Morgunblaðið - 20.12.2006, Side 30

Morgunblaðið - 20.12.2006, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. EVRAN OG KRÓNAN Ákvörðun Straums-Burðarássfjárfestingarbanka um aðfæra bókhald sitt í evrum í stað íslenzkra króna hefur vakið tals- verða athygli. Ákvörðun bankans er skiljanleg, en hún er varla eins dramatísk fyrir íslenzka hagkerfið og sumir vilja vera láta. Það er ekkert óeðlilegt við að fyr- irtæki, sem eru með meginumsvif sín erlendis eins og Straumur-Burðarás, kjósi að skrá bókhald sitt í þeim gjaldmiðli, sem þau gera aðallega viðskipti í. Eftir að heimild til þessa var tekin upp í lög um ársreikninga fyrirtækja fyrir fjórum árum hefur talsvert á annað hundrað fyrirtækja valið þennan kost. Meirihluti þeirra gerir hins vegar upp í dollurum, ekki evrum. Nokkur af stærri útrásarfyrir- tækjum landsins eru komin í þennan hóp, til dæmis Össur, sem gerir upp í dollurum, Actavis og Marel, sem gera upp í evrum, og Bakkavör, sem gerir upp í brezkum pundum. Það að þessi fyrirtæki hafi gert upp í er- lendri mynt hefur ekki haft nein áhrif á stöðu krónunnar. Hún er áfram gjaldmiðillinn í viðskiptum, sem gerð eru á Íslandi, og uppgjörsmynt mik- ils meirihluta íslenzkra fyrirtækja. Ekki verður sagt að enn hafi komið fram nein sannfærandi rök fyrir því að Ísland ætti að leggja niður krón- una og taka upp evru í staðinn. Því myndu vissulega fylgja ýmsir kostir í viðskiptum við evrusvæðið. En evru- svæðið stendur enn sem komið er að- eins fyrir um þriðjung af utanríkis- viðskiptum Íslands. Ef stærstu einstöku viðskiptalönd okkar, Bret- land, Danmörk og Svíþjóð, tækju upp evruna liti dæmið öðruvísi út. En þau hafa ekki gert það og ekki er líklegt að þau geri það á næstunni. Ef hagsveiflan hér á landi væri sambærileg við það, sem gerist á evrusvæðinu, liti dæmið líka öðruvísi út. En hún er bara allt öðruvísi. Stundum er talað um að hagstjórn hér á landi sé erfið vegna þess að Seðlabankinn hafi sífellt minni tæki- færi til að halda þenslu í skefjum með vaxtahækkunum. Þær stuðli aðallega að því að hækka gengi krónunnar vegna hinna háu vaxta, sem erlendir fjárfestar fá af skuldabréfum, sem gefin eru út í krónum. En hvernig gengi hagstjórnin hér ef Ísland not- aði evru? Hvernig hefði gengið að hafa hemil á þenslunni í fram- kvæmdabylgju undanfarinna ára með stýrivöxtum evrópska seðla- bankans, sem eru í kringum tvö pró- sent? Allir ættu að geta séð að það dæmi gengur ekki upp. Hitt er svo annað mál að til lengri tíma litið geta ákvarðanir fleiri stórra fyrirtækja um að gera upp í öðrum gjaldmiðli en krónunni stuðl- að að því að skapa þau sálrænu áhrif, að fólki finnist krónan enga framtíð eiga fyrir sér. Þá getur stuðningur við að taka upp evruna vaxið. Og með aukinni alþjóðavæðingu íslenzks at- vinnulífs er heldur ekki útilokað að hagsveiflan hér taki meira mið af því, sem gerist í nágrannalöndunum. Það er hins vegar ástæða til að árétta tvennt, sem einhverra hluta vegna virðist stundum ekki á hreinu í umræðum um gjaldmiðilsmál á Ís- landi. Í fyrsta lagi getur evran aldrei orðið lausn á vandamálum dagsins í dag í hagstjórn á Íslandi. Til þess að eiga möguleika á að taka upp evru þarf að ríkja stöðugleiki í verðlags- málum, vextir að vera lágir og gengið að vera stöðugt. Það þarf að nást fyrst, svo er hægt að taka upp evru. Og í öðru lagi er fullkomlega óraun- hæft að ætla að taka upp evru án að- ildar að Evrópusambandinu. Ákvörð- un um að evran henti íslenzku efnahagslífi er jafnframt ákvörðun um að ganga í ESB, með þeim kost- um og göllum, sem því fylgja. FRAMSÓKNARFLOKKUR 90 ÁRA Stjórnmálaflokkarnir gegna mikil-vægu hlutverki í lýðræðislegri stjórnskipun okkar. Þeir eru skamm- aðir, það er gert lítið úr þeim, þeir eru hrakyrtir og áhrif þeirra eru of oft tal- in til ills eins. Samt eru þeir grundvall- arþáttur í samfélagi okkar. Saga þeirra í samtíma okkar er orðin býsna mikil. Framsóknarflokkurinn er 90 ára um þessar mundir og fullt tilefni til að flokkurinn haldi upp á það afmæli. Framsóknarflokkurinn hefur gegnt þýðingarmiklu hlutverki á þessum 90 árum. Flokkurinn hefur verið helzti málsvari landbúnaðarins allan þennan tíma, þótt ekki megi gleyma mikilvægu hlutverki Sjálfstæðisflokksins í því sambandi, sem öðrum þræði hefur allt- af talið sig sinna hagsmunum landbún- aðarins. Framsóknarflokkurinn var líka einn helzti málsvari samvinnuhreyfingar- innar í áratugi. Á síðustu einum til tveimur áratug- um hefur Framsóknarflokkurinn lent í tilvistarkreppu, sem flokkurinn er ekki kominn út úr. Hlutur landbúnað- arins í þjóðarbúskap okkar er miklu minni en hann var og þess vegna getur Framsóknarflokkurinn ekki sótt jafn mikið fylgi til þeirra, sem hafa hags- muni af landbúnaði og áður. Viðskiptaveldi samvinnuhreyfingar- innar er ekki svipur hjá sjón og þess vegna sækir Framsóknarflokkurinn ekki sama styrk til hreyfingarinnar og áður var. Frammi fyrir þessum vanda hefur Framsóknarflokkurinn reynt að breyt- ast úr dreifbýlisflokki í þéttbýlisflokk. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi for- maður flokksins, einsetti sér að ljúka þeirri breytingu á Framsóknarflokkn- um. Það tókst ekki nema að hluta og sennilega átti Evrópusambandsstefna hans mestan þátt í því. Halldór þurfti að gera Framsóknarflokkinn að þétt- býlisflokki án þess að reita dreifbýlið til reiði en það tókst honum með Evr- ópustefnu sinni. Þess vegna þarf eng- an að undra, þótt Evrópustefnan hafi verið lögð til hliðar af nýjum formanni. Nú er það hlutverk Jóns Sigurðs- sonar að ljúka því verkefni, sem Hall- dór Ásgrímsson hóf, að breyta Fram- sóknarflokki í þéttbýlisflokk. Þegar horft er yfir sögu Framsóknarflokks- ins og stöðu hans nú er ljóst að það getur ráðið úrslitum um framtíð Fram- sóknarflokksins hvernig Jóni Sigurðs- syni vegnar á þeirri vegferð. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is B ILUN í sjálfstýribúnaði flutninga- skips Nesskipa, Wilson Muuga, varð þess meðal annars valdandi að skip- ið rak upp í fjörur sunnan við Sand- gerði í gærmorgun, að sögn Guð- mundar Ásgeirssonar framkvæmdastjóra Nesskipa. Skipið er skráð á Kýpur og var á leiðinni til Múrmansk í Rússlandi með tómar lestar eftir uppskipun á 5.500 tonnum af steinefninu kvarsi fyrir Íslenska járnblendifélagið á Grundartanga. Hins vegar voru 137 tonn af olíu í lestum skips- ins og höfðu menn því einkum áhyggjur af meng- unarhættu, þegar tekist hafði að bjarga mönn- unum, 21 að tölu, þar af allri áhöfn Wilsons, 12 manns, og sjö manns úr áhöfn danska varðskips- ins Triton, sem reyndu árangurslausa björgun á gúmbát, og tveggja Íslendinga, lögreglumanns og starfsmanns Landhelgisgæslunnar sem fóru um borð í skipið klukkan rúmlega 11 fyrir hádegi til að ræða við áhöfnina. Einn skipverji af Triton fórst við björgunartil- raunina þegar gúmbátnum hvolfdi í brimi við strandstað. Björgunarsveitir fengu útkall F1 Rauður, sem er hæsta útkallsstigið, um klukkan fimm í gær- morgun og sagði Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunarsviðs Slysavarnafélagsins Landsbjarg- ar, að tilkynnt hefði verið um skipsstrand og slys. „Viðbragðið var mjög hratt og menn mjög fljótir á vettvang,“ sagði Gunnar. „Þegar við komum á staðinn sáum við hversu alvarlegs eðlis málið var. Skipið var hérna í broti uppi í fjöru og hætta var á ferðum. Óljóst var hvernig staðan var um borð í skipinu, enda var erfitt að fá skýr svör frá skipstjóranum. Um sjöleytið komumst við að því að slys hafði orðið við varðskipið Tri- ton og það gerði að verkum að björgunaraðgerð- ir breyttust. Nú voru skyndilega sjö til átta manns í sjón- um og því mun meira aðkallandi að sinna þeim. Við kölluðum því út allar björgunarsveitir á höf- uðborgarsvæðinu á F1 Rauðum og báðum þær að koma hingað með forgangi. Við vorum því komnir með mannskap mjög fljótt, auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar kom til aðstoðar. Strax var farið í að leita fjörur og leita að mönn- unum á sjó. Fljótlega eftir að þyrlan kom og beitti nætursjónaukum fundust mennirnir. Næt- ursjónaukar eru frábær tæki og ættu að vera í Á strandstað Björgunarmenn bera saman bækurnar en skammt undan landi sér í flutningaskipið. Voru Skipstjórinn skýrði frá bilun í sjálf- stýringu Flutningaskipið Wilson Muuga var með tómar lestar er það strandaði rétt við Sandgerði í gærmorgun en í því voru 137 tonn af olíu. Var áhöfn skipsins bjargað og einnig sjö manns af danska varðskipinu Triton. Sá áttundi lést. Ráðgert var að leggja veg niður í flæðarmálið og stefnt að því að hefjast handa við að dæla olíu úr flutningaskipinu nú í morgun. Stra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.