Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 6

Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð á 15 nátta vorferð til Costa del Sol 24. apríl til 9. maí. Bjóðum frábært tilboð á síðustu sætunum. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu vorsins á Costa del Sol. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Costa del Sol 24. apríl frá kr. 49.990 Síðustu sætin - 15 nátta ferð Verð kr. 49.990 - -15 nætur Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi/stúdíó/íbúð í 15 nætur, m.v. stökktu tilboð. Munið Mastercard ferðaávísunina RÍKISSTJÓRNIN heldur naum- lega velli ef marka má niðurstöður nýjustu skoðanakönnunar Capacent Gallups. Fylgið þarf lítið að hreyfast til að gjörbreyta stöðunni, meðal annars vegna þess að fylgi Íslands- hreyfingarinnar þarf ekki að aukast nema lítillega til að hún nái mönnum inn á þing. Könnunin var gerð dagana 28. mars til 2. apríl og náði til 1.610 manna úrtaks og var svarhlutfallið 61,8%. Útreikningar á þing- mannafjölda byggjast hins vegar á fylgi flokkanna í könnunum tvær síðustu vikunar. Samkvæmt þeim niðurstöðum fengi Sjálfstæðisflokk- urinn 27 menn kjörna og Framsókn- arflokkurinn fimm menn eða sam- tals 32 þingsæti af 63 á þingi. Vinstri grænir fengju 15 menn kjörna, Sam- fylkingin 13 og Frjálslyndir þrjá, en Íslandshreyfingin myndi ekki ná inn manni samkvæmt niðurstöðunum. Þegar fylgi flokkanna er skoðað eftir einstökum kjördæmum kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn er sterkastur í Kraganum þar sem hann fær tæp 47% atkvæða ef marka má niðurstöður könnunar- innar. Flokkurinn er með vel rúm- lega 30% atkvæða í öllum kjör- dæmum, en minnst er fylgið í Norðaustur- og Norðvest- urkjördæmi þar sem fylgið er rétt rúm 33%. Vinstri grænir eru með mest fylgi í Reykjavíkurkjördæmi norður þar sem þeir eru með 27,2% og minnst er fylgið í Norðvesturkjördæmi, 19%. Samfylkingin er einnig með mest fylgi í Reykjavíkurkjördæmi norður þar sem hún fær 22,9% en minnst er fylgið í Suðurkjördæmi, 16,7%. Hins vegar skiptir alveg í tvö horn með fylgi Framsóknarflokks- ins. Það er lítið í öllum þéttbýlis- kjördæmunum, minnst í Reykjavík- urkjördæmi norður, 2,7%, en til muna meira í landsbyggðarkjör- dæmunum og mest í Norðaust- urkjördæmi þar sem það er 19,6%. Frjálslyndir eru með mest fylgi í Norðvesturkjördæmi, 9,5%, og Suð- urkjördæmi 8%. Fylgi Íslandshreyf- ingarinnar er mest í Reykjavík- urkjördæmi norður þar sem það er 7,4%, en listinn þarf 9% til að ná inn manni þar og 5% á landsvísu til að fá þrjá uppbótarmenn. Stuðningur kynjanna er mjög mismunandi eftir flokkum, en hlut- fallslega mun fleiri karlar en konur styðja Sjálfstæðisflokkinn og Frjálslynda og öfugt hvað varðar Samfylkinguna og VG. Þannig styðja 27% kvenna VG og tæp 18% karla og 15% karla styðja Samfylk- inguna og 24% kvenna. Sjálfstæð- isflokkinn styðja hins vegar 45% karla og tæp 32% kvenna. Ríkisstjórnin heldur velli í skoðanakönnun Gallups               !"#$ %!"#$ %&"#$ "#$                                                                  Meirihlutinn einungis eitt sæti og lítið þarf að breytast til að ríkisstjórnin falli               !!" #   $%& '  !!(       '   '  '        !"#$% &" $  "&'   (                       )  #*  FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MJÖG fátítt er að ákært sé fyrir brot á 165. grein almennra hegning- arlaga og meint almannahættubrot af því tagi sem tveir menn eru ákærðir fyrir vegna mengunarslyss- ins í sundlaug á Eskifirði í júní í fyrra. Ákærurnar hafa verið þing- festar í Héraðsdómi Austurlands. Báðir mennirnir neita sök, að sögn Brynjars Níelssonar hrl., sem er verjandi annars mannsins. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa sýnt af sér gáleysi. Stöðvar- stjóra Olís er gefið að sök að hafa af- greitt 1.000 l. tank sem merktur var 80% ediksýra í stað 1.000 l. af 15% klórlausn og að hafa gefið undir- manni sínum fyrirmæli um að fara með tankinn og dæla innihaldi hans í klórtank sundlaugarinnar. Undir- manninum, sem var 17 ára þegar at- burðurinn átti sér stað, er gefið að sök að hafa dælt 200 l. af ediksýrunni í klórtankinn án þess að ganga úr skugga um hvort hann væri að dæla klórlausn. Í 165. gr. segir að; „Fang- elsi skal sá sæta, sem bakar öðrum tjón á lífi, líkama eða eignum, með því að valda sprengingu, útbreiðslu skaðlegra lofttegunda, vatnsflóði, skipreika, járnbrautar-, bifreiðar- eða loftfarsslysi eða óförum annarra slíkra farar- eða flutningatækja.“ Í ákæru er vísað í 167. grein þar sem segir að ef brot skv. 165. grein sé framið af gáleysi, þá varði það sekt- um eða fangelsi allt að 3 árum. Brynjar segir þarna byggt á hug- lægum saknæmisskilyrðum, spurn- ingin sé hvenær um gáleysi eða óhapp sé að ræða. ,,Þetta getur verið hárfín lína,“ segir hann. Fá og líkleg- ast engin fordæmi er við að styðjast enda um mjög huglægt mat að ræða. Sigríður Elsa Kjartansdóttir sak- sóknari segir rétt að mjög óvenju- legt sé að gefin sé út ákæra vegna brota sem talin eru upp í 165. grein. Um mjög óvenjulegt slys hafi verið að ræða. Ekki sé við mörg fordæmi að styðjast, enda atvik eins og þau sem tiltekin eru í þessu hegningar- lagaákvæði mjög sjaldgæf og ennþá sjaldgæfara að fundinn sé flötur á refsimeðferð á slíku máli. „Ákæruvaldið telur að um gáleys- isbrot hafi verið að ræða, það hafi ekki verið ásetningur þessara manna að valda þessari hættu. Þess vegna vísum við til 167. greinar þar sem heimild er til að refsa fyrir gáleysi.“ Brynjar er þeirrar skoðunar að ákæruvaldið gangi nokkuð langt að ákæra 17 ára ungling sem hlýðir fyr- irmælum yfirmanns um að fara með tank og dæla innihaldi hans í annan tank í sundlauginni. Sakaðir um refsivert brot af gáleysi „Langt gengið að ákæra 17 ára mann sem hlýðir fyrirmælum“ Morgunblaðið/ÞÖK Eitrað gas 45 einstaklingar urðu fyrir eituráhrifum vegna klórgassins í sundlaug Eskifjarðar. Sumir áttu við mikla öndunarerfiðleika að stríða Í HNOTSKURN »45 einstaklingar urðu fyrireituráhrifum klórgassins þegar þeir önduðu að sér gas- inu. »Mennirnir hafa báðir neit-að sök. Aðalmeðferð máls- ins hefst 22. maí. UNDIRRITAÐUR var í gær sam- starfssamningur milli Kaupþings, Taflfélagsins Hellis og hins efnilega skákmanns Hjörvars Steins Grét- arssonar, en hann er aðeins 13 ára. Markmiðið er að gera Helli kleift að stórauka þjálfun Hjörvars og þátt- töku hans í alþjóðlegum skákmótum innanlands og erlendis. Um er að ræða mikil tímamót inn- an skákhreyfingarinnar hér á landi en þetta er í fyrsta sinn sem fyrir- tæki gerir slíkan samning við skák- mann og taflfélag. Hjörvar hefur náð eftirtektar- verðum árangri á síðustu árum þrátt fyrir ungan aldur. Hann er marg- faldur Íslands- og Norðurlanda- meistari og sá yngsti í íslenskri skák- sögu sem teflt hefur í landsliðsflokki Skákþings Íslands. Er það allra von að samningurinn greiði enn betur en ella fyrir leið Hjörvars til meiri afreka. Tímamót í skák- þjálfun Morgunblaðið/Ómar Skák Ingólfur Helgason forstjóri Kaupþings leikur fyrsta leiknum fyrir Hjörvar Stein Grétarsson. STARFSMENN fram- kvæmdasviðs Reykjavík- urborgar brugð hart við og hreinsuðu veggjakrot af Hljómskálanum við Tjörnina í Reykjavík með öflugum tækjum, há- þrýstidælum og öðru slíku, en veggir skálans voru orðnir útbíaðir í kroti, eins og sjá mátti á mynd sem birtist í Morg- unblaðinu í gær. Nú er allt annað upp á ten- ingnum og veggir skálans aftur drifhvítir. Veggjakrotið horfið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.