Morgunblaðið - 09.01.2007, Page 21

Morgunblaðið - 09.01.2007, Page 21
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 21 Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Að hafa skipulögð og skýrmarkmið veitir fólki frelsi,“segir Þorsteinn Garð-arsson, viðskiptafræðingur og höfundur Framkvæmdabók- arinnar 2007. „Það er eitt sem við eig- um öll jafnmikið af – og það er tími. Það hefur enginn fleiri en 24 tíma í sólarhringnum, enginn fleiri en sjö daga í vikunni og enginn fleiri en 365 daga í árinu. Tímanum er hnífjafnt skipt á milli okkar,“ segir hann og brosir. „Líf okkar er þessi tími og það skiptir því miklu máli hvernig við för- um með hann. Kannanir hafa sýnt að 97% fólks setja sér ekki markmið. Ástæður þess eru m.a. þær að það hefur ekki fengið hvatningu, óttast að mistakast eða það veit ekki hvernig á að fara að því. Það er hins vegar eftir miklu að slægjast því það að hafa markmið kallar fram það besta í okk- ur og vísar okkur í rétta átt. Það eyk- ur sjálfstraustið og bætir sjálfs- ímyndina. Markmiðasetning er sterkasta aflið til þess að hvetja sjálf- an sig áfram, efla sköpunargáfuna og framkvæma.“ Skrifleg skuldbinding og markmið – En hvernig á að setja sér mark- mið? „Ég tel að viðhorf og gildi hverrar manneskju endurspeglist í mark- miðum hennar eða markmiðaleysi og þess vegna sé fyrst mikilvægt að gera sér grein fyrir þeim. Hugsun okkar mótast annars vegar af staðreyndum og hins vegar af viðhorfi okkar. Við ráðum sjaldnast nokkru um stað- reyndir og því þurfum við að temja okkur að horfast blákalt í augu við þær, hvort sem þær eru okkur í vil eða ekki. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að við getum valið með hvaða viðhorfi við mætum til verka og samskipta og hvaða viðhorf við höfum til okkar sjálfra. Gullnáma hvers og eins liggur í hugarfarinu. Þau viðhorf sem við veljum ráða árangri okkar. Þess vegna er mikilvægt að við séum meðvituð um viðhorf okkar og gildi. Það er mjög gott að skrifa gildi sín og viðhorf niður, t.d. í formi yfirlýs- inga, en þannig er auðvelt fyrir alla að sjá fyrir sér þá manneskju sem mað- ur vill vera. Ef eitt af viðmiðum þín- um er frumkvæði þá skaltu sjá þig fyrir þér sem þann sem hefur frum- kvæði. Dæmi um aðrar yfirlýsingar væru t.d.: „Ég tek á vandamálum af festu, ró og öryggi,“ eða „Jákvæðni mín vex dag frá degi.“ Í skriflegum yfirlýsingum af þessu tagi felst ákveðin skuldbinding.“ Sköpunin snýst um leiðirnar Þorsteinn, sem hefur haldið fjölda námskeiða um markmiðssetningu, segir að þegar fólk hafi skilgreint við- horf sín til starfs, samskipta og sjálfs sín veitist því auðveldara að setja sér markmið sem byggjast á þeim. „Það er gott að setja sér markmið fyrir allt árið og skrifa þau niður. Spurningar eins og: Hvað vil ég vera, eiga og gera á árinu? Hvers vegna vil ég það? Og síðast en ekki síst hvernig mun ég koma því í verk? Ársmarkmiðin get- um við kallað meginmarkmið en með vísun til þeirra er nauðsynlegt að fólk setji sér markmið í hverri viku til að vinna að. Þúsund mílna ganga hefst ávallt á fyrsta skrefinu.“ Hann hefur sérhannað fram- kvæmdadagbók til þess að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum og koma hlutum í verk. „Í þekking- arsamfélögum eru störf ekki eins sýnileg og í bændasamfélaginu. Þess vegna er mikilvægt að hafa verkfæri sem auka skilvirkni og draga jafn- framt úr streitu, sem er fylgifiskur margra starfa. Framkvæmdabókin er þetta skipulagsverkfæri, sem hjálpar þér að framkvæma. Þar hefurðu heildarsýn yfir öll þín mál á einni opnu sem nær yfir viku í senn. Hverri opnu er skipt í fjögur meginsvæði, í fyrsta lagi er þar dagbókarhluti, í öðru lagi dálkur fyrir smærri mál sem þarf að afgreiða í vikunni, í þriðja lagi dálkur fyrir markmið og verkefni vik- unnar og í því fjórða eru svo verkefni sem maður hefur framselt til annarra en þarf ef til vill að fylgja eftir. Þegar svo skipulag er komið á markmiðin þá þarf ekki lengur að velta því fyrir sér hvert er stefnt held- ur er hægt að beita sköpunargáfunni að því einu hvernig á að komast þang- að. Í því felst frelsið.“ Njóttu frelsis, nýttu tímann og framkvæmdu markvisst Morgunblaðið/G.Rúnar Sköpun Þorsteinn Garðarsson viðskiptafræðingur segir markmiðssetn- ingu vel til þess fallna að leysa sköpunargáfu fólks úr læðingi. Framkvæmdabókin Verkfæri til þess að hjálpa fólki að setja og ná markmiðum. Kannanir hafa sýnt að 97% fólks setja sér ekki markmið. Ástæður þess eru m.a. þær að það hefur ekki fengið hvatningu, óttast að mistakast eða það veit ekki hvernig á að fara að því. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali TIL FASTEIGNAEIGENDA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.