Morgunblaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 15
Grænmeti 4.400 tonn
Egg 2.600 tonn
Kartöflur 13.800 tonn
Gulrófur 750 tonn
Mjólk 116.196.600 lítrar
Alifuglakjöt 6.510 tonn
Hrossakjöt 817 tonn
Kindakjöt 8.670 tonn
Nautgripakjöt 3.183 tonn
Svínakjöt 5.704 tonn
Samtals kjöt 24.884 tonn
Bóndi er bústólpi – bú er landsstólpi
Bændasamtök
Íslands
Kæru landsmenn
Íslenskur landbúnaður er ein helsta undirstaða atvinnulífs landsbyggðarinnar og sú atvinnugrein
sem öllum öðrum fremur tryggir byggð um land allt. Íslendingar hafa stundað landbúnað allar
götur frá landnámi. Um aldir hélt landbúnaður og sjósókn lífi í landsmönnum og tryggði áfram-
haldandi byggð á Íslandi, þrátt fyrir erfið tímaskeið náttúruhamfara, hungurs, sjúkdóma, fátæktar
og annarrar óáranar.
Fullyrða má að íslenskar landbúnaðarafurðir standa jafnfætis því besta sem í boði er í grann-
ríkjum okkar. Íslenskir bændur leggja ætíð metnað sinn í að framleiða fyrsta flokks matvæli til
handa landsmönnum.
Til að undirstrika nokkrar staðreyndir um mikilvægi landbúnaðar á Íslandi óska bændur eftir að
benda á nokkur atriði fólki til fróðleiks. Ef aðeins er horft á matvörur þá hafa íslensk bú á undan-
förnum 12 mánuðum framleitt eftirfarandi af kjöti, grænmeti, mjólk og eggjum fyrir neytendur:
3000 bændur og fjölskyldur þeirra óska landsmönnum öllum farsældar á nýju ári
um leið og þeir óska þess að mega áfram eiga gott samstarf við viðskiptavini sína
hvar á landi sem þeir búa.
Hagur þjóðarinnar er hagur bænda. Hagur bænda er hagur þjóðarinnar.
K
O
M
al
m
an
n
at
e
n
gs
l
/
sv
ar
th
ví
tt
e
h
f