Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 20
Þ etta var 1. apríl en ekkert plat,“ segir Sigurlín Margrét Sig- urðardóttir, táknmálsþula og varaþingmaður Frjálslynda flokksins. „Sjónin var orðin mjög léleg, ég sá allt í móðu og var mjög þreytt og orkulítil og hafði verið lengi auk þess sem ég fann fyrir óþægilegum þrýst- ingi í fingrum og tám. Ég hafði raunar enga orku til þess að fara á sýninguna Matur 2006 en Guðráður, bróðir minn sem er kjötiðnaðarmaður, var að dæma í keppni á sýningunni og mig langaði að sjá hann. Þegar við hittumst spurði hann mig hvernig mér liði og ég sagði eins og var, mér liði mjög illa og þyrsti sífellt í vatn eða annan vökva. Hann dreif mig þá með sér á bás sem Samtök sykursjúkra voru með á sýningunni, en þau voru að kynna blóðsyk- urmæla og aðrar vörur fyrir sykursjúka, og bað um að ég yrði mæld. Starfsfólkið vildi það nú ekki í fyrstu þar sem mælarnir á borðinu væru aðeins til sýnis, ekki til notkunar. Hann sagði mig þá vera með öll einkenni sykursýki sem þarna voru skráð á kynningarspjaldi. Ég stóð þarna og horfði á þau í móðu þrátta en bróðir minn hafði betur og að lokum lét starfsfólkið til- leiðast og mældi mig með besta og nýjasta mælinum sem reyndar hafði ekkert verið notaður. Mælirinn sýndi strax tölurnar 29,6 og á honum blikkaði rauð aðvör- unarbjalla. Starfsfólk bássins trúði ekki niðurstöðunum og mældi mig aftur, nú með eldri mæli, en sá mælir sýndi einfald- lega strik og rauða aðvörunarbjöllu – við hönnun hans var ekki gert ráð fyrir að fólk væri með jafn há blóðsykursgildi og ég var með.“ Lögð inn á Landspítalann í snatri Starfsfólkið ráðlagi Guðráði að fara samstundis með Sigurlín Margréti á bráðamóttöku Landspítalans sem hann og gerði. „Það sagði að fólk með jafnhá blóð- sykurgildi og þessi væri venjulega í dái eða í dái á leið á sjúkrahús í sjúkrabíl. Guð- ráður reif mig samstundis af stað. Þegar við komum á bráðamóttökuna tók á móti okkur sami hjúkrunarfræðingurinn og hafði tekið á móti mér tveimur vikum áður. Hún mældi mig og mælirinn sýndi gildin 33,0 og rauðu aðvörunarbjölluna. Hjúkr- unarfræðingurinn náði í annan mæli og mældi blóðsykursgildin aftur sem voru þau sömu. Ég var strax sett á insúlín og gefið saltvatn. Mér fór fljótlega að líða að- eins betur og smám saman fór sjónin að skýrast.“ – En nú hafðirðu verið í skoðun á bráða- móttöku Landspítala – háskólasjúkrahúss tveimur vikum fyrr, var blóðsykurinn ekki mældur þá? „Það var tekin blóðprufa en ekki blóð- sykursmæling. Enginn virðist hafa skoðað niðurstöður blóðprufunnar, a.m.k lét eng- inn mig vita hverjar niðurstöður hennar voru. Ég er heyrnarlaus en skildi eftir bæði netfang og gsm-símanúmer svo að hægt væri að senda mér sms-boð og greina mér frá niðurstöðunum. En þarna var hin tveggja vikna gamla mæling skoðuð og hún sýndi að blóðsykursgildin höfðu þá verið 22. Eðlileg blóðsykursgildi eru á bilinu 5–6,5,“ segir Sigurlín Margrét sem ekki skilur hvers vegna heilbrigðiskerfið biður um rannsóknir en fylgir þeim síðan ekki eftir. Og reyndar segir hún farir sínar ekki sléttar í samskiptum við heilbrigðiskerfið. „Ég hafði reynt að fá að koma í blóðsyk- urspróf á Heilsugæslustöðinni í Garðabæ en var neitað á þeim forsendum að læknir yrði að fyrirskipa það. Ég varð því að panta tíma hjá heimilislækninum sem ég og gerði og fékk tíma 10. apríl – þurfti sem sagt að bíða í 12 daga. Þú spyrð kannski hvers vegna ég hafi ekki farið á Lækna- vaktina en ég reyni í lengstu lög að fara ekki þangað vegna þess að ég hef haft slæma reynslu af því. Þar ríkti um tíma lít- ill skilningur á samskiptalegum aðstæðum mínum og mér fannst niðurlægjandi að starfsfólkið í móttökunni skyldi hafa átt að ráða því og meta hvort panta ætti tákn- málstúlk eða ekki, hvað sem leið lögum um réttindi sjúklinga. Við sem erum heyrn- arlaus verðum að geta átt óheft samskipti við heilbrigðisstarfsfólk. Það eru for- sendur laganna um réttindi sjúklinga.“ Breytti um lífstíl og 25 kíló fuku Sigurlín Margrét þurfti að gera margar breytingar á lífi sínu í kjölfar greining- arinnar, bæði varðandi mataræði og hreyf- ingu „Stærsta breytingin var að fjarlægja allan sykur úr fæðunni. Fyrsta inn- kaupaferðin eftir greiningu var dálítið kostuleg þar sem ég í fyrsta sinn las al- mennilega allar innihaldslýsingar og komst að ýmsu misjöfnu – satt best að segja var fátt sem komst ofan í körfuna,“ segir hún og hlær. „Pakka- og niðursoðinn dósamatur fékk að fjúka því ég tók MSG eða þriðja kryddið, eins og það er kallað, alveg út. Á mínu heimili er allur matur nú eldaður frá grunni. Ég hef alltaf haft gam- an af eldamennsku svo það er lítið mál fyr- ir mig. Ég steiki upp úr olíum í stað smjör- líkis eða nota eigin fitu kjötsins. Þá hef ég bætt meira af trefjum á matseðilinn og að sjálfsögðu ávöxtum og grænmeti. Mjólk- urvörur skar ég niður og ég borða minna af kolvetnisríkum matvælum en áður. Þá borða ég hrökkbrauð í staðinn fyrir brauð og nota brún hrísgrjón og speltpasta í staðinn fyrir kartöflur, sem ég hef þó stundum. Svo má ekki gleyma vatninu, ég drekk mikið vatn, það er besti drykk- urinn.“ Sigurlín Margrét segir að það hafi vissu- lega verið erfitt fyrstu mánuðina að venj- ast breyttu mataræði, að borða reglulega og þá rétt magn. „Ég borða á tveggja tíma fresti. Mér fer að líða illa ef of langur tími líður á milli matarbita, þá verð ég sljó.“ Æfir, syndir og endurnýjar fataskápinn Hreyfingin hefur líka skipt sköpum. „Ég var skiljanlega mjög orkulítil þegar ég greindist með sykursýkina og skapið eftir því,“ segir hún hlæjandi. „Ég byrjaði á því að fara í rólega göngutúra sem smám saman urðu lengri eftir því sem þol og þrek jókst. Þegar ég í fyrsta sinn gekk hringinn í kringum Vífilstaðavatn, sem er um 3,5 km þá tók það mig 72 mínútur með pásum á milli en núna fer ég hringinn á 25 mínútum og er aðeins byrjuð að hlaupa,“ segir Sigurlín Margrét stolt. Hún syndir líka og síðastliðið haust byrjaði hún í líkamsrækt í Sporthúsinu undir handleiðslu einkaþjálfara. „Núna fer ég sjálf og gengur ágætlega. Mér líður miklu betur, bæði andlega og líkamlega, aðallega vegna þess að ég er búin að missa næstum 25 kg frá því að ég greindist.“ Og ekki er allt svo illt að ekki boði eitt- hvað gott. „Ég er ekki frá því að mat- arreikningurinn hafi lækkað svolítið sem er auðvitað ekki verra en á móti hafa fleiri krónur farið í fatakaup, ég hef þurft að endurnýja fataskápinn frá grunni,“ segir hún og brosir. „Nú fer ég reglulega í blóð- sykursmælingu á heilsugæslunni og á þriggja mánaða fresti fer ég til heim- ilislæknisins. Nú er langtímavirkni blóð- sykursins hjá mér 5,9 sem er mjög gott en sykursýki er þannig sjúkdómur að það er mikið undir manni sjálfum komið hvernig maður höndlar hann. Það er hægt að láta sér líða vel með sykursýki og lifa með henni geri maður allt rétt,“ segir Sigurlín Margrét sem er afar þakklát bróður sínum sem hún segir sennilega hafa bjargað lífi sínu. Morgunblaðið/Ásdís Vellíðan Sigurlín Margréti líður vel í dag og finnur lítið fyrir einkennum sykursýkinnar enda leggur hún áherslu á rétt mataræði og góða hreyfingu til þess að halda blóðsykrinum innan eðlilegra marka. Eftir Sumir hafa það á orði við táknmálsþuluna að hún sé alveg að hverfa af skjánum. Sykursýki Sigurlínar Mar- grétar Sigurðardóttur upp- götvaðist ekki á heilbrigð- isstofnun heldur á matvælasýningu. Hér segir hún Unni H. Jóhannsdóttur frá því og breytingunum sem hún gerði á lífsstíl sínum í kjölfarið. Með breyttu mat- aræði og líkamsrækt hefur hún misst 25 kg og hefur aldrei verið í betra formi. Fyrir Sigurlín var alltaf þreytt, fann fyrir þrýsting í fingrum og tám og stöðugum þorsta. Sigurlín Margrét telur að skoða þurfi hvort aðgengi fólks að blóðsykursmæl- ingu sé nægilega gott í ljósi reynslu sinnar. uhj@mbl.is „Bróðir minn bjargaði lífi mínu“ heilsa 20 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.