Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 41
LÍNAN í Svínasúpunni er gefin í upphafsatriðinu þar sem leikararnir svamla argandi í potti innan um grænmetisjukk og ýmislegt, ókennilegt og óaðlaðandi „gúmmi- laði“. Kokkurinn ekki beinlínis þannig útlítandi að hann æsi upp í manni matarlystina. Hópurinn er í vönum höndum Óskars Jónassonar, sem hanterar leikarana yfirleitt óaðfinnanlega en oftar en ekki bregðast brandarasmiðirnir. Árið 2004 virðist ekki hafa staðið upp úr og ef minnið bregst ekki var það svanasöngur þáttanna og Stelp- urnar fylltu í skarðið sem mynd- aðist í dagskránni. Svínasúpan er byggð á stuttum „sketsum“ þar sem leikararnir bregða sér yfirleitt í ný og ný hlut- verk í hverjum þætti og innihaldið sótt út um víðan völl og að því er virðist efst í pottinn þar sem súpan er þynnst og krafturinn minnstur. Aukinheldur fer mikill tími í skilin milli þáttanna því titlarnir og inn- gangsatriðið er jafnan látið renna með í stað þess að sýna meira af súpunni. Þetta er bæði hvimleitt og slítur skemmtunina í marga parta. Sem fyrr segir er engan veginn við leikarana að sakast né leik- stjórnina. Strákarnir þrír bera hit- ann og þungann af framvindunni ásamt kvenleikurunum sem síðar lentu flestar í Stelpunum. Sigurjón Kjartansson fer mikinn og hressir upp á gleðskapinn, sömuleiðis félagi hans fyrrverandi og núverandi, Jón Gnarr. Það hefði gjarnan mátt sjást meira af honum, það eitt er nóg til að koma manni í gott skap. Kraftlítil kjötsúpa Morgunblaðið/Jim Smart Bragðdauf „Svínasúpan er byggð á stuttum „sketsum“ þar sem leikararnir bregða sér yfirleitt í ný og ný hlutverk í hverjum þætti og innihaldið sótt út um víðan völl.“ SJÓNVARP/DVD STÖÐ 2 Bestu atriði úr þáttaröðinni á Stöð 2 2004. Leikstjóri: Óskar Jónasson. Hand- rit: Auðunn B. Kristjánsson, Pétur Jó- hann Sigfússon, Sverrir Þór Sverrisson, Þrándur Jensson, Sigurjón Kjartansson. Aðalleikendur: Auðunn Blöndal, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon, Sig- urjón Kjartansson, Sverrir Þór Sverr- isson, Jón Gnarr. Sýningartími 120 mín. Framleiðandi Storm fyrir Stöð 2. 2006. Svínasúpan 2  Sæbjörn Valdimarsson MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 41 / ÁLFABAKKA EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ STRANGER THAN FICTION kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:30 LEYFÐ STRANGER THAN FICTION VIP kl. 8 - 10:30 FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i.16 .ára. CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16.ára. DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i.12 .ára. FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:20 - 5:40 LEYFÐ FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali VIP kl. 3:20 - 5:40 HAPPY FEET m/ensku tali kl. 3:20 - 5:40 LEYFÐ SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:20 LEYF / KRINGLUNNI STRANGER THAN FICTION kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ CHILDREN OF MEN kl. 10:20 B.i. 16 FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 5:40 LEYFÐ DIGITAL HAPPY FEET m/ensku tali kl. 5:40 - 8 LEYFÐ DIGITAL DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 DIGITAL THE HOLIDAY kl. 8 LEYFÐ eee S.V. MBL. eee V.J.V. TOPP5.IS ÁHRIFARÍK OG ÓVENJU- LEG SPENNUMYND Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ HÖRKFÍN MYND eeee RÁS 2 eeee H.J. MBL. eeee B.S. FRÉTTABLAÐIÐ KVIKMYNDIR.IS GOLDEN GLOBE TILNEFNING BESTI LEIKARI : WILL FERRELL eee H.J. MBL. eeee KVIKMYNDIR.IS ÞRÆLHRESS TEIKNIMYND Þ.Þ. Fréttablaðið. eeee H.J. Mbl. SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is eee A.Ó. SIRKUS eeee RÁS 2 eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee V.J.V. TOPP5.IS 06.01.2007 11 14 15 26 30 3 6 0 2 3 9 8 4 7 4 12 03.01.2007 2 17 21 34 39 40 426 44 gengið snurðulaust fyrir sig og að Ford hefði verið hinn alúðlegasti. „Hann hafði greinilega húmor fyrir sjálfum sér því hann sagðist ekkert ætla að eiga við raftæki heimilisins meðan ég væri í heimsókn til að hann fengi ekki raflost,“ skrifaði Chase í umræddri minningargrein.    Kylie Minogue varð fyrir valinuþegar tímaritið Glamour valdi á dögunum best klæddu konu skemmt- anaiðnaðarins. Þótti álitsgjöfum fata- smekkur hennar hafa batnað á síð- ustu misserum eftir að hún komst í sviðsljósið á ný eftir að hafa náð sér af brjóstakrabbameini. „Hún er enn mjög kynþokkafull en þarf ekki lengur að sýna það með því að klæðast gulllitum nærbuxum,“ sagði einn álitsgjafanna. Í öðru sæti listans var Victoria Beckham en á listanum má einnig finna fyrirsætuna Kate Moss, Gwen Stefani, Siennu Miller og Rachel Bil- son. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Treystu á sköpunargáfuna. Á sumum sviðum er hún kannski ekki svo ýkja þróuð, en hráar hvatir hrútsins eiga til að verða honum að féþúfu. Naut eða ljón vísa þér veginn. Naut (20. apríl - 20. maí)  Stundum virðast hlutirnir frekar í lagi ef þeir eru í ólagi. Nautið upplifir auð- mýkjandi aðstæður en verður sterkara á eftir. Leitaðu að tækifærum til þess að auka tekjurnar með hlutastarfi. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn hefur hrint áætlunum sínum framkvæmd, þótt ekki nema sé í hug- anum. Máttarvöldin leggja þér lið þegar þú lætur eins og þú eigir stuðninginn þegar vísan. Vertu djarfur, stórhuga og máttugur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Margar nýjar kröfur koma upp í kring- um þig en þær gömlu sýna hins vegar ekkert fararsnið. Afleiðingin er of- framboð. Ef þú bara heldur í bjartsýn- ina fellur allt í ljúfa löð í kringum þig eins og fyrir kraftaverk. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Heimspekingurinn Albert Camus hafði á orði að um hávetur hefði hann loksins lært að innra með honum byggi ósigr- andi sumar. Ljónið upplifir samskonar tilfinningu núna og aðrir baða sig í ljóm- anum sem stafar af því. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan lætur flækja sig í þrengingar annarra en er alveg sama. Fólk er brot- hætt og meyjan sér fegurðina í því. Þess vegna er auðvelt fyrir hana að sýna blíðu þegar hennar er þörf. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin þekkir ástvini sína frekar vel og hagar sér þar af leiðandi eins og sér- fræðingur í líkindareikningi. Í mörgum tilfellum segir hún nákvæmlega fyrir um það sem á eftir að gerast, en það þýðir ekki endilega að aðrir hlusti á hana. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  List fjármögnunar er sérsvið sporð- drekans um þessar mundir. Að vera sparsamur gerir mann skapandi. Þótt þú hefðir alla heimsins peninga til ráð- stöfunar gengi þér varla betur en þér gerir núna. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Áætlanir bogmannsins hringsnúast ógreinilega í kringum hann, líkt og í blandara. Í kvöld ýtir enginn á takkana þína og þú getur slakað á, kannski með hristan drykk að eigin vali. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Auðvitað er steingeitin stórkostleg und- ir þrýstingi, en hver þarf á slíku að halda. Ef þú neitar að skuldbinda þig færðu að upplifa það að gefa af glöðu geði og fúsum og frjálsum vilja og jafn- vel meira en nokkur á von á. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn er fyrirmynd þeirra sem líta upp til hans. Velgengnisformúlan hans er einföld, ef þú hrasar, stattu þá upp aftur. Ef maður gerir það stöðugt og af ákveðni, gerir það mann ósjálfrátt að sigurvegara. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ákefð fisksins gerir hann vinsælan. Vin- irnir hringja í hann til þess að heyra hvatningarorð og verða svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Þótt þeir hafi ekki frá neinu að segja, finnur fiskurinn eitthvað til að lofsyngja. stjörnuspá Holiday Mathis Tíminn virðist óvenju sleipur núna og tunglið, sem ekki myndar afstöðu við önnur himintungl í augnablikinu, virðist láta augnablikin okkur úr greipum ganga. Þegar tungl fer inn í vog kemur á daginn að þegar við tökum höndum saman við aðra hjálpa þeir okk- ur í kapphlaupinu við klukkuna. Nær- staddir liðsinna okkur við að nýta tím- ann betur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.