Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
VERKFRÆÐI
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
70
12
0
4/
07
OPIÐ HÚS
miðvikudaginn 11. apríl kl. 16–18, Tæknigarði, Dunhaga 5
MEISTARANÁM VIÐ VERKFRÆÐIDEILD HÍ
MARKVISST OG ÖFLUGT NÁM Á TRAUSTUM GRUNNI
■ Byggingarverkfræði
■ Eðlisverkfræði NÝTT*
■ Fjármálaverkfræði NÝTT*
■ Hugbúnaðarverkfræði
■ Iðnaðarverkfræði
■ Lífverkfræði NÝTT*
■ Matvælaverkfræði NÝTT*
■ Rafmagns- og tölvuverkfræði
■ Reikniverkfræði NÝTT*
■ Tölvunarfræði
■ Umhverfisverkfræði
■ Vélaverkfræði
Um 100 námskeið í boði
Kennarar í fremstu röð á sínu sviði
Nálægð stúdenta við kennara auðveldar
námið
Góð vinnuaðstaða
Ýmsir möguleikar á styrkjum
Sterk tengsl við atvinnulífið
Einfalt að taka hluta námsins erlendis
hjá virtum samstarfsskólum
■
■
■
■
■
■
■
Komdu í heimsókn og fáðu nánari upplýsingar – við tökum vel á móti þér!
Umsóknarfrestur er til 20. apríl
www.verk.hi.is
*Stefnt er að því að nám hefjist haustið 2007
NANCY Pelosi, forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings, ræddi
við Bashar al-Assad, forseta Sýr-
lands, í Damaskus í gær og sagði
hann vilja hefja friðarviðræður við
stjórn Ísraels.
Pelosi kvaðst einnig hafa fært As-
sad skilaboð frá Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, um að Ísrael-
ar vildu einnig viðræður við
Sýrlendinga.
Pelosi sagðist hafa áhyggjur af
meintum tengslum Sýrlandsstjórnar
við Hamas-hreyfingu Palest-
ínumanna og Hizbollah-hreyfinguna
í Líbanon. Hún lagði áherslu á að
Sýrlendingar gætu gegnt mikilvægu
hlutverki í friðarviðræðum milli Pal-
estínumanna og Ísraela.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hafði gagnrýnt ferð Pelosi til
Sýrlands, sagt hana senda Sýrlend-
ingum „óeðlileg skilaboð“ sem
græfu undan stefnu stjórnarinnar í
Washington.
Nancy Pelosi segir Assad vilja
friðarviðræður við Ísraela
Reuters
Umdeildur fundur Nancy Pelosi
heilsar Bashar al-Assad.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins
hefur veitt flugfélögum og stjórnvöldum í aðild-
arlöndum sambandsins hálfs árs frest til að
tryggja að farþegar fái bætur þegar flugferðum
er frestað eða aflýst.
Síðastliðin tvö ár hafa flugfélög í löndum Evr-
ópusambandsins átt að greiða farþegum allt að 600 evrur, sem svarar um
52.000 krónum, í bætur þegar flugi er aflýst. Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins segir að farþegunum sé þó oft ekki sagt frá þessum réttindum
og á ári hverju segjast þúsundir farþega ekki fá bæturnar greiddar.
Framkvæmdstjórnin hótar að höfða mál gegn flugfélögunum geri þau
ekki bragarbót á þessu. Hún hyggst einnig senda eftirlitsmenn á flugvelli
til að rannsaka málið á næstu sex mánuðum.
„Við verðum að tryggja að flugfélögin og aðildarlöndin fari í einu og öllu
eftir reglunum,“ sagði Jacques Barrot, sem fer með samgöngumál í fram-
kvæmdastjórninni.
Flugfélög greiði farþegum
bætur ef flugi er frestað
SÆNSKUM vísindamönnum hefur
tekist að græða leg í fjórar ær sem
urðu lembdar. Hafa ígræðslurnar
vakið von um að síðar verði hægt
að framkvæma aðgerðina á konum.
Ein helsta áskorunin var að græða
æðar við vöðvakerfið og lifðu ærn-
ar 14 ekki allar tilraunina af, skv.
tímaritinu New Scientist. Legin
voru úr ánum sjálfum en næst verð-
ur reynt að græða úr öðrum.
Græddu leg í ær
ORRUSTUFLUGVÉLAR stjórnarhersins á Srí Lanka lögðu í rúst helstu
flotastöð uppreisnarmanna úr röðum Tamíl-Tígranna í sprengjuárás í gær,
að því er talsmenn varnarmálaráðuneytisins fullyrtu. „Stöðin var gjör-
samlega eyðilögð, þar með taldar eldsneytisbirgðageymslur, sem brunnu
upp í ljósum logum,“ sagði í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Mikið ber á milli í frásögnum fylkinganna af atvikinu og sögðu talsmenn
Tígranna að enginn hefði týnt lífi í árásinni sem hefði verið gerð skammt
frá hjálparsamtökum sem aðstoða fórnarlömb jarðsprengna.
„Þetta var ekki bækistöð Tígranna. Sjórinn er í um 15 kílómetra fjar-
lægð frá staðnum þar sem sprengjurnar féllu,“ sagði Navaruban Selvy,
talskona Tígranna. Þá féllu tveir óbreyttir borgarar og fjórir slösuðust í
loftárás hersins skammt frá, að því er haldið er fram á vefsíðu Tígranna.
Flotastöð Tígranna eyðilögð?
BARACK Obama, öldungadeild-
arþingmaður demókrata á Banda-
ríkjaþingi, hefur safnað sem nemur
um 1.700 milljónum króna í kosn-
ingasjóð, eða svipaðri upphæð og
Hillary Clinton, helsti keppinautur
hans, um að hljóta útnefningu
flokksins, fyrir framboð til forseta-
kosninganna 2008.
Jafnar við Clinton
FJÁRHAGSAÐSTOÐ ríkustu þjóða
heims til þróunarlandanna dróst
saman um sem nemur þremur millj-
örðum punda, eða um 395 millj-
örðum króna, í fyrra, þrátt fyrir
fögur fyrirheit um aukin framlög.
Þetta kemur fram í nýjum gögnum
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar, OECD, í París, sem birt voru
í gær. Niðurfelling skulda er sögð
eiga þátt í þessum samdrætti.
Aðstoðin minnkar
TAÍLANDSSTJÓRN hefur látið
skrúfa fyrir aðgang að netveitunni
YouTube eftir að þar birtist stutt
myndskeið sem talið var móðgandi
fyrir Bhumibol Adulyadej konung.
Flestir Taílendingar bera geysilega
virðingu fyrir konungnum sem
kemst nálægt því að vera í guðatölu
hjá mörgum. Talsmenn Google
neita hins vegar að fjarlægja efnið,
grófari myndskeið af George W.
Bush Bandaríkjaforseta séu þar í
umferð. Stutt er síðan Tyrkir lok-
uðu fyrir veituna eftir að myndbrot
var talið móðgandi fyrir Mustafa
Atatürk, fyrrverandi forseta.
Slíkum móðgunum er tekið afar
alvarlega syðra og fyrir skömmu
var svissneskur maður dæmdur í
tíu ára fangelsi fyrir að sýna vegg-
spjöldum af konungi óvirðingu.
Skrúfað fyrir
YouTube syðra
Virðing Bhumibol er dáður mjög.
Teheran. AFP. | Stjórnvöld í Íran slepptu í gær
fimmtán breskum sjóliðum sem höfðu verið í
haldi í hálfan mánuð.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, til-
kynnti að sjóliðarnir yrðu látnir lausir sem
„gjöf til bresku þjóðarinnar“ þótt Íranar hefðu
rétt til að sækja þá til saka fyrir að rjúfa land-
helgi Írans. Sjóliðarnir voru handteknir í
Persaflóa þegar þeir voru í eftirlitsferð milli
Íraks og Írans. Íranska ríkissjónvarpið sýndi
myndir af sjóliðunum með Ahmadinejad. „Við
erum þakklát þér fyrir að fyrirgefa okkur,“
heyrðist einn sjóliðanna segja við forsetann.
Ahmadinejad sagði að breska stjórnin hefði
sent írönskum ráðamönnum bréf þar sem hún
lofaði því að Bretar myndu ekki rjúfa landhelgi
Írans aftur.
Handtakan hafði valdið mikilli spennu í sam-
skiptum Breta og Írana. Bresk og bandarísk
stjórnvöld fögnuðu yfirlýsingu Ahmadinejads
og ættingjar og vinir sjóliðanna skáluðu í
kampavíni í Bretlandi.
Íranar sleppa sjóliðunum
Ahmadinejad
STUÐNINGSMENN Viktors Jústsjenkós, forseta Úkra-
ínu, halda hnefunum á loft andspænis stuðnings-
mönnum Viktors Janúkovítsj forsætisráðherra sem
mótmæltu þeirri ákvörðun forsetans á mánudag að
leysa þingið upp. Þúsundir manna tóku þátt í mótmæl-
um andstæðinga forsetans á götum Kíev í gær.
Reuters
Þingrofi mótmælt í Úkraínu
ÞAÐ FÓR vel á með Bandaríkja-
mönnunum Jason Moore og John-
Paul Skamarski þegar þeir fengu
sér í glas í ágúst sl. Þegar vinurinn
var sofnaður brá Moore sér í gervi
hryllingssöguhetjunnar „Freddy
Krueger“, sem er vopnaður járn-
nöglum, og særði félagann. Hans
bíður nú nokkurra ára fangelsi.
Afdrifaríkt fyllerí