Morgunblaðið - 20.12.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 31
öllum þyrlum Gæslunnar og björgunarskipum
Landsbjargar. Þeir komu að verulega góðum notum
í þetta skipti.“
Gunnar telur starf björgunarsveitanna í heild
hafa gengið mjög vel í gær, allar fjörur í nágrenn-
inu hafi verið leitaðar og línur hafi verið tengdar
milli skips og fjöru, að því ógleymdu að fólkinu var
bjargað.
„Við erum nokkuð sáttir við hvernig staðið var að
björguninni,“ sagði hann.
Skipsbotninn rifinn og sjór í vélarrúmi
Þegar síðasti skipverjinn af Wilson var kominn í
land milli kl. 14 og 15 beindust sjónir manna ein-
vörðungu að mengunarhættu vegna olíunnar í skip-
inu. Gunnar sagði mestu skipta að ná olíunni úr
skipinu og dæla henni í land þar sem henni yrði
komið í örugga geymslu. „En það sem gerst hefur
er að botn skipsins hefur rifnað og kominn er sjór í
vélarrúmið og alveg niður í lestir. Það hefur losnað
eitthvað úr ballestinni með þeim afleiðingum að
skipið hefur lést. Um leið og flóðið kemur eigum við
von á að skipið losni upp og jafnvel snúist og við vit-
um ekki hvað úr verður. Við getum í raun ekki
haldið skipinu í skefjum. Við verðum því að sjá til.“
Undirbúningur olíudælingar hafinn
Síðdegis í gær hófst undirbúningur að því að
leggja veg niður að strandstað til að auðvelda flutn-
inga vegna olíudælingar sem áttu að hefjast í fyrsta
lagi nú í morgun.
Á strandstað í gær komu fulltrúar Umhverf-
isstofnunar til að huga að mengunarþáttum vegna
slyssins. Að sögn Stefáns Einarssonar vaktstjóra
hjá UST hafði stofnunin samvinnu við Olíudreifingu
hf. um að dæla olíu úr skipinu. „Sá undirbúningur
er í gangi og þegar færi gefst munum við fara út í
skipið og hefja dælingu.
Við vitum ekki hvað skipið kemur til með að
hreyfast mikið,“ sagði hann.
Um hættu á olíumengun sagði Einar að þegar
tankar rofnuðu væri slík hætta til staðar. „Við vit-
um ekki nákvæmlega hvernig ástandið er núna og
það er erfitt að gera sér grein fyrir því. Það fer eft-
ir því hvað gerist í dag, hvort skipið stendur óhagg-
að áfram eða fer á hreyfingu,“ sagði hann.
Spáð er hvassri sunnanátt í dag en hvassri suðs-
uðvestanátt á morgun og síðan suðvestanátt síðdeg-
is.
Wilson Muuga hét áður Selnes og var keypt til
landsins árið 1979 frá Englandi. Fyrir rúmum
tveimur árum fékk skipið sitt núverandi heiti.
Gat á öllum botntönkum
Að sögn Guðmundar Ásgeirssonar hjá Nesskipum
voru í gærkvöldi ekki komnar fram frekari útskýr-
ingar á því hvers vegna skipstjórinn missti stjórn á
skipinu. Tjáði hann Guðmundi að sjálfstýribúnaður-
inn hefði bilað, eins og fyrr gat. Skipverjar voru yf-
irheyrðir af lögreglu í gærkvöld vegna rannsóknar
málsins.
Guðmundur sagði að annað skip yrði fundið til að
sinna því hlutverki sem Wilson Muuga hafði með
höndum, nefnilega það að sækja farm til Múrmansk
fyrir Járnblendifélagið.
„Skipið fór frá Grundartanga klukkan 00:25 í
[fyrri]nótt og hlutirnir gerðust síðan mjög hratt,“
sagði Guðmundur. „Það er gat á öllum botntönkum
og í vélarrúmi líka. Það hefur lítilræði af olíu lekið
út en það getur allt gerst í nótt. Þetta er mjög slæm
staða enda eintómt grjót allt um kring og hauga-
sjór. Það er því óneitanlega mjög slæm staða uppi.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Mannbjörg Læknir, björgunarmenn og starfsmenn Landhelgisgæslunnar koma með einn skipverjann í land.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
u aðstæður mjög erfiðar, niðamyrkur, hvasst og 5-6 m ölduhæð.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
and flutningaskipsins Wilson Muuga við Sandgerði í gærmorgun