Morgunblaðið - 09.01.2007, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
þriðjudagur 9. 1. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Sir Alex Ferguson líkir Larsson við Cantona >> 3
LAKERS STÖÐVAÐI DALLAS
ÞJÁLFARINN GÓÐKUNNI PHIL JACKSON ER Á RÉTTRI
LEIÐ MEÐ LOS ANGELES LAKERS LIÐIÐ Í NBA >> 4
Arsenal, sem sló bikarmeistara Liverpool út úr
keppninni, fær Bolton í heimsókn á Emirates-völl-
inn laugardaginn 27. janúar. Þetta er þriðja árið í
röð sem Arsenal og Bolton mætast í bikarkeppn-
inni. Fyrir tveimur árum skoraði Freddie Ljung-
berg sigurmark Arsenal á Reebok Stadium í Bolt-
on í átta liða úrslitum, 1:0, og fyrir ári lagði Bolton
Arsenal að velli á sama stað í fjórðu umferð, 1:0.
Stelios Giannakopoulos skoraði sigurmarkið með
skalla rétt fyrir leikslok.
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, segir
að það sé alltaf erfitt að sækja Arsenal heim. „Ars-
enal hefur ekki tapa að nýja vellinum á þessu
keppnistímabili, en gert nokkur jafntefli. Það er
takmarkið hjá okkur að leggja Arsenal að velli,
eða að ná jafntefli og fá nýjan leik heim á Reebok.“
Manchester United, sem trónir á toppi úrvals-
deildarinnar, tekur á móti Portsmouth á Old Traf-
ford. Þar hefur Portsmouth ekki náð að fagna sigri
síðan 1957.
Íslendingaliðið West Ham dróst gegn Watford á
heimavelli og takist Reading, liði Ívars Ingimars-
sonar og Brynjars Björns Gunnarssonar, að
leggja Burnley að velli mætir liðið sigurvegaran-
um í leik Birmingham og Newcastle á útivelli.
Drátturinn í heild sinni er á B2.
AP
Glæsimark Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, gulltryggir sigurinn á Anfield, 3:1, eftir að hafa sundurtætt vörn Liverpool.
Chelsea datt í lukkupottinn
– fær Forest í heimsókn
ARSENAL, Chelsea og Manchester United höfðu
öll heppnina með sér þegar dregið var til 4. um-
ferðar, 32 liða úrslitum, í ensku bikarkeppninni í
knattspyrnu í gær. Öll drógust liðin á heimavelli,
Arsenal og United gegn úrvalsdeildarliðunum,
en Englandsmeistarar Chelsea duttu í lukku-
pottinn. Chelsea fær 2. deildar lið Nottingham
Forest í heimsókn en Forest sló Charlton út á
sannfærandi hátt á laugardaginn.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson, leik-
maður Gummersbach og íslenska
andsliðsins, er sá leikmaður í
ýsku 1. deildinni í handknattleik
em skorað hefur flest mörk í
eildinni að frádregnum vítaköst-
m. Hann hefur skorað 112 mörk
18 leikjum með Gummersbach
g ekkert þeirra úr vítaköstum.
Næstmarkahæstur á þessum lista
r Svíinn Kim Andersson hjá Kiel
með 111 mörk og þriðji er Rolf
Hermann, TuS Lübbecke með 96.
Kóreumaðurinn Kyung-Shin Yoon
já Hamburg, sem skorað hefur
est mörk í deildinni til þessa,
36, hefur skorað 46 marka sinna
r vítaköstum.
Sverre Jakobsson er grófasti
eikmaður þýsku 1. deildarinnar
f marka má tölfræði vikuritsins
andballwoche. Hann hefur verið
tan vallar í 30 mínútur í þeim
íu leikjum sem hann hefur leikið
með Gummersbach. Það eru 3
mínútur að jafnaði í leik auk þess
ð hafa eini sinni fengið rauða
pjaldið.
Guðjón og
Sverre í
fremstu röð
ÞETTA er eins fjarri sanni og
mögulegt er því ég hef ítrekað tal-
ð máli Kristins Jakobssonar hjá
UEFA í langan tíma,“ sagði Egg-
rt Magnússon, formaður KSÍ, við
Morgunblaðið í gærkvöld. Í frétt-
m Stöðvar 2 í gærkvöld var sagt
ð Kristinn hefði misst af því að
ærast upp um flokk í dómgæslu
já UEFA vegna þess að Eggert
efði ekki ýtt á eftir því innan
ambandsins, en Eggert á þar sæti
framkvæmdastjórn.
„Kristinn er búinn að fá
öldann allan af leikjum og þar er
að að sjálfsögðu undir honum
álfum komið að standa sig. Það
r fjöldi sérfræðinga á vegum
UEFA sem fylgist með frammi-
töðu dómaranna og tekur afstöðu
t frá því hvaða dómari fær hvaða
erkefni. Þetta er rétt eins og í
Meistaradeildinni, það eru ekki
érvalin lið sem komast þangað,
eldur verða þau að standa sig til
ess.
Það eina sem ég get gert sem
tjórnarmaður í UEFA er að
enda mönnum á að fylgjast með
iðkomandi dómara, og það hef ég
rekað gert. Síðan er hans frami
ndir honum sjálfum kominn, svo
infalt er það, og ég er vonsvikinn
fir því að vera dreginn inní um-
æðuna á þennan hátt,“ sagði Egg-
„Hef ítrekað
bent á Kristin“
EGGERT Magnússon, stjórnarfor-
maður enska knattspyrnufélagsins
West Ham, sagði við Morgunblaðið
að ekkert væri hæft í fréttum Sky-
sports í gær um að Shaun Wright-
Phillips, leikmaður Chelsea, hefði
hafnað því að koma til félagsins.
„Við gerðum Chelsea tilboð í
Wright-Phillips og bíðum eftir við-
brögðum við því. Það gæti dregist
því mér skilst að Peter Kenyon,
lendis sem stendur. Þessi frétt hjá
Sky á því ekki við nein rök að styðj-
ast, og ekki heldur frétt hjá þeim um
að viðræður milli okkar og Wright-
Phillips stæðu yfir. En það eru fleiri
lið um hituna svo það er óvíst hvern-
ig þetta fer,“ sagði Eggert.
Keyptu Quashie í gærkvöld
Hann hefur nóg fyrir stafni um
þessar mundir, enda var fé-
áramót og West Ham þarf nauðsyn-
lega á liðstyrk að halda fyrir barátt-
una seinni hluta vetrar.
„Já, við Alan Curbishley (knatt-
spyrnustjóri West Ham) höfum hvað
eftir annað fundað fram á nótt að
undanförnu. Við náðum mjög fljótt í
Luis Boa Morte frá Fulham og það
kom mörgum á óvart hversu hratt
það gekk fyrir sig því hann hafði
ekki verið orðaður við önnur félög. Í
skoska landsliðsmanninum Nigel
Quashie frá WBA,“ sagði Eggert
Magnússon.
West Ham greiðir WBA 1,5 millj-
ónir punda fyrir Quashie, rúmar 200
milljónir króna, og við það bætast
250 þúsund pund, um 34 milljónir
króna, ef West Ham sleppur við fall í
vor. Quashie er 28 ára gamall miðju-
maður sem lék áður með Southamp-
ton, Portsmouth, Nottingham For-
„Bíðum eftir viðbrögðum frá Chelsea“
Y f i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 24/26
Veður 51 Forystugrein 26
Staksteinar 51 Viðhorf 24
Úr verinu 11 Bréf 26
Viðskipti 12 Minningar 27/30
Erlent 13/14 Menning 15,33/36
Akureyri 16 Dagbók 36/41
Austurland 16 Víkverji 40
Suðurnes 17 Velvakandi 40
Landið 17 Staður og stund
3841
Daglegt líf 18/21 Ljósvakamiðlar 42
* * *
Innlent
Spilafíkn verður sífellt algengari
meðal yngra fólks og kvenna að sögn
Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á
Sjúkrahúsinu Vogi. Alls eru um 970
spilakassar starfræktir um allt land í
dag, en auk Happdrættis Háskóla
Íslands og Háspennu annast Ís-
landsspil, sem eru í eigu Rauða
kross Íslands, Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og SÁÁ, rekstur
spilakassa. Árlegur hagnaður er um
1,5 milljarðar kr. » Baksíða
Í langflestum tilvikum hafa lif-
andi nýrnagjafar verið líffræðilega
skyldir nýrnaþega eða makar þeirra.
Guðjón Kristinsson er undantekn-
ing, en hann gaf þýskum vini sínum í
Bremen annað nýrað úr sér og heils-
ast báðum vel eftir aðgerðirnar.
» Baksíða
Verð á mat- og drykkjarvöru er
62% hærra hér á landi en að með-
altali innan þeira 15 ríkja Evrópu-
sambandsins í Vestur- og Suður-
Evrópu sem mynduðu það áður en
það stækkaði í austur, samkvæmt
nýjum tölum Eurostat, Hagstofu
Evrópusambandsins.
» Forsíða
„Konur þurfa að glíma við ýmsar
hömlur og því þykir mér jákvætt að
koma hingað með sendinefnd
kvenna frá Íslandi, ræða þessi mál
og kynna okkar viðhorf,“ segir Sól-
veig Pétursdóttir, forseti Alþingis,
sem um þessar mundir er í opinberri
heimsókn í Sádi-Arabíu. » 4
Erlent
Líkur eru leiddar að því í sænsk-
um fjölmiðlum að utanríkisráðherr-
ann og hægrimaðurinn Carl Bildt
muni ef til vill verða að segja af sér.
» 14
Dómstólar í Írak hafa fellt niður
allar ákærur gegn Saddam Hussein,
fyrrverandi forseta Íraks, vegna
fjöldamorða á Kúrdum á níunda ára-
tug síðustu aldar. Saddam var líflát-
inn 30. desember sl. eftir að hafa
verið fundinn sekur í aðskildum rétt-
arhöldum um morð á 148 sjítum. Bú-
ist er við að tveir samverkamenn
hans verði líflátnir í vikunni. »14
Rússneska orkufyrirtækið Trans-
neft skrúfaði í gær fyrir flutning olíu
frá Rússlandi til Póllands og Þýska-
lands um Hvíta-Rússland, eftir að
talsmenn þess sökuðu stjórnvöld í
Minsk um að hafa stolið um 79.000
tonnum af olíu. Aðeins rúm vika er
liðin frá því Hvít-Rússar mótmæltu
miklum verðhækkunum gasrisans
Gazprom um áramótin og er talið að
þeir hafi litið á olíuna sem greiðslu
fyrir nýja útflutningstolla, sem
Transneft telur ólöglega. » Forsíða
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
STJÓRN Gildis lífeyrissjóðs hefur
ákveðið að leggja það til við ársfund
sjóðsins í vor að viðmiðunartekjur
vegna útreiknings örorkulífeyris
taki breytingum í samræmi við
launavísitölu í stað vísitölu neyslu-
verðs. Það þýðir, ef samþykkt verð-
ur, að skerðing á greiðslum til ör-
yrkja verður mun minni en ef
haldið hefði verið í fyrri viðmið-
unina.
Gildi er lífeyrissjóður almenns
verkafólks og sjómanna og þriðji
stærsti lífeyrissjóður landsins. Árni
Guðmundsson, forstjóri Gildis,
sagði aðspurður að ekki lægi fyrir
nákvæmlega hver útgjöld sjóðsins
yrðu vegna þessarar ákvörðunar,
„en menn telja að það sé miklu rétt-
látari og sanngjarnari leið heldur
en hin sem hafði verið tekin ákvörð-
un um að fara áður.“ Árni sagði að
þetta snerist um framreikning á
tekjum öryrkja fyrir orkutap. Út-
borgaður örorkulífeyrir myndi
áfram eins og ávallt hingað til mið-
ast við hækkun neysluverðsvísitölu.
Viðmið launavísitölu gerði það að
verkum að tekjumörkin yrðu hærri
en ella og þar af leiðandi gætu ör-
orkubæturnar orðið hærri.
Framkvæmd frestað
Árni sagði að þessi ákvörðun
stjórnar Gildis þýddi það líklegast
að framkvæmd skerðingar á
greiðslum til öryrkja, sem mikið
voru í fréttum sl. haust, yrði frestað
fram yfir ársfund sjóðsins í vor.
Það væri hins vegar ekki samstaða
innan Greiðslustofu lífeyrissjóða að
fara þessa leið, en þar eru auk Gild-
is ellefu aðrir lífeyrissjóðir. Það
væri enda í ákvörðunarvaldi hvers
og eins og lífeyrissjóðs að taka
ákvörðun um að breyta samþykkt-
um sínum að þessu leyti.
Viðmiðunartekjur
miðist við launavísitölu
Ekki kemur til skerðingar á greiðslum til öryrkja að svo komnu
Í HNOTSKURN
» Greiðslustofa lífeyrissjóðasér um greiðslu lífeyris
fyrir tólf lífeyrissjóði sem
standa sameiginlega að henni.
» Til stóð að skerðagreiðslur til fjöldamargra
öryrkja vegna þess að bætur
til þeirra voru hærri en þær
tekjur sem þeir höfðu fyrir
orkutapið eftir þeim reglum
sem reiknað var eftir.
» Launavísitala mælir með-altalshækkun launa frá ári
til árs, en neysluverðsvísitala
meðaltalshækkun verðlags.
HJARTAVERND hefur tekið í notkun nýjan og full-
kominn hjartarita sem keyptur var fyrir áheitafé sem
safnaðist í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ágúst sl. Alls
tóku 502 starfsmenn Glitnis þátt í maraþoninu og
greiddi bankinn þrjú þúsund krónur fyrir hvern hlaup-
inn kílómetra – um 800 þúsund krónur söfnuðust. Á
myndinni eru Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir
Hjartaverndar, Jóhanna Eyrún Sverrisdóttir yfirhjúkr-
unarfræðingur og fulltrúar starfsmanna Glitnis sem
hlupu í maraþoninu síðastliðið sumar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjartariti keyptur fyrir áheitafé
UM 30 ruslastampar voru eyðilagðir
með flugeldasprengingum um þessi
áramót í Reykjavík. Urðu stampar
áfastir staurum í Breiðholti einkum
fyrir barðinu á skemmdarvörgum.
Hins vegar kvað mjög lítið að þessu í
Vesturbæ Reykjavíkur.
Sighvatur Arnarsson, skrifstofu-
stjóri gatna- og eignaumsýslu
Reykjavíkurborgar, segir starfs-
menn borgarinnar yfirleitt hafa tek-
ið niður nokkra stampa í Breiðholt-
inu yfir áramótin til að vernda þá
gegn skemmdarverkum, í ljósi
slæmrar reynslu á vissum stöðum
um áramótin. Reykjavíkurborg er
með um 1.000 ruslastampa staðsetta
víðsvegar um borgina og segir Arnar
að á hverju ári séu á bilinu 20–30
stampar sprengdir. Hver þeirra
kostar um 20–30 þúsund krónur og
lætur því nærri að tjónið nemi nærri
einni milljón króna.
Sighvatur minnir á að í miðbænum
hafi verið settir niður jarðfastir
ruslastampar sem hafi staðið fyrir
sínu. Stefna borgarinnar sé að fækka
hinum svokölluðu staurastömpum
því þeir hafi ekki reynst sérlega vel.
Auk skemmda af völdum flugelda sé
nokkuð um að fólk í leit að tómum
dósum geri sér lítið fyrir og slái
botnana úr þeim til að spara sér fyr-
irhöfnina við að seilast með hendurn-
ar ofan í þá til að veiða upp verðmæt-
ar umbúðirnar. Því sé verið að skoða
hvort ekki sé vænlegra að skipta um
ruslaílát í borginni.
Ruslastampar
gjöreyðilagðir
MAÐURINN sem lét lífið við fall-
hlífarstökk í Ástralíu á sunnudag
hét Benjamín Árnason, til heimilis í
Vesturbergi 35 í Reykjavík. Benja-
mín fæddist 20. júní árið 1979, hann
var ógiftur og barnlaus.
Slysið er til rannsóknar hjá lög-
regluyfirvöldum í Ástralíu en sam-
kvæmt lögregluskýrslu opnaðist
fallhlíf Benjamíns of seint og óeðli-
lega.
Var hann staddur á lokadegi tón-
listarhátíðar sem nefnist North
Coast Dance Festival sem haldin
var á Bonalbo, nærri Lismore, og
var stökkið í tengslum við hana. Um
átta hundruð manns sóttu hátíðina
og urðu fjölmargir vitni að slysinu
en Benjamín stökk ásamt öðrum úr
þyrlu í um 2.500 feta hæð.
Lést við
fallhlífar-
stökk