Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Apótek Í boði eru góð kjör og vinalegt starfsumhverfi í rótgrónu einkareknu apóteki. Þjónustulund og lipurð í samskiptum skilyrði. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Uppl. gefur Hanna María í síma 893 3141 / hanna@apotek.is Laugarnesapótek ehf Kirkjuteigi 21 105 Reykjavík Starfsmenn óskast Starfsmaður óskast til að annast vörudreifingu á höfuðborgarsvæðinu, einnig starfsmaður til að taka til pantanir í söludeild okkar. Upplýsingar gefur Sófus í síma 863 1938. Við leitum að hæfum einstaklingi til að hafa umsjón með heimsþekktu snyrtivörumerki. Starfið er einstaklega fjölbreytt og lifandi og krefst mikillar færni í mannlegum samskiptum í alþjóðlegu umhverfi ásamt fágaðri framkomu og snyrtimennsku. Umsóknir sendist á auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 12. janúar n.k. merktar “HJ-19425“ eða á box@mbl.is merktar “HJ-19425”. Vörumerkjastjóri Halldór Jónsson ehf. er framsækið og arðbært innflutningsfyrirtæki, sem hefur á að skipa hæfu ogmetnaðarfullu starfsfólki. Þarfir viðskiptavina eru hafðar í öndvegi og kappkostað að veita þeim faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu. Starfslýsing n Markaðs- og áætlanagerð n Verkefnastjórnun n Vörukaupastjórnun Menntunar- og hæfniskröfur n Menntun á sviði viðskipta/ markaðsfræði eða reynsla af sambærilegu starfi n Góð ensku kunnátta n Hæfni í mannlegum samskiptum n Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi Raðauglýsingar 569 1100 ✝ Sigrún Gunn-arsdóttir fædd- ist á Eiði í Eyr- arsveit 3. febrúar 1934. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. jan- úar. Foreldrar hennar voru Gunn- ar Jóhann Stef- ánsson, f. 1903, d. 1980, og Lilja El- ísdóttir, f. 1907, d. 1964. Systkini hennar eru Elís, látinn, Hjálmar, lát- inn, Sveinn Garðar, látinn, Sigurlín, Helga Soffía, látin, Jóhann Leó, Snorri og Þór- arinn. Hinn 19. maí 1956 giftist Sig- rún Theodóri Þorkeli Kristjáns- syni frá Mel í Staðarsveit. For- eldrar hans voru Kristján Erlendsson, f. 1896, d. 1973, og Guðrún Hjörleifsdóttir, f. 1904, d. 1991. Börn Sigrúnar og Theo- dórs eru: 1) Bryndís, f. 1960, maki Guðni E. Hallgrímsson, f. 1944. Börn þeirra eru Sigrún Hlín, Guðný Rut og Þorkell Már og fyrir á Guðni soninn Eyþór. 2) Þröstur, f. 1963, maki Áslaug Árnadóttir, f. 1965. Börn þeirra eru Theodór Ingi, Heiðrún Lilja og Thelma Ósk. 3) Lilja, f. 1965, maki Birgir Guðmunds- son, f. 1964. Börn þeirra eru Ívar Þór, Anna Karen og Rebekka Rut. 4) Hrönn, f. 1967, maki Davíð Örn Heiðberg, f. 1969. Dóttir þeirra er Christa Hrönn. 5) Freyja, f. 1968. Dóttir hennar er Hjördís Silja Kar- velsdóttir. 6) Sveinn, f. 1974, maki Ellen María Þórólfsdóttir, f. 1978. Sonur þeirra er Snorri Þór og fyrir á Ellen dótturina Lóu Rakel. Sigrún ólst upp á Eiði í Eyr- arsveit. Hún fór í vist suður til Reykjavíkur 17 ára gömul og stundaði ýmis störf en vann lengst af í Sjálfsbjörg þar sem hún starfaði til ársins 2000. Hún var félagi í kvennadeild Slysa- varnafélagsins og vann töluvert mikið með félaginu. Sigrún verður jarðsungin frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Er grænkar jörð og grösin spretta á ný og golan verður aftur mild og hlý, er gott að mega hvílast hægt og rótt, er húmar ei og til er engin nótt. Á kveðjustund er margt að minnast á, er móðurhjartað góða er hætt að slá. En fátæk orð ei mikils mega sín, á móti því sem gaf hún, höndin þín. Ég sé þig koma og signa barnsins rúm, með sömu mildi og fyrr, er nálgast húm. Hið stillta fas, svo sterk í hverri raun, þú stóðst á verði, spurðir ei um laun. Og þegar lokið lífsins ferð er hér, og læknuð þreyta vinnudagsins er, hver minning verður máttug heit og klökk, um móðurást og kærleik hjartans þökk. (Óskar Þórðarson frá Haga) Elsku amma, Guð blessi þig og takk fyrir allar samverustundir okk- ar. Hvíldu í friði. Sigrún Hlín, Guðný Rut og Þorkell Már. Elsku amma, við kveðjum þig nú og viljum þakka allar góðar stundir sem við áttum með þér. Gátum alltaf leitað í þín hús. Nú ertu búin að fá frelsið sem þú þráðir, takk fyrir að vera frábær amma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Þú verður ávallt í huga okkar. Theodór Ingi, Heiðrún Lilja og Thelma Ósk. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, – hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. (Halldór K. Laxness) Elsku amma mín, þú reyndist mér og mömmu minni svo vel, varst alltaf svo dugleg að passa mig. Mikill er söknuður okkar mömmu en nú líður þér vel, ert búin að hitta afa aftur eftir öll þessi ár og ég veit að þú heldur áfram að fylgjast með mér þar sem þú ert núna. Guð varðveiti þig elsku amma mín. Þín dótturdóttir Hjördís Silja. Við kynntumst Sigrúnu, tengda- móður sonar okkar Davíðs, fyrir nokkrum árum. Það var alltaf fersk- ur blær sem fylgdi henni og ánægja að vera í nálægð hennar. Í veikind- um sínum sýndi hún mikið æðruleysi og styrk þar til yfir lauk. Slíkar kon- ur sem Sigrún eru sómi Íslands, sverð og skjöldur. Við þökkum hin góðu kynni og óskum börnum hennar og barna- börnum og öllum þeim sem henni þótti vænt um blessunar Guðs. Christa, Eyþór og fjölskylda. Elsku Rúna frænka, nú ertu farin. Síðustu daga hef ég hugsað til þín og upp hafa komið margar góðar minn- ingar sem ná allt aftur í bernsku þegar þú og Dóri komuð ásamt börn- unum ykkar í heimsókn í sveitina. Þá var svo gaman því þið komuð með snefil af stórborginni með ykkur sem var mér svo framandi. Þegar ég fór að koma til Reykjavíkur átti ég alltaf samastað hjá þér í Nökkvavoginum. Mér var það eiginlega jafn erfitt þegar þú fluttir þaðan fyrir nokkrum árum og þegar faðir minn flutti úr sveitinni. Eins og tvær miðjur al- heimsins sem raskast og ég á enga hlutdeild í þeim lengur. En við eigum alltaf pláss í hjörtum ástvina okkar, hvert sem þeir fara, og það er gott að vita af því. Það gustaði af þér og mér þótti alltaf svo vænt um hreinskilni þína og hvað þú spurðir hreint út um það sem þú vildir fá að vita. Það var ekk- ert verið að fara kringum hlutina. Og þú sagðir skoðanir þínar umbúða- laust. Það sem ekki mátti segja, það hvíslaðir þú. Nú ertu farin til ann- arra heima og hittir eflaust marga ástvini þína. Hvað ég vildi vera fluga á vegg og hlusta á ykkur. Já nú er kátt í höllinni þykist ég vita. Guð gefi fjölskyldu þinni og ástvinum styrk. Anna Njálsdóttir. Það var fyrir rúmum tíu árum að leiðir okkar lágu fyrst saman. Þá unnum við á sama vinnustað. Ég í eldhúsi og borðstofu en þú við umönnum og urðum við strax góðar vinkonur. Alltaf fundum við okkur næg um- ræðuefni. Þú varst mér svo hlý og góð og tilbúin að rétta hjálparhönd. Sér í lagi var það í veikindum mínum á síðasta ári þrátt fyrir að þú gengir ekki sjálf heil til skógar. Þú skildir hlutina svo vel þegar stormurinn var í fangið. Þú varst mér oft sem önnur móðir. Það var svo hlýtt og notalegt að koma heim til þín þegar ég var þreytt og hvíla sig í sófanum í stof- unni hjá þér og þiggja tesopa. Þakka þér fyrir alla spilamennsk- una og samverustundirnar. Hvíl þú í friði, kæra vinkona. Sárt er að kveðja, kæra vina, kvöldgolan úti er svöl. Eins er með okkur og alla hina: Eigum við annars völ? Ég votta börnum, tengdabörnum og barnabörnum mína dýpstu sam- úð. Guð geymi ykkur. Sigurveig Buch. Sigrún Gunnarsdóttir Elsku amma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín verður sárt saknað. Christa Hrönn Davíðsdóttir HINSTA KVEÐJA Röng lausn krossgátu MISTÖK urðu við birtingu lausnar krossgátu sunnudagsins. Hér átti að birta lausnina á kross- gátunni 31. desember, en lausnin fyrir 24. desember birtist aftur. Birtist rétta lausnin hér. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Doktor í fiskifræði RÖNG mynd birtist með fréttatilkynn- ingu um doktorsvörn Elvars H. Hallfreðs- sonar í blaðinu í gær. Eru þau leiðu mistök leiðrétt hér með. LEIÐRÉTT V O N A R V Ö L U R H U G L E I K U R E Ý Ö Ú G O R Ú S S A R L H N O S S G Æ T I T T L E T I I Í Á K V E Ð I R O R N A Ð I Ð R D F R L G R E I Ð A S E M I H V E R F I M N A H K I L G F M G E I S L A B E I N U B I S U N D A N T N T R N I N N R A M M A Ð I S L I L J A D T K L I A Ó Ö R M A G N A A B G U S A Á U S A M S U L L S K A T A V É L R Á Ð B M I A V E U A U B Ð K V E I K U R I N N R A F O R K A Í T Ð G N A U R Ð A R Á S A R M Ó Ð U R R Elvar H. Hallfreðsson LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu óskar eftir vitnum að árekstri sem varð á gatnamótum Miklubraut- ar og Lönguhlíðar sl. föstudag kl. 19.36. Þar lentu saman dökkblá Mercedes Benz-leigubifreið sem ek- ið var vestur Miklubraut og grá Paj- ero-jeppabifreið sem ekið var austur Miklubraut og beygt áleiðis norður Lönguhlíð. Ökumenn greinir á um stöðu umferðarljósa. Vitni eru beðin að hafa samband við umferðardeild lögreglunnar í síma 444-1730. Vitni óskast að árekstri FRÉTTIR ♦♦♦ Fréttir á SMS Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.