Morgunblaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Björg Magn-úsdóttir fæddist
í Engjabæ í Laug-
ardalnum í Reykja-
vík 30. ágúst 1930.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
túni í Reykjavík að
morgni 24. desem-
ber síðastliðinn, að-
fangadag jóla. For-
eldrar hennar voru
hjónin Hrefna Egg-
ertsdóttir (1893–
1972) frá Hólmi og
Magnús Jónsson
(1888–1945) frá Breiðholti. Hún
átti ellefu systkini fædd sem hér
segir: Ásdís, f. 1913, Eggert, f.
1915, Valgerður Björg, f. 1920, Jón
Guðmundur, f. 1921, d, 1993, Guð-
rún, f. 1923, Magnús, f. 1925, Vig-
dís, f. 1926, Guðmundur, f. 1929,
Skúli, f. 1933, Hrefna, f. 1934, og
Elliði, f. 1935.
Börn Bjargar og Hjalta Auð-
unssonar eru: 1) Auður Björk, f.
1948, hennar börn eru Kári Jarl,
Logi Hrafn og Sindri Reyr. 2) Hel-
en Dröfn, f. 1950, d. 2000, gift
Steini Kjartanssyni, þeirra börn
eru: Davíð Pétur, Snorri Gunnar,
Erna Rut og Arnar
Reyr. 3) Skúli Gunn-
ar, f. 1953, kvæntur
Ragnhildi Skúladótt-
ur, börn með Rut
Ingvarsdóttur eru
Halldóra Árný og
Ingvar Jón, d. 1975.
Börn með Ragnhildi
Skúladóttur eru Elín
Snæbjörg, Ásta Sig-
ríður og Auður
Jóna. 4) Dagbjört
Sigrún, f. 1955, gift
Guðjóni Kjart-
anssyni, þeirra börn
eru Ester Ösp og Sölvi Mar. Börn
Bjargar og Kristjáns Viggóssonar
eru: 5) Berglind María, f. 1964, gift
Hafsteini Númasyni, þeirra börn
eru: Hrefna Björg, d. 1995, Krist-
ján Númi d. 1995, Aðalsteinn Rafn,
d. 1995, Íris Hrefna og Birta Hlín.
6) Trausti Reyr, f. 1965, kvæntur
Auði Hallsdóttur, fóstursonur
Guðmundur Pétursson.
Björg bjó lengst af á Meist-
aravöllum en síðustu árin bjó hún
á Sóltúni.
Útför Bjargar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Hún mamma dó á aðfangadag.
Andlátsfregnin kom ekki á óvart og
síðustu árin sem hún var rúmliggj-
andi voru henni erfið. Við systkinin
minnumst hennar sem glaðlyndrar
og jafnlyndrar konu með bein í nef-
inu eins og sagt er. Hún hafði
þennan lunkna húmor sem alltaf
gat komið okkur til að hlæja og það
var fyrst þegar hún var hætt að
segja ljótt um ríkisstjórnina að við
áttuðum okkur á því að nú væri
hún orðin mikið veik. Starfsfólki
Sóltúns vil ég færa kærar þakkir
fyrir að auðvelda henni síðustu
æviárin.
Það hefur örugglega ekki verið
auðvelt hlutskipti að vera einstæð
móðir með stóran barnaskara. Þeg-
ar ég var lítil man ég eftir því að
fyrir jólin klippti hún annan hvern
haus í hverfinu og tók að sér jóla-
kjólasaum, og svo seldi hún mynd-
irnar sínar frábæru, á alltof lágu
verði auðvitað, en þannig fékkst
fyrir salti í grautinn á okkar heim-
ili. Mennirnir tveir í lífi hennar
veittu ekki mikinn stuðning, því
varð hún ígildi bæði föður og móð-
ur í lífi okkar systkinanna. Sorginni
kynntist hún mamma líka því hún
lifði bæði dóttur og fjögur barna-
börn.
Þeir eru ekki margir fréttatíma-
rnir sem hún mamma missti af um
ævina. Hún hafði ódrepandi áhuga
á þjóðmálum, raunar öllum fróð-
leik. Hún sankaði að sér bókum um
alls konar efni og var stálminnug.
Ég stóð mig að því að vera enn að
hringja í hana þegar ég var í há-
skólanámi ef ég þurfti upplýsinga
við. Það var svo auðvelt að fletta
upp í stálminninu hennar mömmu.
Þegar ég var barn óskaði ég þess
stundum að mamma gengi í hæla-
háum skóm eins og sumar ná-
grannakonurnar gerðu. Í staðinn
var hún bara í gallabuxum og
strigaskóm og hafði gaman af
fjöruferðum, og oftar en ekki slóst
allur krakkaskarinn í hverfinu í
hópinn. Léttfætt hljóp hún uppi
hrekkjusvínin, tók þau með sér
heim og gaf þeim kakó og gerði
þau að ævilöngum vinum sínum.
Svo sagði hún okkur sögur af álfum
og tröllum á meðan hún töfraði
söguheiminn fram á blað eða striga
þannig að allt varð ljóslifandi. Á
unglingsárum systra minna gekk
hún heilu unglingagengi nánast í
móðurstað.
Í bernskuminningunni er hún
með títuprjón í munnvikinu að
mæla fyrir sídd á flík eða með
tusku vætta í terpentínu að þrífa
penslana sína. Hún rökræddi við
okkur og kenndi okkur að vera ær-
leg og taka ábyrga afstöðu. Hún
var kona sem hafði óþrjótandi tíma
til að spjalla og hlusta. Svona var
hún mamma kjölfestan okkar. Við
systkinin, makar okkar og börnin
syrgjum hana mömmu og söknum
hennar.
Dagbjört Hjaltadóttir.
Það var vorið 2001 sem ég kynnt-
ist henni frænku minni Böggu, hún
var þá íbúi í Furugerði 1 þar sem
ég starfaði um tíma. Ég var kynnt
fyrir henni sem yngstu konunni í
húsinu en hún var veikust, var með
súrefni allan sólarhringinn og
þurfti mikla aðstoð. Hvort sem það
voru forlögin eða tilviljun þá kom-
umst við að því að við vorum ná-
frænkur, úr Breiðholtsættinni sem
við göntuðumst oft með. Sú upp-
götvun gerði okkur nánari og næt-
urvaktir mínar urðu oft skemmti-
legar þegar við spjölluðum saman
um ættingja okkar og oft fékk ég
ráð við ýmsu hjá Böggu því hún var
full af fróðleik, vel lesin og hvort
það var matargerð, blómarækt,
stjórnmál eða heimspeki, aldrei var
komið að tómum kofunum hjá
Böggu, stundum fannst mér hún
vita allt. Lífið hafði ekki leikið við
hana en fjársjóður hennar voru
börnin hennar og fjölskyldur
þeirra. Hugur hennar var oft í
Álftafirðinum, þar sem hún hafði
málað myndir af fjöllunum og
þekkti alla staðhætti. Listaverkin
hennar, þar sem hún málaði mynd-
ir á rekavið sem hún týndi úr
fjörum, hreinsaði og málaði á, því-
líkar myndir að fólk rak í rogastans
að horfa á, eru til á mörgum heim-
ilum. Sorginni hafði hún svo sann-
arlega kynnst en bar sorg sína í
hljóði, hafði oft grátið í koddann
sinn. Eftir nokkur ár í Furugerðinu
fékk hún pláss í Sóltúni þar sem
aðstæðurnar urðu betri en Bagga
bar báðum stöðunum vel söguna,
svo og starfsfólki.
Núna er hún komin til litlu
barnabarnanna sinna og Helen hef-
ur tekið á móti henni og umvafið.
Ég trúi því að þau séu öll saman,
þar sem litir eru sterkir og náttúr-
an fallegri en allt sem fagurt er.
Ég kveð Böggu frænku mína og
þakka henni fyrir allan stuðninginn
við okkur Steina frá byrjun til enda
en því miður komst hún aldrei til
okkar á Súðavík
Hvíl í friði, elsku frænka.
Rósa Ólafsdóttir, Súðavík.
Björg Magnúsdóttir
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞÓRUNN SÓLBJÖRT FRIÐJÓNSDÓTTIR,
Fannafold 158A,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn
5. janúar kl. 13.00.
Björn Ingi Þorvaldsson,
Þorvaldur Björnsson, Guðrún P. Björnsdóttir,
Ingi Þór Björnsson, Helga Þóra Þórsdóttir,
Bjarni Björnsson, Brynja Þorkelsdóttir,
Kristinn Björnsson, Ampon,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir mín,
SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
fyrrum kennari og hreppstjóri,
Skólabraut 6,
Grindavík,
lést á sjúkradeild Víðihlíðar, dvalarheimilis aldraðra
í Grindavík, að morgni sunnudagsins 31. desem-
ber.
Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 6. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Björk Guðsteinsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Hjöllum í Skötufirði,
lést föstudaginn 29. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
5. janúar kl. 15.00.
Kristján Jónsson,
Björn Indriðason, Elsa Gunnarsdóttir,
Einar Bragi Indriðason, Þóra Elín Helgadóttir,
Aðalheiður Björk Indriðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra,
KRISTÍN SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Skúlagötu 68,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut að morgni gamlársdags verður jarðsungin frá
Lágafellskirkju föstudaginn 5. janúar kl. 11.00.
Jóhannes Guðmundsson,
Björk Bjarkadóttir, Kristján Friðriksson,
Stefán E. Bjarkason, Þorbjörg Garðarsdóttir,
Sveinbjörn Bjarkason,
Þórdís Björnsdóttir, Ruggero Cortellino,
Árni H. Björnsson, Þórey Bjarnadóttir.
✝
Elskulegur faðir minn, afi okkar og hjartkær sonur,
ÞÓRÐUR STEFÁNSSON,
Hamarsbraut 8,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 28. desember.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn
5. janúar kl. 13.00.
Ragnheiður Hulda Þórðardóttir,
Viktor Ingi Ólafsson,
Stefán Máni Ólafsson,
Ragnheiður Hulda Þórðardóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐBJÖRN JÓNSSON,
Grandavegi 1,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 2. janúar.
Sigríður María Sigmarsdóttir,
Sigmar Guðbjörnsson, Jóhanna Ingibjörg Ástvaldsdóttir,
Þórunn Helga Guðbjörnsdóttir, Kristinn Svavarsson,
Björgvin Guðbjörnsson, Kristín Jónsdóttir,
Aðalheiður Ósk Guðbjörnsdóttir, Örn Valdimarsson
og barnabörn.
✝
Hugheilar þakkir til allra nær og fjær sem heiðruðu
minningu
ÁRNA GUNNARS PÁLSSONAR
frá Litlu-Reykjum,
Heiðarvegi 1,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Ljósheimum fyrir kærleiksríka umönnun.
Stefanía Ragnheiður Pálsdóttir, Sverrir Arnar Lúthersson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON,
andaðist þriðjudaginn 26. desember.
Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
5. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunar-
heimilið Sunnuhlíð.
Geirlaug Jónsdóttir,
Birgir Sigurðsson, Sólveig Bjarnþórsdóttir,
Nanna Lára Sigurjónsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN M. ÁRNASON
frá Miðfjarðarnesi,
Skeggjastaðahreppi,
verður jarðsunginn frá Skeggjastaðakirkju
mánudaginn 8. janúar kl. 14.00.
Kristín Þorsteinsdóttir, Kristján Jónsson,
Hugrún Þorsteinsdóttir, Rafn Gunnarsson,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.