Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 17
Til leigu eða sölu er:Til leigu/sölu
Upplýsingar veita:
Hörður sími 896 3252
Stefán sími 892 2809
Um er að ræða samtals 1.100 fm
á jarðhæð. Hægt er að skipta
húsnæðinu í minni einingar.
Óseyri 1a Akureyri
Blönduós | Krakkarnir í 10. bekk
Húnavallaskóla sýndu söngleikinn
Litlu hryllingsbúðina í Félagsheim-
ilinu á Blönduósi fyrir skömmu.
Þessi uppfærsla krakkanna á
Húnavöllum er afrakstur af hálfs-
mánaðar þemaviku þar sem krakk-
arnir einbeittu sér eingöngu að
þessu verkefni undir stjórn Jóhönnu
Friðriku Sæmundsdóttur leikkonu.
Frumflutningur þessa verks var á
árshátíð Húnavallaskóla fyrr í vetur.
Að sögn Þorkels Ellertssonar
skólastjóra er þetta þriðja árið í röð
sem nemendur 10. bekkjar í Húna-
vallaskóla troða upp með söngleik í
Félagsheimilinu á Blönduósi á þess-
um tíma árs. Í desember 2004 var
það „Fame“ og í fyrra „Komin til að
sjá og sigra“ sem var byggður á
Stuðmannamyndinni „Með allt á
hreinu“.
Fjölmenni sótti sýninguna sem
tókst með miklum ágætum og var
nemendum og skóla til mikils sóma.
Nemendur sýndu
Litlu hryllingsbúðina
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Húsavík | Eftir að ný sorpeyðingarstöð var tekin í notkun á Húsavík var sú
eldri, sem staðsett er á Húsavíkurhöfða, aflögð og seld í kjölfarið. Síðustu
daga hafa starfsmenn Vélaverkstæðisins Gríms á Húsavík unnið að því að
fjarlægja reykháfinn af byggingunni sem í framtíðinni mun hýsa starfsemi
verktakafyrirtækisins Steinsteypis.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Reykháfurinn rifinn
Bláskógabyggð | Fundist hefur heitt
vatn á bænum Tjörn í Bláskóga-
byggð. Um er að ræða 20 sekúndu-
lítra af 76 gráðu heitu vatni en full-
víst er talið að vatnið muni hitna
frekar þegar farið verður að dæla úr
holunni.
Vatnið fannst á um 730 metra dýpi
en borað var með jarðbornum Ými
frá Jarðborunum hf. Byrjað var að
bora í september.
Tjörn er ekki langt frá bæjunum
Efri- og Syðri-Reykjum í Biskups-
tungum en þar er mikið af heitu
vatni. Á Tjörn eru þrjú íbúðarhús
auk útihúsa. Holan er um einn kíló-
metra frá bænum en rétt við frí-
stundabyggð sem skipulögð hefur
verið. Tíu hús eru þegar komin en
gert er ráð fyrir að þar rísi 40 til 50
hús á næstu árum. Fljótlega verður
hafist handa við að virkja holuna.
Heitt vatn finnst á
Tjörn í Bláskógabyggð
Reykjanesbær | Allar sjávarlóð-
irnar sem Reykjanesbær auglýsti
við Brekadal í Innri-Njarðvík
gengu út. Framkvæmdastjóri hjá
Reykjanesbæ segist þó gjarnan
hafa viljað sjá meiri áhuga á lóð-
unum því fleiri slíkar lóðir verði
síðar á boðstólunum.
Auglýstar voru sjö stórar ein-
býlishúsalóðir við sjávarsíðuna í
Dalshverfi þar sem einstaklingar
hafa forgang við úthlutun. Sjö um-
sóknir bárust, eða nákvæmlega ein
fyrir hvert hús. Gatnagerðargjöld
eru liðlega tvöföld hefðbundin
gjöld, vegna „útsýnisálags“, eins og
Viðar Már Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri umhverfis- og skipu-
lagssviðs Reykjanesbæjar, orðar
það.
Hins vegar voru auglýstar þrjár
lóðir fyrir verktaka þar sem gert er
ráð fyrir fjórum minni húsum á
hverri. Aðeins bárust þrjár um-
sóknir um þessar lóðir, eða ein um
hverja eins og í hinu tilvikinu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sjávarlóðir
ganga út
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Helguvík | Ker- og steypuskálar fyr-
irhugaðs álvers Norðuráls við Helgu-
vík verða væntanlega allir í Sveitar-
félaginu Garði. Súrálsgeymar og
ýmis önnur mannvirki verða innan
bæjarmarka Reykjanesbæjar. Bæj-
arstjórarnir hafa gert samkomulag
um legu lóðarinnar og að sveitar-
félögin skipti jafnt á milli sín tekjum
af fasteignagjöldum vegna álvers
með allt að 250 þúsund tonna fram-
leiðslugetu.
Norðurál vinnur að skýrslu um
mat á umhverfisáhrifum vegna fyr-
irhugaðs álvers við Helguvík. Vinnan
er á lokastigi, að sögn Ragnars Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
fjármála- og stjórnunarsviðs.
Ofan við olíubirgðasvæðið
Við undirbúninginn var í upphafi
einkum litið til lands innan bæjar-
marka Reykjanesbæjar en þó rætt
um þann möguleika að hluti ker- og
steypuskála færi inn á land Garðsins.
Í þriðju tillögunni sem fram kom var
gert ráð fyrir að lóðin yrði færð norð-
ar og að skálarnir yrðu allir á fyrrum
varnarliðssvæði sem tilheyrir Garð-
inum og varð samkomulag um þá nið-
urstöðu milli fyrirtækisins og beggja
bæjarstjóranna. Samkvæmt þessu
verða ker- og steypuskálar álversins
byggðir norðan við sveitarfélaga-
mörkin og í áttina að golfvellinum í
Leiru, meðfram olíutönkunum sem
varnarliðið hafði til afnota. Landið er
í eigu ríkisins og var flokkað sem
varnarliðssvæði á meðan varnarliðið
var á landinu.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir að óskað hafi
verið eftir viðræðum við varnarmála-
deild utanríkisráðuneytisins og Þró-
unarfélag Keflavíkurflugvallar, um
afnot af landinu og skipulag og á
hann ekki von á öðru en leyfi fáist til
að vinna þetta mál áfram.
Gert er ráð fyrir því að ýmsar aðr-
ar byggingar, svo sem súrálsgeymar
og væntanlega einnig skrifstofu-
bygging, verði á iðnaðarsvæðinu við
Helguvíkurhöfn sem er í landi
Reykjanesbæjar og þar um fara allar
tengingar við Helguvíkurhöfn.
Ragnar Guðmundsson segir að
þetta hafi verið skynsamlegasta nið-
urstaðan vegna nýtingar landsins.
Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í
Garði, segir að álverið fari betur í
landinu á þessari lóð en á öðrum stöð-
um sem hafi verið í umræðunni. Árni
Sigfússon bætir því við að lausnin sé
hagstæð út frá umhverfislegum sjón-
armiðum.
50 milljónir til Garðsins
Samkomulag bæjarstjóranna var
gert með fyrirvara um samþykki
bæjarstjórnanna. Bæjarráð Reykja-
nesbæjar samþykkti það fyrir sitt
leyti og fyrirhugað er að boða til
fundar í bæjarstjórn í vikunni til að
leggja það fyrir. Fyrirhugað er að
kynna málið í kjölfar þess.
Í samkomulaginu er einnig kveðið
á um skiptingu tekna af fasteigna-
gjöldum á milli sveitarfélagsins. Gert
er ráð fyrir því að helmingur fast-
eignagjalda vegna álvers með allt að
250 tonna framleiðslugetu á ári skipt-
ist jafnt á milli sveitarfélaganna. Þar
mun vera um að ræða alls um 100
milljónir kr. og renna því 50 milljónir
til hvors um sig. „Ég er ánægð og
held að við höfum náð góðri lendingu.
Bæjarfélögin taka sameiginlega á
þessu verkefni,“ segir Oddný, bæj-
arstjóri í Garði. Hún bætir því við að
gert sé ráð fyrir því að fasteignagjöld
af mannvirkjum sem kunni að koma
til síðar vegna stækkunar álversins
renni alfarið til viðkomandi sveitarfé-
lags. Telur hún augljóst að sú stækk-
un yrði að mestu leyti á landi Garðs
og myndi sveitarfélagið því njóta
góðs af auknum tekjum.
Hitaveita Suðurnesja og Orku-
veita Reykjavíkur hafa lýst yfir vilja
til að selja orku til fyrirhugaðs álvers
og Norðurál hefur samið við Reykja-
nesbæ um hafnaraðstöðu og lóð við
höfnina. Gert hefur verið ráð fyrir ál-
veri með 120 til 150 þúsund tonna
framleiðslugetu í fyrsta áfanga sem
gæti verið tekið í notkun á árinu
2010. Fimm árum síðar verði fram-
leiðslugetan komin upp í 250 þúsund
tonn.
Garður og Reykjanesbær
skipta jafnt tekjum af álveri
Í HNOTSKURN
» Ker- og steypuskálar verða áfyrrum varnarliðssvæði í
landi Garðsins. Súrálsgeymar og
ýmis önnur mannvirki verða í
landi Reykjanesbæjar við Helgu-
víkurhöfn.
» Sveitarfélögin skipta jafntfasteignagjöldum af allt að
250 þúsund tonna álveri. Komi til
frekari stækkunar renna fast-
eignagjöldin óskipt til viðkom-
andi sveitarfélags.
!
"
(&
?
3
@
(&
&
(
6)*
A
;' 6 8
6 #
$
$
$
"
%
B /' ?<=B
?:
' ' &9
*4 (
6
N C&! 9O
#( 9O
LANDIÐ
SUÐURNES