Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 35 menning Menningarlíf utan höf-uðborgarsvæðisins stend-ur í blóma. Það á ekki síst við um sviðslistir. Auk hefðbund- innar starfsemi áhugaleikfélag- anna, sem mörg hver eru að hefja vinnu við sýningar leikársins, er gleðilega viðbót við þá merku starf- semi að finna víða. Kómedíuleikhús Elvars Loga Hannessonar er gott dæmi og nýlega sá undirritaður ansi hreint athyglisverða sýningu á sveitakrá í Reykjadal norður. Þar komu saman burðarásar úr leik- félagi Húsavíkur og Umf. Eflingar og settu á svið einþáttung úr smiðju eins félagans. Remba heitir verkið og höfundurinn Hörður Benón- ýsson. Árangurinn var vonum framar, bráðfyndið en laundjúpt verk um lífskrísur nokkurra iðn- aðarmanna, sem varð einkar áreynslulaust í meðförum úrvals- leikaranna. Og þar með áhrifamik- ið. Ég veit ekki hvort sýningum er lokið en ef svo er ekki er heimsókn í vinnuskúrinn til kallanna algerlega ómaksins verð.    Áreynsluleysi er líka aðalsmerkinýrrar sýningar í Landnáms- setrinu í Borgarnesi, en þar hafa Kristján Kristjánsson og Einar Kárason tekið saman höndum á ný og unnið dagskrá upp úr lífshlaupi og list KK. Landnámssetrið heldur því áfram á sinni kröftugu braut við að efla menningarlíf héraðsins. Form sýningarinnar gæti að óséðu áreiðanlega ært hvern óstöð- ugan póstmódernista. Sögumaður segir uppvaxtarsögu manns, sem sjálfur situr og hlustar á og svarar með tónlist og textum, að mestu úr eigin smiðju. Sem betur fer stóðust þeir félagar þá freistingu að gera sér sérstakan mat úr þessum óvenjulegu aðstæðum. Til þess bera þeir of mikla virðingu fyrir við- fangsefni sínu. Kristján fyrir tón- listinni og Einar fyrir sögunni.    Útkoman er alveg töfrandi.Sennilega nýtur Einar sín hvergi betur en einmitt svona. Með nokkurn veginn ákveðið umfjöll- unarefni sem hann endurskapar þó í hvert sinn, les ekki upp heldur miðlar efninu með þeim orðum sem koma í hugann í augnablikinu. Sag- an er enda mögnuð, lífshlaupið á köflum óvenjulegt, en líka kunn- uglegt og snertipunktaríkt við líf áheyrendanna. Sviðsetningar Ein- ars á helstu sögusviðum ævinnar voru hver annarri ágætari, Kali- fornía eftirstríðsáranna, Þingholt- in á bítlaárunum, sumardvölin í Húnaþingi. Ef eitthvað á að hnýta í þá væri það helst að söguhetjan sjálf fellur eilítið í skuggann fyrir leiktjöldunum, og svo endirinn sem var óþarflega snubbóttur. En það er á við góðan dekurdag að láta segja sér sögu af svona mikilli íþrótt. Kannski er það einmitt teng-ingin við Landnámssetrið, sem gæti virst ankannalegur stað- ur fyrir þennan viðburð. En hér var auðvitað verið að mæra konung eins og Egill og fleiri gerðu forðum og hlutu af virðingu mikla og frægð um leið og þeir héldu nafni höfðingjans á lofti. Kvæði sín fluttu þeir vitaskuld í áheyrn viðfangs- efnisins. það er í þau fótspor sem Einar stígur og flytur ræðu sína um hinn íslenska blúskóng. Og Ein- ar og við hin þiggjum síðan góðar gjafir hans. KK er sennilega að mestu leyti búinn til úr tónlist. Svo áreynslu- laus virðist hún streyma frá hon- um. Átökin sem einkenna sum lög- in eru alltaf úr tónlistinni sjálfri, aldrei frá honum. Hann glímir ekki við formið heldur dansar í því. Meira að segja þegar röddin er ekki alveg í eins góðu formi og hann vildi, sem kannski var raunin í upphafi leiks á laugardags- kvöldið, er allt eðlilegt. Það hvað hann er lunkinn textasmiður, fimur gítarleikari og sjarmerandi „per- former“ eru aukaatriði. Tónlistin er það sem skiptir máli. Og hún skilar sér.    Það sama má segja um sögunasem Einar segir. Hann miðlar henni og reynir að trufla hana sem minnst. Þetta einkenni þeirra beggja leggur grunninn að því hvað samspilið verður fallegt og sýningin öll tær. Og þeir sem dýrka „virtúósítet“ og halda að þetta sé auðvelt ættu að reyna það. Ferð upp í Borgarfjörð er lítið ómak fyrir svona ágæta stund. Blúskonungur mærður Töfrandi „Útkoman er alveg töfrandi. Sennilega nýtur Einar sín hvergi betur en einmitt svona. Með nokkurnvegin ákveðið umfjöllunarefni sem hann endurskapar þó í hvert sinn, [...].“ AF LISTUM Þorgeir Tryggvason »KK er sennilega aðmestu leyti búinn til úr tónlist. Svo áreynslu- laus virðist hún streyma frá honum. Átökin sem einkenna sum lögin eru alltaf úr tónlistinni sjálfri, aldrei frá honum. LITLA fröken sólskin er frumraun þeirra Jonathans Daytons og Valer- ie Faris á kvikmyndasviðinu, og kemur jafnframt eins og ferskur andblær inn í bandaríska gam- anmyndalandslagið þessa stundina. Þar er tvinnað saman kostulegri sögu af stórfurðulegri, en þó í raun ofurvenjulegri fjölskyldu, og beittri gagnrýni á velgengnisdýrkun og firringu bandarískrar menningar. Í myndinni kynnumst við Hoover- fjölskyldunni, þ.e. hjónunum Rich- ard og Sheryl sem eiga tvö börn, unglinginn Dwayne og hina sjö ára gömlu Olive. Á heimilinu eru auk þess afi gamli sem hefur ákveðið að láta viðtekin siðferðisviðmið lönd og leið á lokaspretti lífs síns og bróðir Sheryl, bókmenntaprófessorinn Frank, sem hefur nýlega tapað öllu sem honum er annt um, kærast- anum og vinnunni. Frank hefur ný- lega reynt sjálfsmorð og annast Sheryl hann eftir bestu getu, meðan hún reynir sjálf að halda sönsum innan um fjöskyldumeðlimi sem virðast vera að ganga af göflunum, hver á sinn hátt. Hið spennu- þrungna andrúmsloft á heimilinu kemur til af misræminu sem er á milli sigurþráhyggju fjölskylduföð- urins og sjálfsóánægju fjölskyldu- meðlima. Ekki skánar ástandið þeg- ar faðirinn hvetur sjálfan sig og aðra stöðugt til dáða og er fyrir vik- ið að drepa alla úr leiðindum, ekki síst eiginkonu sína, með fyr- irtækjavædda fyrirlestra sína um níu þrep í átt til árangurs. Þótt ótrúlegt virðist hafa börnin ómeð- vitað tekið sigurmöntruna inn á sig, því Dwayne heitir því að mæla ekki orð frá vörum fyrr en hann er orð- inn flugmaður og Olive litlu dreymir um að sigra í fegurðarsamkeppni fyrir stúlkur. Þegar Olive fær inngöngu í Litla- fröken-sólskin-keppnina í Los Ang- eles er ekkert annað að gera fyrir fjölskylduna en að troðast inn í gamla gulmálaða Volkswagen- rúgbrauðið sitt og bruna af stað í ökuferð á vit keppnisandans. Í þrengslunum tekur fjölskyldan að hristast saman á ný og standa sam- an í gegnum hvers kyns uppá- komur, hvort sem það felst í að ýta bílnum í gang eða tala sig út úr vandræðum andspænis lögreglunni. Keppnin sem titillinn dregur nafn sitt af er jafnframt viðfangsefni hinnar skörpu gagnrýni mynd- arinnar, en þar er bent á fáránleika þess vafasama afhæfis að etja ókyn- þroska telpum saman í keppni þar sem ríkjandi fegurðarkröfur til full- orðinna kvenna ráða ríkjum. Fram- lag Olive litlu til keppninnar er eft- irminnilegasta gamanatriði myndarinnar sem þó er uppfull af tragíkómískum gullmolum, sem byggja smám saman upp spennuna fyrir lokaatriðið. Ef einhvern galla er að finna á handritinu felst hann í þeirri ólíklegu staðreynd að foreldr- arnir skuli hafa leyft kexrugluðum afanum að sjá um að æfa dans- atriðið með Olive fyrir keppnina, en sá leyndardómur sem hvílir yfir at- riðinu reynist nauðsynlegur fyrir óvænta uppákomuna í lokin. Leik- arahópur myndarinnar er frábær, sérstaklega þau Greg Kinnear og Toni Collette, sem ljá Hoover- hjónunum bæði kómískar hliðar og tilfinningalega dýpt. Á vit sigurandans Litla fröken sólskin „Leikarahópur myndarinnar er frábær.“ KVIKMYNDIR Regnboginn Leikstjórn: Jonathan Dayton og Valerie Faris. Aðalhlutverk: Greg Kinnear, Toni Collette, Steve Carell, Paul Dano, Abiga- il Breslin og Alan Arkin. Bandaríkin, 101 mín. Litla fröken sólskin (Little Miss Sunshine)  Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.