Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 49
menning
Brautryðjandi og
læknir af Guðs náð
Minningabrot Hjalta Þórarinssonar læknis
Athyglisverðar
frásagnir
af einstökum
læknisverkum
Spaugsemi
og leiftrandi
hagmælska
Dreifing:
Sími 663 1224
Annar helmingur teikni-myndadúósins Hanna-Barbera, Joseph Roland
Barbera, lést á mánudaginn, 95 ár
að aldri. Barbera er, ásamt hinum
helming dúósins, William Hanna,
maðurinn á bak við klassískar
teiknimyndapersónur á borð við
Tomma og Jenna, Flinstone-
fjölskylduna, Jóga björn og hund-
inn með fuglshjartað, Scooby-Doo.
Allt eru þetta persónur sem eru
órjúfanlegur hluti af bandarískri
dægurmenningu – og æskuminn-
ingum ófárra Íslendinga.
Leiðir Barbera og Hanna lágufyrst saman á fjórða áratugn-
um er þeir störfuðu báðir fyrir
MGM-kvikmyndaverið. Þeir leiddu
fyrst saman hesta músar og kattar í
stuttmyndinni Puss Gets the Boot
1940 en sú var tilnefnd til Ósk-
arsverðlaunanna sem besta stutta
teiknimyndin það árið. Fyrir vikið
var þeim gefinn laus taumurinn til
að þróa áfram samband slíkra dýra
uns sjálfir Tommi og Jenni spruttu
fram holdi klæddir – eða þannig.
Átti sköpunarverkinu eftir að
fylgja með öllu vandalaus vegsemd.
Í þau sautján ár sem Barbera og
Hanna blésu lífi í hið ofbeldisfulla
samband Tomma og Jenna hlutu
þeir sjö Óskarsverðlaun og alls fjór-
tán tilnefningar til þeirrar eft-
irsóttu styttu.
Í kjölfar þess að MGM lokaði
teiknimyndadeild sinni árið 1957
neyddust Barbera og Hanna til að
stofna sitt eigið fyrirtæki. Þar sem
framleiðsla teiknimynda fyrir sjón-
varp var mun ódýrari á þessum
tíma en framleiðsla fyrir kvik-
myndahús voru teiknimyndirnar
sem þeir félagar framleiddu undir
merkjum H-B Enterprises, sem síð-
ar varð Hanna-Barbera Produc-
tions, stílaðar inn á þann markað.
Eins og almennt einkennirteiknimyndir fyrir sjónvarp
treysta seinnitíma teiknimyndir
Barbera og Hanna því frekar á
hnyttin tilsvör en þau ærsl og læti
sem Tommi og Jenni eru frægir
fyrir, enda meiri (og dýrari) ná-
kvæmnisvinna að kreista slíka
framvindu úr litunum.
Vegur Hanna-Barbera Produc-
tion óx jafnt og þétt næstu tíu árin.
Á síðari hluta sjöunda áratugarins
var fyrirtækið langfarsælasti fram-
leiðandi sjónvarpsteiknimynda á
markaðnum.
Í upphafi áratugarins kynntu þeirFlinstone-fjölskylduna og vini
hennar til sögunnar sem eins og
The Simpsons þremur áratugum
síðar sló í gegn með því að tak-
marka áhorfendahóp sinn ekki við
börn. Þvert á móti höfðaði húm-
orinn ekki síður til hinna fullorðnu
og sennilega frekar ef eitthvað er.
Hanna lést árið 2001 og nú hefurBarbera kvatt heiminn eftir
70 ára farsælt starf í teiknimynda-
bransanum. Haft er eftir stjórn-
arformanni Warner Brothers á
BBC í gær að þeir félagar muni lifa
í gegnum teiknimyndir sínar. Það
er óhætt að taka undir það. Enn í
dag hljómar „Yabba dabba doo“, og
það er ekki óalgengt að mús og
ketti bregði fyrir á skjánum.
Skapari Tomma og Jenna allur
Reuters
Vinsælir Tommi og Jenni hafa eldað grátt silfur saman í gegnum tíðina. Þeir tóku
reyndar skyndilega upp á því að verða vinir undir lok aldarinnar.
Félagar Stofnendur Hanna-Barbera, Joseph Barbera (til vinstri) og
William Hanna. Hanna lést árið 2001 og Barbera 18. desember sl.
AF LISTUM
Flóki Guðmundsson
» Í þau sautján ár semBarbera og Hanna
blésu lífi í hið ofbeldis-
fulla samband Tomma
og Jenna hlutu þeir sjö
Óskarsverðlaun …
inni: „Stasi og
ég“.
Alls er að finna
17 greinar í ritinu
auk bókadóma og
ritstjóraspjalls.
Þjóðmál eru 96
bls. Ritstjóri er
Jakob F. Ásgeirs-
son. Útgefandi er
Bókafélagið
Ugla. Þjóðmál
kosta 1.000 kr. í lausasölu en ársá-
skrift kostar 3.500 kr.
VETRARHEFTI tímaritsins Þjóð-
mála er komið út. Meðal efnis er
viðamikil umfjöllun Björns Jóns
Björnssonar um pólitískar hliðar
Hafskipsmálsins svonefnda, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson skrifar um
Gunnar Gunnarsson og nasismann,
Ragnhildur Kolka fjallar um hnign-
un Sameinuðu þjóðanna og Árni
Björnsson segir frá tilraunum aust-
ur-þýsku leyniþjónustunnar til að
veiða hann í net sitt á námsárum
hans í Austur- og Vestur-Þýskalandi
á sjöunda áratug 20. aldar í grein-
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Þjóðmál – vetrarhefti 2006
BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn
Weird Al Yankovic hefur ekki notið
mikilla vinsælda hér á landi. Flestir
þekkja hann sennilega sem flytjanda
titillagsins í kvikmyndinni Spy Hard
með Leslie
Nielsen (höfuð-
ið á honum
springur), en
auk þess kemur
hann fyrir í öll-
um Beint á ská
myndunum.
Vestanhafs er hann nokkuð þekktur
grínisti, en ferill hans byggist nær
allur á því að syngja þekkt dægurlög
og semja nýja og fyndna texta við
þau. Stundum er það fyndið eins og í
„Gump“ („Lump“), en stundum ekki
eins og með „Smells Like Nirvana.“
Hljómsveitin Baggalútur hefur
byggt sinn feril á sömu hugmynd, þó
að heldur meira hafi farið fyrir
frumsömdu efni hjá þeim í seinni tíð.
Á safninu sem hér er til umfjöllunar
safnar sveitin saman jóla- og að-
ventulögum liðinna ára, en ef ég fer
með rétt mál mörkuðu slík lög fyrstu
skref Baggalúts (vefsíðunnar) inn í
tónlistarheiminn. Eins og hjá
skrítna Al eru lög Baggalúts mjög
misjöfn að gæðum, en landinn virðist
hafa tekið þeim opnum örmum engu
að síður.
Á Jólum & blíðu eru bestu lögin
þau lög sem maður þekkir minna. Þó
að það sé ýmislegt skondið við „Þor-
láksmessu“ er ég ekki tilbúinn að
hlusta á „The Final Countdown“
einu sinni enn nema að textinn sé
nógu fyndinn til að réttlæta fórnina
– og því miður er hann það ekki.
Kiss, AC/DC, Poison, Europe og
Iron Maiden eiga síðan allar lög á
plötunni. Ég skal fúslega játa að al-
mennt hef ég ekki smekk fyrir hall-
ærislegum metal frá níunda ára-
tugnum. „Föndurstund“ („Thunder-
struck“) er hvað fyndnust: „Teikna
karl á kartonbút. / Síðan klippi ég
hann út. / Lími á hann eitthvað kjút.
/ Það er föndurstund.“. En það sem
mér þykir verst við þessi þyngri lög
er að þau grafa undan því að Jól &
blíða geti verið raunveruleg jóla-
plata, þ.e. jólaplata sem maður spil-
ar í alvörunni á jólunum. Þessi plata
er plat.
Þetta er synd, því að hér eru mörg
virkilega góð og jólaleg jólalög sem
gætu vel virkað yfir hátíðarnar.
„Rjúpur“ („I Got You Babe“) er gott
dæmi um það, og eftir á að hyggja
finnst manni fáránlegt að enginn
hafi sett lagið í jólabúning áður. Fyr-
irmyndirnar að „Öðrum í jólum“,
„Sögunni af Jesúsi“ og „Gamlárs-
partýi“ þekki ég ekki, og fyrir vikið
eru þetta langbestu lögin á plötunni,
auk frumsamda lagsins „Bjart er
yfir borginni“ sem Ellen Kristjáns-
dóttir flytur alveg frábærlega. Sér-
staklega er „Gamlárspartý“ í uppá-
haldi, sixtís kokkteilfönk þar sem
Baggalútsmenn rísa hvað hæst í
textasmíðum: „Þú kemur með, það
verður æði. / Óli og Dorrit mæta
bæði. / Megas kíkir örugglega við. /
Já skelltu þér með! Það verða allir
þarna; / Roklingarnir, Raggi Bjarna.
/ Stephen Hawking á að stíga á
svið.“
Tónlistarmennirnir í Nashville fá
sérstakt hrós fyrir frábærar útsetn-
ingar fyrir strengja- og blásturs-
hljóðfæri. Tréblástur og tremolo-
strengir í „Öðrum í jólum“ sverja sig
í ætt við sígildan jólahljóm eins og á
Jólastrengjum og fleiri íslenskum og
amerískum jólaplötum. Það er ein-
hver klassi yfir þeim, það er eitthvað
sérstakt við þær, og ég vildi bara
óska þess að Baggalútur tæki að sér
að gera alvörujólaplötu fyrir kyn-
slóðina sem er að halda jól með eigin
siðum og venjum í fyrsta sinn. Hér
eru næg dæmi sem sanna að þeir
geti gert það – og gert það vel.
Platjóla-
platan í ár
TÓNLIST
Geisladiskur
Öll lögin eru erlend dægurlög utan „Bjart
er yfir borginni“ sem er eftir Braga Valdi-
mar Skúlason. Flestir textar eru eftir
Braga Valdimar Skúlason og Guðmund
Pálsson. Karl Sigurðsson er meðhöf-
undur að „Bjart er yfir borginni“ og
„Gamlárspartý“ og Garðar Þorsteinn
Guðgeirsson að „Gleðileg jól.“ „Jóla-
jólasveinn“ er eftir Garðar og Braga. Guð-
mundur Kristinn Jónsson stýrði upp-
tökum. Bob Ingison stýrði upptökum á
strengjum og blásturshljóðfærum. Bjarni
Bragi Kjartansson hljómjafnaði. Sena
gefur út. 11 lög, 43:47.
Baggalútur – Jól & blíða
Atli Bollason
Jól „Á jólum og blíðu er bestu lögin þau lög sem maður þekkir minna.“