Morgunblaðið - 20.12.2006, Side 52

Morgunblaðið - 20.12.2006, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn MÉR ÞYKIR LEITT MEÐ MINNISLEYSIÐ ELLEN. VILTU KOMA ÚT AÐ BORÐA MEÐ MÉR? ÚT Á... STEFNUMÓT HÚN ER BÚIN AÐ GLEYMA HVAÐ STEFNUMÓT ER MÉR ÞYKIR SKRÍTIÐ AÐ ÞÚ MUNIR ÞAÐ ENNÞÁ JÆJA, ÞÁ ER FYRSTA LAUFIÐ FALLIÐ... FYRSTA LAUFIÐ TIL AÐ DEYJA!! FYRSTA LAUFIÐ SEM HAFÐI HUGREKKIÐ TIL ÞESS AÐ HOPPA! FYRSTA LAUFIÐ TIL AÐ FARA AÐ HEIMAN! FYRSTA LAUFIÐ TIL AÐ TAKAST Á VIÐ ÞAÐ ÓKUNNA! STOPP! ÞAÐ ER BÝFLUGA Á BAKINU Á ÞÉR FLJÓTUR! TAKTU HANA AF MÉR OG LÁTA HANA STINGA MIG? NEI TAKK! HVAÐ Á ÉG AÐ GERA, STANDA SVONA Í ALLAN DAG? ÞAÐ LÍTUR EKKI ÚT FYRIR AÐ ÞÚ HAFIR UM MARGT ANNÐ AÐ VELJA FRÁBÆRT! ÉG Á EFTIR AÐ ÞURFA AÐ STANDA SVONA AÐ EILÍFU! ÉG VAR AÐ FÁ HUGMYND EKKI VOGA ÞÉR AÐ LESA MYNDA- SÖGURNAR MÍNAR! ÞÚ MÁTT EKKI KOMA NÁLÆGT HERBERGINU MÍNU! VILTU SITJA Í SVÆÐI FYRIR ÞÁ SEM KUNNA MANNASIÐI... EÐA FYRIR ÞÁ SEM KUNNA ENGA? HVAR Á ÞETTA AÐ ENDA? ÞIG LANGAR TIL ÞESS AÐ VERA Í BRÆÐRAFÉLAGINU OKKAR, ER ÞAÐ EKKI? UH, HUH ALLIR ÞEIR SEM VILJA GANGA Í FÉLAGIÐ VERÐA AÐ GANGA MEÐ ÞETTA Á HAUSNUM... FLOTT GRÍMA! ÆI... ÞEGIÐU ATLI HVAÐ ERTU AÐ HUGSA? ÉG ER AÐ HUGSA HVAÐ ÞAÐ ER GOTT AÐ ÞURFA EKKI AÐ HUGSA UM NEITT ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ KOMA AFTUR TIL STARFA SEM LJÓSMYNDARI ÉG VEIT EKKI, ÞESSI SEM KOM Í STAÐINN FYRIR ÞIG ER NOKKUÐ GÓÐUR AUK ÞESS SEM HANN ER ÓDÝR Þjóðminjasafnið býður til fyr-irlestrar á morgun, 21. des-ember, kl. 12. Þá munTerry Gunnell, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands, fjalla um íslensku jólasveinana, íslenskt jólahald og -hefðir: „Fyrirlesturinn hafði ég fyrst og fremst hugsað sem kynningu á íslenskum jólasiðum fyrir útlendinga, en býst þó vitaskuld við að margir landsmenn hafi gaman af að fræðast betur um rætur þeirra siða sem stundaðir eru á Íslandi um hátíðirnar,“ segir Terry. „Ég rek þró- un siða tengdra jólum allt frá Eyr- byggju og trúarbrögðum landnáms- manna til dagsins í dag. Farið verður yfir þjóðsögur og þjóðtrú, s.s. um ferðalög álfa á þessum árstíma og ýmiskonar vætta- og draugatrú sem tengd er jólunum.“ Terry fjallar sérstaklega um upp- runa og þróun íslensku jólasveinanna og þeirra nánustu skyldmenna og húsdýra, og gerir einnig góða grein fyrir íslenskum jólamat og hvers- dagssiðum: „Til að gefa gestum góða hugmynd um þær furðuverur sem Ís- lendingar tengja jólunum mun ég m.a. sýna teikningar eftir Brian Pilk- ington, sem tekist hefur bráðvel að draga upp mynd af íslensku jóla- sveinunum og nær- og fjarskyldum ættingjum þeirra.“ Að sögn Terrys má finna ýmis tengsl milli íslenskra jólasiða og -skrímsla og siða og vætta í öðrum löndum. „Jólasveinarnir þrettán eru um margt einstakt fyrirbæri, en tengjast hugsanlega þeim sið manna í Noregi að klæða sig upp í búning og fara milli húsa, á meðan þeir sem heima eru giska á hver ber að dyr- um,“ segir Terry. „Í mörgum löndum þekktust einnig vættir sem voru fólki til ama og stálu ýmsu af bæjum á þessum tíma ársins, en í nágranna- löndum okkar hefur slík þjóðtrú ekki lifað jafnlengi og á Íslandi.“ Grýla virðist eiga sér náskyldar frænkur hjá grannþjóðum okkar: „Upphaflega er Grýla ekki móðir jólasveinanna, heldur virðist hún hafa gengið þeim í móðurstað seinna meir. Grýla þekkist á Ísandi allt aftur úr þrettándu öld og má finna vættir með sama eða skyldu nafni í Svíþjóð, Hjaltlandi og Færeyjum,“ segir Terry. „Hins vegar er meiri ráðgáta hvaðan jólakötturinn er ættaður, og viðhorf Íslendinga til katta athygl- isvert. Í öðrum löndum tíðkaðist raunar að menn klæddu sig upp sem jólahafur (julebukk), og hugsanleg tengsl á milli þess að klæðast geit- arbúningum og „fara í jólaköttinn“, sem hefur fengið þá merkingu hér á landi að vera étinn af kettinum. Síðan hafa hugmyndir fólks þróast áfram, þangað til hann hefur orðið til full- skapaður í núverandi mynd: ægilegur köttur sem étur fólk á jólum.“ Fyrirlestur Terrys á fimmtudag er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Dagskráin fer fram á auðskiljanlegri ensku. Nánari upplýsingar um jóla- dagskrá Þjóðminjasafnsins má finna á heimasíðu safnsins á slóðinni www.thjodminjasafn.is. Saga | Terry Gunnell þjóðfræðingur með fyr- irlestur í Þjóðminjasafninu á fimmtudag Uppruni ís- lenskra jólasiða  Terry Gunnell fæddist í Brig- hton á Englandi árið 1955. Hann lauk BA-gráðu í leiklistarfræðum frá Háskólanum í Birmingham 1977, gráðu í kennslu og upp- eldisfræði frá sama skóla 1978, bac. phil. í íslensku fyrir erlenda stúd- enta frá Háskóla Íslands 1981 og doktorsnámi í íslenskum fræðum frá Háskólanum í Leeds árið 1991. Terry hefur starfað við kennslu í framhalds- og háskóla, varð stundakennari við Háskóla Íslands 1991, síðar lektor og dósent. Hann hefur gefið út fjölda greina og rit um þjóðsögur, trú og siði á Norð- urlöndum. Terry er kvæntur Þor- björgu Jónsdóttur, fyrrv. skrif- stofustjóra, og eiga þau tvær dætur. KIRKJUKROSS í borginni Nýju Delí virðist nær gegnsær með brennandi sólina í bakgrunni. Jólin eru haldin víða á Indlandi og þykir hátíðin mjög vinsæl á meðal fólks af ýmsum trúarbrögðum. Fjöldi kristinna manna á Indlandi er um milljón, sem er innan við eitt prósent þjóðarinnar. Reuters Í ljósaskiptunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.