Morgunblaðið - 20.12.2006, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ALDARMINNING
Í dag, hinn 20. des-
ember 2006, eru liðin
100 ár frá fæðingu
föður míns Finnboga
Rósinkranz Sigurðs-
sonar. Hann var
fæddur í Bergþór-
uhúsi á Vestdalseyri
við Seyðisfjörð árið
1906. Hann flutti til
Vestmannaeyja árið
1909 og var jafnan
kenndur við Péturs-
borg, hús foreldra
sinna. Foreldrar hans
voru Ingibjörg
Björnsdóttir, fædd á Kirkjubæ í
Vestmannaeyjum 1. september
1886, og Sigurður Vigfússon, fædd-
ur á Hofi í Hofssókn Austur-
Skaftafellssýslu 14. september
1865. Hann var næstyngstur af
átta systkinum sem nú eru öll lát-
in.
Faðir minn fór ungur til sjós og
var sjómennska starf hans langt
fram á fimmta áratuginn en þá var
hann orðinn fjölskyldumaður.
Hann sótti konuefni sitt í Austur-
Eyjafjallahrepp, að Raufarfelli, en
þar fæddist móðir mín, Sigurbjörg
Guðleif Guðjónsdóttir, hinn 19.
febrúar 1916. Hún var dóttir Þor-
bjargar Jónsdóttur, f. á Rauðs-
bakka 16. nóvember 1884, og Guð-
jóns Vigfússonar, f. á Raufarfelli
17. júní 1887, og var hún úr hópi
ellefu systra sem nú eru allar látn-
ar. Þau giftu sig í Vestmannaeyj-
um 1936 þar sem þau bjuggu
fyrstu árin. Hinn 21. febrúar gift-
ingarárið fæddist dóttirin Ingi-
björg Sigríður. Faðir minn hafði
atvinnu af sjósókn við hefðbundnar
fiskveiðar og einnig var siglt með
fisk til útlanda. Á stríðsárunum
tóku þær siglingar á hann og var
hann ekkert áfjáður í að ræða
þetta tímabil í lífi sínu. Fljótlega
eftir stríð hætti hann á sjó og
fluttu þá foreldrar mínir til
Reykjavíkur og bjuggu fyrst á
Framnesvegi 57 en þar fæddist ég
hinn 5. ágúst 1947. Seinna það ár
var svo flutt að Silfurteigi 3, en
það húsnæði byggðu þau.
Þegar þau fluttu suður hóf faðir
minn störf hjá byggingarfélaginu
Brú. Það fyrirtæki steypti upp hús
og önnur mannvirki. Í kringum
1950 var hann beðinn að taka að
sér steypuvinnuflokk á Keflavík-
urflugvelli hjá fyrirtæki sem þá
hét Hamilton en síðar varð það að
Íslenskum aðalverktökum. Hann
sá um að steypa upp fyrstu íbúð-
arblokkirnar þar og einnig sá hann
um uppbyggingu flugbrauta á al-
þjóðavellinum, sem og vegum inn-
an vallarsvæðisins. Hjá Hamilton
var hann vinsæll og naut virðingar
undirmanna sinna. Þénuðu menn
hans vel vegna mikillar vinnu á
hvaða tíma sólarhringsins sem var
Finnbogi Rósinkranz
Sigurðsson
og gekk hann þar
undir nafninu Nætur-
vinnu-Bogi. Á þessu
fékk ég sönnur er ég
var við störf á vell-
inum um tíu árum
eftir að hann hætti
þar. Þá naut ég þess
hvernig hann hafði
unnið traust yfir-
manna sinna og var
það ekki í eina eða
síðasta sinn sem ég
hef notið þess að vera
sonur hans við slíkar
aðstæður.
Það hefur verið 1960 eða um það
leyti að hann keypti fiskbúðina í
Blönduhlíð 2 í Reykjavík. Í fisk-
vinnu var hann á heimavelli. Þar
kunni hann vel til verka og gekk
honum vel að reka fiskbúðina.
Hann uppgötvaði líka fljótlega að
ekki var nóg að vera með fisk, það
varð líka að vera með góðan garð-
mat. Hann gerði samning við kart-
öflubónda sem útvegaði honum úr-
valskartöflur og rófur allan þann
tíma sem hann rak búðina. Á þess-
um árum mátti ekki vera með fisk-
búðir upphitaðar og var þetta því
kalsavinna á veturna. Kuldinn fór
illa í hann en hann var ekki sú
manngerð að vera kvartandi eða
margmáll um það eða sitt heilsu-
far.
Um svipað leyti og hann keypti
fiskbúðina festu þau kaup á sér-
hæð í Stigahlíð sem var í bygg-
ingu. Undir það síðasta var hann
orðinn frekar þreklítill og sótti
hjálp hjá dóttursyni sínum og
nafna. Bogi litli eins og hann var
kallaður af fjölskyldunni, fór með
honum á morgnana að ná í fisk nið-
ur á bryggju eða í fiskmiðstöð sem
var dreifingarmiðstöð fisksala á
þessum tíma. Þetta er fyrir tíma
fiskmarkaðanna. Þeir nafnar voru
saman morguninn sem hann dó.
Þeir voru búnir að koma fiskinum
fyrir þegar hann bað nafna sinn að
fara bara heim sem hann og gerði
en sjálfur fór hann til vinafólks í
húsinu og bað um að fá að leggja
sig. Kallað var eftir aðstoð og dó
hann á leiðinni á sjúkrahús. Það
var 31. janúar 1969 og var hann þá
63 ára gamall. Hann var jarðsettur
í Fossvogskirkjugarði. Móðir mín
varð ekkja 53 ára og giftist ekki
aftur. Hún lést á Landspítalanum
30. október 2005, þá 89 ára og södd
lífdaga. Alltaf syrgði hún mann
sinn. Foreldrar mínir lifðu í góðu
hjónabandi sem einkenndist af
virðingu og væntumþykju. Nutum
við þess systkinin að eiga góða for-
eldra sem vöktu yfir velferð okkar
og fjölskyldna okkar.
Niðjar þeirra hjóna eru: 1) Ingi-
björg Sigríður, f. 21. febrúar 1936,
gift Ingólfi Kristjánssyni, f. 14.
marz 1935, og eiga þau sex syni: A)
Finnbogi Rósinkranz, f. 12.11.
1956, kvæntur Höllu Hörpu Stef-
ánsdóttur og eiga þau a) Ingólf
Stefán, sambýliskona hans er Sig-
rún Þórarinsdóttir og eiga þau
soninn Tristan; og b) Heimi Rós-
inkranz, sambýliskona hans er
Auður Kapitola Einarsdóttir og
eiga þau dótturina Þórnýju Hörpu
Rósinkranz. Fyrir átti Finnbogi
son, Óskar Aðalstein, sem er
kvæntur Önnu Friðrikku Guðjóns-
dóttur og eiga þau dótturina
Ljósbrá Önnu. B) Kristján Friðrik,
f. 20. apríl 1958, var kvæntur
Söndru Gunnarsdóttur og eiga
þau: a) Arnar; b) Sigurrós; c) Ol-
geir Sturla. C) Einar Berg f. 10.
ágúst 1959, var kvæntur Helgu
Aradóttur og eiga þau: a) Ara; b)
Tómas; c) Jóhann Berg. D) Leifur
Þór, f. 7. apríl 1961, kvæntur Sig-
urlaugu Guðnýju Þórarinsdóttur,
og eiga þau: a) Jakob Þór; b) Skúla
Þór; c) Finnboga Þór. E) Olgeir, f.
3. janúar 1964, kvæntur Jóhönnu
Bjarnadóttur, og eiga þau: a)
Kristófer Mána; b) Benedikt Bjart.
F) Sigurður Ingi f. 15. júní 1977,
kvæntur Tinnu Dröfn Marinós-
dóttir og eiga þau: a) Alexöndru
Brynju; b) Marinó; c) Thelma
Dröfn; d) Ingólf Darra; e) Gabríel
Tuma. 2) Guðjón Hjörleifur, f. 5.
ágúst 1947, kvæntur Jóhönnu Jónu
Hafsteinsdóttur, f. 25. marz 1951,
og eiga þau fjórar dætur. Þær eru:
A) Lilja Hafdís, f. 4.6. 1970, gift
Pálma Hamilton og eiga þau þrjá
syni: a) Arnór Rafn; b) Kristófer
Hamilton; c) Alexander Jóhann. B)
Sigurbjörg Guðleif, f. 28.6. 1975, í
sambúð með Friðgeiri Gíslasyni,
og átti hún fyrir dótturina Helgu
Jónu. C) Rósa María, f. 21.3. 1980,
í sambúð með Stefáni Sigurðssyni,
og eiga þau: a) Ingibjörgu Ósk; b)
Jóhönnu Íri; c) Tinnu Sif; d) Sig-
urð; og e) Ellen Ingu. D) Sunna
Dögg, f. 20.9. 1986
Frændfólki sínu voru foreldrar
mínir hjálpleg ef hægt var. Þau
voru mjög frændrækin enda var
mikill gestagangur á heimilinu.
Nutu þau þess, veittu vel og voru
mjög gestrisin. Fólk kom líka til
lengri dvalar og dvöldu kannski yf-
ir veturinn á heimilinu og þótti
þeim það sjálfsagt. Það er margs
að minnast frá þessum tíma,
sunnudagsrúnturinn niður á
bryggju að skoða skip og báta.
Gaman var líka að vera á „vell-
inum“. Faðir minn kom og sótti
mig til Reykjavíkur ef það var frí í
skólanum. Fékk ég þá að vera með
honum og njóta ævintýraheimsins
sem manni fannst Keflavíkurflug-
völlur vera. Þau nutu þess veru-
lega að umgangast barnabörn sín
og fengu þau að dveljast hjá þeim
um lengri eða skemmri tíma. Ólu
þau dótturson sinn Finnboga Rós-
inkranz upp og þótti mjög vænt
um hann.
Ég hefði þegið það vel að fá að
vera lengur með föður mínum en
hann dó þegar ég var á tuttugasta
og öðru ári. Minningarnar um
hann eru ljúfar.
Guðjón Hjörleifur.
FRÉTTIR
Til sölu
Bækur til sölu
Íslendingasögur, allt safnið í skinn-
bandi 35.000.
Öldin okkar.
Ljóðabækur - mikið úrval.
Ættfræði.
Dulspeki - mikið úrval.
FRÁBÆRT VERÐ.
Langholtsvegur 42,
sími 588 2608.
Opið 12-18 virka daga,
11-14 laugardaga.
Verslunin
FRÁBÆRT VERÐ
Allt jólaskraut á 10 kr.
Jólalitabækurá 50 kr.
Bolir á 500 kr.
Töskur á 1.500 kr.
Leikföng - verð frá 100 kr.
Þinn HAGUR að KAUPA hjá okkur. Við
erum ódýrari en gengur og gerist.
FRÁBÆRT VERÐ
Langholtsvegur 42.
Opið 12-18 virka daga.
Raðauglýsingar 569 1100
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
FÉLAG sjálfstæðismanna í Nes-
og Melahverfi ákvað nú annað árið
í röð að styrkja Hjálparstarf kirkj-
unnar í stað þess að senda félags-
mönnum sínum og öðrum velunn-
urum félagsins jólakort. Marta
Guðjónsdóttir, formaður félagsins
og Hanna Johannessen meðstjórn-
andi afhentu því Jónasi Þórissyni,
framkvæmdastjóra Hjálparstarfs
kirkjunnar, andvirði jólakortanna.
Þær vilja koma á framfæri góð-
um jólaóskum til félagsmanna
sinna.
Hjálparstarf kirkjunnar fær styrk
TERRY Gunnell flytur erindi í
fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Ís-
lands um jólasiði Íslendinga í tím-
ans rás fimmtudaginn 21. desember
klukkan 12.10 .
Í fréttatilkynningu frá Þjóðmin-
jasafni segir: Í nútímanum eru jólin
bendluð sérstaklega við fæðingu
Krists en eiga sér þó ævafornar
rætur sem teygja sig langt aftur
fyrir tíma kristni. Í fyrirlestri sín-
um seilist Terry aftur til goða og
norrænnar trúar og skoðar jólin í
fornsögum og þjóðsögum. Drauga-
trú, álfatrú og tröllatrú hafa tengst
gömlu íslensku jólunum svo fátt eitt
sé nefnt.
Terry mun að sjálfsögðu fjalla
um hina tröllslegu Grýlu og hina
hrekkjóttu íslensku jólasveina.
Einnig mun hann segja frá athygl-
isverðum ættingjum þeirra í ná-
grannalöndunum. Að lokum verður
athyglinni beint að ýmsum siðum í
tengslum við jól og áramót í nútím-
anum.
Terry Gunnell er dósent í þjóð-
fræði við Háskóla Íslands og býr
ekki aðeins yfir mikilli þekkingu
heldur einstakri frásagnargáfu.
Fyrirlestur hans verður ekki
strangfræðilegur heldur í léttum
dúr. Þar eð Terry mælir fram á
ensku er tilvalið fyrir enskumæl-
andi fólk að skella sér en þjóðlegur
fróðleikur um jólasiði á þó líka er-
indi til Íslendinga. Terry hefur lag
á að segja frá á leikrænan og lifandi
hátt og allur almenningur ætti að
hafa ánægju af fyrirlestri hans.
Ekkert kostar inn og allir eru
velkomnir.
Fyrirlestur
um jólasiði
Íslendinga MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Guð-
mundi Tý Þórarinssyni forstöðu-
manni, fyrir hönd Götusmiðjunnar:
„Í kjölfar umfjöllunar fréttaskýr-
ingaþáttarins Kompáss um ásak-
anir um meinta hegðun forstöðu-
manns Byrgisins, Guðmundar
Jónssonar, telur Götusmiðjan brýna
nauðsyn að leiðrétta þann misskiln-
ing að ekki er um Götusmiðjuna að
ræða né heldur forstöðumann
hennar, Guðmund Tý Þórarinsson.
Í gegnum tíðina virðist þessum
tveimur fyrirtækjum, Götusmiðj-
unni og Byrginu, hafa verið ruglað
saman. Tekið skal fram að engin
tengsl eru á milli fyrirtækjanna eða
forstöðumanna þeirra, Guðmundar
Jónssonar og Guðmundar Týs Þór-
arinssonar. Í þessari yfirlýsingu
felst engin afstaða til meints brots
eða hegðunar Guðmundar Jóns-
sonar, forstöðumanns Byrgisins.“
Yfirlýsing frá
Götusmiðjunni
Í MIÐVIKUDAGSERINDI Orku-
stofnunar og ÍSOR í dag, miðviku-
daginn 20. desember, fjallar Robert
Zierenberg, prófessor við Háskól-
ann í Kaliforníu, Davis, um jarð-
hitaummyndun á rekhryggjum á
sjávarbotni.
Erindið verður flutt á ensku og
hefst kl. 13.00 í Víðgelmi, sal Orku-
garðs að Grensásvegi 9, Reykjavík.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir. Sjá nánar um miðvikudags-
erindin á vef Orkustofnunar http://
www.os.is
Erindi í Víð-
gelmi í kvöld