Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 43 ✝ Hulda SigríðurJóhannsdóttir frá Hnjóti á Bíldu- dal fæddist 9. nóv- ember 1918. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði 12. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhann Eiríks- son, f. 13.9. 1874, d. 10.9. 1937, og seinni kona hans, Salóme Kristjánsdóttir, f. 24.6. 1889, d. 18.2. 1943. Hulda eign- aðist ellefu alsystkini og eru tvö þeirra á lífi í dag. Þau voru Gunn- ar, f. 3.9. 1908, Högni, f. 7.9. 1910, Ragnar, f. 22.6. 1911, Gústaf Adolf, f. 5.11. 1912, Gunnlaugur, f. 21.7. 1914, Jón, f. 27.7. 1915, 19.1. 1916 á Búðum á Snæfellsnesi og lést hann 30.12. 1986. Eign- uðust þau fimm börn saman. Þau eru: 1) Jóhanna, f. 14.12. 1940, Jó- hanna eignaðist fjögur börn með fyrri manni sínum, Agnari Að- alsteinssyni og þau eru Kristín, Lóa, Steinþór og Ásgeir. Maki Jó- hönnu er Þórarinn Óskarsson, f. 26.4. 1942. 2) Sigurrós, f. 2.7. 1942, maki Stefán Árnason, f. 16.6. 1942, og börn þeirra eru Hulda, Árni, Guðrún, Fjóla og Lilja. 3) Sal- ómon, f. 14.8. 1943, maki Ingibjörg Kjartansdóttir, f. 4.6. 1947, og börn þeirra eru Guðrún Margrét, Hulda Sigríður og Kjartan Frið- rik. 4) Fjóla, f. 30.4. 1948, maki Stefán Vilhjálmsson, f. 12.10. 1945, og börn þeirra eru Vil- hjálmur, Ingunn, Kristján og Hulda Sigríður. 5) Ragnheiður, f. 27.10. 1949, maki Ingvi Jóhanns- son, f. 1.2. 1947 og börn þeirra eru Kristín Hulda, Ingólfur og Sess- elja. Útför Huldu verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Emma Sigríður, f. 24.6. 1917, Marinó Gísli, f. 22.8. 1928, og eftirlifandi systur eru Halldóra, f. 12.9. 1922, og Þorsteina, f. 12.5. 1925. Hulda átti einnig sex hálfsystk- ini og eru þau öll lát- in. Þau voru Val- gerður, f. 31.5. 1897, Eiríkur, f. 22.11. 1898, Kristín Pálína, f. 23.6. 1900, Jóhann, f. 10.11. 1902, Ólafur Jón, f. 17.1. 1904, og barn óskírt fætt andvana 1906. Móðir þeirra var fyrri kona Jó- hanns, Guðrún Ólafsdóttir, f. 14.9. 1873, d. 1906. Hinn 1.3. 1941 giftist Hulda Kristjáni Jóhanni Hanssyni, f. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín, elsku góða mamma mín. – Allt er gott sem ég hef hlotið, hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. – Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærustu blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. – Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Árni Helgason) Kveðja. Börnin þín. Elsku tengdamamma. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum. Það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum, er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta þá helgu tryggð og vináttunnar ljós er gerir jafnvel dimma daga bjarta, úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsd.) Þín Inga. Elsku amma. Það er ýmislegt sem er erfitt að gera en erfiðast af öllu er að kveðja einhvern sem manni þykir vænt um. Núna geng ég í gegnum það að þurfa að kveðja þig og þá er ótrúlegt hvað mikið af minningum streymir í gegnum huga manns. Því er mjög ljúfsárt að kveðja. Þegar sorglegu fréttirnar bárust á mitt heimili var mikið verið að rifja upp gamlar minningar og sátum þá við fjölskyldan og sögðum frá okkar góðu minningum um þig. Ég man að stundum þegar ég og systir mín fengum að koma og gista hjá þér í stóra vatnsrúminu þínu – við höfðum aldrei áður séð vatnsrúm og ég held að enn þann dag í dag hafi ég ekki séð annað vatnsrúm en þitt – þá hafðirðu unun af því á kvöldin að kenna okkur að spila á spil. Eftir- minnilegustu spilin sem þú kenndir okkur eru veiðimaður og steliþjófur. Þá sátum við á gólfinu inni í stofu með tvo stokka af spilum, annan blá- an og hinn rauðan, og þú leyfðir okk- ur alltaf að velja hvor spilin við vild- um nota. Aðrar minningar sem komu í hugann voru meðal annars af myndinni sem þú áttir á veggnum milli hvíta skápsins á ganginum og hurðarinnar að svefnherberginu. Það var mynd af ljóshærðri konu sem var mjög lík Marilyn Monroe og alltaf þegar ég spurði af hverjum þessi mynd væri sagðir þú að þetta væri mynd af þér í gamladaga. Þó komst ég að því þegar ég varð eldri að það var það nú ekki, en alltaf hef ég horft á þessa mynd með þeim augum að þetta væri amma mín, því að ég get ekki trúað öðru en að þú hefðir verið svona falleg þegar þú varst yngri miðað við hversu falleg þú hefur verið á þeim tíma sem ég hef þekkt þig. Mamma á margar góðar minning- ar um þig og afa sem hún deildi með okkur systrunum en við fengum hvorugar að kynnast afa. Þó hefur mér alltaf fundist eins og ég þekkti hann jafn vel og þig vegna þess hve oft þú talaðir fallega um hann og líka af sögunum sem þú og mamma að- allega sögðuð mér af honum. Hann hefur alltaf verið engillinn minn og ég hef oft leitað til hans þegar mér hefur liðið illa og hann hefur huggað mig og hjálpað mér. Síðast leitaði ég til hans þegar mér leið sem verst yfir að missa langömmu mína sem hefur verið mér svo kær í gegnum lífið. Þá bað ég afa um að taka á móti þér og sjá til þess að þú yrðir ánægð. Þá leið mér strax betur því ég vissi að þú yrðir ánægð með það eitt að fá að hitta afa aftur. Núna hef ég ykkur bæði til að leita til. Síðast langar mig að láta fylgja með ljóð sem þú kenndir mér og systur minni og flestum afkomend- um þínum: Sofðu, unga ástin mín, úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. (Jóhann Sigurjónsson) Guð geymi þig, elsku amma. Fanney Ósk. Elsku hjartans amma, nú er komið að kveðjustund. Söknuðurinn er mikill en við vitum að þú ert komin á góðan stað. Það var alltaf svo gaman að koma til þín, alltaf fullt hús af gestum og mikið hlegið. Þú tókst alltaf svo vel á móti okkur og hafðir alltaf nægan tíma til að spila við okkur og spjalla við okkur. Minningarnar um útileg- urnar og veiðiferðirnar eru sömu- leiðis margar og skemmtilegar. Þú lagðir mikið upp úr því að hafa rauða fallega hárið þitt fínt og negl- urnar vel snyrtar. Þú varst sönn dama, elsku amma. Gaman væri að gleðja hana ömmu og gleðibros á vanga hennar sjá, því amma hún er mamma hennar mömmu og mamma er það besta sem ég á. Í rökkrinu hún segir mér oft sögur, svæfir mig er dimma tekur nótt, syngur við mig kvæði fögur, þá sofna ég bæði sætt og vært og rótt. (Björgvin Jörgensson) Þín minning lifir. Vilhjálmur, Kristján, Ingunn og Hulda Sigríður. Í dag kveðjum við elsku ömmu okkar sem lést á Sólvangi 12. desem- ber síðastliðinn. Hjartkæra amma, far í friði, föðurlandið himneskt á, þúsundfaldar þakkir hljóttu þínum litlu vinum frá. Vertu sæl um allar aldir alvaldshendi falin ver, inn í landið unaðsbjarta englar Drottins fylgi þér. (Höf. ók.) Elsku amma, það var alltaf gott að koma til þín og afa á Öldugötu 10, sérstaklega er við vorum búin að vera á skautum á læknum sem krakkar. Við fengum okkur oft heitt kakó og pönnukökur hjá þér eftir skautaferðirnar og voru það yndis- legar móttökur sem við fengum hjá þér. Afi og þú voruð nú þekkt fyrir ykkar veiðiáhuga að sumri og skot- veiðar að hausti og vetri. Sem krakk- ar fórum við í eftirminnilegar ferðir að Apavatni og Haukadalsvatni með ykkur afa í ykkar ferðabíl sem var Volkswagen rúgbrauð og seinna Fi- atinum ykkar. Okkur fannst þetta alltaf svo spennandi bílar að ferðast í, innréttaðir sem húsbílar. Skemmtilegustu stundirnar voru líka er við fengum að leika okkur á háaloftinu tímunum saman og í kjall- aranum með allar dúkkulísurnar sem var mikið af hjá þér. Ýmislegt var brallað í garðinum hjá ykkur og lá garðurinn alveg við Hamarinn og þar var skemmtilegt að leika sér. Rólan í garðinum vakti góða lukku enda oft tekist á um hana. Góðu stundirnar voru þegar þið komuð í heimsókn til pabba og mömmu í bú- staðinn sem þau byggðu við Apa- vatn. Þar áttuð þið oft yndislegar stundir með okkar fjölskyldu. Þegar bjóða átti þér til veislu, amma mín, var eins gott að bjóða þér tímanlega því hárið átti alltaf að vera vel til haft. Nú ertu komin til afa sem búinn er að bíða eftir þér í tuttugu ár, elsku amma. Við kveðjum þig með söknuði og vitum að ykkur á eftir að líða vel saman. Margrét, Hulda og Kjartan. Hulda Sigríður Jóhannsdóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar Stundum veltir mað- ur fyrir sér þeim gjör- ólíku heimum sem skildu að börn sveitanna um miðja síðustu öld og æskufólk sem óx upp í kaupstöðum landsins um svipað leyti. Um skeið var bilið brúað með þeirri uppeldis- veitu sem kallaðist „að fara í sveit“. Býsna margir urðu hennar aðnjót- andi áður en vélmenning og reglu- gerðir bundu enda á slíkan lúxus. Framsýnir menn þess tíma sem nú liggja undir skömmum, allt frá Jónasi frá Hriflu til Einars Olgeirssonar og Hannibals, opnuðu leiðir í hina áttina fyrir æsku sveita og kauptúna til að sækja í gagnfræðanám og komast inn í menntaskóla við hlið barna góðborg- ara og síðan áfram í háskóla. Fræðslulögin frá 1946 með sitt lands- próf voru ekki alls staðar vel þokkuð á þeim tíma en þau gerðu gæfumuninn fyrir margt dreifbýlisbarnið. Þessar hugrenningar vakna er við kveðjum Bergþór Jóhannsson frá Goðdal, bæ í luktum afkima inn af Bjarnarfirði syðra á Ströndum. Hann var sendur að heiman til náms í Reykjaskóla og þar var hann þegar snjóflóð hreif burt í einu vetfangi æskuheimili hans, móður og nokkur systkini. Ég kom við í þessum gróðursæla dal fyrir nokkrum árum og skoðaði aðstæður, hafði áður séð framan í snjóflóð og mannfórnir af þeirra völdum austan- lands. Bergþór hefur sjálfur í blaðaviðtali lýst á eftirminnilegan hátt aðstæðum sínum og áhugamálum í æsku (Sjá Morgunblaðið Lesbók 16. og 23. des- ember 2003). Hann minntist þar móð- ur sinnar sem hafi verið greind kona, hlédræg, hljóðlát og blíð og við fræð- umst þar um áhuga hans á sauðfé og nánasta umhverfi og síðan hvernig klippt var á strengi er honum var í skóla flutt harmafregnin um snjóflóð- ið. Uppvöxturinn í Goðdal, óvenjulegt næmi og fróðleiksfýsn virðast þrátt fyrir allt mótlætið hafa beint Berg- þóri inn á braut grasafræði sem hann þegar á öðru ári í menntaskóla ákvað að helga sig. Faðir hans, sem var bú- fræðingur frá Hólum, átti óafvitandi sinn þátt í að kveikja áhuga sem hjá Bergþóri beindist að blómplöntum í fyrstu og mosaflóran kom seinna til sögunnar er hann var kominn í há- skólann í Göttingen. „Þjóðverjar áttu þá engan mosafræðing,“ sagði hann löngu síðar. Það hljómar ótrúlega, en stríðið hafði víða tekið sinn toll og sár- in þá enn langt frá því að vera gróin. Eflaust hefur Bergþór snemma skynjað að heima biði hans óplægður akur á því sviði sem hann ætlaði að helga líf sitt sem vísindamaður. Vega- nestið til að sinna því brautryðjenda- starfi sótti hann sér í Óslóarháskóla. Þá þegar hafði hann fundið sinn lífs- förunaut, grasafræðinginn Dóru, sem bjó honum það skjól og umhverfi sem er óskadraumur þeirra sem kafa djúpt. Uppskeran af starfi Bergþórs er í senn einstæð og söguleg. Hann tíndi í fyrstu saman þá fáu mola á fræða- sviðinu sem áður höfðu fallið til eftir skyndiheimsóknir erlendra sérfræð- inga, jók við og bætti með þrotlausu starfi í fjóra áratugi uns allt mosa- sviðið var kortlagt í hólf og gólf, skráð, teiknað og lýst í 21 bindi og öll- um tegundunum rösklega 600 gefið íslenskt heiti líkt og sauðkindum bernskunnar í Goðdal. Mosasafnið í vörslu Náttúrufræðistofnunar fertug- faldaðist í hans umsjá. Sumt af því féll til vegna lögboðinnar úttektar á svæðum undir fyrirhugaðar fram- kvæmdir svo sem í Þjórsárverum eða við Kárahnjúka en meirihlutanum safnaði Bergþór að eigin frumkvæði, fyllti í eyður og greindi aðsend eintök. Bergþór Jóhannsson ✝ Bergþór Jó-hannsson fædd- ist í Goðdal á Ströndum 11. des- ember 1933. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut að morgni 10. desem- ber síðastliðins og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 19. desember. Enginn held ég hafi gengið bónleiður frá búð hans. Sjálfur leit- aði ég til hans eftir greiningu og allt kom það til baka vandlega flokkað og frágengið. Bergþór gætti þess að dreifa ekki kröftum sínum og eðlislæg hlé- drægni hjálpaði honum eflaust til að halda sig nær eingöngu að fræði- störfunum. Hann hafði hins vegar skoðanir jafnt á mönnum sem málefnum og næman skilning á þörf- inni fyrir náttúruvernd. Í áðurnefndu viðtali vakti hann athygli á gildi mosa- þekjunnar fyrir gróðurframvindu og gróðurvernd. „Menn ættu því að bera virðingu fyrir mosunum sem klæða verulegan hluta landsins og umgang- ast gróðurinn varlegar en þeir hafa gert hingað til. … Sjaldgæfustu teg- undirnar þyrfti að vernda á einhvern hátt. Nokkrar tegundir virðast hafa horfið alveg á síðustu áratugum og vaxa líklega ekki hér lengur. Ástæðan er í sumum tilvikum óvarleg meðferð mannsins á náttúrunni og virðingar- leysi fyrir þeim gróðri sem fyrir er.“ Þegar við nú fylgjum Bergþóri síð- asta spölinn eru í brennidepli málefni Náttúrufræðistofnunar Íslands sem var starfsstöð hans. Safnið sem hún á að varðveita lögum samkvæmt hefur í meira en hálfa öld búið við vanrækslu af hálfu stjórnvalda. Fátt er þjóð til meiri vansæmdar en að vanrækja rannsóknir á eigin landi og gæta ekki þess fengs sem hver kynslóð bætir við. Höfuðsafn þjóðarinnar á sviði náttúrufræða, jafnt til fræðslu og vörslu vísindagagna, má ekki stund- inni lengur búa við þá niðurlægingu sem nú viðgengst, hvað þá lenda í skæklatogi um staðsetningu. Slík stofnun á sem aðrar hliðstæðar hvergi annars staðar heima en í höf- uðstað landsins. Við Bergþór héldum utan til náms í náttúrufræði sama haustið. Leiðir okkar lágu saman öðru hvoru á lífs- leiðinni, síðast í Hallormsstaðarskógi fyrir fáum árum. Þau Dóra voru þar á ferð og hún safnaði sýnishornum fyrir bónda sinn sem þurfti að hafa hægt um sig vegna heilsubrests. Eftirlif- andi systkinum Bergþórs kynntist ég snemma, Hauki á háskólaárum og Erlu á Djúpavogi. Þeim öllum svo og Dóru og dætrunum sendi ég hlýjar kveðjur og góðar óskir. Hjörleifur Guttormsson. Með Bergþóri Jóhannssyni er genginn einn af brautryðjendum og lærimeisturum Íslendinga í grasa- fræði. Í Háskóla Íslands minnumst við Bergþórs fyrst og fremst sem öt- uls samstarfsmanns sem átti drjúgan þátt í að móta kennslu í grasafræði við líffræðiskor á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Mörg okkar sem nú störfum við skorina kynntumst honum þá sem kennara í grunnnám- skeiði um lágplöntur og sum okkar voru svo lánsöm að komast í mos- anámskeiðið þar sem við kynntumst fræðimanninum Bergþóri nánar á „heimavelli“. Nákvæmni hans og aga við að greina og lýsa því sem fyrir augu bar í verklegum tímum var við brugðið. Samt var sú fræðsla ætíð veitt af ljúfmennsku en krydduð hæfi- legri kímni. Bergþór var ekki mikið fyrir að hreykja sér en lét verkin tala. Eftir hann liggur drýgra innlegg í lýsingu á náttúru Íslands en flestir gera sér grein fyrir. Þar ber hæst Mosaflóru Íslands í 21 bindi og mosasafn Nátt- úrufræðistofnunar Íslands. Fyrir þessi störf var Bergþór sæmdur heið- ursdoktorsnafnbót frá raunvísinda- deild Háskóla Íslands árið 2000. Um leið og við kveðjum Bergþór viljum við koma á framfæri innilegum samúðarkveðjum til Dóru og dætra þeirra Bergþórs. F.h. starfsmanna líffræðiskorar og Líffræðistofnunar háskólans Jörundur Svavarsson, varaskorarformaður, Sigurður S. Snorrason, forstöðumaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.