Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
hefur verið úrskurðaður í fimm
vikna gæsluvarðhald eftir lífs-
hættulega hnífstunguárás á þriðju-
dagskvöld. Hann hefur játað að
hafa stungið tæplega fimmtugan
karlmann tvívegis og fór hnífurinn
t.a.m. í gegnum hjarta fórnar-
lambsins. Sekúnduspursmál var
hvort fórnarlambið lifði árásina af
en hann liggur á gjörgæsludeild og
er ástand hans stöðugt.
Aðdragandi árásarinnar er ekki
að fullu ljós en samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu sátu fimm karl-
menn á fimmtugs- og sextugsaldri
að drykkju heima hjá einum
þeirra. Ekki liggur fyrir hvað
gerðist en af einhverjum ástæðum
brá einn mannanna sér inn í eld-
hús íbúðarinnar, sótti hníf og réðst
að félaga sínum og stakk hann tví-
vegis.
Mennirnir hringdu sjálfir á lög-
reglu sem kom á staðinn ásamt
sjúkraliði. Fórnarlambið var flutt í
skyndi á slysadeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss en hinir gistu
fangageymslur. Einn þeirra játaði
og hefur eins og áður segir verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hin-
um mönnunum var sleppt í gær.
Með djúp sár á brjóstkassa
Samkvæmt upplýsingum frá
LSH var það fyrir snarræði og
sérstaklega góð viðbrögð að fórn-
arlambið lifði árásina af. Ágúst
Hilmarsson deildarlæknir var einn
af fyrstu mönnum á vettvang og
mat aðstæður svo að engan tíma
mætti missa. Maðurinn var með
litla meðvitund og djúp sár á
brjóstkassa. Kallaði hann því eftir
miklum viðbúnaði á bráðamótttök-
unni, og hjartaskurðlækni.
Hjartaskurðlæknirinn Tómas
Guðbjartsson var kallaður út en
hann var á svonefndri bundinni
vakt á Landspítalanum við Hring-
braut. Þegar hann fékk tilkynn-
inguna voru fimm mínútur í að
komið yrði með fórnarlambið niður
í Fossvog.
Tómas var fluttur niður eftir í
lögreglubifreið og var þangað
kominn tveimur mínútum á eftir
fórnarlambinu. Nánast á sama
tíma stöðvaðist hjarta mannsins og
grípa þurfti til aðgerða samstund-
is.
Afar sjaldgæft er að aðgerðir
séu gerðar í bráðamóttökunni en
eftir að Tómas hafði beitt hjarta-
hnoði og hjarta mannsins sló að
nýju var ekki annað í stöðunni. Að-
gerðin gekk vel.
Liggur alvarlega slasaður
Ófeigur Þorgeirsson, yfirlæknir
á slysa- og bráðasviði LSH, segir
að viðbrögðin hafi verið til fyr-
irmyndar og á spítalanum séu
menn ánægðir með hvernig til
tókst. Margir starfsmenn áttu þátt
í björgun mannsins og hvert skref
heppnaðist vel. Hann segir að
þarna hafi afar litlu mátt muna en
bendir jafnframt á að maðurinn sé
enn á gjörgæsludeild, og þó svo að
ástand hans sé stöðugt sé hann al-
varlega slasaður.
Hugað líf eftir hníf-
stungu í hjartastað
Árásarmaðurinn var í gær úrskurðaður í fimm vikna gæslu-
varðhald Aðdragandi árásarinnar er ekki að fullu ljós
Morgunblaðið/Júlíus
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
NORRÖNA, farþega- og flutninga-
ferja Smyril-Line, slitnaði frá
hafnarbakkanum á Seyðisfirði í
fyrrinótt þegar skyndilega gerði
vitlaust veður. Áhöfninni tókst að
ræsa vélar skipsins áður en allar
festingar fóru og sigldi skipinu í
var úti fyrir Seyðisfirði. Ekki urðu
slys á mönnum, né skemmdir á
skipi eða hafnarlægi.
„Það skeði í sjálfu sér ekkert,
það er enginn slasaður og engar
skemmdir urðu,“ sagði Jónas Hall-
grímsson hjá Austfari í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Þetta er eins
og hvert annað óhapp og skipið var
forsvaranlega bundið. Áhöfnin er
mjög vel þjálfuð, æfingar eru
reglulegar í öllum mögulegum
hlutum og öll viðbrögð voru hár-
rétt.“
Jónas segir veðrið hafa komið
algjörlega óvænt og engu slíku
hefði verið spáð, þ.e. 35–40 m/sek
og ekki nein aðvörun í gangi. Þeg-
ar gerði svo vitlaust veður um
fimmleytið í morgunsárið tóku
festingar skipsins að slitna, en
skipið er bundið með tólf tógum að
aftan og framan sem hvert og eitt
á að þola 110 tonn. „Þetta er ekk-
ert smotterí sem þarna hefur
gengið á,“ segir Jónas og bætir við
að vindurinn hafi komið aftan á
hliðina. Áhöfninni hafi tekist að
ræsa vélarnar með það sama áður
en skipið slitnaði alveg frá eða fór
nokkuð að reka. Skipstjóranum
hafi þannig strax tekist að ná valdi
á skipinu og því ekki hætta á ferð.
Hitaskot myndar ofsarok
Skipinu var strax siglt út fyrir
fjörðinn þar sem var rólegra veð-
ur. Reynt var að koma skipinu í
höfn um hádegisbilið í gær, en þá
var enn of hvasst og tókst ekki
fyrr en eftir kl. 14 að leggja skip-
inu að hafnarbakkanum. „Það get-
ur verið afar misvindasamt í þess-
um þröngu fjörðum og þegar
verður skyndilega svona ofsalegur
hiti eins og varð í gær og nótt (á
þriðjudag og aðfaranótt miðviku-
dags, innsk.blm.) þá geta myndast
þessar aðstæður.“ Jónas segist
muna eftir svipuðu tilviki í Seyð-
isfirði einu sinni áður, en þar var
þó ekki um Norrönu að ræða held-
ur fraktskip á hans vegum. „Þá
vaknaði ég um miðja nótt, í húsi
við hlið hafnarinnar, við einhver
læti og þá var farið að fjúka á
höfninni og þegar ég leit út um
gluggann sá ég að skipið lá þvert á
bryggjuna á einum kaðli. Mér
tókst að vekja áhöfnina og þeir
gerðu nú ekkert annað en að slíta
það sem eftir var og sigla burt, það
var ekki um annað að ræða. Svona
getur rokið upp með ofsalegum
vindi. En þetta gerist ekki oft, sem
betur fer.“
Norröna er 164 metrar að lengd,
30 metrar á breidd og 4.300 tonn,
tekur 1.482 farþega og 118 manns í
hámarksáhöfn. Í gær voru um 70
manns í áhöfninni. Ekki fara fram
sjópróf vegna atviksins.
Erfiður vetur en bjart í sumar
Veturinn hefur verið erfiður í
hafi og hefur Norröna ekki farið
varhluta af því. Jónas segir vet-
urinn hafa verið óvenjulegan og öll
skip meira eða minna lent í ein-
hverjum vandræðum. Þetta sé
þriðji veturinn sem Norröna sigli
og ekki áður verið viðlíka tafir
vegna veðurs. Hins vegar sé mjög
bjart framundan í sumar, bókanir
góðar og full ástæða til bjartsýni.
Norræna fór frá Seyðisfirði sam-
kvæmt áætlun í gærdag með um
370 farþega.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Átök Betur fór en á horfðist er Norröna slitnaði frá bryggju í ofsaroki
snemma í gærmorgun. Ekki var hægt að binda hana við bryggju fyrr en
um miðjan dag í gær vegna veðurs.
Skipstjórinn snar-
aði vélunum í gang
og sigldi í var
Norröna slitnaði frá bryggju á Seyðisfirði
þegar skyndilega gerði ofsaveður
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, er á ferð í Bandaríkj-
unum og hefur í gær og í fyrradag
heimsótt og flutt fyrirlestur í Har-
vard-háskóla og MIT, sem er einn
helsti vísinda- og tækniháskóli
Bandaríkjanna, en þá var einnig
kynntur nýr samstarfssamningur
MIT við Háskólann í Reykjavík.
Forseti Íslands flutti fyrirlest-
urinn við Harvard í boði hins virta
prófessors Michaels Porters sem er
heimsþekktur fyrir rannsóknir á
samkeppnishæfni þjóða. Fyrirlest-
urinn sóttu stúdentar frá um fimm-
tíu þjóðlöndum og tók forsetinn þátt
í um fjögurra klukkustunda sam-
ræðum um árangur Íslendinga á
undanförnum árum og tækifæri
lands og þjóðar í framtíðinni. Fyr-
irlestur forseta verður hluti af náms-
efni um Ísland sem Harvard Bus-
iness School dreifir til um 100
háskóla um allan heim, en forsetinn
fjallaði um íslenskt viðskiptalíf og
þróun þess undanfarna áratugi og
sókn þess á alþjóðlegum markaði
undanfarið.
Í MIT átti forsetinn viðræður við
forsvarsmenn háskólans og vís-
indamenn á sviði orku- og loftslags-
mála, m.a. Ernest J. Moniz, sem
stýrir orkusetri MIT, og Ronald G.
Prinn, sérfræðing á sviði loftslags-
mála. Þá átti forseti ítarlegan fund
með Jeffrey Tester prófessor en
hann er aðalhöfundur nýrrar
skýrslu um jarðhita í Bandaríkj-
unum og mögulega nýtingu hans
sem vakið hefur mikla athygli, að því
er fram kemur í frétt.
Í för með forseta voru Svafa Grön-
feldt, rektor HR, og Ágúst Valfells,
forstöðumaður Orkurannsóknaset-
urs HR. Þau kynntu nýjan sam-
starfssamning við MIT og tóku þátt
í viðræðum um samstarf á sviði vist-
vænnar orku, en samningurinn veit-
ir íslenskum fyrirtækjum tækifæri
til þess að nýta sér sérþekkingu sér-
fræðinga MIT á ýmsum sviðum.
Fundur Ólafur Ragnar ræddi við prófessor Michael Porter við Harvard-háskóla í Boston í Bandaríkjunum.
Forseti Íslands í Harvard