Morgunblaðið - 20.12.2006, Page 50
eru í báðum herbergjum. Óljósasta og um leið mest
spennandi verk sýningarinnar er skúlptúr, tvær gifs-
kúlur sem tengjast með strekktum þráðum. Þau verk
sem tengjast kenningum Maslows hvað augljósast eru
um leið síst eftirminnileg og kveikja lítt í ímyndunarafl-
inu, verk eins og rauði kjóllinn, skórnir og blái diskurinn.
Olíumálverkin byggjast upp á
formum og línum og fylgja
nefndri litaformúlu, en tenging
við kenningar Maslows eru ekki
augljósar. Það er síðan í stóra
skúlptúrnum fyrir miðju rým-
isins að líf kviknar. Þunglamaleg
og gróflega unnin kúlulaga
formin, þræðirnir sem halda
þeim saman, tengja og skapa
spennu í senn, hér gerist eitt-
hvað sem gefur kenningum
Maslows nýtt líf og kveikir hug-
renningaferli hjá áhorfand-
anum, vísar í einhvers konar
tengsl, togstreitu, óskilgreindar
þarfir og langanir. Í þessu verki
tekst Gunnhildi vel upp og um
leið nær sýning hennar að verða
meira en bókstaflegar eða ab-
strakt myndskreytingar. Það
má líta á hugmyndir Maslow og
sýningu Gunnhildar sem vanga-
veltur um hvað þarf til þess að
sköpunarþörf mannsins fái að
njóta sín. Hvað skapar lista-
mann, utanaðkomandi aðstæður
eða meðfæddur hæfileiki?
Suðsuðvestur heldur hér
áfram með bragðgóða blöndu af
ungum og reyndum listamönnum þar sem fjölbreytnin er
í fyrirrúmi en um leið skýr sýningarstefna.
LISTAMENN líta oft á list sína
sem farveg hugmynda, eigin og
annarra. Listakonan Gunnhildur
Þórðardóttir hefur nú gert hug-
myndir rússnesk/bandaríska
sálfræðingsins Abraham Mas-
low að inntaki fyrstu einkasýn-
ingar sinnar í Suðsuðvestur í
Reykjanesbæ. Maslow velti mik-
ið fyrir sér þörfum mannsins og
setti fram kenningamódel í
pýramídaformi, eitt þeirra notar
Gunnhildur á sýningu sinni. Þar
segir að þarfir á neðsta þrepi
séu líkamlegu þarfirnar, hungur
og þorsti o.s.frv. Síðan þörfin
fyrir öryggi, félagsleg þörf, þörf
fyrir viðurkenningu og loks í
efsta sætinu ræktun sjálfsins og
sköpunarþörfin. Gunnhildur
auðkennir þarfirnar með litum
sem ég er ekki viss um hvort er
hennar hugmynd eða Maslows. Í
sýningarrýminu má fyrst sjá
módel af píramídanum þar sem
litlir brúðuhúsahlutir sýna þarf-
irnar á nokkuð bókstaflegan
hátt. Á vegg í rýminu hangir síð-
an ámálaður, rauður gifskjóll. Í
einu horninu eru blár diskur og bolli og öðru horni rauðir
skór. Hvítur og svartur skúlptúr á stöpli. Í innra herbergi
er skúlptúr; svart borð og stóll, gifshendur, bók með auð-
um síðum og gulri kápu. Nokkur málverk á olíupappír
Leyndardómar
sköpunarþarfarinnar
MYNDLIST
Suðsuðvestur, Reykjanesbæ
Til 30. desember. Opið fös. kl. 16–18, lau. og sun. kl. 14–17.
Samræmi-Identity
Gunnhildur Þórðardóttir
Spurt er „Hvað skapar listamann, utanað-
komandi aðstæður eða meðfæddur hæfileiki?“
Ragna Sigurðardóttir
Stóra sviðið kl. 20:00
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Lau. 6/1, lau. 13/1 lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1
kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti
laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus.
BAKKYNJUR eftir Evripídes
Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti
laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá
sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson
Fös. 22/12 kl. 13:00 uppselt, lau. 23/12 kl. 13:00 uppselt.
Leikhúsloftið
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og
kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00,
kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1
Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
Gjafakort í miðasölu og á www.leikhusid.is
50 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
GJAFAKORT
FRÁBÆR JÓLAGJÖF
FÁST Í MIÐASÖLU BORGARLEIKHÚSSINS
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
Kammersveitin Ísafold ásamt Huldu Björk Garðarsdóttur sópran og Ágústi Ólafssyni barítón
flytja verk eftir Mahler. Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
6. janúar kl. 17.00 í DUUS - húsum í Keflavík
7. janúar kl. 20.00 í Íslensku óperunni
Miðaverð kr. 2.000 - Námsmenn: 2 fyrir 1
Frumsýning fös. 9. feb. kl. 20 - nokkur sæti laus - 2. sýn. sun 11. feb. kl. 20
FLAGARI Í FRAMSÓKN - HALLDÓR ER KOMINN AFTUR! - Nánari upplýsingar á www.opera.is
3. sýn. fös. 16. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 18. feb. kl. 20 - FÁAR SÝNINGAR - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
Þorláksmessa í Óperunni - Óperukareokí
Davíð Ólafsson, óperusöngvari, heldur uppi fjörinu - Húsið opnar kl. 20
Karíus og Baktus – sýnt í Rýminu
Lau 30. des kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning!
Gjafakort – afmælistilboð!
Einstakt afmælistilboð í tilefni 100 ára
afmælis Samkomuhússins.
Gjafakort í leikhúsið er frábær jólagjöf sem lifir.
Svartur köttur – forsala hafin
Fös 19. jan kl. 19 Forsýn – UPPSELT
Lau 20. jan kl. 19 Frumsýn – UPPSELT
Næstu sýningar: 21/1, 25/1, 26/1, 27/1. Sala hafin!
www.leikfelag.is
4 600 200
Gjafakort
- góð
jólagjöf
bókasalur: Upplestur Í dag KL 12:15
Árni Þórarinsson & Páll Kristinn Pálsson
Farþeginn
Á MORGUN
Bjarni Klemenz
Fenrisúlfur
MEÐ FYRIRVARA UM FORFÖLLBlóðrauð rauðrófusúpa á veitingastofu
ÚT ER komin önnur barnabók Ey-
steins Björnssonar, sú fyrri bar nafn-
ið Út í blámann. Freydís Kristjáns-
dóttir myndskreytti þá bók og gerir
það einnig nú og er það vel við hæfi
því hún er vel að sér í myndskreyt-
ingum íslenskrar náttúru sem er í að-
alhlutverki í báðum bókum.
Stelpan sem talar við snigla dvelst
hjá ömmu og afa úti á landi að sumar-
lagi. Eftir langan rigningarkafla birt-
ir til og hún fer í gönguferð á fjall
með afa sínum. Þar segir frá náttúru-
skoðun og hreiðurleit. Eysteinn skrif-
ar vandað mál og það er virkilega
gaman að lesa texta sem er bæði lipur
og rennur vel, eykur á tilfinningu
barna fyrir móðurmálinu og kynnir
fyrir þeim jafnt orðatiltæki sem heiti
blóma og dýra. Eysteini tekst að
koma boðskap sínum um að njóta og
kynnast náttúrunni á leikandi og af-
slappaðan máta til skila án þess að
vera yfirþyrmandi eða með kennslu-
tón. Þessi litla saga um hreiðurleit er
spennandi en höf-
undur kann líka þá
list að hleypa and-
rúmi inn í söguna. Áð
er í ilmandi laut, út-
sýnis notið af steini
hátt uppi í hlíð og
innri rödd sögu-
persónu, litlu stúlk-
unnar, er þó nokkuð
sannfærandi. Að-
spurður gaf níu ára
lesandi bókinni fjórar stjörnur af
fimm sem segir mér að sagan skili sér
vel til barna, þrátt fyrir að vera bless-
unarlega laus við galdra, álfa,
skrímsli, töfra eða annað
það sem fáar barnabækur
virðast geta verið án í
dag. Hér eru það töfrar
náttúrunnar sem gilda og
hrifningin sem gagntekur
stelpuna þegar ósk henn-
ar rætist nær að hríslast
um lesandann.
Myndir Freydísar
Kristjánsdóttur hæfa sög-
unni vel, þær eru afar
hefðbundnar eins og sag-
an er líka, hér eru engar
tilraunir í klippimyndum
eða tölvuvinnslu heldur er
áherslan á vönduð og fal-
leg smáatriði úr íslenskri náttúru auk
líflegra persóna. Mikil fjölbreytni er í
framsetningu mynda, þær sitja alltaf
vel á síðunni, smáar sem stórar og
skapa sögunni sannfærandi mynd-
heim. Þær skapa kyrrð og ró þar sem
við á eða vísa lesandanum veginn
áfram í framvindu sögunnar. All-
margar íslenskar jurtir koma fyrir á
myndunum og listi yfir þær er aftast í
bókinni, einnig sjáum við lóu, spóa og
hrossagauk. Þannig má gera sér það
að leik við lesturinn að þekkja blóm
og fugla rétt eins og úti í náttúrunni.
Höfundur á hrós skilið fyrir vönd-
uð vinnubrögð og vel skrifaðan texta,
fátt er betra til að auka á tilfinningu
barna fyrir fallegu máli. Ennfremur
sjálfstæði í vinnubrögðum og óbilandi
trú á náttúruáhuga íslenskra barna.
Það þarf ekki stóra atburði til að
segja góða sögu og hér mega höfund-
ar vel við una.
Undur í fjalli
BÆKUR
Barnabók
Eftir Eystein Björnsson, Freydís Krist-
jánsdóttir myndskreytti. Æskan 2006,
28 bls.
Stelpan sem talar við snigla
Ragna Sigurðardóttir
Eysteinn Björnsson
Bandarískir leikarinn MatthewMcConaughey, sem meðal ann-
ars hefur verið valinn kynþokka-
fyllsti maður heims, segir að sjálfs-
öryggi hans eigi stóran þátt í því
hversu mikið kyntákn hann er orð-
inn. Hann segir að persónuleiki og
persónutöfrar skipti ekki síður máli
en útlitið. „Ég kann vel við kyn-
þokkafullt fólk og ég tel að fólk sé
kynþokkafullt ef það er það sjálft.
Mér finnst kynþokkafullt að vera ég
sjálfur og að vera eins góður maður
og ég mögulega get,“ segir leikarinn
í samtali við Entertainment Weekly.
„Fólki finnst ég hafa myndarlegt
andlit. Fólki finnst ég líka hafa lík-
ama sem sé vel af guði gerður. Auð-
vitað er ég mjög ánægður með það
en það þýðir samt ekki að ég geti
ekki verið eitthvað annað og meira
en bara það.“ McConaughey, hefur
leikið í myndum á borð við Failure to
Launch, Sahara og A Time to Kill.
Þá hefur hann átt vingott við stúlkur
á borð við Ashley Judd, Söndru
Bullock og Penelope Cruz.
Fólk folk@mbl.is