Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 24
Á ballið Auðvelt ætti að vera fyr- ir hvaða dömu sem er að tjútta alla nóttina í þröngum pallíettukjól- unum. Jólamaturinn kostar alltaf sitt, en hvar er hann ódýr- astur? » 26 neytendur Dagskráin hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarstjóra er þétt skipuð, af bæði fund- arstörfum og söng. » 28 daglegt Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Porche II-hönnunin frá Siemens. Úr hágæða burstuðu áli. Hönnuður: F.A. Porsche. Kaffivél, brauðrist og hraðsuðukanna. A T A R N A / S T ÍN A M . / F ÍT daglegtlíf Ílítilli vinnustofu í bakhúsi neðarlega við Skólavörðustíg hef-ur verið komið fyrir glæsikjólum frá árunum 1950–1970.Þar er um að ræða kjóla úr verslun Kristínar H. Eyfells,Kjólaversluninni Fix, sem var lokað í kringum 1972. Bróð- urdóttir Kristínar, Kristín Magnúsdóttir, á heiðurinn af þessu framtaki, en hún ætlar sér að selja kjólana sem hafa legið í geymslu frá því að Kjólaversluninni Fix var lokað á sínum tíma. „Ég eignaðist þennan lager fyrir nokkrum árum,“ segir Kristín. „Ég vann í búðinni hjá Kristínu frænku minni og hún vildi að ég tæki við henni. Þetta átti hins vegar ekkert við mig, ég er engin sölukona,“ heldur Kristín áfram léttum rómi, en hún er lífefna- fræðingur að mennt og hefur í haust kennt hjúkrunarfræðingum lífefnafræði og þegar hún byrjaði í jólafríi frá kennslunni sneri hún sér að því að koma kjólasölunni á koppinn. Kjólarnir eru að einhverju leyti saumaðir hérna heima og Krist- ín segir t.d. að svo sé um fyrsta hluta safnsins. „Eftir það var farið að sauma jöfnum höndum og flytja inn. Fyrst var mest flutt inn frá Ameríku, Hollywood-stíllinn, þú veist,“ segir Kristín og bandar hendinni í átt að glæsilegum kjólarekkunum. „Á bítlatím- anum var svo mest flutt inn frá London,“ segir hún. „Ég fékk að fara til London og velja kjóla, þá sat ég ein inni í sýningarsal og módelin komu inn, svo benti ég á það sem ég vildi,“ segir Kristín og það lifnar yfir andliti hennar við upprifjunina. „Það var mikill glamúr í kringum þetta og ég var bara átján ára, þegar þetta var.“ Kristín segist hafa haft það á bak við eyrað í nokkur ár að selja kjólana. „Ég beið hálfpartinn eftir því að hún dóttir mín yrði að- eins eldri. Nú er hún orðin sautján ára og getur hjálpað mér, það munar ofboðslega miklu,“ segir Kristín. Nefnd dóttir hennar heit- ir Sunna Kristín Hannesdóttir og situr fyrir á myndunum ásamt vinkonu sinni, Ellen Nadíu Gylfadóttur. Kristín býst við að hafa opið á meðan birgðir endast. „Þetta er hérna í vinnustofu mannsins míns, hann er myndlistarmaður, og ég rak hann bara út með allt sitt dót. Hann þarf ekkert á þessari vinnustofu að halda akkúrat núna og ég þarf þess vegna ekkert að flýta mér að losa þetta húsnæði.“ Vinnustofan er eins og áður seg- ir í bakhúsi við Skólavörðustíg, nánar tiltekið 4b. Opið verður frá ellefu til ellefu fram að jólum. Rak kallinn út fyrir kjólana Dragtir Sunna í dömulegri og aðsniðinni pils- dragt sem kom úr Kjólaversluninni Fix. Fyrir árshátíðina Glæsilegir glamúrkjólar af öllum stærðum og gerðum frá tímabilinu 1950-70 hanga í löngum röðum á slánum. Gæsahúð Rómantískur hatturinn á höfði Ellenar Nadíu sendir minning- arhroll niður bakið. Morgunblaðið/Ómar Kápur í kuldanum Engu er líkara en stöllurnar hafi ferðast fram tímann frá 7. áratugnum ef litið er eingöngu á kápurnar. „Fyrst var mest flutt inn frá Ameríku, Hollywood- stíllinn, þú veist.“ |miðvikudagur|20. 12. 2006| mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.