Morgunblaðið - 20.12.2006, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 59
Leikararnir Sharon Stone ogChristian Slater hafa staðfest
þann orðróm sem verið hefur uppi
um að þau séu par, og hyggjast
skötuhjúin verja jólunum saman.
Slater og Stone léku bæði auka-
hlutverk í kvikmyndinni Bobby og
orðrómur um að þau væru farin að
stinga saman nefjum komst á kreik
þegar þau fóru að sjást víða saman á
opinberum vettvangi. Þau neituðu
öllum sambandssögum í upphafi en
nú er komið annað hljóð í skrokkinn.
Stone, sem er 48 ára gömul, og
Slater, sem er 37 ára, eru nú ekkert
að fela hrifningu sína hvort á öðru.
Nýlega voru þau viðstödd teiti tísku-
fyrirtækisins Dolce & Gabbana í Los
Angeles og þar héldust þau í hendur
og gerðu fólki það vel ljóst að þau
væru kærustupar.
Að sögn vinar Stones er parið í
skýjunum þessa dagana. Hann segir
hinsvegar að þau geri sér engar von-
ir um langtímasamband. Stone er
trúlega þekktust fyrir leik sinn í Ba-
sic Instinct en Slater skaust upp á
stjörnuhimininn þegar hann lék í
True Romance.
Söngkonan Britney Spears hefurverið valinn versti frægi hunda-
eigandinn af bandarísku systurblöð-
unum The New York Dog og The
Hollywood Dog. „Britney hlaut yf-
irburðakosningu. Hún átti eitt sinn
þrjá Chihuahua-hunda og fór aldrei
út án þess að hafa a.m.k. einn þeirra
á handleggnum. Um leið og hún hitti
Kevin Federline og eignaðist börn
hurfu hins vegar hundarnir, segir
Hilary O’Hagan, ritstjóri tímarit-
anna.
Paris Hilton, vinkona Spears, var
valinn næstversti hundaeigandinn
að þessu sinni en hún var valin versti
hundaeigandinn árið 2005. Í rök-
stuðningi fyrir veru hennar á listan-
um segir að hún noti hunda sína sem
fylgihluti.
Sjónvarpskonan Oprah Winfrey
hlaut hins vegar titilinn besti frægi
hundaeigandinn og fylgdu sjón-
varpsleikkonurnar Tori Spelling, úr
sjónvarpsþáttunum Beverly Hills
90210, og Nicollett Sheridan úr
sjónvarpsþáttunum Desperate Hou-
sewives, fast á hæla hennar.
Kvikmyndaleikkonan AngelinaJolie segir söngkonuna Mad-
onnu hafa mátt vita að ættleiðing
hennar á ungum dreng frá Malaví
gæti valdið henni vandræðum þar
sem ættleiðingarlöggjöf Malaví sé
ekki skýr. „Ma-
donna veit vel að
hún ættleiddi
barn frá landi þar
sem ættleiðing er
ekki lögleg og að
því voru að-
stæður óvenju-
legar, sagði Jolie
í viðtali við breka
blaðið New.
Jolie á sjálf tvö ættleidd börn og
hefur lýst yfir áhuga sínum á að ætt-
leiða fleiri. Hún kveðst þó ekki ótt-
ast það að lenda í svipuðum að-
stæðum og Madonna þar sem hún
hafi ekki í hyggju að ættleiða barn
frá landi þar sem ættleiðing úr landi
sé ekki lögleg.
Leikkonan Kate Hudson hveturallar konur til að prófa súlu-
dans því að hann hafi styrkjandi
áhrif á sjálfsmatið. Hudson hefur
ekki farið í launkofa með að hún hef-
ur sótt námskeið í súludansi und-
anfarið og núna hefur hún lýst því
yfir að þetta sé eitthvað það
skemmtilegasta í heimi. Súludans sé
„eitt af því sem maður veit ekki að
maður getur fyrr en maður prófar
það“.
Hún segir í viðtali við Cosmopolit-
an: „Maður fer [á námskeiðið] með
mörgum stelpum og skemmtir sér
konunglega. Allir koma þaðan með
hárið flaksandi og setjast upp í bíl-
inn, kveikja á útvarpinu og manni
finnst lífið æðislegt!“
Fyrr á árinu skildi Hudson við
manninn sinn, rokkarann Chris
Robinson. Hún segir að með því að
sveifla sér á súlunni hafi hún þjálfað
vöðva á stöðum þar sem hún hefði
ekki vitað að vöðvar væru. Hún seg-
ist aldrei hafa verið sterkari en eftir
að hún fór á súludansnámskeiðið og
núna geti hún klifrað upp súluna án
þess að nota fæturna. Hudson hefur
leikið í myndum á borð við How to
Lose a Guy in 10 Days, Almost
Famous og You, Me and Dupree.
Fólk folk@mbl.is