Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 24
Á ballið Auðvelt
ætti að vera fyr-
ir hvaða
dömu sem er
að tjútta
alla nóttina
í þröngum
pallíettukjól-
unum.
Jólamaturinn kostar
alltaf sitt, en hvar
er hann ódýr-
astur? » 26
neytendur
Dagskráin hjá Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni borgarstjóra
er þétt skipuð, af bæði fund-
arstörfum og söng. » 28
daglegt
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Porche II-hönnunin frá Siemens.
Úr hágæða burstuðu áli.
Hönnuður: F.A. Porsche.
Kaffivél, brauðrist og hraðsuðukanna.
A
T
A
R
N
A
/
S
T
ÍN
A
M
.
/
F
ÍT
daglegtlíf
Ílítilli vinnustofu í bakhúsi neðarlega við Skólavörðustíg hef-ur verið komið fyrir glæsikjólum frá árunum 1950–1970.Þar er um að ræða kjóla úr verslun Kristínar H. Eyfells,Kjólaversluninni Fix, sem var lokað í kringum 1972. Bróð-
urdóttir Kristínar, Kristín Magnúsdóttir, á heiðurinn af þessu
framtaki, en hún ætlar sér að selja kjólana sem hafa legið í
geymslu frá því að Kjólaversluninni Fix var lokað á sínum tíma.
„Ég eignaðist þennan lager fyrir nokkrum árum,“ segir Kristín.
„Ég vann í búðinni hjá Kristínu frænku minni og hún vildi að ég
tæki við henni. Þetta átti hins vegar ekkert við mig, ég er engin
sölukona,“ heldur Kristín áfram léttum rómi, en hún er lífefna-
fræðingur að mennt og hefur í haust kennt hjúkrunarfræðingum
lífefnafræði og þegar hún byrjaði í jólafríi frá kennslunni sneri
hún sér að því að koma kjólasölunni á koppinn.
Kjólarnir eru að einhverju leyti saumaðir hérna heima og Krist-
ín segir t.d. að svo sé um fyrsta hluta safnsins. „Eftir það var farið
að sauma jöfnum höndum og flytja inn. Fyrst var mest flutt inn
frá Ameríku, Hollywood-stíllinn, þú veist,“ segir Kristín og
bandar hendinni í átt að glæsilegum kjólarekkunum. „Á bítlatím-
anum var svo mest flutt inn frá London,“ segir hún. „Ég fékk að
fara til London og velja kjóla, þá sat ég ein inni í sýningarsal og
módelin komu inn, svo benti ég á það sem ég vildi,“ segir Kristín
og það lifnar yfir andliti hennar við upprifjunina. „Það var mikill
glamúr í kringum þetta og ég var bara átján ára, þegar þetta var.“
Kristín segist hafa haft það á bak við eyrað í nokkur ár að selja
kjólana. „Ég beið hálfpartinn eftir því að hún dóttir mín yrði að-
eins eldri. Nú er hún orðin sautján ára og getur hjálpað mér, það
munar ofboðslega miklu,“ segir Kristín. Nefnd dóttir hennar heit-
ir Sunna Kristín Hannesdóttir og situr fyrir á myndunum ásamt
vinkonu sinni, Ellen Nadíu Gylfadóttur.
Kristín býst við að hafa opið á meðan birgðir endast. „Þetta er
hérna í vinnustofu mannsins míns, hann er myndlistarmaður, og
ég rak hann bara út með allt sitt dót. Hann þarf ekkert á þessari
vinnustofu að halda akkúrat núna og ég þarf þess vegna ekkert að
flýta mér að losa þetta húsnæði.“ Vinnustofan er eins og áður seg-
ir í bakhúsi við Skólavörðustíg, nánar tiltekið 4b. Opið verður frá
ellefu til ellefu fram að jólum.
Rak kallinn út
fyrir kjólana
Dragtir Sunna í dömulegri og aðsniðinni pils-
dragt sem kom úr Kjólaversluninni Fix.
Fyrir árshátíðina Glæsilegir glamúrkjólar af
öllum stærðum og gerðum frá tímabilinu
1950-70 hanga í löngum röðum á slánum.
Gæsahúð Rómantískur
hatturinn á höfði Ellenar
Nadíu sendir minning-
arhroll niður bakið.
Morgunblaðið/Ómar
Kápur í kuldanum Engu er líkara en stöllurnar hafi ferðast
fram tímann frá 7. áratugnum ef litið er eingöngu á kápurnar.
„Fyrst var mest
flutt inn frá
Ameríku,
Hollywood-
stíllinn, þú veist.“
|miðvikudagur|20. 12. 2006| mbl.is