Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
FYRIR tveimur árum fundust vest-
ur í Ameríku áður óþekkt málverk,
sem litu út fyrir að geta verið eftir
málarann kunna Jackson Pollock.
Málverkafundurinn olli töluverðu
uppnámi meðal listfræðinga og
hvelli, sem enn hefur ekki þagnað til
fulls. Málverkin hafa verið rann-
sökuð í þaula af sérfræðingum, efna-
greind og reyndar greind á þá allra
handa máta sem þekkjast, bæði í
Harvardháskóla og víðar. Nið-
urstaða rannsóknanna leiddi til þess
að Pollock-sérfræðingar sem áður
áttu sér engin sérstök deiluefni,
skiptast nú í tvær fylkingar sem eiga
í hatrömmum deilum um uppruna
nýfundnu málverkanna. Deilan er nú
farin að bergmála inn í listheiminn
og listmarkaðinn.
Búið að selja nokkur verk
Maðurinn sem fann málverkin,
Alex Matter, sonur góðvina Pol-
locks, Herberts og Mercedes Mat-
ter, hefur selt nokkur málverkanna
og farið leynt með söluna, en hann
hafði áður lýst því yfir í fjölmiðlum,
að hann hefði engan áhuga á að
hagnast á fundi málverkanna um-
deildu. Matter hefur ekkert opinber-
að um sölu neinna af verkunum þrjá-
tíu og tveimur.
Ellen Landau, einn helsti sérfræð-
ingur heims um verk Pollocks hefur
sagst trúa því að fundnu verkin væru
eftir hann. Nýjustu vísindarann-
sóknir benda þó til þess að þau séu
það ekki.
Enginn friður í bráð
Vísbendingar um að Matter hefði
selt einhver verkanna komu í ljós
þegar Charles Bergmann stjórnandi
Pollock-Krasner stofnunarinnar,
sem hefur umsjón með arfi Pollocks
hitti Ronald Feldman galleríeiganda
í New York, sem kvaðst hafa keypt
ótilgreindan fjölda verkanna og ætti
hann nokkur þeirra í félagi við Mat-
ter.
Ronald Spencer lögfræðingur Pol-
lock-Krasner stofnunarinnar hefur
sagt að grunur leiki á að nokkur verk
hafi verið seld öðrum listaverkamiðl-
urum eða -söfnurum.
Ronald Feldman hefur ekkert vilj-
að tjá sig um kaupverð verkanna, og
reyndar er óvíst hvort hann á nokk-
urt þeirra enn eða hvort hann hefur
selt þau. Komi í ljós, að verkin séu
ekki eftir Pollock, en að reynt hafi
verið að selja þau sem hans verk,
gæti það orðið til þess að koma list-
markaðnum í enn meira uppnám, og
hugsanlega skaða orðstír málarans.
Ófeðraður
Pollock
eða svindl
Deilt um verk sem
líkjast verkum
Jackson Pollocks
LANDNÁMSSÝNINGIN í
Aðalstræti verður opin alla
páskana. Þar eru hægt að
skoða minjar frá landnámsöld
og kynna sér sögu upphafs
byggðar í Reykjavík. Marg-
miðlunartækni er notuð til að
útskýra byggingarlag húsa á
þessum tíma. Hægt er að
skyggnast inn í híbýli fólks
með hjálp tölvutækni og ímynda sér hvernig lífi
heimilisfólksins var háttað. Hvers vegna settist
fólk hér að? Hvernig var umhverfið? Á hverju lifði
fólk? Við sumum spurninganna fæst svar, en öðr-
um ekki – og sýningargestir verða að virkja eigið
ímyndunarafl.
Söfn
Heimsókn í híbýli
landnámsfólksins
VORHEFTI tímaritsins Þjóð-
mál er komið út. Þar skrifar
Björn Bjarnason um kosninga-
skjálfta í röðum framsókn-
armanna, 12 ára ríkisstjórn-
arsamstarf og ástæður þess að
slitnaði upp úr stjórnarsam-
starfi Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks; Geir Ágústsson
spyr hvort vinstriflokkunum sé
treystandi fyrir stjórn rík-
isfjármála og Hannes Hólm-
steinn Gissurarson bendir á talnabrellur í mál-
flutningi prófessoranna Stefáns Ólafssonar og
Þorvalds Gylfasonar um hag Íslendinga. Margar
fleiri greinar eru í ritinu.
Útgáfa
Sjónhverfingar
prófessoranna
Í TILEFNI af sýningu á mál-
verkum Kristínar Gunnlaugs-
dóttur í Seltjarnarneskirkju
verður þar menningarhátíð á
laugardag frá 17–18.15. Gunn-
ar Kvaran sellóleikari flytur
Svítu nr. 1 í g-dúr eftir J.S.
Bach, Rakel Pétursdóttir
safnafræðingur spjallar um
listferil og verk Kristínar
Gunnlaugsdóttur, Bjarni Thor
Kristinsson bassasöngvari og
Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja íslensk
og erlend lög. Kaffiveitingar verða í safn-
aðarheimilinu frá kl. 16 – og einnig eftir að dag-
skránni lýkur. Aðgangur ókeypis.
Listir
Myndir, músík og
mælt mál
Kristín
Gunnlaugsdóttir
ÞAÐ VERÐUR ekki sagt um Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands að hún
sé við eina fjölina felld hvað varðar
verkefnaval en hún hefur komið
nokkuð víða við. Í dag verður klass-
ísk sinfóníutónlist í aðalhlutverki á
tónleikum hljómsveitarinnar í Gler-
árkirkju á Akureyri klukkan 16.
Verða þar flutt tvö verk eftir Lud-
vig van Beethoven, annars vegar
Sinfónía nr. 5 í c-moll, oft nefnd
„Örlagasinfonían“ og „Coriolan“
forleikur. Einnig verður fluttur
konsert í g-moll fyrir fiðlu og
hljómsveit eftir Max Bruch. Verkið
er í þremur þáttum og hefst fyrsti
kaflinn á pákuleik, síðan leikur
hljómsveitin nokkra takta áður en
einleikarinn kemur inn með und-
urblítt stef. Að sögn Guðmundar
Óla stjórnanda hljómsveitarinnar er
fiðlukonsertinn hugljúf tónsmíð
sem gerir miklar kröfur til einleik-
arans, bæði hvað varðar túlkun og
tækni.
Einleikari fiðlukonsertsins er Ari
Þór Vilhjálmsson en hann hefur ný-
lokið meistaranámi við New Eng-
land Conservatory of Music í Bost-
on og gegnir nú stöðu
aðstoðarleiðara annarrar fiðlu Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands.
Listaflétta
„Ég bíð uns birtir yfir“ er yf-
irskrift svokallaðrar „listafléttu“
sem Kór Langholtskirkju stendur
fyrir á föstudaginn langa klukkan
20 í Langholtskirkju. Verður þarna
blandað saman ýmsum listgreinum
líkt og gert var við mikla hrifningu
á afmæli Langholtssafnaðar um ár-
ið. Kórinn mun flytja söngdagskrá
sem samanstendur af verkum sem
öll tengjast píslarsögunni. Verkin
eru eftir fjögur tónskáld; Edward
Elgar, Trond Kverno, June Nixon
og W. A. Mozart. Einnig verður
fluttur sálmforleikur J. S. Bach, „O
Mensch, bewein dein Sünde Gross“.
Milli kafla munu Gunnar Stef-
ánsson og Hjörtur Pálsson lesa
fjögur ljóð sem þeir hafa valið sjálf-
ir og tengjast föstudeginum langa.
Þá hefur Listasafn Íslands lánað
nokkrar af Passíusálmamyndum
Barböru Árnason sem verða til sýn-
is í kirkjunni. Einnig hefur átta
metra háum krossi verið komið fyr-
ir í kirkjunni bak við altarið og mun
hann standa þar alla dymbilvikuna.
Andlegt verk
Að lokinni guðþjónustu í Vídal-
ínskirkju í Garðabæ á föstudaginn
langa, sem hefst kl. 11.00, hefst
flutningur á hinu andlega tónverki
„Sjö hugleiðingar fyrir fiðlu og
selló“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Flytjendur eru Guðný Guðmunds-
dóttir, fiðluleikari og Gunnar Kvar-
an, sellóleikari. Tónverkið er í sjö
hlutum og fylgir því mikil helgi
enda samið sérstaklega til flutnings
á milli Passíusálma Hallgríms Pét-
urssonar. Listanefnd Garðasóknar
stendur fyrir þessum viðburði sem
er þegar orðin kærkomin hefð í
Garðabæ.
Þá ber að geta þess að í kirkj-
unni verður til sýnis verkið „Hand-
hæga settið“ eftir Magnús Tóm-
asson.
Tónleikar verða haldnir víða um land yfir Páskahátíðina
Aflmikið tónaflóð
ÞAÐ ER leitun að þekktari sinfóníu
en „Örlagasinfóníunni“, fimmtu
sinfóníu Beethovens en hún verður
flutt af Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands á tónleikum í Glerárkirkju á
Akureyri klukkan 16 í dag.
„Við höfum nú spilað flestallar
sinfóníur Beethovens en þá fimmtu
höfum við ekki spilað fyrr en nú,“
segir Guðmundur Óli Gunnarsson,
stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands.
„Í þessu verki er hljómsveitin al-
gjörlega í forgrunni.“
Guðmundur segir að „Örlaga-
sinfónían“ sé fyrst og fremst tækni-
lega krefjandi verk en það sé sömu-
leiðis krefjandi af öðrum ástæðum.
„Þar að auki er þetta náttúrlega
frægasta sinfóníuverk allra tíma.
Hafi menn einhvern tíma heyrt eitt-
hvað í sinfóníu þá hafa menn heyrt
þetta verk. Alla vega fyrsta hlut-
ann,“ segir Guðmundur og bætir
við að það fylgi því ákveðin ögrun
að flytja svo þekkt verk.
„Þó að tónverk sé ævafornt og
allir áheyrendur eru búnir að heyra
það ótal sinnum þá þarf flytja það
eins og það sé nýtt. Þannig verður
upplifunin á verkinu sömuleiðis
ný.“
Þegar „Örlagasinfónían“ var
frumflutt í fyrsta sinn þótti verkið
mjög byltingarkennt og hneykslaði
marga. Byrjunarstefið þekkir hvert
mannsbarn en tónskáldið lýsti því
þannig sem það væri „engu líkara
en örlögin sjálf berðu dyra“. Að
sögn Guðmundar Óla er verkið
uppfullt af einhvers konar brjálæði
en á sama tíma er það hrein snilld.
Brjálæðisleg snilld.
Brjálæðisleg
snilld
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fær það verðuga verkefni að flytja „Ör-
lagasinfóníu“ Beethovens í Glerárkirkju í dag. Að sögn Guðmundar Óla
hljómsveitarstjóra er verkið afar krefjandi. Þarna er hljómsveitin al-
gjörlega í forgrunni andstætt því að spila undir einsöng eða kór.
Hljómsveitin í forgrunni
SÖFNIN á Eyrarbakka verða opin
um páskana og bjóða upp á tvær
ljósmyndasýningar.
Í borðstofu Hússins er ljós-
myndasýningin Vesturbúðin. Á sýn-
ingunni eru margvíslegar ljós-
myndir af Vesturbúðinni frá ýmsum
sjónarhornum. „Það er líklegt, að
hvergi hafi verzlunarhús hér á landi
verið betri né meiri en á Eyr-
arbakka,“ segir Jón J. Aðils um
Vesturbúðina á Eyrarbakka í riti
sínu um verslun Dana á Íslandi, en
nú er þar aðeins grasflötin ein. Sýn-
ingin var sett upp í tengslum við
málstofu um Vesturbúðina sem fyr-
irhugað er að halda á Eyrarbakka.
Í forsal Sjóminjasafnsins á Eyr-
arbakka hefur verið sett upp sýn-
ingin Ný aðföng, á ljósmyndum sem
nýlega hafa verið gefnar safninu.
Um þessar mundir er unnið að
skráningu á þeim og er enn verið að
afla upplýsinga um myndefnið.
Myndir þessar voru í fórum
hjónanna Arons Guðbrandssonar í
Kauphöllinni og konu hans Ásrúnar
Einarsdóttur annarsvegar og Þór-
laugar Bjarnadóttur ljósmóður á
Eyrarbakka hinsvegar.
Húsið á Eyrarbakka og Sjóminja-
safnið á Eyrarbakka verða opin frá
deginum í dag til annars í páskum kl.
14-17 og er ókeypis aðgangur að
söfnunum þessa daga. Í apríl og maí
verður opið á sömu tímum á laug-
ardögum og sunnudögum og á öðr-
um tímum eftir samkomulagi.
Nýjar gamlar myndir á Eyrarbaka
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Vettvangurinn Húsið er safn í sjálfu sér og innan dyra hýsir það byggða-
safn auk ljósmyndasýningarinnar sem opin verður um páskana.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samhljómur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands æfir fyrir tónleika á skírdag.
RITHÖFUNDURINN Michael
Dibdin lést síðastliðinn föstudag eft-
ir stutt veikindi. Hann var sextugur
að aldri.
Dibdin var þekktastur fyrir
glæpasögur sínar um rannsókn-
arlögreglumanninn Aurelio Zen.
Sögurnar gerðust allar á Ítalíu.
Fyrsta glæpasagan hét Ratking
og kom út árið 1988. Fyrir hana
hlaut hann glæpasagnaverðlaunin
Gullrýtinginn. Sögurnar um Zen
urðu á endanum tíu talsins.
Dibdin allur
♦♦♦