Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÚR VERINU
Eftir Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur
Vestmannaeyjarr | Fjölmenni var á
bryggjunni í Vestmannaeyjahöfn
þegar nýtt Gullberg VE 292 kom til
nýrrar heimahafnar. Skipið er hið
glæsilegasta í alla staði.
Það er Ufsaberg ehf. sem kaupir
skipið en félagið gerði áður út upp-
sjávarskip með sama nafni en nú er
verið að skipta yfir í bolfisk. Ufsa-
berg er fjölskyldufyrirtæki og fyrir
því fer Eyjólfur Guðjónsson skip-
stjóri.
Hann sagði vissulega ánægjulegt
að koma með nýtt skip. „Við keypt-
um skipið frá Ástralíu í nóvember í
fyrra en sigldum því heim frá Esb-
jerg í Danmörku þar sem því var
breytt úr frystiskipi í ferskfiskskip,“
sagði Eyjólfur. Skipið er sjö ára
gamalt.
Verður ekki sjálfur um borð
Ufsaberg er rótgróið útgerðarfyr-
irtæki í Vestmannaeyjum, stofnað
árið 1969 og hefur gert út skip með
Gullbergsnafninu síðan og þetta er
fjórða skipið sem félagið gerir út með
þessu nafni. Eyjólfur hefur lengst af
verið loðnuskipstjóri en segist ekki
verða sjálfur um borð í nýja skipinu,
að minnsta kosti ekki til að byrja
með. „Útgerðarmynstrið er breytt
frá því sem verið hefur, landanir
vikulega og það þarf að ráðstafa afl-
anum og það verður í mínum verka-
hring. Umsvifin verða meiri í landi
en við fyrri skipin.“
Þegar Eyjólfur er spurður út í
kvótastöðuna segir hann útgerðina
ráða yfir 1.600 þorskígildum í veiði-
heimildum en þurfi að hafa 2.000.
Það er stefnan að bæta við heim-
ildum.
Eyjólfur segir vissulega spennandi
að vera kominn aftur í útgerð eftir
u.þ.b. árs hlé en þetta sé alltaf spurn-
ing um umhverfið í sjávarútvegi.
„Þetta er spennandi ef við fáum að
vinna í umhverfi sem við þekkjum.
En það er mjög erfitt að geta ekki
hugsað þetta nema eitt kjörtímabil í
einu. Auðvitað er þetta spennandi ef
rétt er staðið að málum því sjávar-
útvegur er stóriðja okkar hér í Eyj-
um. Við ætlum að reyna að gera sem
mest úr aflanum og landa á markað
hér heima eða í gáma eftir því hvað
maður telur best hverju sinni, “ sagði
Eyjólfur hæstánægður með að vera
kominn með nýtt skip til Eyja.
Dregur tvö troll
Helgi Ágústsson, skipstjóri á Gull-
bergi VE, vonast til að komast á sjó
sem fyrst með nýja skipið enda há-
vertíð og fínt fiskirí á miðunum.
Hann sagði ekki hægt annað en að
vera ánægður með skipið enda allur
aðbúnaður mjög góður.
Hann getur þess að skipið geti
dregið tvö troll í einu og bindur vonir
við að það verði árangursríkt. Meiri
afli fáist og væntanlega verði ódýr-
ara að ná honum.
Helgi segist ánægður og spenntur
að byrja veiðar á skipinu enda sé
þetta öflugt skip. „Það er vertíð og
vonandi verður nógur fiskur þegar
við förum af stað. Það eru allir já-
kvæðir og ánægðir að fá svona at-
vinnutæki í bæinn. Svo eru margfeld-
isáhrif af hverju skipi sem kemur í
bæinn og öll þjónusta í kringum
þetta. Ágætlega hefur gengið að
manna skipið enda er góður aðbún-
aður um borð, stutt útivera og til-
tölulega reglulegur vinnutími. Ef vel
gengur, geta menn fengið ágætisfrí á
milli en tólf eru í áhöfn um borð og
það geta verið þrír til fimm menn í
afleysingum Menn vita nokkurn veg-
inn að hverju þeir ganga og geta haft
ágætar tekjur ef aflaheimildir eru
nægar og fiskverð þokkalegt,“ sagði
Helgi ánægður.
Ætlum að gera sem mest úr aflanum
Nýju skipi fagnað Fjölskyldan við komu Gullbergs á þriðjudaginn, Sigríð-
ur Bragadóttir eiginkona Eyjólfs Guðlaugssonar útgerðarmanns og Eyjólf-
ur með dæturnar Elínu Sólborgu og Guðrúnu Eydísi.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Skipið Gullberg VE 292 er hið glæsilegasta skip þegar það siglir til hafnar.
Nýtt Gullberg
VE skiptir
yfir í bolfisk
Í HNOTSKURN
»Gullberg VE 292 er 37metra langt og 10,4 metra
breitt. Það var smíðað í Nor-
egi árið 2000.
»Skipið var keypt í Ástralíuen breytt í Danmörku. Það
reyndist vel á heimsigling-
unni.
» Í skipinu eru góðar íbúðirfyrir 15 manns, sturta og
salerni í hverjum klefa.
»Skipið er vel búið tækjum.Í fyrra var sett upp veið-
arfærastýring fyrir 30 millj-
ónir kr. og ekkert annað ís-
lenskt skip er með slík tæki.
Associated Press. | Þegar komm-
únistunum var steypt af stóli í Mið-
og Austur-Evrópu héldu kapítalist-
arnir innreið sína. Erlend fyrirtæki
á borð við McDonald’s og Microsoft
hugsuðu sér gott til glóðarinnar og
voru fljót að grípa viðskiptatækifær-
in í nýju lýðræðisríkjunum sem buðu
upp á ódýrt vinnuafl og um 70 millj-
ónir hugsanlegra viðskiptavina.
Nú þegar átján ár eru liðin frá því
hruni kommúnismans er farið að
bóla á fyrstu merkjunum um að senn
fari að draga úr uppganginum mikla
sem verið hefur í Mið- og Austur-
Evrópulöndunum síðustu árin.
Laun, fasteignaverð og skattar
hafa hækkað verulega í löndunum og
fyrirtæki, sem hyggja á útvistun
framleiðslu eða þjónustu, telja þau
ekki jafnhagkvæman kost og áður.
Sérfræðingar segja að þessi
breyting sé enn óveruleg – í sumum
tilvikum vart merkjanleg – en þeir
vara við því að aukin hagsæld og
bætt lífskjör geta orðið til þess að
löndin verði of dýr fyrir fyrirtæki
sem hyggja á útvistun.
„Þetta hefur gerst áður – í
Mexíkó, Singapúr, Taílandi – og
þetta heldur áfram að gerast svo
lengi sem til eru ódýrari staðir sem
fyrirtækin geta fært sig á,“ sagði
Charlie Barnhart, ráðgjafi á sviði út-
vistunar í Kaliforníu. Hann spáir því
að verulega dragi úr útvistun fram-
leiðslu til Mið- og Austur-Evrópu á
næstu þremur árum.
Byrjuð að flytja starfsemina
Þessi þróun er þegar hafin. Á
meðal fyrirtækja sem hafa dregið úr
starfsemi sinni í þessum löndum eða
jafnvel hætti henni alveg eru eft-
irtalin:
Delphi, bandarískur bílaparta-
framleiðandi, hefur flutt hluta fram-
leiðslu sinnar frá Tékklandi, þar sem
verkafólkið fær sem svarar 400
krónum á tímann, til Úkraínu þar
sem tímakaupið nemur aðeins rúm-
um 100 krónum.
Lauma, fyrirtæki sem fram-
leiðir undirfatnað kvenna, hyggst
hætta framleiðslu í Lettlandi og
flytja hana til Hvíta-Rússlands og
Úkraínu.
Lidl, matvöruverslanakeðja
með höfuðstöðvar í Þýskalandi, seldi
um 50 lóðir í Eistlandi og Lettlandi,
þar sem fyrirtækið hugðist reka
verslanir, eftir að stjórnendur þess
komust að því að rekstrarkostnaður-
inn var miklu hærri í Eystrasalts-
löndunum en þeir höfðu gert ráð fyr-
ir.
Rússland og Úkraína
miklu ódýrari
Guntis Strazds, formaður sam-
taka vefnaðarfyrirtækja og fata-
framleiðenda í Lettlandi, segir að
skortur á vinnuafli og hækkandi
vinnukostnaður verði til þess að fyr-
irtækin flytji allt að 40% framleiðsl-
unnar til ódýrari landa „í náinni
framtíð“.
Starfsmaður bandarísks fyr-
irtækis í Ungverjalandi sýndi frétta-
manni Associated Press línurit og
fleiri gögn sem fyrirtækið notar þeg-
ar það ákveður hvar reisa eigi nýjar
verksmiðjur. Þar kemur fram að
Rússland og Úkraína eru miklu
ódýrari en Pólland, Ungverjaland og
Rúmenía.
Taka ber fram að því fer fjarri að
fjöldaflótti vestrænna fyrirtækja sé
hafinn og því er spáð að störfum
haldi áfram að fjölga í Mið- og Aust-
ur-Evrópulöndunum næstu tvö árin.
Ólíklegt er einnig að fyrirtæki, sem
hafa ráðist í miklar fjárfestingar í
löndunum, til að mynda bílaverk-
smiðjur, flytji starfsemina til ann-
arra landa.
Hækka um allt að 20% á ári
Sérfræðingarnir segja þó óhjá-
kvæmilegt að breyting verði á.
Einn þeirra bendir á að í Póllandi
sé gert ráð fyrir því að launahækk-
anirnar verði í fyrsta skipti hærri en
framleiðniaukningin í ár. Þetta er
mikilvægt vegna þess að mikil fram-
leiðni hefur gert Pólland að væn-
legum fjárfestingarkosti fyrir vest-
ræn fyrirtæki.
Charlie Barnhart segir að lönd
teljist ekki vænleg til útvistunar
framleiðslu eða þjónustu þegar laun-
in eru orðin um 70–75% af laununum
í Bandaríkjunum og þegar hráefnin
eru ekki lengur að minnsta kosti 8–
10% ódýrari. Við það batnar sam-
keppnisstaða landa á borð við Ind-
land og Kína þar sem launagreiðsl-
urnar eru aðeins um 3% af
launakostnaðinum í Bandaríkjunum.
Í Rúmeníu eru launin þegar orðin
um 50% af laununum í Bandaríkj-
unum og hækka um 20% á ári.
Af Mið-Evrópulöndunum eru
meðallaunin hæst í Tékklandi þar
sem þau hækkuðu um 6,5% á síðasta
ári. Þótt þau verði ekki jafnhá og í
Þýskalandi fyrr en í fyrsta lagi árið
2037 nálgast þau meðallaunin í Vest-
ur-Evrópu.
Bætt kjör draga úr útvistuninni
AP
Aukin hagsæld Kona tekur út peninga í hraðbanka í Varsjá. Í ár bregður
svo við að launahækkanir í Póllandi eru meiri en framleiðniaukningin.
Líkur á að verulega dragi úr útvistun framleiðslu til landa í Mið- og Austur-Evrópu á næstu árum
» Skortur á vinnuafli
og hækkandi vinnu-
kostnaður gæti orðið til
þess að vefnaðarfyr-
irtæki í Lettlandi flytji
allt að 40% framleiðsl-
unnar til ódýrari landa í
náinni framtíð.