa- og ljósaleiga Ak-
ureyrar, Sparisjóður Norðlendinga,
N4 og Síminn. Geimstofan auglýs-
ingastofa sá um alla hönnun verk-
efnisins og auglýsingar voru birtar
frítt í ýmsum miðlum.
Allir sem komu að verkefninu
gáfu vinnu sína.
Söfnuðu 3,9 millj.
króna fyrir Hjálp-
arstarf kirkjunnar
AKUREYRI
MILLIVEGGUR í húsi í byggingu
fauk á hliðina og brotnaði í miklu
hvassviðri á Akureyri aðfararnótt
þriðjudagsins. Talið er að tjónið sé
um ein milljón króna. Mikið var að
gera hjá lögreglu og björgunarsveit-
armönnum vegna veðursins,
skemmdir urðu töluverðar víða en
engan sakaði.
Það var í einingahúsi við Ásatún
sem milliveggurinn lagðist niður
vegna veðurofsans. Þetta er í
Naustahverfi, nýjasta hverfinu syðst
og efst í bænum, þar sem mest vand-
ræði voru vegna hvassviðrisins.
Það var upp úr miðnætti sem
hvessti verulega og vindinn lægði
ekki fyrr en um hálffimmleytið um
morguninn.
Lögreglan sinnti mörgum útköll-
um vegna veðursins og hafði í nógu
að snúast. Þá var óskað aðstoðar
björgunarsveitarinnar Súlna og voru
17 félagar í sveitinni að störfum í
fimm flokkum.
Nokkuð var um fok á lausum mun-
um víðs vegar um bæinn, þó aðallega
í Naustahverfi, m.a. fauk vinnuskúr
á hliðina við Klettatún og rann út á
miðja götu og járnplötur fuku við
Kjarnagötu. Þá slitnaði háspennu-
lína við Kjarnagötu neðan við
Naustahverfi og þurfti að loka göt-
unni á meðan rafmagn var tekið af
línunni.
Bifreið fauk út af veginum við
Hamra. Glerhálka var á veginum og
mjög hvasst. Ekki urðu slys á fólki
og bifreiðin er óskemmd.
Plötur fuku af þaki í Vörðutúni.
Lögreglumenn hlupu á eftir nokkr-
um plötum og bundu niður en þeir
þurftu nokkrum sinnum að stökkva í
skjól þegar lausamunir komu fljúg-
andi í áttina að þeim.
Aðstoða þurfti íbúa í tveimur hús-
um vegna skjólveggja sem voru
byrjaðir að losna í hvassviðrinu;
veggirnir voru lagðir niður til þess
að þeir fykju ekki burt.
Þakplötur fuku á nokkrum ný-
byggingum og urðu skemmdir á
nokkrum stöðum á girðingum og
fleiru lauslegu á byggingarsvæðum.
Lögreglumenn fóru að fjölbýlis-
húsi við Skálateig þar sem að hlífð-
argler í sameign hafði brotnað og
óttuðust íbúar í fjölbýlishúsinu að
meira gler myndi brotna.
Þá fauk stórt auglýsingaskilti við
Glerárgötu yfir hús og hafnaði á
tveimur bifreiðum og skemmdust
þær þó nokkuð.
Veggur í einingahúsi
brotnaði í rokinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mesta tjónið Milliveggur einingahúss við Ásatún sem lagðist á hliðina í
rokinu í fyrrinótt og brotnaði. Tjónið er talið vera um ein milljón króna.
Mikið var að gera hjá
lögreglu og björg-
unarsveitinni Súlum
Í HNOTSKURN
»Mjög hvasst var á Ak-ureyri í fyrrinótt. Mesta
tjónið varð er milliveggur í
einingahúsi í byggingu lagðist
á hliðina og brotnaði.
»Lögreglumenn hlupu uppiþakplötur og þurftu
nokkrum sinnum að skjótast í
skjól vegna fjúkandi hluta.