Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 20.12.2006, Qupperneq 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 354. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Sunnan- og suð- austan 13–18 m/s en 18–23 m/s vestanlands seinni hluta dags. Talsverð rign- ing eða súld.» 8 Heitast Kaldast 12°C 6°C EMMESS jólaísinn kostaði 398 krónur í Bónus en 599 krónur í Krónunni og er því 50,5% dýrari í Krónunni en í Bónus. Maís- baunir kostuðu 92 krónur í Bónus en 134 krónur í Krónunni og eru því 45,7 % dýr- ari í Krónunni. Þetta kom í ljós í verð- könnun Morgunblaðsins. Vörukarfan kost- aði 13.837 krónur í Bónus og 16.720 krónur í Krónunni. Mismunurinn nemur 2.883 krónum Bónus í hag og karfan er því 20,8% dýrari í Krónunni. Í þrjátíu tilvikum af þrjátíu og tveimur var Krónan með hærra vöruverð. Sú aðferð var viðhöfð að fara með innkaupalista í búðirnar á sama tíma og kynna sig ekki sérstaklega. Þegar komið var á kassa var borgað fyrir vör- urnar, þær síðan bornar saman og gefnar að því loknu í Konukot. | 26 Bónus með lægra verð 4!+!!#)!#%!1 7 999 :9 2,(,+",#  9>= 1 9= 9: .B2&!, :  B2&!, „FLUGUMFERÐARSTJÓRAR eru með al- gjörlega óforsvaranlegar kröfur,“ segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og tekur fram að hann standi við bakið á stjórn Flugstoða ohf. og telji rétt hjá þeim að ganga ekki að afarkostum flug- umferðarstjóra, eins og hann orðar það. „Mér er tjáð að þeir setji fram skyndilega mjög háar launakröfur, allt að 25% hækkun. Þetta setur málin í verulega erfiða stöðu, vegna þess að kjarasamningar eru ekki lausir.“ Að mati Sturlu hefur undirbúningurinn að uppskiptingu Flugmálastjórnar gengið afar vel og bendir hann á að ríflega 150 starfsmenn hafi þegar ráðið sig hjá Flug- stoðum. „Staðreynd málsins er sú að mikill meirihluti starfsmanna er tilbúinn að ráða sig hjá hlutafélaginu, en flugumferð- arstjórar skera sig úr, rétt eina ferðina.“ Aðspurður segist Sturla vissulega hafa af því áhyggjur að breyta þurfi þjónustustig- inu í íslenskri flughelgi og segir slíkt munu skerða hæfni íslenska flugumferðarkerf- isins. Segir Sturla ljóst að komi til þess þurfi að semja við nágrannaþjóðir okkar um að taka að sér að minnsta kosti hluta starfseminnar, að höfðu samráði við Al- þjóðaflugmálastofnunina, en Íslendingar eru með samning við þá stofnun um að sinna þessari þjónustu. Spurður hvort hon- um þyki það ásættanlegt til frambúðar svarar Sturla neitandi. Segir hann afar óheppilegt ef þessi störf fari úr landi ef Ís- lendingar geti ekki sinnt þeim, störf sem hann minnir á að talsvert hafi þurft að hafa fyrir að fá hingað til lands upphaflega með alþjóðasamningum. | 10 Segir launakröfur óforsvaranlegar Sturla Böðvarsson BRESKA leiguflugfélagið Astra- eus, sem er að 51% í eigu Fons, eignarhaldsfélags þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, hefur gert samning við breska flugfélagið Virgin Airl- ines um að fljúga daglega með breiðþotum, Boeing-767, til Níger- íu í Afríku og Jóhannesarborgar í Suður-Afríku. Pálmi Haraldsson, annar aðal- eigandi Fons, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hér væri um stærsta samning að ræða, sem Astraeus hefði gert. Samningurinn hljóðaði upp á 60 milljónir dollara á ári, jafnvirði 4,2 milljarða króna, eða 25,2 milljarða króna, til sex ára. „Það var verið að skrifa undir samninginn við Virgin, sem er mik- il og góð viðbót við starfsemina hjá Astraeus. Astraeus mun fljúga daglega fyrir félagið frá London til Nígeríu, með Boeing 767-breið- þotu, og hefst það flug hinn 1. apríl næstkomandi og flugið frá London til Jóhannesarborgar, sem sömu- leiðis verður daglega, hefst um miðjan maí,“ sagði Pálmi. Pálmi sagði, eins og áður hefur komið fram, að samningurinn hljóðaði upp á 60 milljónir dollara á ári, eða samtals upp á 360 milljónir dollara eða 25,2 milljarða íslenskra króna, miðað við gengi í dag. Miðað við flutningsgetu Boeing 767 er hér um það að ræða að flutt- ir verði um 1.200 farþegar á dag, sem jafngildir um 440 þúsund far- þegum á ári, eða um 2,6 milljónum farþega næstu sex árin. Astraeus gerir samn- ing upp á 25 milljarða Í HNOTSKURN »Fons keypti 51% íbreska leiguflugfélag- inu Astraeus í haust. »Ferðaskrifstofa Íslandssamdi við Astraeus í nóvembermánuði um leigu- flug fyrir félagið. »Gert er ráð fyrir aðAstraeus muni flytja um 80% farþega Ferða- skrifstofu Íslands næsta sumar. Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is Fljúga daglega frá London til Nígeríu og Suður-Afríku fyrir Virgin Airlines Eftir Ólaf Þ. Stephensen og Guðmund Sv. Hermannsson FULLTRÚAR norskra stjórnvalda skoðuðu í gær aðstöðuna, sem mun standa öðrum NATO- ríkjum til boða á fyrirhuguðu öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli. Síðasti fulltrúi bandaríska hersins hér á landi, Randy Wiers, tengsla- fulltrúi við bandaríska sendiráðið, sýndi þeim tóm flugskýli og íbúðir, sem hugsanlega geta nýtzt áhöfnum flugvéla, sem hingað koma til heræfinga eða eftirlitsferða. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sagði að fundirnir hefðu verið jákvæðir og hefði niðurstaðan verið sú að kanna nánar samstarfs- fleti. Kåre Aas, skrifstofustjóri í norska utanrík- isráðuneytinu og formaður norsku sendinefnd- arinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn í gær að hann hefði verið árangursríkur. „Af hálfu okkar var lögð áherzla á að öðlast betri skilning á þörfum Íslands, auk þess sem við komum sjónarmiðum Norðmanna á framfæri,“ segir Aas. „Samstarf okkar við Ísland er gott nú þegar, til dæmis við friðargæzlu í Afganistan og á Sri Lanka. Á því getum við byggt og nú mun- um við skoða möguleika á að styrkja samstarfið frekar.“ Morgunblaðið/Golli Norðmenn skoðuðu tóm flugskýli Þotuhreiður Kåre Aas, sem fór fyrir norsku sendinefndinni, Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Jo Gade hershöfðingi í norska landgönguliðinu og Randy Wiers tengslafulltrúi skoða flugskýlið, þar sem F-16 orrustuþotur bandaríska flughersins voru áður geymdar. ÞAÐ var óneitanlega tilkomumikil sjón þegar Stóra-Laxá ruddi sig með miklum látum í gær. Miklar frosthörkur hafa ríkt í uppsveitum Suð- urlands að undanförnu þannig að allflestar ár voru lagðar 30–40 cm þykkum ís. Aukin hlýindi að undanförnu samfara óhemjumiklu slagveðri höfðu þau áhrif að árn- ar sprengdu af sér ísinn með miklum látum svo krapahellur og íshröngl flaut fram. Þess má geta að Stóra-Laxá rennur um 86 km frá upp- tökum og út í sjó. Samkvæmt upplýsingum heimamanna þykir ekki ólíklegt að ísstykki finnist langt uppi á árbökkum á morgun. Stundum hefur ruðningur á borð við þennan í för með sér stíflur í ánum með þeim afleið- ingum að farvegur þeirra breytist og það flæðir upp um bakka og grundir. Ekki höfðu þó borist neinar fregnir af slíku þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Hefur vonandi ekki áhrif á laxaseiðin Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins vonast heimamenn eftir því að ruðningur Stóru-Laxár hafi engin teljandi áhrif á lax- ahrogn og -seiði í ánni, enda bagalegt ef svo væri. Slíkt kæmi þó ekki fram strax á næsta ári heldur á næstu árum. Ekki eru þó taldar mikl- ar líkur á að ruðningurinn hafi valdið skaða.Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Stóra-Laxá ryður sig með látum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.