Morgunblaðið - 09.01.2007, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.01.2007, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Makassar. AFP. | Indónesískt flutn- ingaskip bjargaði í gær fimmtán manns sem eytt höfðu síðustu níu dögunum í björgunarbáti eftir að ferja sökk undan strönd eyjunnar Jövu. Fólkið var afar veikburða og dó einn á leið flutningaskipsins til hafnar. Fólkið fannst um 160 km norður af Balí og um 400 km austur af þeim stað þar sem ferjan sökk í hafið í ofsaveðri. Um sex hundruð manns voru í ferjunni þegar hún fórst en þar af hafa um 250 bjarg- ast. Hundruð manna biðu flutninga- skipsins þegar það kom til hafnar í Makassar á Sulawesi-eyju. Leit stendur einnig yfir í nágrenni Sulawesi að flaki flugvélar sem fórst á nýársdag. 102 voru um borð. Enn verið að bjarga fólki Fimmtán fundust á björgunarbáti THABO Mbeki, forseti Suður-Afríku (t.v.) fagnar 95 ára afmæli Afríska þjóðarráðsins (ANC) ásamt Zulu-leiðtog- anum Jacob Zuma í Jóhannesarborg í gær. Zuma virðist ætla að eiga greiða leið aftur í forystusveit ANC eftir að ákæru á hendur honum fyrir nauðgun var vísað frá á síðasta ári. Áður hafði ákærum um spillingu verið vísað frá. Reuters Glatt á hjalla í Jóhannesarborg MJÖG er nú deilt í Danmörku um til- lögur sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram á þingi og miða að því að gera innflytjendum skylt að gangast undir próf þar sem kunnátta þeirra í dönsku og þekking á dönsku sam- félagi er könnuð áður en þeir fá leyfi til að sameinast fjölskyldu sinni í Danmörku. Er ætlunin að leggja samskonar próf fyrir trúarleiðtoga sem vilja setjast að í landinu, þ. á m. múslímaklerka, að sögn Berlingske Tidende. Ljóst er að umræddar tillögur eru runnar undan rifjum Danska þjóð- arflokksins, sem ekki á sæti í rík- isstjórn Venstre, og Íhaldsflokksins er veitir henni stuðning á þingi. En komið er babb í bátinn. Æ fleiri liðs- menn stjórnarflokkanna lýsa nú andstöðu við tillögurnar sem eiga sér fyrirmynd í lögum í Hollandi. „Það getur ekki verið rétt að við setjum lög um svo lítinn hóp af fólki,“ segir Eyvind Vesselbo, talsmaður Venstre í umhverfismálum. Danski þjóðar- flokkurinn mun hafa komist að því að með lögunum verði ekki komið bönd- um á marga af þeim múslímaklerk- um sem gagnrýndir hafa verið fyrir ofstæki og jafnvel dufl við stefnu hryðjuverkamanna. Herða kröfur til nýbúa Danir deila hart um nýjar tillögur Washington. AFP. | Öldungadeildar- þingmaður demókrata, Joseph Bi- den, hyggst sækj- ast eftir útnefningu flokks síns vegna for- setakosninganna bandarísku 2008. Biden hefur setið á þingi frá árinu 1972, en hann er 64 ára gamall. Hann reyndi fyrir sér í aðdraganda forvals demókrata 1988 en hætti við framboð. Biden hefur lengi verið áhrifamaður í bandarísk- um utanríkismálum og er nýtekinn við sem formaður utanríkismála- nefndar öldungadeildarinnar. Biden fer fram Joseph Biden Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is DÓMSTÓLAR í Írak hafa fellt niður allar ákærur gegn Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, vegna fjöldamorða á Kúrdum á níunda ára- tuginum en Saddam var líflátinn 30. desember sl. eftir að hafa verið fund- inn sekur í aðskildum réttarhöldum um morð á 148 sjítum í Dujail 1982. Margir Kúrdar eru ósáttir við að Saddam skyldi tekinn af lífi áður en búið var að ljúka réttarhöldum yfir honum vegna ofsókna hans gegn Kúrdum, 1980–88. Voru uppi vanga- veltur um að réttað yrði yfir Saddam vegna svonefndra Anfal-aðgerða, sem kostuðu a.m.k. 182.000 Kúrda lífið, jafnvel þó að hann sé látinn. Af því verður hins vegar ekki. Er ekki litið svo á að það sé gerlegt. Áfram verður hins vegar réttað yfir sex samverkamönnum Saddams, sem sakaðir eru um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni vegna Anfal- aðgerðanna. Meðal ákærðra er Ali Hassan al-Majid, sem stundum er nefndur „efnavopna-Ali“; hann er raunar sakaður um þjóðarmorð. Allir sakborningarnir eiga yfir höfði sér dauðadóm verði þeir fundn- ir sekir. Barzan Ibrahim, hálfbróðir Sadd- ams og yfirmaður leyniþjónustunnar í valdatíð hans, var dæmdur til dauða um leið og Saddam. Hið sama á við um Awad Hamed al-Bandar, fyrr- verandi yfirmann byltingarráðsins. Írösk stjórnvöld sögðu að dauða- dómum yfir þeim yrði framfylgt eftir Eid al-Adha-trúarhátíðina, en henni lauk fyrir sex dögum. Írösk stjórn- völd hafa sætt ámæli fyrir aðdrag- anda aftökunnar á Saddam og verið hvött til að taka tvímenningana ekki af lífi í bráð. BBC hefur hins vegar eftir embættismönnum að aftökun- um verði framfylgt í þessari viku. Mannfall þrefaldaðist Frá því er greint í The Wash- ington Post í gær að meira en 17.000 Írakar hafi týnt lífi á seinni helmingi ársins 2006; en um þreföldun var að ræða frá fyrri helmingi ársins. Sameinuðu þjóðirnar hafa áætlað að meira en 28.000 óbreyttir borg- arar hafi dáið í ofbeldisverkum á fyrstu tíu mánuðum ársins 2006. Fella niður allar frekari ákærur gegn Saddam Dauðadómi yfir Barzan Ibrahim og Awad Hamed al-Bandar framfylgt í vikunni? Reuters Bíða niðurstöðu Ali Hassan al- Majid í réttarsalnum í gær. Í HNOTSKURN »Fullyrt er að 5.640óbreyttir borgarar og lög- reglumenn hafi týnt lífi í of- beldisverkum á fyrra helmingi síðasta árs. Síðari sex mánuði ársins var talan 17.310. »Sakborningar í Anfal-réttarhöldunum segja að aðgerðirnar hafi verið lög- mætar aðgerðir yfirvalda gegn uppreisnaröflum, þ.e. Kúrdum sem studdu Írani í stríði landanna, 1980–1988. NÝJASTA tískubylgjan í New York gengur út á að gera borgina að bleiulausu svæði. Stofnuð hafa ver- ið samtök sem breiða út kenningar um að hægt sé að venja smábörn á að nota koppinn eða klósettið þegar á fyrstu vikum lífsins. The New York Post ræddi nýlega við Beth Schwartz sem á litla dótt- ur, Eden, sem nú er 15 mánaða gömul. Eden var aðeins fimm vikna þegar hún pissaði í klósett í fyrsta sinn og hefur varla notað bleiur eft- ir það. Aðferðin er sögð byggjast á því að foreldrar einbeiti sér að því að skilja margvísleg boð sem börn sendi frá sér um að nú þurfi þau að hægja sér, læri að lesa í líkamstján- ingu og ýmis hljóð. Kostirnir eru meðal annars sagð- ir vera að foreldrar nái góðu til- finningasambandi við börnin með því að fylgjast ávallt grannt með þeim til að geta brugðist fljótt við boðunum, eins og segir á vefsíðu samtakanna, DiaperFreeBaby.org. Strax á koppinn Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is LÍKUR eru leiddar að því í sænsk- um fjölmiðlum að utanríkisráðherr- ann og hægrimaðurinn Carl Bildt muni ef til vill verða að segja af sér. Hann er nú í kastljósi ríkissaksókn- ara landsins, Christer van der Kwast, vegna sölu hlutabréfa sinna í rússneska gas- og olíufélaginu Vo- stok Nafta þar sem Bildt sat í stjórn til skamms tíma. Hafa andstæðingar Bildts gefið í skyn að um óbeinar mútur hafi verið að ræða af hálfu Rússa þegar ráðherrann nýtti sér samninga um kauprétt. Bildt sagðist í útvarpsviðtali í gær fagna rannsókn saksóknarans. „Ég tel prýðilegt að botn fáist í málið,“ sagði hann. „Ég átti rétt á umbun fyrir þau störf sem ég hafði innt af hendi [fyrir Vostok Nafta].“ Hann var hins vegar afar ósáttur í sjón- varpsþætti hjá TV4 á sunnudags- kvöld og sakaði þáttastjórnandann Ulf Kristofferson um að ofsækja sig af flokkspólitískum ástæðum. „Þú veist að þetta er ósatt. Þú tekur þátt í að breiða út lygar,“ sagði ráð- herrann í þættinum. Bildt neitaði að svara spurningum um tengsl sín við rússneska fyr- irtækið. Danska blaðið Jyllands- posten segir Bildt hafa „gengið af göflunum“ þegar búið var að slökkva á upptökuvélunum, hann hafi steytt hnefann framan í Kristofferson. Bildt var forsætisráðherra Sví- þjóðar 1991–1994 og gegndi síðar mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir alþjóðasamfélagið á Balkanskaga. Flokksbróðir hans, Fredrik Rein- feldt forsætisráðherra varði Bildt í gærmorgun í viðtali við TV4. Sagðist Reinfeldt telja að ástæðan fyrir gagnrýninni á Bildt og gerðir hans væri að fæstir Svíar vissu hvað kaupréttarsamningar væru. Sé því auðvelt að gera þá sem hagnast á slíkum samningum tortryggilega. Þegar Bildt varð utanrík- isráðherra í október sagði hann af sér sem stjórnarmaður í Vostok Nafta. Sænskir fjölmiðlar segja að þar með hefði Bildt átt að missa kaupréttinn en hann hafi þrátt fyrir það fengið að kaupa bréfin. Bildt seldi hlutabréf sín í Vostok Nafta fyrir sem svarar tæplega 50 milljónum íslenskra króna í haust. Vostok Nafta byggir afkomu sína aðallega á hlutabréfum í rússneska gasfyrirtækinu Gazprom sem er að mestu í ríkiseigu og hyggst leggja gasleiðslu um Eystrasalt. Gagnrýn- endur Bildts telja hann vera í lyk- ilstöðu sem utanríkisráðherra til hafa áhrif á þá ákvörðun hvort Gazp- rom fær að leggja leiðsluna í grennd við eyjuna Gotland. Umrædd leiðsla er mikið hitamál, m.a. vegna deilna um hugsanlegar afleiðingar hennar á umhverfið. Reinfeldt forsætisráðherra segist ekki sjá neitt athugavert við að Bildt taki þátt í umfjöllun stjórnarinnar um málið og bendir á að allar ákvarðanir verði teknir af rík- isstjórninni í sameiningu. Kaupréttarsamningur sænska utanríkisráðherrans við rússneskt olíufyrirtæki Bildt sakaður um spillingu Reuters Þungar sakir Carl Bildt, utanrík- isráðherra Svíþjóðar. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.